DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Priscilla

Hekluð peysa úr DROPS Air með laskalínu og gatamynstri. Hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1183
DROPS Design: Mynstur nr ai-022
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 02, hveiti

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 tbst x 4,5 verði 10 x 10 cm eða 12 fl x 14 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll, þar til í lok umf þá er hekluð 1 kl í fyrstu ll.
Í byrjun á hverri umf með tbst, er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll, þar til í lok umf þá er hekluð 1 kl í 4. ll.
Í byrjun á hverri umf með þbst, er fyrsta þbst skipt út fyrir 5 ll, þar til í lok umf þá er hekluð 1 kl í 5. ll.

LEIÐBEININGAR:
Ef heklfestan á hæðina verður ekki nógu há, þá er hægt að skipta út öllum tbst fyrir þbst.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 tbst með því að hekla 2 tbst í sömu l.

MYNSTUR-1:
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 fl í fremri lykkjubogann á hverjum tbst.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tbst í aftari lykkjubogann á hverri fl. Endurtakið umf 1-2 til loka.

MYNSTUR-2:
UMFERÐ 1: Heklið 1 tbst í aftari lykkjubogann á hverri fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í aftari lykkjubogann á hverjum tbst.
Endurtakið umf 1-2 til loka.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 3 tbst á undan A.1 á FRAM- OG BAKSTYKKI þannig: Heklið eins og áður þar til 3 fl eru eftir á undan A.1, heklið 2 tbst í hverja af næstu 3 fl.
Aukið út um 3 tbst á eftir A.1 á FRAM- OG BAKSTYKKI þannig: Heklið 2 tbst í hverja af næstu 3 fl á eftir A.1.
Aukið út um 3 tbst á undan A.1 á ERMI þannig: Heklið 4 tbst í fl á undan A.1
Aukið út um 3 tbst á eftir A.1 á ERMI þannig: Heklið 4 tbst í fyrstu fl á eftir A.1
Aukið út um 2 tbst á undan A.1 þannig: Heklið eins og áður þar til 2 fl eru eftir á undan A.1, heklið 2 tbst í hverja og eina af 2 næstu fl.
Aukið út um 2 tbst á eftir A.1 þannig: Heklið 2 tbst í hvora af næstu 2 fl á eftir A.1.
Aukið út um 1 tbst á undan A.1 þannig: Heklið eins og áður þar til 1 fl er eftir á undan A.1, heklið 2 tbst í fl.
Aukið út um 1 tbst á eftir A.1 þannig: Heklið 2 tbst í fyrstu fl á eftir A.1.

ÚRTAKA:
Heklið 1 tbst/fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu tbst/fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/tbst.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

