DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 170-12
DROPS Design: Mynstur nr cm-040
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst: 140 cm.
Lengd fyrir miðju: 70 cm.

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
450 g litur nr 17, vanillugulur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 4,5 með Cotton Merino.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 4 l jafnt yfir í hverri umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING = 18 l. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið 1 prjónamerki, * A.1 (= 2 l), setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 3 l garðaprjón = 7 prjónamerki í stykkið. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með A.1 og 3 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 138 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu: 3 l garðaprjón, endurtakið A.2 (= 11 l) þar til 3 l eru eftir (= 12 sinnum á breidd), endið á 3 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 186 l í umf. Næsta umf er prjónið frá réttu: 3 l garðaprjón, endurtakið A.3 (= 30 l) þar til 3 l eru eftir (= 6 sinnum á breidd), endið á 3 l garðaprjón. Í síðustu umf frá réttu í A.3 er aukið út um 1 l eftir 3 l garðaprjón í byrjun á umf. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 277 l í umf. Stykkið mælist nú ca 38 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju).

Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, prjónið A.4 (= 3 l), * A.5 (= 40 l), A.6 (= 5 l) *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið A.5, A.7 (= 3 l), endið á 3 l garðaprjón. Útaukning í A.4/A.6/A.7 hefur verið teiknuð inn í A.5 til þess að mynstrið fái pláss. Endurtakið A.4/A.6/A.7 á hæðina þar til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 361 l í umf. Stykkið mælist ca 53 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju).

Prjónið frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, 1 l garðaprjón (þessi l er prjónuð í garðaprjóni þegar prjónað er garðaprjón í A.8 og sléttprjóni þegar prjónað er sléttprjón í A.8), endurtakið A.8 (= 59 l) þar til 3 l eru eftir (= 6 sinnum á breidd), endið á 3 l garðaprjón. ATH: Gataumferð í A.8 gengur ekki jafnt upp í mynstri, en gengur jafnt upp í umf, fyrsta l eftir 3 l garðaprjón frá réttu er prjónuð með sléttprjóni.

Í síðustu umf frá réttu er sett 1 prjónamerki mitt í hverja mynstureiningu af A.8, þ.e.a.s. á milli: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, setjið 1 prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 397 l í umf. Stykkið mælist ca 58 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju).

Prjónið í næstu umf frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, A.4 yfir næstu 3 l, * endurtakið A.9 (= 10 l) alls 6 sinnum á breiddina, A.6 yfir næstu 5 l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, endurtakið A.9 (= 10 l) alls 6 sinnum á breiddina, A.7 yfir næstu 3 l, endið á 3 l garðaprjón. Útauknu l í A.4/A.6/A.7 eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið A.4/A.6/A.7 á hæðina (passið að A.4/A.6/A.7 komi yfir sig sjálft) þar til A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 433 l í umf.
Stykkið mælist ca 65 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju).

Prjónið síðan stykkið áfram með garðaprjóni frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, * A.10 (= 2 l), prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, fellið af eins og áður (þ.e.a.s. takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið næstu 2 l slétt saman), prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.11 yfir næstu 2 l *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið á 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 70 cm þar sem það er lengst.
Fellið laust af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.10.2016
SJAL:...Prjónið í næstu umf frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, A.4 yfir næstu 3 l, * endurtakið A.9 (= 10 l) alls 6 sinnum á breiddina, A.6 yfir næstu 5 l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, endurtakið A.9 (= 10 l) alls 6 sinnum á breiddina, A.7 yfir næstu 3 l, endið á 3 l garðaprjón. Útauknu l í A.4/A.6/A.7 eru prjónaðar með sléttprjóni. Endurtakið A.4/A.6/A.7 á hæðina (passið að A.4/A.6/A.7 komi yfir sig sjálft) þar til A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 433 l í umf.
Stykkið mælist ca 65 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju).

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lykkjufjöldinn í þessari umferð gengur ekki upp í mynsturteikningu, en gengur upp í öllu sjalinu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Amanda Karlsson wrote:

I have just started A9 but i think i have the wrong number of st. Shuld i include the 3 first and last st in the ammount, because if not i still have 12 left after doing everything but the last A7 and i dont understand what i am doing wrong

19.03.2023 - 11:47

DROPS Design answered:

Dear Amanda, work the first row as follows. Start with 3 stitches in garter stitch and 3 stitches in A.4. Now, work the next section 5 times in total: 6 repeats of A.9, 5 stitches in A.5. At this point, you should have worked 331 stitches (3+3+(6x10+5)x5). Work 6 repeats of A.9 (=60 stitches), 3 stitches in A.7 and 3 stitches in garter stitch. Now, you have worked over all 397 stitches (331+60+3+3=397). Happy knitting!

19.03.2023 - 19:15

country flag Amanda Karlsson wrote:

I am now starting A5. In the pattern it says that A4 and so on is included in A5, how do you mean? Do I follow all stitches as shown in the pattern or do I need to accommodate for anything?

07.03.2023 - 11:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Karlsson, when working A.4; A.6 and A.7 there are yarn overs not compensated by a decrease (see row 3 and 9), these increases are drawn in A.5, so that you can just consider A.4 and A.7 are always worked over 3 sts and A.6 over 5 sts, and A.5 will then increase by 2 sts as shown in diagram. Happy knitting!

