DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 166-22
DROPS Design: Mynstur nr de-147
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 gr litur nr 07, beige/blár

DROPS HEKLUNÁL nr 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

3 ST HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN Á UMF:
3 ll, heklið næsta st um sömu ll, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en dragið nú þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

3 ST HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 1 st um ll, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðasta st um sömu ll, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, en bíðið með að bregða þræðinumum heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni = 2 st heklaðir saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í ferning frá miðju að aftan, síðan eru framstykkin hekluð og í lokin ermar.

PEYSA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 3 með Delight og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan eftir mynstri A.1, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), * 1 st um ll-hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 12 st með 1 ll á milli hverra st.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 2: 1 kl umf fyrstu ll, heklið 3 ST HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN UMF – sjá útskýringu að ofan, * 3 ll, 3 ST SAMAN um næstu ll- sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum og endið á 3 ll og 1 kl efst í fyrsta st-hóp = 12 st-hópar með 3 ll á milli hverra st-hópa.
UMFERÐ 3: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga).
UMFERÐ 4: Heklið 1 kl um fyrsta ll-bogann, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 1 ll, um næsta ll-boga (ll-bogi með 6 ll) heklið 5 st + 3 ll + 5 st (= horn), 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga).
UMFERÐ 5: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga (ll-bogi með 5 ll), heklið 5 ll (jafngilda 1 hst + 3 ll), * 1 fl um ll á undan st-hóp, 5 ll, 1 fl um ll-bogann í horni, 3 ll, 1 fl um sama ll-boga, 5 ll, 1 fl um ll-bogann á eftir næsta st-hóp, 3 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf (í stað 1 hst um næsta ll-boga, 3 ll). Klippið frá. Umf byrjar nú um ll-boga í fyrsta horni.
UMFERÐ 6: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern og einn af 2 fyrstu ll-bogum, 3 st í hst, 3 st um hvern og einn af 2 næstu ll-bogum, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 st um hvern ll-boga og 3 st í hvern hst fram að horni og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 7: Heklið kl fram að ll-boga í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), heklið 1 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * (2 ll, hoppið yfir 1 st-hóp, 1 st á undan næsta st-hóp = á milli 2 st-hópa), endurtakið frá (-) alls 6 sinnum, 2 ll, 2 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endurtakið frá (-) alls 6 sinnum og endið á 2 ll og 1 kl í 4. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 8: Heklið kl mitt á milli 2 miðju tbst í horni, 3 ll (jafngilda 1 fl + 2 ll), 1 fl á milli sama miðju tbst í horni, * 3 fl um bogann, 1 fl á milli næstu 2 tbst, síðan eru heklaðar 3 fl um hvern ll-boga fram að tbst í horni, 1 fl á milli 2 fyrstu tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl + 2 ll + 1 fl á milli 2 miðju tbst í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 fl um ll-bogann, 1 fl á milli næstu 2 tbst, síðan eru heklaðar 3 fl um hvern ll-boga fram að tbst í horni, 1 fl á milli 2 fyrstu tbst, 3 fl um ll-bogann og endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 9: Heklið 1 kl um ll-bogann í horni, 6 ll (jafngilda 1 st + 3 ll), 1 st um sama ll-boga, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, (3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í næstu fl), endurtakið frá (-) alls 6 sinnum, 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, 1 st + 3 ll + 1 st um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað 1 st + 3 ll + 1 st í horni).
