DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Clara

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri, hringlaga berustykki og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-7
DROPS Design: Mynstur nr cl-058
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 g nr 02, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 18 l x 28 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón og berustykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ATH: Athugið vel að í hluta umf í A.1 er mynstur í HVERRI umf.

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 184 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 22 l) = 8,4. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 7. og 8. l prjónaðar slétt saman.

ÚRTAKA-2 (ávið um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum á undan fyrsta og þriðja prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir öðru og fjórða prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út á undan fyrsta og þriðja prjónamerki og á eftir öðru og fjórða prjónamerki þannig:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna mynstur í A.1 er stykkið prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-202-218-240-264-294 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 22-20-28-26-34-40 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 162-182-190-214-230-254 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 8-13-7-13-9-7 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= fyrsta prjónamerki), * prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A (= 8 l), endurtakið A.1B yfir næstu 48-48-64-64-80-96 l (= 3-3-4-4-5-6 mynstureiningar 16 l), prjónið A.1C (= 9 l) *, setjið 1 prjónamerki (= annað prjónamerki), prjónið 16-26-14-26-18-14 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= þriðja prjónamerki), endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, setjið 1 prjónamerki (= fjórða prjónamerki) og endið á 8-13-7-13-9-7 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6 cm er lykkjum fækkað á undan fyrsta og þriðja prjónamerki og á eftir öðru og fjórða prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili alls 6 sinnum = 138-158-166-190-206-230 l. Þegar stykkið mælist 26 cm er aukið út á undan fyrsta og þriðja prjónamerki og á eftir öðru og fjórða prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-4-4-4-4-5 cm millibili alls 4 sinnum = 154-174-182-206-222-246 l.
Þegar stykkið mælist 40-42-42-44-44-46 cm, prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg, prjónið 71-81-83-95-101-113 l sl (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 71-81-83-95-101-113 l sl (= framstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Vegna mynstur í A.1 er stykkið prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 58-58-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Cotton Light.
Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 7 l jafnt yfir = 51-51-51-53-55-57 l. Næsta umf er prjónuð þannig: 1-1-1-2-3-4 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A (= 8 l), endurtakið A.1B yfir næstu 32 l (= 2 mynstureiningar 16 l), prjónið A.1C (= 9 l) og endið með 1-1-1-2-3-4 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 2 l mitt undir ermi (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Endurtakið útaukningu með 5-4-3½-3-2½-2 cm millibili alls 5-6-7-8-9-10 sinnum = 61-63-65-69-73-77 l. Þegar stykkið mælist 32-32-31-31-29-29 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l, prjónið 55-57-57-61-63-67 l sl og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 252-276-280-312-328-360 l. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar 14 l), JAFNFRAMT er fækkað um 14-24-14-18-20-24 l jafnt yfir í fyrstu umf – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 238-252-266-294-308-336 l á prjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 119-126-133-147-154-168 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, klippið frá.

HÁLSMÁL MEÐ UPPHÆKKUN:
Byrjið frá réttu fyrir miðju að aftan og prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjóna nr 3,5 þannig: Prjónið 7-7-8-9-9-10 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14-14-16-18-18-20 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 21-21-24-27-27-30 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28-28-32-36-36-40 l sl til baka. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið 7-7-8-9-9-10 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-64-72-72-80 l (= alls 8 umf), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka að miðju að aftan. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l þar sem fækkað er um 23-24-27-31-34-36 l jafnt yfir = 96-102-106-116-120-132 l á prjóni. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Fellið síðan laust af með sl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Clara sweater IV

Marit, Estonia

Clara, summer blouse

Christine, Denmark

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Benedetta wrote:

Grazie,gentilissime !

27.05.2017 - 17:59

country flag Benedetta wrote:

Buongiorno, ho finito il lavoro e adesso devo fare l'alzata. Come calcolo il centro dietro, non mi è chiaro da dove cominciare a contate le maglie per cominciare i ferri accorciati.Grazie mille

27.05.2017 - 16:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Benedetta. Per l'alzata, ha tagliato il filo, e adesso sposta le maglie sui ferri in modo che il giro inizi dalla maglia centrale del dietro. Potrebbe aiutarla cercare di individuare la maglia centrale nella parte del davanti/dietro, quando ha intrecciato le maglie per gli scalfi. Seguendo la m in verticale dovrebbe riuscire a capire dove iniziare con i ferri accorciati. Buon lavoro!

