DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Regal Splendour

Prjónaður kjóll úr DROPS Nepal, prjónaður ofan frá og niður, með laskalínu, köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-8
DROPS Design: Mynstur nr ne-176
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
800-900-1000-1100-1200-1300 gr litur nr 6314, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón og stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynstur fyrir rétta stærð (á við um A.3 + A.4).

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu á undan/á eftir A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Aukið út til hægri á UNDAN A.1:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Aukið út til vinstri á EFTIR A.1:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum við 4 prjónamerki.
Fækkið lykkjum á undan A.3A þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir A.3B þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið l 2 slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út við 4 prjónamerkin.
Aukið út þannig: Sláið uppá prjóninn á undan A.3A og á eftir A.3B. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og er prjónað ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 62-62-62-70-70-70 l á hringprjóna nr 4,5 með Nepal.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt þar sem auknar eru út 18 l jafnt yfir í öllum stærðum = 80-80-80 88-88-88 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið næstu umf þannig: Aukið út um 1 l fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 4 l í laskalínu), aukið út um 1 l fyrir laskalínu, prjónið 6 l merktar með ör í mynstri A.2A (= hægri ermi), aukið út um 1 l, A.1 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 14-14-14-16-16-16 l merktar í mynstri A.3A og prjónið 12-12-12-14-14-14 l merktar í mynstri A.3B (= framstykki), aukið út um 1 l, A.1 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 6 l merktar í mynstri A.2B (= vinstri ermi), aukið út um 1 l, A.2 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 14-14-14-16-16-16 l merktar í mynstri A.3A og prjónið 12-12-12-14-14-14 l merktar í mynstri A.3B (= bakstykki) = 88-88-88-96-96-96 l á prjóni.
Haldið áfram með mynstur svona JAFNFRAMT sem útaukning fyrir LASKALÍNA heldur áfram hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (þ.e.a.s. þar til nægilega margar l eru fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru næstu útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni):
FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út hverri umf 1-5-7-9-15-25 sinnum og síðan í annarri hverri umf alls 15-14-14-14-12-8 sinnum.
ERMI: Aukið út í hverri umf 3-5-3-3-1-3 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf alls 14-14-16-17-19-19 sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir alla útaukningu eru 220-240-248-268-284-316 l í umf. Nú eru settar 46-50-50-52-52-56 l yfir hvorri ermi settar á þráð (þ.e.a.s. l yfir A.2A/A.2B, 7-9-9-10-10-12 l sléttprjón hvoru megin við þær og 2 l frá A.1 í hvorri hlið – ATH: Þetta er gert án þess að prjóna l) = 128-140-148-164-180-204 l eftir á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= hlið), prjónið 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, haldið áfram með A.3A og A.3B yfir næstu 60-60-60-74-74-74 l eins og áður, 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= hlið), prjónið 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, A.3A og A.3B yfir næstu 60-60-60-74-74-74 l eins og áður og 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón = 140-152-164-180-200-224 l í umf.
Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 60-60-60-74-74-74 l fram og bakstykki (þ.e.a.s. að utanverðu við A.3A/A.3B framan og aftan = 4 prjónamerki) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.3A/A.3B miðja að framan og miðja að aftan.
Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af að utanverðu við A.3A/A.3B (þ.e.a.s. inn að mynstureiningu með sléttprjóni) – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 5-5-6-6-7-7 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 128-140-152-168-188-212 l.
Þegar stykkið mælist 19-20-21-24-25-26 cm frá skiptingu við ermar (stykkið mælist ca 38-40-42-46-48-50 cm frá öxl), aukið út að utanverðu við A.3A/A.3B (þ.e.a.s. inn að mynstureiningu með sléttprjóni) – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-4-3-3 cm millibili alls 8-8-8-8-10-10 sinnum = 160-172-184-200-228-252 l.
Þegar stykkið mælist ca 51-52-53-52-53-54 cm frá skiptingu við ermar – stillið af eftir einni heilli gataeiningu í A.3A/A.3B, prjónið næstu umf þannig: Aukið út 4-7-4-7-6-6 l yfir næstu 10-13-16-13-20-26 l (sláið uppá prjóninn eftir ca 2.-2.-4.-2.-3.-4. hverja l), prjónið A.4A yfir næstu 31-31-31-38-38-38 l (veljið mynstur fyrir rétta stærð), prjónið A.4B yfir næstu 29-29-29-36-36-36 l (veljið mynstur fyrir rétta stærð), aukið út 8-14-8-14-12-12 l jafnt yfir næstu 20-26-32-26-40-52 l (þ.e.a.s. sláið uppá prjóninn eftir ca 2.-2.-4.-2.-3.-4. hverja l), prjónið A.4A yfir næstu 31-31-31-38-38-38 l, A.4B yfir næstu 29-29-29-36-36-36 l og aukið út 4-7-4-7-6-6 l jafnt yfir síðustu 10-13-16-13-20-26 l = 196-220-220-248-272-296 l í umf.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið næstu umf þannig (uppslátturinn er prjónaður snúinn inn í stroff svo að ekki myndist gat): 2 l sl, * 2 l br, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum, prjónið stroff yfir næstu 70-70-70-84-84-84 l eins og sýnt er í mynstri A.4A/A.4B, * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-6-6-6-8-10 sinnum, 4 l sl, prjónið stroff yfir næstu 70-70-70-84-84-84 l eins og sýnt er í mynstri A.4A/A.4B, * 4 l sl 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum og endið á 2 l sl.
Haldið svona áfram með stroffið, til þess að forðast að stroffið dragist mikið saman er prjónuð 1 umf slétt yfir allar l á eftir 3. Hverri umf með stroffiprjóni. Þegar stroffið mælist 28-28-28-30-30-30 cm (allur kjólinn mælist ca 98-100-102-104-106-108 cm frá öxl), prjónið 1 umf slétt yfir allar l áður en fellt er LAUST af með sl.

