DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Waves

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, poncho og vettlingum úr DROPS Merino Extra Fine með gatamynstri og stoffi.

DROPS Extra 0-1145
DROPS Design: Mynstur nr me-083
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/56 cm.

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100 g litur nr 22, ljós fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

PONCHO:
Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
450-450-500 g litur nr 22, ljós fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

VETTLINGAR:
Stærð: S/M - M/L - L/XL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-100-100 g litur nr 22, ljós fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við l með prjónamerki í þannig:
Fækkið lykkjum á undan l með prjónamerki í þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir l með prjónamerki í þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 105 l á hringprjóna nr 5 með Merino Extra Fine.
Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 9 l jafnt yfir = 96 l. Prjónið síðan mynstur A.1 (= 12 l) 8 sinnum á breiddina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka 2 sinnum á hæðina, prjónið A.2 (= 12 l í fyrstu umf) yfir hverja mynstureiningu með A.1. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niðurklauf, síðan er stykkið prjónað fram og til baka í 2 stykkjum. Byrjun umf = miðja að aftan.

PONCHO:
Fitjið upp 168-195-210 l á hringprjóna nr 3,5 með Extra Fine.
Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 12-15-18 l jafnt yfir = 156-180-192 l. Prjónið nú mynstur A.1 (= 12 l) yfir allar l = 13-15-16 mynstureiningar á breiddina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka 2 sinnum á hæðina, haldið áfram með A.3 1 sinni á hæðina = 234-270-288 l. Prjónið nú A.4 (= 18 l) yfir hverja mynstureiningu A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 260-300-320 l í umf. Haldið síðan áfram með A.5 (= 20 l) yfir hverja mynstureiningu A.4. Í síðustu umf í A.5 er aukið út um 18-20-38 l jafnt yfir = 278-320-358 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 45-48-51 cm. Prjónið nú þannig. Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 65-75-85 l, haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 10 l (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa 10 l í garðaprjóni), prjónið síðan sléttprjón yfir næstu 129-150-169 l, garðaprjón yfir næstu 10 l, (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa 10 l með garðaprjóni), prjónið næstu 64-75-84 l. Prjónamerki merkja hliðar á stykki. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir 10 l í hvorri hlið. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki með því að setja miðju 139-160-179 l í umf (þ.e.a.s. l á milli 2 prjónamerkja) á þráð (= framstykki). Nú eru 139-160-179 l eftir á prjóni (= bakstykki).

BAKSTYKKI:
Prjónið nú fram og til baka í sléttprjóni með 5 l garðaprjón, í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-57-60 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: 5 l garðaprjón, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, JAFNFRAMT eru auknar út 7-7-6 l jafnt yfir, 5 l garðaprjón = 146-167-185 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið stroff þannig: 5 l garðaprjón, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir, 1 l sl, 5 l garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka l af þræði á hringprjóna nr 4 = 139-160-179 l.
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 39-42-45 l á sokkaprjóna nr 3 með Merino Extra Fine.
Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 38-42-46 l. Prjónið nú mynstur þannig: 1-2-3 l sléttprjón, A.6 (= 16 l), 2-3-4 l sléttprjón (= handarbak), 2 l sléttprjón, JAFNFRAMT er sett prjónamerki í síðustu af þessum 2 l (= þumallykkjur), sléttprjón yfir þær 17-19-21 l sem eftir eru. Haldið svona áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm, byrjar útaukning fyrir þumal með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við þumallykkju, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu fyrir þumal í annarri hverri umf 5-6-7 sinnum til viðbótar (aukið er út hvoru megin við allar þumallykkjur, þ.e.a.s. það verða 2 l fleiri á milli uppsláttar í hverri útaukningu) = 13-15-17 þumal-l og 50-56-62 l alls. Þegar stykkið mælist alls 12-13-13 cm, setjið 13-15-17 þumallykkjur á þráð og fitjið upp 1 nýja l yfir l á þræði = 38-42-46 l á prjóni. Prjónið þar til A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina 2 sinnum. Haldið síðan áfram í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist alls 22-23-24 cm setjið 1 prjónamerki í 19.-21.-23. l og í 38.-42.-46. l. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hverja l með prjónamerki í – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Endurtakið úrtöku í hverri umf 7-8-9 sinnum til viðbótar = 6 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26-27 cm.

