DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7502.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Checkmate Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Alpaca með dominoferningum og laskalínu. Stærð S - XXXL

DROPS 165-13
DROPS Design: Mynstur nr fa-309
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 905, svartur/natur
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-250-300-300-350 gr litur nr 8903, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 40 umf með garðaprjóni/sléttprjóni (fyrir ermi) verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA NR 534: 6-6-6-5-5-5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7502.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MÆLING:
Vegna garðaprjóns koma ermar til með að teygjast um ca 5 cm á lengdina þegar stykkið er tilbúið.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR 1:
Til þess að sleppa við að festa alla enda þá er hægt að prjóna 1. röð í hverjum ferning með 2 sér dokkum (1 af hvorri tegund). Í stað þess að klippa frá þá getur dokkan fylgt með ferningnum í röðinni.

LEIÐBEININGAR 2:
Lykkjur eru alltaf prjónaðar upp frá réttu.

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fram- og bakstykki eru prjónuð í röndum þannig:
Prjónið alltaf upp l með Alpaca, prjónið síðan 1 umf frá röngu með Alpaca, prjónið 2 umf með Alpaca. Prjónið síðan * 2 umf með Fabel, 2 umf með Alpaca *, endurtakið frá *-*.

RENDUR Á ERMUM:
Prjónað er í röndum þannig:
UMFERÐ 1: sl frá réttu með Alpaca
UMFERÐ 2: br frá röngu með Alpaca
UMFERÐ 3: sl frá réttu með Fabel
UMFERÐ 4: sl frá röngu með Fabel
Endurtakið þessar 4 umf.

HEILL DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétt): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fellið af 2 l mitt í ferningnum í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðrétt):
6 kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni þar til hálfur ferningurinn hefur verið prjónaður.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan, 2 l slétt saman, prjónið út umf.
Prjónið gagnstætt á ferning í hinni hliðinni á stykki, þ.e.a.s. prjónið sl þar til 8 l eru eftir (með kanti að framan), 2 l slétt saman, 6 kantlykkjur að framan.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 1 l á ferning (við kant að framan) í annarri hverri umf þar til 1 l (+ 6 kantlykkjur að framan) eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þessa l. Setjið 6 kantlykkjur að framan á þráð.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lárétt):
Prjónið eins og heill domino-ferningur, en án þess að fella af í miðju á ferningi, setjið síðustu l í lok hverrar umf á þráð. Haldið svona áfram þar til 5-5-3-3-3-3 l eru eftir á prjóni.
STÆRÐ S-M: 5 l eftir á prjóni (= 6-7 l á þræði í hvorri hlið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og setjið síðustu l í lok umf á þráð. Næsta umf (frá réttu) er prjónuð þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Setjið síðustu l í lok umf á þráð (= 7-8 l á þræði). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l á prjóni.
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL: 3 l eftir á prjóni (8-9-10-11 l á þræði í hvorri hlið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 3 l. Næsta umf (= frá réttu) er prjónuð þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Fellið af fyrir hnappagötum í þriðju síðustu umf (= frá réttu) í hvert skipti sem prjónaður er HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðréttur) þannig:
Prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Stærð S-M-L: Fellið af fyrir hnappagötum í 1.-3.-5.-7.-9. og 11. röð í dominoferning.
Stærð XL-XXL-XXXL: Fellið af fyrir hnappagötum í 1.-3.-5.-7. og 9. röð í dominoferning.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið byrjar á að fitjaðar eru upp l fyrir alla breiddina á stykkinu, síðan eru ferningarnir prjónaðir einn og einn, fram og til baka með GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

RÖÐ 1: Fitjið upp 319-359-379-419-459-499 l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Fabel. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 6 l sl (= kantur að framan), * 28-32-34-38-42-46 l sl, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* 9 sinnum og endið á 28-32-34-38-42-46 l sl, 6 l sl (kantur að framan) = 301-341-361-401-441-481 l. Kantur að framan er prjónaður slétt í hverri umf til loka. Prjónið 1 umf slétt til baka yfir allar l. Prjónið síðan HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðrétt) – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 20-22-23-25-27-29 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan), byrjið á 2. umf. Hinar l eru eftir á prjóni. Lesið LEIÐBEININGAR 1 og RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan HEILL DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 29-33-35-39-43-47 l í umf – byrjið á 2. umf.
Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað yfir næstu 29-33-35-39-43-47 l á prjóni á sama hátt. Haldið svona áfram þar til 20-22-23-25-27-29 l eru eftir á prjóni (nú hafa verið prjónaðar 9½ dominoferningar). Prjónið síðan hálfan dominoferning (lóðrétt) og kant að framan yfir þessar l (byrjið á 2. umf). Þegar þessi hálfi ferningur hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á 1 þráð eru 9 heilir og 2 hálfir dominoferningar í 1. röð.

RÖÐ 2: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á fyrsta hálfa ferningi – lesið LEIÐBEININGAR 2! Prjónið síðan upp 1 l á milli hálfa fernings og næsta fernings frá röð 1 og prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram hlið á næsta ferning = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið síðan heilan dominoferning. Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 1 þar til prjónaðir hafa verið 10 heilir dominoferningar í röð 2.

