DROPS Cotton Light uni colour 50% Bómull, 50% Polyester |
374.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Light uni colour 50% Bómull, 50% Polyester 374.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl | |
= br | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Clara |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri, hringlaga berustykki og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-7 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ATH: Athugið vel að í hluta umf í A.1 er mynstur í HVERRI umf. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 184 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 22 l) = 8,4. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 7. og 8. l prjónaðar slétt saman. ÚRTAKA-2 (ávið um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum á undan fyrsta og þriðja prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir öðru og fjórða prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út á undan fyrsta og þriðja prjónamerki og á eftir öðru og fjórða prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna mynstur í A.1 er stykkið prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 184-202-218-240-264-294 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 22-20-28-26-34-40 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 162-182-190-214-230-254 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 8-13-7-13-9-7 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= fyrsta prjónamerki), * prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A (= 8 l), endurtakið A.1B yfir næstu 48-48-64-64-80-96 l (= 3-3-4-4-5-6 mynstureiningar 16 l), prjónið A.1C (= 9 l) *, setjið 1 prjónamerki (= annað prjónamerki), prjónið 16-26-14-26-18-14 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= þriðja prjónamerki), endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, setjið 1 prjónamerki (= fjórða prjónamerki) og endið á 8-13-7-13-9-7 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er lykkjum fækkað á undan fyrsta og þriðja prjónamerki og á eftir öðru og fjórða prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili alls 6 sinnum = 138-158-166-190-206-230 l. Þegar stykkið mælist 26 cm er aukið út á undan fyrsta og þriðja prjónamerki og á eftir öðru og fjórða prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-4-4-4-4-5 cm millibili alls 4 sinnum = 154-174-182-206-222-246 l. Þegar stykkið mælist 40-42-42-44-44-46 cm, prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg, prjónið 71-81-83-95-101-113 l sl (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 71-81-83-95-101-113 l sl (= framstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Vegna mynstur í A.1 er stykkið prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 58-58-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 7 l jafnt yfir = 51-51-51-53-55-57 l. Næsta umf er prjónuð þannig: 1-1-1-2-3-4 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A (= 8 l), endurtakið A.1B yfir næstu 32 l (= 2 mynstureiningar 16 l), prjónið A.1C (= 9 l) og endið með 1-1-1-2-3-4 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 2 l mitt undir ermi (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Endurtakið útaukningu með 5-4-3½-3-2½-2 cm millibili alls 5-6-7-8-9-10 sinnum = 61-63-65-69-73-77 l. Þegar stykkið mælist 32-32-31-31-29-29 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l, prjónið 55-57-57-61-63-67 l sl og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 252-276-280-312-328-360 l. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar 14 l), JAFNFRAMT er fækkað um 14-24-14-18-20-24 l jafnt yfir í fyrstu umf – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 238-252-266-294-308-336 l á prjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 119-126-133-147-154-168 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, klippið frá. HÁLSMÁL MEÐ UPPHÆKKUN: Byrjið frá réttu fyrir miðju að aftan og prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjóna nr 3,5 þannig: Prjónið 7-7-8-9-9-10 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14-14-16-18-18-20 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 21-21-24-27-27-30 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28-28-32-36-36-40 l sl til baka. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið 7-7-8-9-9-10 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-64-72-72-80 l (= alls 8 umf), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka að miðju að aftan. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l þar sem fækkað er um 23-24-27-31-34-36 l jafnt yfir = 96-102-106-116-120-132 l á prjóni. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Fellið síðan laust af með sl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6917 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (50)
Rose Marie wrote:
Bonjour, Pour le modèle cl-058, faut-il faire le diagramme sur les 26 mailles en jersey entre les marqueurs je vous remercie
19.09.2019 - 16:37DROPS Design answered:
Bonjour Rose Marie, en taille M et XL, on doit avoir 26 mailles jersey (= 13 de chaque côté de chacun des marqueurs) sur les côtés et les diagrammes A.1A, A.1B, A.1C entre ces 26 mailles jersey. On diminue et on augmente ensuite sur les côtés = dans les mailles jersey. Bon tricot!
20.09.2019 - 08:23Anne-marie Grenier wrote:
J'ai fais ce pull et je l'adore. Je l'ai même lavé dans la laveuse et je l'ai séché à plat et il est resté besau.
