DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24

Frosty Morning

Prjónuð aðsniðin peysa með röndum úr DROPS Delight og DROPS Alpaca með gatamynstri, laskalínu og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-44
DROPS Design: Mynstur nr de-142
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 gr litur nr 05, beige/grár/bleikur
Og notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 506, dökk grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5.

RENDUR:
* Prjónið 2 umf með Alpaca, prjónið 2 umf með Delight *, endurtakið frá *-* uppúr.

AÐSNIÐ:
Fækkið lykkjum við 4 prjónamerkin. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út við 4 prjónamerkin (= aðsnið).
Aukið út þannig: Sláið uppá prjóninn á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út mitt undir ermum þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 2 l á undan A.3 þannig: 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Byrjun umf = miðja að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 213-231-252-276-300-327 l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið stroff (1 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm eru prjónaðar 2 umf sléttprjón. Prjónið síðan A.1, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 13-11-12-12-12-11 l jafnt yfir = 200-220-240-264-288-316 l.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og prjónað í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig:
1. prjónamerki er sett eftir 26-27-29-30-30-31 l. 2. prjónamerki er sett eftir 48-56-62-72-84-96 l, 3. prjónamerki er sett eftir 52-54-58-60-60-62 l, 4. prjónamerki er sett eftir 48-56-62-72-84-96 l, (nú eru 26-27-29-30-30-31 l eftir í umf á eftir síðasta prjónamerki). Í næstu umf er lykkjum fækkað fyrir AÐSNIÐ – sjá útskýringu að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf, 6-6-6-6-5-5 sinnum til viðbótar = 172-192-212-236-264-292 l. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf, 6-6-6-6-5-5 sinnum til viðbótar = 200-220-240-264-288-316 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm. Stillið nú af að næsta umf sé 2. umf með Delight! Prjónið nú þannig: Prjónið 45-50-55-60-66-73 l (= hálft bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 l sléttprjón (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið síðustu 45-50-55-60-66-73 l (= hálft bakstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 57-57-60-60-63-66 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið stroff þannig: * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til stroffið mælist 3 cm. Prjónið nú áfram 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 1-1-2-0-1-2 l jafnt yfir = 56-56-58-60-62-64 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Haldið síðan áfram í sléttprjóni og rendur, JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 41-39-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af að næsta umf sé síðasta umf með Delight. Í næstu umf eru felldar af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þannig: Haldið áfram með rendur og prjónið l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá framstykki, prjónið l af hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið l frá bakstykki = 320-348-372-400-428-464 l og 4 prjónamerki í stykki.
Prjónið nú A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í) og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 5-6-7-7-8-8 sinnum til viðbótar = 272-292-308-336-356-392 l. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf þar sem fækkað er um 20-26-28-32-36-40 l jafnt yfir = 252-266-280-304-320-352 l. Nú er prjónað og lykkjum fækkað eftir A.4 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Í næst síðustu umf í mynstri er fækkað um 4-6-8-28-30-44 l jafnt yfir = 176-184-192-200-210-220 l. Haldið nú áfram með Alpaca til loka. Prjónið nú A.5 yfir allar l (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið nú A.1 yfir A.5, JAFNFRAMT í 1. umf í mynstri er fækkað um 32-32-32-30-40-40 l jafnt yfir = 144-152-160-170-170-180 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð upphækkun í hnakka í garðaprjóni þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að framan. Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið sl þar til eftir eru 14-14-16-16-18-20 l á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 14-14-16-16-18-20 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 30-30-34-34-38-42 l á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 30-30-34-34-38-42 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka að byrjun umf. Haldið áfram með 2 umf sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 144-153-159-168-168-177 l. Prjónið nú stroff (1 l sl, 2 l br) í 2 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Peysan mælist ca 56-59-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = úrtöku umferð - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Tam wrote:

Hi it seems like Drops Delight is not available to buy anymore. Can you suggest a similar yarn?