RÖÐ 3: Setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn, prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á fyrsta ferning sem prjónaður var í röð 2 = 20-22-23-25-27-29 l. Prjónið síðan hálfur dominoferningur (lóðrétt). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur hafa verið settar á þráð eru prjónaðar upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti í hvorn af næstu 2 ferningum frá röð 2 og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið síðan heilan dominoferning. Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 2. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 9½ dominoferningar í röð 3. Prjónið nú upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti á síðasta ferning, setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn. Prjónið hálfan dominoferning (lóðrétt). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 9 heilir og 2 hálfir dominoferningar í röð 3.

Endurtakið röð 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið 9-9-9-7-7-7 raðir með domonoferningum.

RÖÐ 10-10-10-8-8-8: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hálfa ferningnum. Prjónið síðan upp 1 l á milli hálfa ferningsins og næsta fernings frá fyrri röð. Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram hlið á næsta ferning = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning. Hoppið yfir á hina hliðina á 3. ferning frá fyrri röð og fyrstu hliðina á 4. ferning frá fyrri röð. * Prjónið upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 næstu ferninga. Prjónið heilan dominoferning *, endurtakið frá *-* 4 sinnum. Hoppið yfir á hina hliðina frá 8. ferning frá fyrri röð og fyrstu hlið á 9. ferning frá fyrri röð. * Prjónið upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 næstu ferninga. Prjónið heilan dominoferning *, endurtakið frá *-* 2 sinnum = 2 domino-ferningar í hvoru framstykki, 4 dominoferningar á bakstykki. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
RÖÐ 11-11-11-9-9-9: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram köntum á hverjum og einum af 2 næstu ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning. Þegar dominoferningurinn er tilbúinn eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 og 2 ferninga. Haldið áfram þar til prjónaðir hafa verið 3 domonoferningar.

RÖÐ 12-12-12-10-10-10: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið hálfan dominoferning (lárétt). Þegar domonoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 næstu ferninga. Prjónið hálfan domonoferning (lárétt).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
RÖÐ 11-11-11-9-9-9: Setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn, prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á fyrsta ferning sem prjónaður var frá fyrri röð = 20-22-23-25-27-29 l. Prjónið síðan hálfan dominoferning (lóðrétt). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru prjónaðar upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning.

RÖÐ 12-12-12-10-10-10: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hálfa ferningnum. Prjónið síðan upp 1 l á milli hálfa ferningsins og næsta fernings frá fyrri röð. Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram hlið á næsta ferning = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið hálfan dominoferning (lárétt).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
RÖÐ 11-11-11-9-9-9: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hverjum og einum af 2 næstu ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning. Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti á síðasta ferning, setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn. Prjónið kant að framan og hálfan dominoferning (lóðrétt).

RÖÐ 12-12-12-10-10-10: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hverjum og einum af 2 ferningunum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið hálfan dominoferning (lárétt).

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 50-52-54-58-60-62 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 4 umf garðaprjón með Alpaca, síðan eru prjónaðar RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Lesið MÆLING! Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 2-2-1½-1½-1½-1 cm millibili 14-15-16-16-17-18 sinnum til viðbótar = 80-84-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 41-41-39-38-36-33 cm byrjar úrtaka fyrir laskalínu, fækkið um 1 l í hvorri hlið: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 0-0-3-3-5-7 sinnum, síðan í annarri hverri umf 26-28-27-29-29-29 sinnum = 28 l eftir í öllum stærðum. Setjið l á þráð. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Saumið ermasaum og saumið ermi við laskalínu á fram- og bakstykki. Setjið til baka allar l (frá ermum og fram/bakstykki) á prjóninn = 124-132-132-140-148-156 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli erma og fram- og bakstykki. Prjónið 8 umf garðaprjón með Alpaca, jafnframt í hverri umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman (alls 8 l færri í hverri umf, 32 l felldar af alls) = 92-100-100-108-120-124 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.09.2015
RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fram- og bakstykki eru prjónuð í röndum þannig:
Prjónið alltaf upp l með Alpaca, prjónið síðan 1 umf frá röngu með Alpaca, prjónið 2 umf með Alpaca. Prjónið síðan * 2 umf með Fabel, 2 umf með Alpaca *, endurtakið frá *-*.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Donna wrote:

How many rows and stitches are needed to make a four-inch swatch? I seem to have missed that if it was included in the instructions.

29.12.2022 - 17:30

DROPS Design answered:

Hi Donna, With the needle size given, you should have 24 sts x 48 rows in garter st or 24 sts x 40 rows in garter/stockinette st (sleeve) on your 4 x 4 inch swatch. Happy New Year!