12.07.2019 - 15:52Heathef wrote:
Thanks but how many stitches in do I strt it?
24.07.2018 - 21:36DROPS Design answered:
Dear Heather, you should start the elevation mid on back piece. Happy knitting!
25.07.2018 - 08:16Heather wrote:
Hi there. I don’t understand the elevation part. Where do you start? Also is it necessary that this step is done?
24.07.2018 - 00:13DROPS Design answered:
Dear Heather, working the elevation on back piece will allow the neckline on back piece being somewhat higher than the neckline on front piece. Starting on mid back work in garter stitch back and forth with short rows, working some more sts on each row for a total of 8 rows. See also video below (worked top down in the video but the technique is the same, just remember to work here in garter stitch). You can leave it out, and neckline will be the same on front and back piece. Happy knitting!
24.07.2018 - 09:44ANNE DE LOOF wrote:
Buongiorno, vorrei realizzare questo progetto per una bambina di circa 11 anni, c'è un modo per adattare la taglia? grazie mille e buon lavoro
02.07.2018 - 10:43DROPS Design answered:
Buongiorno Anne, può provare a vedere se le misure della taglia più piccola possono corrispondere a quelle che le servono, altrimenti per un aiuto più personalizzato si può rivolgere al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
02.07.2018 - 16:27Guiberteau wrote:
A 6 cm il faut diminuer une maille avant le 1er marqueur et le 3eme puis le 2eme et 4eme pouvez vous m'aider
14.03.2018 - 13:49DROPS Design answered:
Bonjour Mme Guiberteau, à 6 cm, vous diminuez avant le 1er et le 3ème marqueur en tricotant 2 m ens à l'end juste avant le marqueur et après le 2ème et le 4ème marqueur en tricotant après le marqueur: glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée = 4 m diminuées. Bon tricot!
14.03.2018 - 16:01Huguette wrote:
Je crois m'être mal exprimée dans ma question précédente. Je précise: la partie inférieure tricotée en côtes se redresse et forme un angle de 90 degrés par rapport au tricot (il ne "roule" pas comme le ferait un tricot en jersey). Même chose avec le modèle 176-4 que j'ai tricoté. Comment résoudre ce problème? Merci !!
13.12.2017 - 22:09DROPS Design answered:
Bonjour Huguette, votre question avait été bien comprise et vous trouverez la réponse ci-dessous etsous l'autre modèle. Bon tricot!
14.12.2017 - 08:38Huguette wrote:
J'ai terminé ce modèle récemment ainsi que le modèle 176-4. J'ai un problème avec les deux pulls: le devant inférieur "roule"; il y a comme un faux pli dans le tricot. Les deux pulls sont pour offrir; j'espère que vous m'aiderez à régler ce problème ! Merci !
13.12.2017 - 19:38DROPS Design answered:
Bonjour Huguette, vous pouvez simplement laver le pull en suivant bien les consignes de l'étiquette + les généralités ici et le faire sécher à plat aux mesures finales - vous pouvez ajouter quelques épingles (inoxydables) si nécessaire. Votre magasin DROPS pourra très certainement vous donner d'autres astuces. Bon tricot!
14.12.2017 - 08:33Christine wrote:
Hallo, wird die gesamte passe mit der kleinerenNadel 3,5 gestrickt? Gruß Christine
18.09.2017 - 08:13DROPS Design answered:
Liebe Christine, ja, Passe wird mit Nadel 3,5 bis zur Ende gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
18.09.2017 - 09:30Monika wrote:
Dobrý deň, rada by som vedela ak po dokončení sedla odstrihnem niť, kde a kedy sa pletie zvýšený priekrčník. Trošku mi to nedáva zmysel. Tvaruje sa ešte počas pletenia alebo sa znovu nebrajú očká zo sedla. Ďakujem
24.07.2017 - 16:26DROPS Design answered:
Dobrý den, Moniko, Oka znovu nabírat nemusíte - máte je stále na jehlici, jde o to, posunout začátek kruhové řady doprostřed zadního dílu, aby bylo možné správně vytvarovat průkrčník. Po dokončení sedla máte pravděpodobně pracovní nit (začátek/konec kruhové řady) na straně, v raglánu, proto je potřeba nit odstřihnout a napojit uprostřed zadního dílu (oka na kruhové jehlici jen přesunete podle potřeby). Hodně zdaru! Hana
24.07.2017 - 22:28