UMFERÐ 10: 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern af 3 fyrstu ll-bogum, 1 ll, 3 st um hvern af 3 næstu ll-bogum, 1 ll, 3 st um hvern af 3 næstu ll-bogum, í horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað 3 st + 3 ll + 3 st í horni).
UMFERÐ 11: Heklið kl fram að ll-boga í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), heklið 1 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * 2 ll, hoppið yfir 2 st-hópa, 1 tbst á undan næsta st-hóp, 2 ll, hoppið yfir 2 st-hópa, um ll á undan næsta st-hóp er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst, hoppið yfir 1 st-hóp, 1 tbst í miðju næsta st í næsta st-hóp, hoppið yfir 1 st-hóp, um ll á undan næsta st-hóp er heklað 2 tbst + 3 ll +2 tbst + 3 ll + 2 tbst, 2 ll, hoppið yfir 2 st-hópa, 1 tbst á undan næsta st-hóp, 2 ll, um ll-boga í horni er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf (í stað tbst-hópa í horni).
UMFERÐ 12: Heklið kl að miðju á milli 2 miðju tbst í horni, 3 ll (jafngilda 1 fl + 2 ll), 1 fl á milli sömu miðju tbst í horni, * 3 fl um ll-bogann, 1 fl á milli næstu 2 tbst, 3 fl um hvorn af 2 næstu ll-bogum, 1 fl á milli næstu 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl á milli næstu 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í hvorn af 2 næstu tbst, hoppið yfir 1 tbst, 1 fl í hvorn af 2 næstu tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl á milli 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl á milli 2 tbst, 3 fl um hvorn af 2 næstu ll-bogum, 1 fl á milli 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl + 2 ll + 1 fl á milli 2 miðju tbst í horni *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í fyrstu ll í umf (í stað 1 fl + 2 ll + 1 fl í horni).
UMFERÐ 13: Heklið 1 kl um ll-boga í horni, 7 ll (jafngilda 1 tbst + 3 ll), 1 tbst um sama ll-boga, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 st í næstu l, 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 hst í næstu l, 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 2 fl, hoppið yfir 2 fl, 1 st í næstu fl, 2 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 hst í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 hst í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 st í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 3 fl og heklið 1 tbst + 3 ll + 1 tbst um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf (í stað 1 tbst + 3 ll + 1 tbst um ll-boga í horni).
UMFERÐ 14: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern af 6 fyrstu ll-bogum, 1 st um 2 ll-boga, 1 st í st, 1 st um 2 ll-boga, heklið 3 st um hvern af 6 næstu ll-bogum, í hornið er heklað 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, enn endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað 3 st + 3 ll + 3 st í horni).
UMFERÐ 15: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * ( 2 ll, 1 st á undan næsta st-hóp), endurtakið frá (-) fram að horni, 2 ll, um ll-bogann í horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað st-hóp í horni).
UMFERÐ 16: 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern ll-boga fram að horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 st um hvern ll-boga fram að horni og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