30.12.2022 - 10:03

country flag Jane Kejser wrote:

Jeg forstår ikke hvordan jeg undgår at hæfte alle dominoruderne Bruger jo hele tiden 1 nøgle af hver kvalitet pga. striber Hvordan skal jeg få nøglerne til at følge med op uden at klippe? På forhånd tak

01.02.2020 - 00:51

DROPS Design answered:

Hei Jane. Les STRIKKETIPS 1 i oppskriften: For å unngå alle trådfestene kan hver rute på 1.rad strikkes med 2 egne nøster (1 av hver kvalitet). I stedet for å klippe tråden kan nøstene følge rutene oppover i radene. Ta gjerne en titt på hjelpevideoen (Hvordan strikke dominorute) og les forklaringen der, under oppskriften. God Fornøyelse!

03.02.2020 - 11:57

country flag Ute wrote:

Hallo, wenn ich das ganze Dominoquadrat stricke, muss ich ja einen Markierer setzen. Was mache ich damit, wenn ich die Masche davor abhebe und dann zwei M zusammenstricke, dann ist der doch im Weg?

15.01.2019 - 16:18

DROPS Design answered:

Liebe Ute, der Markierer setzen Sie in der mittleren Masche wieder, damit er immer in der Mitte bleibt. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2019 - 16:53

Theresa McVey wrote:

Where is the size chart for this pattern?

27.06.2018 - 19:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs McVey, you will find a measurement chart at the bottom of the pattern there are all measurements for each size taken flat from side to side, compare these to a similar garment you have and like the shpae to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy knitting!

28.06.2018 - 08:34

country flag Mary Erlandsson wrote:

Hej jag har stickat denna fina tröja med rätt garn o stickor som det står i beskrivningen ,ja stickade storlek M men färdigt resultat blev knappt S.Vet inte vad som blivit fel, garnåtgången har också varit som den skulle enligt beskrivningen men inte storleken på tröjan. nu har jag en jättefin tröja som är alldeles för lite till mej och vet inte vad jag skall göra med den?

13.04.2018 - 11:42

DROPS Design answered:

Hej, du har väl kontrollerat stickfastheten? Detta är väldigt viktigt eftersom stickfastheten varierar från person till person. Troligen skulle du behöva byta till grövre stickor.

14.04.2018 - 14:16

country flag Birgit wrote:

Ich schreibe auf Bitte meiner Mutter. Wir kommen mit der angegebenen Maschenzahl nicht zurecht. Bei Gr L werden 379M angeschlagen. 2x6M für die Blende. 34 M str. 3M für die Abnahme. 10x wiederholen., Das geht nicht auf. Wo ist unser Denkfehler?

29.01.2018 - 18:14

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, so stricken Sie die 379 M: 6 Blendemaschen, [(34 M + 3 (Abnahme)) x 9 = 333], 34 M, 6 Blendemaschen = 379 M - dann haben Sie: 6 + (34+1=x9=315) + 34 + 6 = 361 M. Viel Spaß beim stricken!

30.01.2018 - 08:16

country flag Karin wrote:

Hej Jeg kan bare ikke finde ud af at strikke denne trøje har i en anden opskrift som jeg kan strikke, nu hvor jeg har købt garnet

19.01.2018 - 10:16

DROPS Design answered:

Opskriften er ikke så let, man skal være øvet for at strikke den. Men du kan søge på bluse og så vælge garngruppe A, så får du masser at vælge imellem. God fornøjelse!

22.01.2018 - 16:59

country flag Helen Bason wrote:

What happens with the stitches after working row twelve. Are they cast off or left on the needle. No instructions for working the neckband in the pattern

31.05.2017 - 15:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bason, you will slip all sts back on needle at the very end to work neckband (see last paragraph before ASSEMBLY). Happy knitting!

31.05.2017 - 16:40

country flag Andrea Vielhaber wrote:

Hallo, auch nach mehrmaligem lesen bin ich mir nicht sicher . Die 1.Reihe mit Quadraten wird ja nur in Fabel gestrickt. In der 2. Reihe nehme ich die Maschen mit Alpaca auf,stricke dann jedes Quadrat erst in Alpaca als Rumpfteil Streifen und wechsel dann zu Fabel und stricke das Quadrat? Habe ich das jetzt richtig so verstanden? LG A.Vielhaber

19.05.2017 - 08:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Vielhaber, zuerst 1 Hinreihe rechts (mit Abnahmen) in Fabel stricken, dann 1 Rückreihe rechts in Fabel stricken. Dann werden die Quadraten angefangen (= 1. Quadrat über die ersten 20-29 M): 2 Reihe Alpaca/2 Reihe Fabel. Viel Spaß beim stricken!

19.05.2017 - 09:32

country flag Ellen Svarre wrote:

Er igang med en cardigan. Laver dog mit eget mønster udfra jeres opskrift. Mit spørgsmål er hvorfor er der 8 rækker af ruder i de små størrelser og kun 6 i de store størrelser? Har skimmet opskriften og syntes ikke at det lyder som om at ruderne er så meget størrer i de stor størrelser? Undre mig bare.😘😉😄

06.03.2017 - 22:42

DROPS Design answered:

Hej Ellen. Jeg tror det har noget at göre med at skuldrene/raglan er breddere i de store str - det har jeg set för, men aerlig talt saa ved jeg det ikke 100% hvorfor designeren har taenkt det saadan.

07.03.2017 - 14:25