DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dinner Date

Prjónuð peysa úr DROPS Lima með stuttum umferðum, sjalkraga og gatamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 165-24
DROPS Design: Mynstur nr li-060
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
550-600-700-750-800-900 gr litur nr 6235, gráblár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 42 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA BOGALAGA (hvít) NR 522: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónaðer eru stuttar umferðir til að ná fram bogalaga formi á stykkinu.
Stuttar umferðir eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1-2: Prjónið 45-50-55-60-65-70 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 3-4: Prjónið 42-47-52-57-62-67 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 5-6: Prjónið 40-45-50-55-60-65 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7-8: Prjónið 37-42-47-52-57-62 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 9-10: Prjónið 35-40-45-50-55-60 l, snúið við og prjónið til baka.
Haldið áfram með að prjóna til skiptis 2 og 3 l færri í hverjum snúning til:
STÆRÐ S: Umferð 35/36: Prjónið 2 l, snúið við og prjónið til baka.
Umferð 37/38: prjónið yfir allar 47 l, snúið við og prjónið til baka.
Endurtakið frá umf 1.
STÆRÐ M: Umferð 39/40: Prjónið 2 l, snúið við og prjónið til baka.
Umferð 41/42: Prjónið yfir allar 52 l, snúið við og prjónið til baka.
Endurtakið frá umf 1.
STÆRÐ L: Umferð 43/44: Prjónið 2 l, snúið við og prjónið til baka.
Umferð 45/46: Prjónið yfir allar 57 l, snúið við og prjónið til baka.
Endurtakið frá umf 1.
STÆRÐ XL: Umferð 47/48: Prjónið 2 l, snúið við og prjónið til baka.
Umferð 49/50: Prjónið yfir allar 62 l, snúið við og prjónið til baka.
Endurtakið frá umf 1.
STÆRÐ XXL: Umferð 51/52: Prjónið2 l, snúið við og prjónið til baka.
Umferð 53/54: Prjónið yfir allar 67 l, snúið við og prjónið til baka.
Endurtakið frá umf 1.
STÆRÐ XXXL: Umferð 55/56: Prjónið2 l, snúið við og prjónið til baka.
Umferð 57/58: Prjónið yfir allar 72l, snúið við og prjónið til baka.
Endurtakið frá umf 1.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist 1 og 5 cm í öllum stærðum (eftir að stuttar umferðrnar hafa verið prjónaðar).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í stykkjum og saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Bakstykkið er prjónað í 2 stykkjum.

NEÐRA STYKKI:
Fitjið upp 47-52-57-62-67-72 l á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 40-44-48-53-58-65 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af.

EFRA STYKKI:
Prjónið upp 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram annarri langhliðinni á neðra stykki. Í næstu umf (prjónið sl frá röngu) er lykkjufjöldinn jafnaður út til 86-93-100-114-121-135 l. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 84-91-98-112-119-133 l, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 39-40-41-42-43-44 cm (mælt frá hlið neðst á peysu). Nú er fellt af í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið af í byrjun á hverri umf: 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 0-1-2-3-4-6 sinnum og 1 l 1-1-2-3-3-5 sinnum = 78-81-82-84-87-89 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af miðju 18-19-20-20-21-23 l af fyrir hálsmáli. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 29-30-30-31-32-32 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Allt stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni, þ.e.a.s. prjónað er sl í hverri umf. Fitjið upp 47-52-57-62-67-72 l á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið stuttar umferðir (1.-38.-42.-50.-54.-58. umf) alls 5 sinnum, boginn mælist nú ca 45-50-55-60-64-69 cm lengst út. Prjónið síðan fram og til baka yfir allar l. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm (mælt frá hlið neðst á peysu). Í næstu umf frá röngu byrjar úrtaka fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 43-46-48-47-50-49 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið nú af síðustu 29-30-30-31-32-32 l í hlið fyrir öxl = 14-16-18-16-18-17 l eftir í umf fyrir kraga. Prjónið síðan út umf. Prjónið stuttar umferðir þannig (1. umf = rétta): * prjónið fram og til baka yfir allar l, fram og til baka yfir 7-8-9-8-9-8 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-9 cm (mælt frá stystu hliðinni) frá þeim stað þar sem fellt var af fyrir öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 47-52-57-62-67-72 l á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt (1. umf í stuttum umferðum er prjónuð frá röngu).

ERMI:
Ermin er prjónið fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 44-44-51-51-58-58 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 42-42-49-49-56-56 l, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið A.1 3 sinnum á hæðina, prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili 11-14-13-16-16-19 sinnum til viðbótar = 68-74-79-85-92-98 l. Þegar stykkið mælist 48-47-47-46-46-44 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Fellið af í byrjun á hverri umf þannig: 3 l 1 sinni og 2 l 4-4-5-5-6-6 sinnum og 1 l 0-1-1-1-1-3 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-55-55-56-56 cm, fellið af 3 l í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi í. Saumið erma- og hliðasauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið við affellingu á hálsmáli á bakstykki. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Maura wrote:

The pattern says "900 ... Lima". Is that in grams?

24.06.2023 - 22:21

DROPS Design answered:

Dear Maura, yes, it's a typo, it's grams of Lima. Happy knitting!

25.06.2023 - 13:31

country flag Edeltraut wrote:

Hallo, liebes Drops Design. Vielen Dank für die Antwort. Ich meine dieses Muster welches nach jedem Bogen entsteht. Bei mir sieht rechts und links verschieden aus. Auf dem Foto des Model sieht es gleich aus. Ich habe schon alles mögliche probiert, immer verschieden.