A.1 er heklað þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 fl, * heklið 1 tbst í aftari lykkjubogann á næstu fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 tbst í sömu l alveg eins *, hoppið yfir 3 fl, endurtakið frá *-* 1 sinni, dagið þráðinn í gegnum allar 7 l á heklunálinni, 3 ll, hoppið yfir 1 fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af 3 ll, 1 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 3 ll.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 76-76-80-80-84-84 ll með heklunál nr 6 með Air og tengið saman í hring með 1 kl í 1.ll.
ATH: Hver umf er hekluð saman í lok umf áður en stykkinu er snúið við. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 fl í hverja ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR = 76-76-80-80-84-84 fl. Heklið síðan frá réttu þannig: Allir tbst eru heklaðir í aftari lykkjubogann á fl og lesið LEIÐBEININGAR. Heklið 1 tbst í herja af fyrstu 11-11-12-12-13-13 fl JAFNFRAMT er aukið út um 1-3-3-5-7-9 tbst jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-2 – (= hálft bakstykki), A.1 yfir næstu 7 fl, 1 tbst í hvora af næstu 2 fl, A.1 yfir næstu 7 fl (= hægri ermi), 1 tbst í hverja af næstu 22-22-24-24-26-26 fl JAFNFRAMT er aukið út um 2-6-6-10-14-18 tbst jafnt yfir (= framstykki), A.1 yfir næstu 7 fl, 1 tbst í hvora af næstu 2 fl, A.1 yfir næstu 7 fl, (= vinstri ermi), 1 tbst í hverja af næstu 11-11-12-12-13-13 fl JAFNFRAMT er aukið út um 1-3-3-5-7-9 tbst jafnt yfir (= hálft bakstykki). Heklið MYNSTUR-1 yfir tbst og A.1 yfir A.1 eins og áður. Í fyrstu umf í mynstri-1 eru 80-88-92-100-112-120 fl (meðtalið A.1). Mynstur-1 og A.1 er endurtekið á hæðina til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf (= tbst-umf) er aukið út fyrir laskalínu í hverri umf frá réttu (þ.e.a.s. í hverri umf með tbst) hvoru megin við A.1 – LESIÐ ÚTAUKNING-1 – þannig: Aukið út um 3 tbst hvoru megin við A.1 alls 1 sinni, aukið síðan út um 2 tbst hvoru megin við A.1 alls 3-4-4-5-5-5 sinnum, síðan 1 tbst hvoru megin við A.1 alls 1-0-1-0-1-2 sinnum (= 160-176-188-204-224-240 l alls). Í næstu umf (= frá röngu með fl) er heklað þannig: Allar fl eru heklaðar í fremri lykkjubogann á tbst. Heklið 1 fl í hvern af fyrstu 22-25-27-30-34-37 tbst, heklið 8 ll, setjið 1 prjónamerki í 4. ll, hoppið yfir: A.1 + 22-24-26-28-30-32 tbst + A.1 (= ermi), heklið 1 fl í hverja af næstu 44-50-54-60-68-74 tbst, heklið 8 ll, setjið 1 prjónamerki í 4. ll, hoppið yfir: A.1 + 22-24-26-28-30-32 tbst + A.1 (= ermi), 1 fl í hverja af næstu 22-25-27-30-34-37 tbst = 88-100-108-120-136-148 fl (meðtalið A.1) og 16 ll. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Munið eftir LEIÐBEININGAR! Heklið næstu umf (= frá réttu) þannig: Mynstur-1 yfir allar l (þ.e.a.s. heklið 1 tbst í hverja ll undir ermi) = 104-116-124-136-152-164 fl í umf. Heklið mynstur-1 yfir fram- og bakstykki eins og áður. Þegar stykkið mælist 6 cm, stillið af að næsta umf er með tbst, aukið út um 1 tbst hvoru megin við hvert prjónamerki á hlið (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu í 8. hverjum cm 3 sinnum til viðbótar. Í næstu umf með fl eru 120-132-140-152-168-180 fl í umf. Þegar stykkið mælist 38-40-39-41-41-40 cm frá prjónamerki, passið að síðasta umferð er með fl, klippið frá og festið enda.

ERMI:
= A.1 + 22-24-26-28-30-32 tbst + A.1. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Ermin er nú hekluð í hring ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll á þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 1 fl í hverja og eina af næstu 3 ll, heklið síðustu umf á A.1 (= fl) yfir A.1, 1 fl í aftari lykkjubogann í hvern af næstu 22-24-26-28-30-32 tbst, síðasta umf A.1 yfir A.1, áður en 1 fl eru hekluð í hverja af þeim 4 ll sem eftir eru undir ermi = 44-46-48-50-52-54 fl. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Heklið síðan stykkið áfram með MYNSTUR -2 – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 4 cm er fækkað um 1 fl/st hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 5-4-4-4-4-3 cm millibili 7-8-8-9-9-10 sinnum til viðbótar = 28-28-30-30-32-32 fl/tbst. Heklið þar til stykkið mælist 46-47-45-46-44-42 cm, stillið af að síðasta umf er með fl. Heklið 2 umf með 1 fl í aftari lykkjubogann á hverri fl (= alls 3 umf með fl neðst á ermi). Klippið frá og festið endann.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Byrjið fyrir miðju að framan og heklið frá réttu þannig: 1 fl í aftari lykkjubogann á hverri fl JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-5-6-6 fl jafnt yfir = 72-72-75-75-78-78 fl. Snúið við og heklið frá röngu: 1 fl í fremri lykkjubogann á hverri fl JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-5-6-6 fl jafnt yfir = 68-68-70-70-72-72 fl. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.10.2016
Leiðrétting í ÚTAUKNING-1