27.05.2017 - 17:11

country flag Blanchette wrote:

Moi j`ai fais pour mes quatre enfants des pulls. J`ai bien réussi , mais mes quatre enfants disent que sous les manches c`est un peu serré. Qu`est - ce que je n`ai pas fais de correct . Merci pour votre aide c`est très appréciée

09.05.2017 - 13:43

DROPS Design answered:

Bonjour Blanchette, pensez à toujours bien vérifier votre tension en hauteur, pour un raglan ou un empiècement arrondi, vous devez avoir le bon nombre de rangs pour 10 cm ou bien ajuster en tricotant des rangs sans diminutions à intervalles réguliers en hauteur. Bon tricot!

09.05.2017 - 16:07

country flag Blanchette wrote:

Moi je veux savoir ce que vous voulez dire quand vous demandez une augmentation 2 maille au milieu sous la manche du modèle no 170-7 . Car je tricote la manche séparée .Merci

29.04.2017 - 23:56

DROPS Design answered:

Bonjour Blanchette, vous augmentez 1 m de chaque côté du marqueur du début du tour ainsi, en commençant quand il reste 1 m avant la fin du tour, faites 1 jeté, tricotez 1 m, glissez le marqueur, tricotez 1 m et faites 1 jeté = vous avez augmenté 2 m au milieu sous la manche. Répétez ces augmentations comme indiqué pour votre taille. Bon tricot!

02.05.2017 - 10:02

country flag Maria wrote:

Cenefa Cuando dice comenzar pro el centro de la espalda ¿singnifica que tengo que empezar no por el lateral de la espalda sinodividir los puntos y justo en el medio? no tengo claro como comenzar la cenefa Gracias

09.04.2017 - 11:44

DROPS Design answered:

Hola Maria. Es correcto. La elevación en la espalda se comienza a trabajar en el centro de la espalda, que tienes que marcar con 1 marcapuntos. Luego, trabajamos las vueltas acortadas de ida y vuelta a cada lado de este marcapuntos.

09.04.2017 - 20:25

country flag Hanne Madsen wrote:

Er der ikke et alternativt garn til denne model ?

02.01.2017 - 13:29

DROPS Design answered:

Hej Hanne. Jo da. Du kan erstatte med én af disse garner i garngruppe B

09.01.2017 - 15:23

country flag Maria wrote:

Hola No me queda claro cómo hacer la cenefa del escote con elevación en la espalda. Me la podrías explicar más detalladamente? Gracias

02.10.2016 - 16:16

DROPS Design answered:

Hola Maria. Debajo del patrón, tienes los videos explicativos de como trabajar las vtas acortadas, por ejemplo:

09.10.2016 - 11:37

country flag Keidi wrote:

Kuidas saada aru antud mustri osast 1 SM (= 1. SM), * koo mustrit skeemil A.1A (= 8 s), korda skeemi A.1B järgmisel 48-48-64-64-80-96 s (= 3-3-4-4-5-6 kordust 16 s), skeemi A.1C (= 9 s) *, paigalda 1 SM (= 2. SM), koo 16-26-14-26-18-14 s parempidises koes, paigalda 1 SM (= 3. SM), korda * kuni * veel 1 kord, paigalda 1 SM (= 4. SM), Mida tähendab antud kontekstis SM, näiteks 1SM (=4. SM).

11.09.2016 - 12:11

DROPS Design answered:

SM on lühend sõnast silmusemärkija. Juhendi aluses on see välja toodud. Head kudumist!

17.11.2016 - 13:51

country flag Rocio wrote:

Hola Cuando dice que hay que aumentar o disminuir cuando la labor mide 6cm y posteriormente, se mide desde el inicio del diagrama A.1A o desde el incio de los tres pliegues en punto musgo. Gracias

07.08.2016 - 16:37

DROPS Design answered:

Hola Rocio. Se mide desde la fila de montaje, es decir desde el inicio de la labor.

07.08.2016 - 19:07

country flag Loli wrote:

Para hacer la cenefa del escote cuando dice: pts de derecho, girar y estirar el hilo y así continuada mente , se hace como las vueltas cortas que aparece en los vídeos de ayuda? Gracias

14.07.2016 - 22:09

DROPS Design answered:

Hola Loli. Exactamente, la cenefa en la parte de la espalda se trabaja con las filas acortadas.

15.07.2016 - 20:39