ÞUMALL:
Setjið l fyrir þumal á prjóninn og takið að auki upp 3 l í kant á bakhlið við þumallykkjur = 16-18-20 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 6 cm. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið mynstur þannig: Prjónið 2-3-4 l sléttprjón, A.6, 1-2-3 l sléttprjón (= handarbak), sléttprjón yfir þær 19-21-23 l sem eftir eru, setjið eitt prjónamerki í næst síðustu l í umf (= þumallykkjur).

Mynstur

symbols = sl
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf, það eiga að myndast göt.
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf (prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) það eiga ekki að myndast göt
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = Setjið fyrstu l yfir á hægri prjón, setjið næstu l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, setjið ystu l á hægri prjón til baka á vinstri prjón og prjónið 2 l slétt saman, steypið ystu l á hægri prjón til baka á vinstri prjón, steypið l af hjálparprjóni yfir ystu l á vinstri prjón svo að hún verði ekki snúin og setjið þessa l yfir á hægri prjón.
symbols = útauknings umferð - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1145

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Jan wrote:

I have just finished this pattern in your Alpaca Puma wool. I am disappointed in the way the neckline is. It comes over my shoulders. It wasn’t noticeable until I’d finished. I checked tension and used correct size needles. so that’s not it. Is there anything I can do now to the neck to narrow it by adding extra to it. Any help would be appreciated. Love the wool x

12.04.2024 - 16:08

DROPS Design answered:

Dear Jan, Puna and alpaca yarns in general are much softer than merino yarns, like Merino Extra Fine, the yarn used and recommended in this pattern. Therefore, it will retain the shaping much worse than the Merino Extra Fine tighter thread, so it's not recommended to use for this pattern. That's why the neck looks looser than the one in the photo. You could add a thin elastic band around the neck to help it maintain its shaping. Happy knitting!

14.04.2024 - 22:33

country flag Gabriela Huitrón Luja wrote:

En Mexico donde puedo comprar estas lanas MARCA DEOPS

01.09.2019 - 17:37

DROPS Design answered:

Hola Gabriela. Puedes consultar las tiendas que venden para Mexico aquí: https://www.garnstudio.com/findastore.php?s=w&cid=23. De momento no hay tiendas físicas en México.

17.10.2019 - 19:20

country flag Caussieu wrote:

Bonjour , dans le modèle me-083 , je ne comprends pas l'explication de la double diminution , les 2 dernières lignes, comment passer la maille auxiliaire par dessus la m de l'aiguille gauche ... merci de me dépanner ...

29.01.2019 - 08:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Caussieu, cette vidéo montre comment réaliser cette double diminution. Bon tricot!

29.01.2019 - 09:25

country flag Odile wrote:

Autre chose : lorsque je fais des augmentations , j ai toujours un petit trou , y a t il un moyen d eviter ça ? Merci

04.11.2018 - 13:25

DROPS Design answered:

Bonjour Odile, vous pouvez utiliser différentes techniques pour augmenter: avec le fil du rang précédent ou avec une augmentation intercalaire. Bon tricot!

05.11.2018 - 09:37

country flag Odile wrote:

Bonjour , Je debute et je ne comprends pas comment on met des mailles en arrêt pour partager le devant et le dos.j ai mis les mailles du fond sur un fil d aiguille circulaire , mais je ne sais pas comment retirer le 1 fil qui comprend aussi le reste des mailles Du coup je suis coincee ,pouvez vous m'aider ?

02.11.2018 - 21:02

DROPS Design answered:

Bonjour Odile, Cette vidéo montre comment glisser des mailles sur un fil - dans ce cas, ne glissez que le nombre de mailles indiqué sur le fil, gardez les autres sur votre aiguille et terminez cette partie. Reprenez ensuite les mailles en attente ainsi et tricotez la 2ème partie. Bon tricot!

05.11.2018 - 08:26

country flag Anna Paola Majer wrote:

Buonasera, non ho capito bene come fare le diminuzioni nel berretto. Ho ripetuto per due volte lo schema A.1e inizio ora lo schema A.2 (= 12 m sul 1° giro) . E' implicito che debba fare le diminuzioni seguendo il disegno, fino a ridurre i numero delle maglie a 24? Grazie!