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fyrsta umf er útskýrð í uppskrift
symbols = hoppið yfir 1 fl, * heklið 1 tbst í aftari lykkjubogann á næstu fl, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 tbst í sömu l alveg eins *, hoppið yfir 3 fl, endurtakið frá *-* 1 sinni, dragið bandið í gegnum allar 7 l á heklunálinni.
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1183

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag DUVERT Anne-Lise wrote:

1 ----Dans la première partie empiècement , je fais la taille M A la fin du paragraphe . il est dit : au rang suivant crocheter sur l'envers en ms 27ms 8ml A1 26ms A1 54ms 8ml A1 26ms A1 27ms 16ml = 108 ms y compri A1 Pour moi 27+26+54+26+27= 160 ms et non 108 `2----- comment peux t on passer de 188ms à 108 ??? Je ne comprend pas , je suis perdue pouvez vous m'expliquer, ? merci Cordialement Anne-Lise

09.05.2022 - 09:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Duvert, vous en êtes à la séparation de l'empiècement pour le dos/le devant et les manches; pour les manches, vous devez sauter: A.1 + 26 brides + A.1, autrement dit, vous crochetez: 27 ms (1/2 dos) + 8 ml (sous la manche) + 54 ms (devant) + 8 ml (sous l'autre manche) + 27 ms (demi-dos) = 27+54+27= 108 mailles serrées + 2 fois 8 mailles en l'air, au 1er tour du DOS & DEVAN, vous crochèterez 1 ms dans chaque maille = 108+16=124 ms (en taille L = 3ème série de chiffres, en taille M = 2ème taille, vous avez un nombre de mailles différent). Bon crochet!

09.05.2022 - 12:48

country flag Giulia wrote:

Buongiorno, anche nella realizzazione delle maniche va sostituita la maglia di inizio giro con delle catenelle? Inoltre, man mano che procedo, il centro del sotto manica, contrassegnato dal segnapunti, si sposta via via.. alla fine i punti di inizio tra i giri si trovano su una diagonale e non su una linea retta, cosa sbaglio? Grazie

22.02.2020 - 13:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Giulia. Sì, anche sulle maniche la prima maglia viene sostituita da catenelle. L’inizio del giro rimane sempre nella stessa posizione, al centro, sotto manica. Buon lavoro!

23.02.2020 - 20:52

country flag Rosemary Lee wrote:

On the second row, the sleeve has 8 stitches in between the 2 A1s. The next row asks us to miss the A1s at the top of the sleeve and the 22 d.trebles in between. Where do these 22 come from please? I have been over and over the pattern and the video but have found no explanation.

15.01.2019 - 13:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lee, on first round you start with 7 dtr between A.1 on sleeve, then you increase 3 dtr in each of the 2 dtr = there are 6 dtr on each sleeve between both A.1. This video shows how to increase the 3 dtr, then how to increase 2 dtr on each side of A.1. Happy crocheting!

15.01.2019 - 16:43

country flag Sheryl wrote:

Two questions. 1st- In Yoke where it says Inc 2 tr on each side of A.1 (5) times total. I am presuming that means on each of the next 5 rows? 2nd- after the chain 8 it says skip: A.1 + 22-24-26-28-30-32 tr + A.1 what is the 30? I have the 68 on the front and the two 34 half's for the back 68. If I hook the chain 8 to the other side of the A.1 it makes the hole for the arm way to small. This is for a XXL sweater. Thank you!

03.01.2019 - 20:20

DROPS Design answered:

Dear Sheryl, you increase on each side of A.1 every row from right side, this means every other row, not every row worked = 5 times require then 10 rows. On 2nd question, you crochet 8 chain (mid under sleeve) and skip the next stitches for sleeve, ie: the sts for A.1 + the next 30 sts + the sts for next A.1) then continue round with 1 sc in each of the next 68 tr (front piece). Happy crocheting!