23.05.2023 - 11:19

DROPS Design answered:

Liebe Edeltraut, meinen Sie die Linien, die an den Vorderteilen entlang laufen? Diese Linien können am rechten und am linken Vorderteil ganz leicht unterschiedlich aussehen, da Sie die verkürzten Reihen an dem einen Vorderteil in Hin-Reihen und an dem anderen Vorderteil in Rück-Reihen arbeiten.

24.05.2023 - 10:58

country flag Edeltraut wrote:

Hallo, ich habe genau nach Anleitung gestrickt, aber ich bekomme es nicht hin, das in der Rundung das gleiche Muster entsteht. Ich habe eine rechte und linke Seite, das stimmt. Was mache ich falsch?

22.05.2023 - 21:47

DROPS Design answered:

Liebe Edeltraut, Entschuldigung ich verstehe Ihre Frage nicht ganz richtig, was meinen Sie mit der Rundung und rechte/linke Seite? Meinen Sie die verkürzten Reihen beim rechten und linken Vorderteil? Diese verkürzten Reihen beginnen mit einer Hinreihe beim rechten Vorderteil und mit einer Rückreihe beim linken Vorderteil. Dann stricken Sie die verkürzten Reihen wie erklärt, der ausser Rand wird dann länger als der innere. Kann das Ihnen helfen?

23.05.2023 - 08:46

country flag Cindy wrote:

Stickfasthet i mönstret uppges vara 21 v x 42 v = 10 x 10, på Lima garn uppges 21 v x 28 varv = 10 x 10. Undrar om det bodde stå som på garnet?

06.11.2019 - 19:27

DROPS Design answered:

Hej. Stickfastheten som uppges på garnet är i slätstickning, men det på mönstret är i rätstickning (där man får in fler varv på höjden) så det är därför det är olika. Mvh DROPS Design

07.11.2019 - 06:49

country flag Anne Marit Sletbakken wrote:

Hei ! hva betyr at man skal strikke "motsatt" etter en p. rett på venstre forstykke? jeg får bare høyreforstykker får det ikke til å stemme med vrange og rette !

11.05.2019 - 13:37

DROPS Design answered:

Hei Anne Marit. På høyre forstykket begynte du med vendinger på 1. pinne, og denne pinnen strikket du fra retten, 2. pinne med vendinger strikket du fra vrangen osv. Når du skal strikke venstre forstykket må dette speilvendes slik at buene går den andre veien. Derfor strikker du først en pinne fra retten, og så begynner du med vendinger med 1. pinne fra vrangen. 2. pinne blir da fra retten osv. Du følger ellers instruksjonene som vanlig. Når du feller til ermhull gjøres dette på starten av pinnen fra retten, og de forkortede pinnene på skulderen begynner med 1. pinne fra vrangen. God fornøyelse

14.05.2019 - 07:39

country flag Marcia wrote:

Would this pattern work if I used stocking stitch instead of garter stitch? I find garter stitch makes the garment too thick and too hot. Could you give me an idea how much less yarn (%) stocking stitch would take? Thanks.

26.03.2019 - 23:26

DROPS Design answered:

Dear Marcia, this pattern is worked and calculated with garter stitch, if you work the short rows with stocking stitch, this wouldn't be the expected result because of the different of tension in height between stocking st and garter stitch. You will find all our jacket patterns with rounded front edges here, you may find another pattern worked with stocking stitch. Happy knitting!

27.03.2019 - 08:12

country flag Jenny wrote:

Hej, jag stickar nu första framstycket och undrar. Ska jag, innan jag börjar med första vändningen, sticka 38 varv rätstickning (för strl small)? Det ser nämligen jättekonstigt ut när jag har gjort det + de fem vändningarna. Det blir ju som om jag stickar en 90 graders vinkel. MVH //Jenny

11.03.2019 - 17:45

DROPS Design answered:

Hej, du ska börja med vändningarna direkt.

18.03.2019 - 17:45

country flag Colleen Pierrynowski wrote:

I just saw my name come up in a previous comment. I did not make any previous comments and was shocked to read the comment. I am making my 3rd sweater with the pattern and I am very pleased with the ease of understanding the pattern.

22.02.2019 - 19:43

country flag Monika wrote:

Hi! An der Skizze kann ich nicht erkennen, ob diese Jacke tailliert gearbeitet ist. Und wenn nicht, an welcher Stelle kann ich sie für die Taillie enger stricken?

21.11.2018 - 11:35

DROPS Design answered:

Liebe Monika, diese Jacke wird nicht tailliert gearbeitet - leider können wir nich jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen - gerne können Sie von einem ähnlichen taillierten Modell inspirieren - Ihr Laden wird damit auch gerne mal weiterhelfen, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

21.11.2018 - 12:16

country flag Delacroix Dominique wrote:

Bonjour Je ne vois pas combien de pelotes il me faut Pour chaque taille je vois un chiffre 700 par exemple cela correspond il au nombre de gramme ou à la longueur qu il me faut ?

03.10.2017 - 11:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Delacroix, la quantité est toujours indiquée au poids (le "g" a été ajouté). Il vous faudra donc 700 g en taille L soit 700/50 g la pelote de Lima = 14 pelotes Lima. Merci, bon tricot!

03.10.2017 - 13:16