01.11.2018 - 16:36

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna Paola. Sì è corretto. Quando avrà completato il diagramma A.2, sui ferri ci saranno 24 maglie. Buon lavoro!

01.11.2018 - 16:47

country flag Giada wrote:

Buinasera, non riesco a capire come dividere il dietro è il davanti. Finito il giro a costa legaccio ho (avendo fatto la taglia L/XL) 75 m e 5 a legaccio, poi le 160 da dividere e via di seguito. Ho letto anche la risposta data a Gabriella ma non capisco cosa si intenda per “finire il giro “. Ho provato a lavorare le prime 75 + le 5 e poi mettere le 160 in sospeso, ma per continuare “spezzando “ i fianchi devo tagliare il filo e riprendere? Grazie in anticipo per la risposta

07.12.2017 - 23:32

DROPS Design answered:

Buongiorno Giada. Deve lavorare le prime 75 m a maglia rasata e le successive 5 m a legaccio, e qui ha un segnapunti; poi lavora le altre 5 m a legaccio , le 150 m successive a maglia rasata e le 5 m successive a legaccio (quindi fino al secondo segnapunti) e le trasferisce su un ferro ausiliario (queste m sono il davanti ), e finisce con le altre 5 m a legaccio e le rimanenti 75 m a maglia rasata. Le m che sono sui ferri sono quelle del dietro e prosegue su queste avanti e indietro. Non è necessario tagliare il filo. Buon lavoro!

08.12.2017 - 14:48

country flag Gabriella wrote:

Grazie per la precedente risposta. nuova domanda : dividendo il lavoro per lavorare separatamente il davanti ed il dietro, dopo aver passato su un ferro ausiliare le 139 maglie del davanti ( 5 legaccio, 129 rasata, 5 legaccio) sul ferro mi trovo per il dietro con 65 m.rasata, 5 legaccio, 5 legaccio e 64 rasata. Non mi è chiaro come lavorare il dietro. devo forse tornare indietro con le 5 maglie a legaccio e le 65 a maglia rasata? in questo modo però queste avrebbero un giro in più. Grazie

18.11.2015 - 07:52

DROPS Design answered:

Buongiorno Gabriella, deve finire il giro prima di mettere la maglie in sospeso: le 10 m a m legaccio costituiranno l'apertura sulle braccia, per cui sono ai lati. Il davanti e il dietro sono uguali, 5 m a m legaccio ai lati e 129 m a m rasata in mezzo. Da questo punto in poi lavorerà avanti e indietro su queste m. Ci riscriva se qualcosa non le è chiaro. Buon lavoro!

19.11.2015 - 11:04

country flag Gabriella wrote:

Le istruzioni prevedono che ci siano 234 maglie dopo aver ripetuto due volte lo schema A1 e una volta lo schema A3, cioè aumenti di due maglie per ognuno dei 13 A1 e A3, ma dal disegno non trovo dove e come aumentare the instructions state that there are 234 p after repeating twice the pattern A1 and once the scheme A3, with increases of two links for each of the 13 A1 and A3, but thin the scheme design i can not find where and how to increase

15.10.2015 - 22:13

DROPS Design answered:

Dear Gabriella, after you have worked A.1 in height, work A.3 in height, A.3 starts with 12 sts and ends with 18 sts, so that you will increase 6 sts in each repeat of A.3. Happy knitting!

16.10.2015 - 09:26

country flag Gabriella wrote:

Le istruzioni prevedono che ci siano 234 maglie dopo aver ripetuto due volte lo schema A1 e una volta lo schema A3, cioè aumenti di due maglie per ognuno dei 13 A1 e A3, ma dal disegno non trovo dove e come aumentare the instructions state that there are 234 p. after repeating twice the pattern A1 and once the scheme A3, increases of two p for each of the 13 A1 and A3, but in the scheme design can not find where and how to increase

15.10.2015 - 22:04

DROPS Design answered:

Buongiorno Gabriella. Nelle righe 9, 15 e 17 del diagramma A.3 vengono aumentate 2 m facendo delle m gettate. In queste modo, vengono aumentate in tutto 6 m in ogni ripetizione del diagramma. Buon lavoro!

16.10.2015 - 13:18