DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Maggie Blues

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og vettlingum úr DROPS Karisma með smáum köðlum, brugðnum lykkjum og dúskum

DROPS 164-38
DROPS Design: Mynstur nr u-779
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 50, grænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

VETTLINGAR:
Stærð: S/M – M/L

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100 gr litur, nr 50, grænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Mál:
Ummál að neðan: ca 100 cm
Ummál að ofan: ca 67 cm
Hæð: ca 30 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
150 gr litur nr 50, grænn

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um vettlinga):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Fækkið lykkjum þannig (byrjið 3 l á undan prjónamerki): 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitji upp 108-117 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma.
Prjónið A.1a (= 12-13 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.1a hefur verið prjónað einu sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með A.1b.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16 cm er fækkað um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu (= 12-13 l færri). Endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 4 sinnum til viðbótar í báðum stærðum = 48-52 l. Þegar húfan mælist 25-26 cm eru allar l prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 24-26 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 1 m. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Festið snúruna neðst niðri í húfuna (í skiptinguna á milli stroffs og mynsturs), hnýtið litla slaufu, jafnið til lengdina á snúrunni og festið lítinn dúsk í hvorn enda.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 47-47 l á sokkaprjóna nr 3 með Karisma og prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br yfir fyrstu 26 l (endið á 2 l sl), A.2 yfir næstu 17 l, 2 l sl, 2 l br. Prjónið þar til stroffið mælist 6-7 cm. Prjónið nú næstu umf þannig: * 2 l sl, 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* yfir fyrstu 24 l, 2 l sl, * 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 15 l, 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Næstu umf er prjónuð þannig: 26 l sléttprjón (= innan í lófa), A.3 (= 17 l) og 4 l sléttprjón, uppslátturinn er prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við fyrstu l í umf fyrir þumli – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 57-59 l. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumal í næstu umf = 47-47 l. Þegar vettlingurinn mælist ca 26-28 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, þegar ca 4 cm eru eftir að loka máli), setjið 1 prjónamerki á eftir fyrstu l í umf og 1 prjónamerki eftir 24 l. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar í báðum stærðum og síðan í hverri umf alls 3 sinnum = 23 l eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið að auki upp 4-3 l aftan við þumal = 15-16 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 4½-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm að loka máli ). Prjónið 2 umf slétt JAFNFRAMT þar sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2 í báðum umf = 4-4 eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 1,5 m. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Festið snúruna neðst í gataumferðina á vettlingnum, hnýtið slaufu fyrir miðju ofan á vettlingnum og festið lítinn dúsk í hvorn enda.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við 22. l í umf.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 209 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið A.4 í 5 cm, í síðustu umf í A.4 er fækkað um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu með því að prjóna 2 l brugðið saman = 171 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið síðan A.5 (= 19 mynstureiningar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur, þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l vinstra megin við hverja brugðna mynstureiningu = 152 l. Endurtakið úrtöku til skiptis hægra og vinstra megin við hverja brugðnu mynstureiningu þegar stykkið mælist 15 og 20 cm = 114 l. Þegar stykkið mælist 25 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónað þannig: * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 5 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 30 cm.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Marianne Holm wrote:

Hals:Når arbejdet måler 10 cm tages ind i venstre side af hvert vrangparti - hvordan det? Skal man dele arbejdet i 2 halvdele? Og hvad er et vrangparti? Hvordan tages der ind i venstre side i vrangpartiet, og hvordan i højre side af vrangpartiet. Skal man sætte et mærke? Jeg vil gerne have en god forklaring, for jeg forstår ikke opskriften!