Endurtakið umf 15 og 16 þar til ferningurinn mælist 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm.
Heklið nú handveg þannig: Heklið eins og áður fram að fyrsta horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga í horni. Heklið nú ll fram að miðju í næstu hlið (þ.e.a.s. mitt á milli 1. og 2. horns) þannig: Heklið 1 ll fyrir hvern ll/st sem hoppað er yfir. Síða er mynstur heklað eins og áður framað miðju mitt á milli 3. og 4. horns. Heklið nú ll fram að byrjun umf þannig: Heklið 1 ll fyrir hvern ll/st sem hoppað er yfir. Í næstu umf er heklað mynstur og aukið út eins og áður yfir allar l; einnig um ll fyrir handveg.

Haldið áfram að endurtaka umf 15 og 16 þar til fjöldi ll-boga á milli horna verður deilanlegur með 3. Síðan er heklað þannig:
UMFERÐ 1: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (meðtalin 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * (heklið 3 st um hvern af 3 fyrstu ll-bogum, 1 ll), endurtakið frá (-) þar til 3 ll-bogar eru eftir á undan horni, heklið 3 st um hvern af næstu ll-boga, í horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (í stað 3 st + 3 ll + 3 st í horni).
UMFERÐ 2-4: Heklið eins og umf 11-13 (heklaður er 1 st-hópur um hverja ll frá fyrri umf).
UMFERÐ 5-18: Heklið eins og umf 15 og 16. Endurtakið þessar 2 umf alls 7 sinnum.
Endurtakið þessar 18 umf þar til ferningurinn mælist 78-80-82-84-86-88 cm x 78-80-82-84-86-88 cm (þ.e.a.s. 21 cm í öllum stærðum frá handveg). Klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Heklið nú fram og til baka á milli fyrsta og annars horns. ATH! Framstykkið er heklað án útaukninga.
UMFERÐ 1: Heklið eftir A.2 þannig: Heklið kl fram að miðju fyrsta horni. 5 ll, * hoppið yfir 3 st, 1 st á milli 2 st-hópa, 2 ll *, endurtakið frá *-* hoppið yfir 3 st og endið á 1 st um ll-bogann í öðru horni.
UMFERÐ 2: Snúið við og heklið til baka þannig: 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, síðan eru heklaðir 3 st um hvern ll-boga, síðasta skiptið endar á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf.
Endurtakið umf 1 og 2 í 19-20-21-22-23-24 cm, klippið frá. Endurtakið á hinni hliðinni, heklið nú fram og til baka frá þriðja og fjórða horni. Að lokum er hekluð ein umf í kringum allan ferhyrninginn, heklið mynstur eins og áður en um ll-bogann í hverju horni eru heklaðir 6 st. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað í hring frá handveg og niður, hver umf er hekluð saman með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, mitt undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið á að hekla 81-84-87-93-96-99 st jafnt yfir í kringum op fyrir ermi, byrjun á umf á að vera undir ermi.
Haldið áfram með A.2 – þegar stykkið mælist 4 cm er lykkjum fækkað undir ermi þannig:
Fækkið lykkjum eins og útskýrt er í A.3/A.4 – LESIÐ ÚRTAKA til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerki.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umf 10-11-11-6-6-7 sinnum, síðan í annarri hveri umf 0-0-0-7-7-7 sinnum = 51-51-54-54-57-57 st. Heklið A.2 þar til ermin mælist ca 47 cm í öllum stærðum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 kl
symbols = 1 fl í l
symbols = 1 fl um ll-boga
symbols = 1 fl á milli 2 tbst
symbols = 1 hst í l
symbols = 1 hst um ll-boga
symbols = 1 st í l
symbols = 1 st um ll-boga
symbols = 1 st á milli 2 st-hópa
symbols = 1 tbst í l
symbols = 1 tbst um ll-boga
symbols = 1 tbst á milli 2 st-hópa
symbols = 3 st í sama ll-boga
symbols = 4 ll, 1 kl í fyrstu ll
symbols = byrjun á framstykki
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (73)

country flag Brussel wrote:

Hi, ik wil graag een patroon haken van een vest, maar snap niks van dat A l1 en A2 etc. Heb de tutorial ook al gelezen. \\r\\nIs het mogelijk dat jullie dat deel ook uitschrijven zoals toer 1, 2 etc. echter wil ik hier best voor betalen.\\r\\nIk hoor het graag.\\r\\n\\r\\nMet vriendelijke groet, \\r\\n\\r\\nAstrid Brussel

16.08.2022 - 16:40

DROPS Design answered:

Dag Brussel,

Het is voor ons helaas niet mogelijk om het telpatroon uit te schrijven, we werken meestal met telpatronen. Misschien kun je aangeven waar je precies tegenaan loopt met de telpatronen, zodat we je beter kunnen helpen. Of misschien is het mogelijk om bij een verkooppunt langs te gaan voor hulp.

17.08.2022 - 16:42

country flag Pauline wrote:

Hallo Ist das Rückenteil von Armloch zu Armloch tatsächlich nur 38 cm breit in Größe M? Das kommt mir sehr wenig vor. LG

16.05.2022 - 12:10

DROPS Design answered:

Liebe Pauline, es stimmt ja, gerne ziehen Sie die Jacke an, nachdem Sie die Runde mit dem Armloch gehäkelt haben, und so können Sie mal schauen ob es passt, oder ob Sie anpassen sollen. Viel Spaß beim häkeln!