07.03.2023 - 14:34

country flag Magda wrote:

Dzień dobry, chyba właśnie o to chodzi. Markerów powinno być więcej, co na końcu nie jest wyjaśnione. Popróbowałam i wyszło mi, że powinno być tak:3 o. francuskie, A 10, o. dżersejem do markera (po dwa oczka razem z każdej strony), o. dżersejem do schematu A6 i nad nim, po obu stronach środkowego oczka schematu A6, schematy A11 i A10. itd. Na końcu, przed 3 o. oczka schemat A 11. Inaczej kształt chusty nie będzie odpowiedni. Pozdrawiam

25.10.2021 - 08:54

DROPS Design answered:

Dziękuję za feedback Magdo. Już zgłaszam korektę. Pozdrawiamy

25.10.2021 - 09:53

country flag Magda wrote:

Dzień dobry, nie rozumiem ostatniej części. Markerów jest 6, więc wzór nie wychodzi równo. Zaczyna się od A10, potem do markera i po 2 razem z każdej strony markera, do następnego markera i z jednej strony A11, a z drugiej A10 itd. Przy ostatnim markerze z obu jego stron są schematy A11 i A10, potem dżersej do końca. A co przed 3 ostatnimi oczkami francuskimi? Pozdrawiam

21.10.2021 - 17:57

DROPS Design answered:

Witaj Magdo, może chodzić o to, że na początku było włożonych 7 markerów, a później jeszcze 6 nitek markerów (na środku każdego schematu A.8). Wcześniejsze markery nie zostały usunięte. Wydaje mi się, że tu powstał błąd terminologiczny. Powinnaś powtarzać następującą sekwencję: ...*A.10 (= 2 o.), przer. ściegiem francuskim aż zostaje 2 o. przed NITKĄ MARKEREM, zamykać o. jak wcześniej (…..), przer. ściegiem francuskim aż zostaje 2 o. przed MARKEREM, przer. A.11 ponad 2 nast. o.*, powt. od *-*. Napisz czy jest ok. Pozdrawiamy!

24.10.2021 - 20:43

country flag Minu wrote:

Hallo liebes Drops Team. Wie viele markierer müssen es bei A 10 und A 11 sein ?

16.09.2020 - 22:04

DROPS Design answered:

Liebe Minu, die Markierungen werden in der Mitte von jedem A.8 eingesetzt = es sind 6 Markierungen (je in der Mitte von A.6/A.7). Viel Spaß beim stricken!

17.09.2020 - 10:11

country flag Chebot Michèle wrote:

Bonjour,\\r\\nPourrais je avoir la traduction en français pour ce modèle \\r\\nMerci infiniment \\r\\nMChebot

19.07.2018 - 13:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chebot, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez sur le menu déroulant sous la photo pour sélectionner "français". Bon tricot!

19.07.2018 - 14:38

Genevieve wrote:

I'm on row 5 of A5. Started with 3 sts in garter st. Followed by A5 40 stitches and left with on 3 stitches for A6 instead of 5 stitches. Can enlighten what I've done wrong?

17.06.2018 - 06:30

DROPS Design answered:

Dear Genevieve, work A.5 as shown in diagram, ie the decreases in the middle of A.5 should be always worked over the middle sts, on row 4 you see the increases made in the other diagrams - just continue working row 5 as shown staring with K4 before YO (and ending with K4 after last YO) and working the decreases in the middle of repeat as before. Happy knitting!

18.06.2018 - 08:34

country flag Genevieve wrote:

Work next row as follows from RS: 3 sts in garter st, work A.4 (= 3 sts), * A.5 (= 40 sts), A.6 (= 5 sts) *, repeat from *-* 4 more times, work A.5, A.7 (= 3 sts), finish with 3 sts in garter st. Inc in A.4/A.6/A.7 is drawn in A.5 so that the pattern fits. I'm stuck here. Starting this section and can advise where do i do the increase? The pattern chart doesn\'t state any increase.

17.06.2018 - 06:20

DROPS Design answered:

Dear Genevieve, you are increasing in A.4, A.6 and A.7 (= see rows with YOs but without dec = row 3 and 9). These decrease are shown in A.5 - make sure you will always have the correct number of sts in A.4/A.7 (= 3 sts) and A.6 (= 5 sts), and that the YO's in these diagrams will always lined up. Happy knitting!

18.06.2018 - 08:31

country flag Lise wrote:

Je suis dans le modèle 170-12 ,dans la séquence A5 et cela fait trois fois que je détricote le troisième rang. Je comprends qu’il ne faut pas faire les augmentations,mais dans A4, A6 et A7 il y a des mailles glissé et des mailles tricoter ensemble. Donc ma question est les augmentations ont les fait plus mais les diminutions elles oui?

07.06.2018 - 12:00

DROPS Design answered:

Bonjour Lise, tricotez les diagrammes comme indiqué: 3 m point mousse, A.4 (= 3 m), *A.5 (= 40 m), A.6 (= 5 m) *, répétez de *-* encore 4 fois, terminez par A.5, A.7 (= 3 m) et 3 m point mousse. Les augmentations vont se faire dans A.4, A.6 et A.7 mais sont reportées au rang suivant sur les diagrammes A.5. Veillez à toujours bien tricoter A.4 et A.7 sur les mêmes 3 mailles et A.6 sur les mêmes 5 mailles (= pour que les jours soient bien alignés). Bon tricot!

07.06.2018 - 13:26

country flag Lorraine wrote:

Autre question 170-12 je suis à la section A.5 première section il me faut 48 mailles et j'en ai que 45 comment j'intègre le A.4 car il me faut 45 mailles pour le A.5A.6 et j'aurai le même problème à la fin pour A.7 merci

19.08.2017 - 04:14

DROPS Design answered:

Bonjour Lorraine. Avant de commencer le diagramme A.5, vous avez 277 m. Vous tricotez le rang suivant ainsi: 3 m point mousse, A.4 1 fois (=3 m), vous répétez A.5 (=40m) + A.6 (=5 m) 5 fois en total, puis A.5 (40 m), A.7 (3m) et enfin 3 m point mousse. En total : 3+3+(40+5)*5+40+3+3= 277 m. Bon tricot.

20.08.2017 - 17:14