HÆGRI ERMI:
Prjónið í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá hægri hlið (séða frá réttu) á stutta hringprjóna nr 5,5. Prjónið 9-11-11-12-12-14 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2A (= 28 l), prjónið 9-11-11-12-12-14 l sléttprjón og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l í lok umf = 52-56-58-60-62-66 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar l (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og mynstri. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-2-3 cm fellið af 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 8-5-8-6-5-6 cm millibili alls 4-6-4-5-6-5 sinnum = 44-44-50-50-50-56 l. Þegar ermin mælist 31-31-31-28-28-28 cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og næsta umf er prjónuð þannig:
STÆRÐ S + M + XXXL: Prjónið 2 l sl, * 2 l br, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2 sinnum, prjónið A.5 yfir næstu 28 l, * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2 sinnum og endið á 2 l sl.
STÆRÐ L + XL + XXL: Prjónið 1 l br, 4 l sl, 2 l br, 4 l sl, prjónið A.5 yfir næstu 28 l, 4 l sl, 2 l br, 4 l sl og 1 l br.
Haldið svona áfram með stroff í 18-18-18-20-20-20 cm (öll ermin mælist ca 49-49-49-48-48-48 cm – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), prjónið 1 umf slétt yfir allar l áður en fellt er LAUST af með sl.

VINSTRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en prjónið mynstur eftir A.2B (í stað A.2A).

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.04.2023
Leiðrétting í útaukningu fyrir laskalínu.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að EKKI myndist gat
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Ingrid Kjeld wrote:

I har ikke svaret på mit spørgsmål. Jeg er med på udtagningerne til raglan, men der er også beskrevet yderligere udtagninger på bærestykket: ryg og forstykke først på hver omgang og siden på hveranden . Og det samme på ærmerne. Det er disse udtagninger, jeg spørger til. Eller er raglanudtagningerne de eneste udtagninger på bærestykket?

05.02.2024 - 14:12

DROPS Design answered:

Hei Ingrid. Du øker også helt i begynnelsen av bærestykket, 18 masker økes jevnt fordelt i alle str etter 4 omg retstrik. Ellers så er det kun raglan økning på bærestykket. mvh DROPS Design

12.02.2024 - 14:11

country flag Ingrid Kjeld wrote:

Spørgsmål til bærestykket: Som jeg læser det, skal der både tages ud til raglan og yderligere til ryg, forstykke og ærme. Er det korrekt? Det fremgår ikke hvor og hvordan, der skal tages ud. På ryg og forstykke er det så lige før og efter A1? Altså 4 masker pr. omgang. Og hvordan tager jeg ud på ærmet A.2B?

30.01.2024 - 13:25

DROPS Design answered:

Hei Ingrid. De 4 maskene i A.1 er raglanlinjene, 2 foran og 2 bak. Under BÆRESTK og LÆS HELE NÆSTE AFSNIT FØR DET STRIKKES! står det at man skal øke både før og etter A.1. Man strikker A.1 4 steder på 1 omgang = 8 økte masker til raglan på økeomgangene. Men husk: Der tages ud forskelligt på ryg & forstk og ærmer. mvh DROPS Design

05.02.2024 - 13:59

country flag Nicole wrote:

Weshalb fehlen bei den beiden Ärmel-Rapporten A.2A und A.2B bei den letzten beiden Reihen die seitlichen 8 Maschen? Soll man die sinngemäß vervollständigen? Und: soll man bei allen Rapporten, wenn diese durch die Raglanzunahmen in der Breite vollständig sind, dann die nächsten Maschen glatt rechts stricken?