16.05.2022 - 16:43

country flag Astrid wrote:

Korreksjon til spørsmålet under - kragekanten blir 21, ikke 24, cm fra ermehullene - men virker altså like fullt lang :)

23.03.2022 - 18:25

DROPS Design answered:

Hei Astrid, Målene er fra bunn av ermehullet. God fornøyelse!

24.03.2022 - 07:10

country flag Astrid wrote:

Jeg mener å ha fulgt oppskriften for bolen på medium, men "kragen", 24 cm lengde fra armhullene, virker mye lenger enn på avbildede modell, og må rulles flere ganger bak nakken. Stemmer dette med oppskriften:)?

23.03.2022 - 18:19

DROPS Design answered:

Hei Astrid. Om du ser på målskissen skal det være 21 cm fra øverst av armhullet og opp, og kragen blir leggende litt dobbelt ved nakken. Om du får 24 cm, har du da overholdt heklefastheten? mvh DROPS Design

28.03.2022 - 11:47

country flag Aggie Mack wrote:

Bonjour, Meilleurs voeux 2021 à votre sympathique équipe! Ma question est la suivante: j\'aime beaucoup -et depuis longtemps- la Delight. Dans les modèles proposés par Drops, pour les ouvrages au crochet, parfois vous préconisez le 3,5, parfois le 5. Qu'est-ce ce qui justifie cette différence de numéros... Que me conseillez vous comme numéro pour un châle le plus souple possible ? Merci de votre réponse!

06.01.2021 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mack et merci pour vos vœux, recevez les nôtres en retour! Le choix de la taille du crochet est lié à la structure souhaitée, pour un châle par exemple, on va choisir un crochet plus gros pour obtenir un résultat plus souple, plus aérien, et pour un gilet, comme celui-ci, on va choisir un crochet plus fin. Fiez-vous toujours à l'échantillon indiqué et adaptez la taille du crochet pour que votre échantillon soit juste. Bon crochet!

06.01.2021 - 13:16

country flag Mae wrote:

I have to express my appreciation for this lovely pattern. It's easy to follow, especially because a schematic is also included. I'm so pleased with my jacket. Thank you again! I look forward to future creations from DROPS. I'm not a social media user, but will attempt to post a picture and hashtag it on Instagram.

01.11.2020 - 16:38

country flag Iety wrote:

Vanaf toer 6 onbegrijpelijk en komt telpatroon niet over een met beschrijving. Zoals helaas vaak met jullie patronen veel fouten hebben.

02.11.2019 - 17:30

country flag Sherry Wingler wrote:

How much yarn do I need if I want to make this in a solid color? Thanks!

26.10.2019 - 22:20

DROPS Design answered:

Dear Sherry, the pattern uses Drops Delight yarn, which is a self striping yarn, so if you want to make this in a solid color, íou would need the same amount of the same yarn group (450-500-550-600-650-750 gramm-depending on the size oyu want to make). Happy Crafting!

27.10.2019 - 01:44

country flag Sherry Wingler wrote:

How much yarn do I need if I want to make this in one color? Trying to get busy on Christmas presents!! Thank you in advance!!

26.10.2019 - 22:04

DROPS Design answered:

Dear Sherry, the same amount from the same yarn group, or please use our yarn converter. Happy Knitting!

27.10.2019 - 01:48

country flag Kristin wrote:

Hi. I'm loving this pattern but need help on the first pattern row (16) after the armholes have been created. The pattern says "On next round work pattern and inc as before over all sts, also in ch for armholes." Does this mean I should stitch 4 treble crochet in each chain space on this row, then 5 in the next etc?

01.09.2019 - 17:06

DROPS Design answered:

Dear Kristin, on the round after you have crocheted the both chains for armhole, you continue in pattern as you worked before, but this time crochet in the stitches from previous round + in the chains from both chain-stitches as before (=as if you haven't crocheted these chains) so that you create a hole for sleeves. Happy crocheting!

02.09.2019 - 10:34