24.09.2021 - 23:10

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Når du strikker A.5 (19 ganger) består diagrammet av 9 masker og 6 av disse maskene strikkes vrang = vrangpartiet. Når arbeidet måler 10 cm skal du felle 1 maske hver gang du strikker A.5 og det skal felles i venstre side av vrangpartiet. Når arbeidet måler 15 cm skal det felles i høyre side av vrangpartiet og når arbeidet måler 20 cm felles det igjen i venstre side av vrangpartiet. mvh DROPS Design

28.09.2021 - 12:24

country flag Michèle wrote:

Depuis des années je tricote drops sans problème majeur. Mais ce modèle est trop étroit sur les épaules un vrai gâchis. A retirer de votre site.

29.02.2020 - 08:36

country flag Mary wrote:

Bleiben beim Fäustling bei der Abnahme die 15 Maschen des Musters erhalten?

07.11.2017 - 19:52

DROPS Design answered:

Liebe Mary, ich verstehe leider nicht Ihre Frage richtig, das Muster A.3 ist über 17 M gestrickt, diese Maschen wird bis Ende vom Fäustling so gestrickt, dh auch wenn Sie auf beiden Seiten abnehmen. Viel Spaß beim stricken!

08.11.2017 - 08:49

country flag Hanna wrote:

Lisäys käsineen ohjeeseen; ilmeisesti silmukkamäärä ei täsmää s/m ja m/l koossa kummassakaan. Tekstissä 26 silmukan jälkeen pitäisi tehdä 3o2n ei 2o2n mitä tekstissä sanotaan, jos noudatetaan kaaviota.

10.12.2016 - 23:03

country flag Hanna wrote:

Hei, käsineen alun silmukkamäärissä näyttäisi olevan virhe. Virheen huomaan kun alkaa tekemään joustinneuletta ensin 26 ja sitten 17 silmukalla. Eli S/M koossa pitäisi olla 43 silmukkaa eikä suinkaan 47 silmukkaa.

10.12.2016 - 22:42

country flag Dominique wrote:

Bonjour Je tricote le modele des moufles et commence les diminutions de part et d'autre de la 1 ere maille du tour et 24 eme. Je ne comprends pas car on diminue dans le point fantaisie d'un seul coté au debut. Pouvez vous m'expliquer si je fais une erreur quelque part ? Merci

18.08.2016 - 10:16

DROPS Design answered:

Bonjour Dominique, on diminue avant et après le 1er et le 24ème marqueur, soit 4 m diminuées par tour = 1 m au début et à la fin de la paume + 1 m au début et à la fin du dos de la main. Bon tricot!

18.08.2016 - 10:28

country flag Dominique wrote:

Bonjour Je tricote le modele des moufles et commence les diminutions de part et d'autre de la 1 ere maille du tour et 24 eme. Je ne comprends pas car on diminue dans le point fantaisie d'un seul coté au debut. Pouvez vous m'expliquer si je fais une erreur quelque part ? Merci

17.08.2016 - 20:12

country flag M.Seppänen wrote:

Mitä tarkoittaa mallineuleen ruutupiiroksessa merkintä/sanat;ei enää s, jätä tämä ruutu väliin ? Kuinka "jätetään väliin" Kiitos jo etukäteen vastauksesta-neuvosta.

17.01.2016 - 20:03

DROPS Design answered:

Tämä musta ruutu on mukana piirroksessa, jotta piirroksesta tulisi selkeämpi. Neuleessa tätä silmukkaa ei enää ole (koska se kavennettiin edellisellä kerroksella pois työstä), eli neuloessa siirryt heti seuraavan ruudun kohdalle ja neulot jatkossa nurjia silmukoita.

18.01.2016 - 17:12

country flag Oskar wrote:

Man har stickat ihop till 2 maskor.

27.12.2015 - 22:01

country flag Solveig Hansson wrote:

Hur kan man i mönster A5 göra ett omslag mellan 2 maskor som inte finns eftersom man i varvet före har stickat ihop 3 maskor till en maska?

27.12.2015 - 18:31

DROPS Design answered:

Hej. Du har på varvet innan stickat ihop 3 maskor till 2 maskor, omslaget på nästa varv görs alltså mellan dessa två maskor. Lycka till!

05.01.2016 - 08:38