04.01.2019 - 12:14

country flag Anna Larsen wrote:

Man kan IKKE bare hækle rundt i stedet for frem og tilbage på ærmerne. Eller rettere: det kan man godt, men så kommer ærmerne til at se anderledes ud end kroppen. Det har noget at gøre med, hvordan maskerne vender på fastmaske-omgangen. Hvis man er pernittengrynet - hvad jeg er - må man hækle frem og tilbage, evt med et par ekstra kantmasker og sy sammen bagefter.\r\nDet er i det hele taget en MEGET dårligt gennemarbejdet opskrift.......

25.03.2018 - 13:42

country flag Ida-Maria Skavhaug wrote:

Dere sier at dere har rettet paa moenesteret og avklart hvordan oekningen skal skje mellom hver A1, men jeg forstaar fremdeles ikke hva jeg skal goere... Skal det eller skal det ikke oekes i de to stavene mellom A1? Man faar jo det inntrykket av aa se paa bildet, men i saa fall lurer jeg paa hvordan det skal oekes tre staver over to staver :-)

12.05.2017 - 19:59

DROPS Design answered:

Hei Ida-Maria. Har du tatt en en titt på videoen til denne oppskriften? Her viser vi hvordan vi hekler A.1 og raglan fellinger. Se: Hvordan hekle A.1 og raglan fellinger i DROPS Extra 0-1183 God Fornøyelse!

15.05.2017 - 08:51

country flag Talkina wrote:

Bonjour, je suis au 2e rang de A.1 et je ne comprends pas le raglan... Votre vidée était-elle basée sur les augmentations de la taille S ? Je crochète une taille M. Merci

09.03.2017 - 13:49

DROPS Design answered:

Bonjour Talkina, en taille M, vous devez augmenter pour le raglan tous les rangs sur l'endroit (= tous les 2 rangs): 1 x 3 DB de chaque côté de A.1 (= comme dans la vidéo), puis 4 x 2 DB de chaque côté de A.1 = 176 DB au total. Bon crochet!

09.03.2017 - 14:08

country flag Paula Warren wrote:

Hi. pattern 0-1183. On the yoke and on the second sentence that starts NOTE: ..... Am I turning piece or am I turning the piece so I am working from the wrong side. Also it states 'repeat pattern 1 and A1 - is this both row 1 and 2 of each pattern 1 and 1A and 'to finished measurements ' - which measurements does this mean. Please state for me. Many thanks in advance.

25.01.2017 - 19:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Warren, you are working in rows, ie alternately from RS and from WS but at the end of each row, join with a sl st in 1st st at beg of row. You are then working in pattern-1 with A.1 at each raglan line until end of piece = end of yoke. Happy crocheting!

26.01.2017 - 09:08

country flag Tine wrote:

Hej Drops, Jeg kan se at jeg er løbet ind i de samme problemer som andre hæklede; nemlig, at maskerne ikke kommer til, at passe med de angivet udtagninger. Hvis man gør som der står i opskiften når man aldrig op på det angivet maske antal efter 5. Udtagning. I skriver d. 27/6-16, at I afventer en afklaring på dette spørgsmål. Hvordan går det med det? På forhånd tak

04.08.2016 - 22:44

DROPS Design answered:

Hej Tine. Vi har rettet mönstret saa RAGLAN nu stemmer. Det samme gaelder for den tilhörende jakke (0-1182). Undskyld ventetiden :)

05.10.2016 - 10:50

country flag Anna Nygaard wrote:

Jeg kan ikke tager 3 dbl stangmasker ud i mellem A1 og A1 på hver side. Lige nu har jeg kun 2 dbl stangmasker mellem mønsteret Hilsen Anna

26.06.2016 - 00:54

DROPS Design answered:

Hej Anne. Ja, det passer ikke her. Jeg ville löse det med at haekle 3 dstk i één m imellem - for at tage ud det du skal. Vi afventer stadig en rettelse paa denne, men det er hvad vi forventer det skal vaere.

27.06.2016 - 16:34