20.01.2024 - 16:30

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, die beide Muster (das mittlere Lochmuster und das Texturmuster beidseitig vom Lochmuster) werden über eine verschiedene Reihenanzahl gestrickt, dh wenn das Texturmuster fertig ist, beginnen Sie Das Muster ab 1. Reihe wieder, aber gleichzeitig stricken Sie das Lochmuster bis zur Ende. Viel Spaß beim stricken!

22.01.2024 - 08:25

country flag Lise Sofie Nissen-Meyer wrote:

Jeg vil gjerne strikke denne, men kan dere anbefale et alternativt garn slik at den blir mindre varm? Tusen takk!

09.11.2023 - 14:11

DROPS Design answered:

Hej Lise, du kan evt strikke den i DROPS Paris som er bomuld, men DROPS Nepal føles tilpas varm i dette fine hulmønster :)

10.11.2023 - 15:11

country flag Corinne GODON wrote:

Bonjour, j'ai acheté la laine pour faire la robe 165/8. J'ai du mal à démarrer car si je fais les diagrammes dans l'ordre, je dois faire une augmentation après A1 et ensuite démarrerA2A par un jeté ce qui me crée un énorme trou au rang suivant. Pouvez-vous m'aider? La question a peut-être déjà été posée dans une autre langue? Merci d'avance Corinne

02.04.2023 - 19:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Godon, effectivement, vous aurez 2 jetés côte à côte à ce niveau-là, mais au tour suivant, l'un des jetés (augmentation du raglan) sera tricoté torse et l'autre (A.2) sera tricoté normalement. Si le trou est trop large, essayez de faire vos jetés un peu plus serrés à ce niveau. Bon tricot!

11.04.2023 - 10:45

country flag Kerstin Reimhagen wrote:

Förklaringen till oket är inte bra. Har kommit till 88 maskor men förstår inte omslagen efter det . Förstår inte hur jag ska fortsätta. På varv 1 blir det två omslag, ett efter a1 och ett till innan a2a. Förstår inte.

05.01.2023 - 14:18

DROPS Design answered:

Hei Kerstin. Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk og evnt komme med en rettelse. mvh DROPS design

06.01.2023 - 13:36

country flag Ursula wrote:

Liebes Drops-Team Ich habe den ersten Teil für Grösse M bis zum Ende der Zunahmen gestrickt und habe jetzt 160 Maschen auf der Nadel. In der Anleitung steht, ich müsste 240 Maschen haben. Wo habe ich 80 Maschen übersehen/vergessen? In Runde 7/9/11/13 sollte man doch keine Raglanzunahmen machen, oder? Ist evtl dort mein Fehler passiert? (Es wären aber auch damit noch keine 240Maschen...) Könnt Ihr mir weiterhelfen, bitte?

04.01.2023 - 17:56

DROPS Design answered:

Liebe Ursula, es wird jeweils 8 Maschen für den Raglan zugenommen (2 bei jedem Teil), und insgesamt 6 Mal in jeder Runde dann 14 Mal in jede 2. Runde - es waren 80 M + (6+14)x8 = 240 Maschen insgesamt. Viel Spaß beim stricken!

05.01.2023 - 10:50

country flag Anne Lise wrote:

I oppskriften er det kun øketips til bolen og raglan, ikke ermet. Jeg trenger å vite hvordan og hvor mye jeg skal øke på ermet for hver omg?

04.11.2022 - 09:37

DROPS Design answered:

Jo men raglanøkningen sker både på bolen og ermet. RAGLAN: Det økes til raglan på hver side av A.1 i hver overgang mellom bol og ermer. Øk ved å lage 1 kast (= 2 m økt i hver raglanlinje). På neste omg strikkes kastene vridd rett slik at det ikke blir hull.

04.11.2022 - 10:51

country flag Anne Lise wrote:

Beklager, men det er tydeligvis noe jeg ikke skjønner og må ha forklart med teskje. I avsnittet Bærestk så står det Erme: øk på hver omg 3 ganger til deretter på hver 2.omg totalt 14 ganger. Her skjønner ikke jeg hvordan det økes, jeg finner ikke forklaringen.

04.11.2022 - 09:19

DROPS Design answered:

Hej Anne Lise, åh, forstod ikke at du er på bærestykket. Du øker ved at lave 1 kast (du finder både RAGLAN og ØKETIPS øverst i opskriften )

04.11.2022 - 09:32

country flag Anne Lise wrote:

Jeg finner ikke utav hvor i teksten det står hvordan man øker på ermet, derfor spør jeg her?

04.11.2022 - 08:38

DROPS Design answered:

Hej Anne Lise, du øger ikke på ærmet, når du sætter ærmemaskerne tilbage på pinden, legger du nye masker op under ærmet, du kan se hvordan vi gør i videoen - Hvordan strikke en genser ovenfra og ned - du finder den nederst i opskriften. :)

04.11.2022 - 08:59