28.08.2023 - 14:06

country flag Liz Simpson wrote:

Thanks for your quick answer but on my page, and the original, there are definitely only A1-3. (I’m using an iPad) I’d send a screenshot but there’s no way of attaching. Just above the measurements there is the word ‘diagram’ in a box, should they be there? I really want to finish my sweater - could you send me a screenshot or something?,

17.01.2023 - 20:07

DROPS Design answered:

Dear mrs Simpson, there might have been a temporary bug because the diagrams are visible even on Ipad - try to refresh the page, clean the cookies, etc.. this should help. Happy knitting!

18.01.2023 - 09:29

country flag Liz S wrote:

There are only diagrams 1-3 and the pattern mentions 4 & 5.

16.01.2023 - 21:33

DROPS Design answered:

Hi Liz, Patterns 4 and 5 are below patterns 1 - 3. Happy knitting!

17.01.2023 - 07:16

country flag Jane Brølling wrote:

Jeg er nået til raglanindtagning og forstår simpelthen ikke diagram A3. Det ser ud som om man skal slå om mellem to masker i hver side af diagrammet, men det kan vel ikke passe ? I så fald vil man jo få flere masker på pinden ?

18.09.2022 - 16:24

DROPS Design answered:

Hei Jane. Diagram A.3 går over 3 masker og når du strikker første omgang, lager du et kast, tar 1 maske løst av pinnen som om den skal strikkes rett, 2 rett sammen og løft den løste masken over (=felt 2 masker), 1 kast. Du har nå økt med 2 kast samtidig som du har felt 2 masker = Altså A.3 går fremdeles over 3 masker. mvh DROPS Design

19.09.2022 - 14:00

country flag Ada Goedbloed wrote:

Wat mij niet duidelijk is is bij de afwerking van de hals. Er staat in het patroon dat ik een mark eerder midden voor moet doen, dan moet ik middenachter beginnen en breien tot 14 st voor de markeerder, is dit voor of achter? Want dan draai ik het werk om en brei tot 14 st voor de markeerder aan de andere kant? Voor of achter?\r\nHet is me gewoon niet duidelijk welke markeerder. Graag hoor ik uw uitleg. Alvast veel dank

24.02.2022 - 18:27

DROPS Design answered:

Dag Ada,

Je begint midden achter en breit tot 14 steken voor de markeerder midden voor, dan keer je het werk om terug te breien via midden achter tot weer 14 steken voor midden voor, dus aan de andere kant. Zo ga je verder met steeds minder steken voor de markeerdraad midden voor. Hierdoor ontstaat er een verhoging op het achterpand.

26.02.2022 - 14:42

country flag Annette Hoffmeister wrote:

Hej. Jeg er lidt ærgerlig over, at der er hak midt bagpå, hvor man har skiftet farve. Senere har jeg fundet ud af, at der findes teknikker til at undgå hak. Men nu er jeg næsten færdig med trøjen. Er der en måde at få hakkene til at se pæne ud, når man har strikket trøjen? Det ville være dejligt, hvis der ved opskriften også var fotos af trøjen bagfra.

05.05.2020 - 17:31

DROPS Design answered:

Hej Annette, det noterer vi til kommende kollektioner. God dag :)

06.05.2020 - 08:33

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, ce pull se tricote de bas en haut mais peut on adapter les explications pour le tricoter en top down ? Merci pour votre réponse. Cordialement Nathalie

16.09.2019 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, si vous le souhaitez, vous pouvez tout à fait adapter les explications pour le tricoter en top down. Votre magasin DROPS saura vous aider si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

16.09.2019 - 15:34

country flag Gabi wrote:

Vielen Dank für die Antwort! Dann habe ich das schon falsch gemacht, A3 habe ich nur die sechs Reihen gestrickt, und nicht wiederholt, das ist aus der Anleitung nicht ersichtlich. Ich bin davon ausggegangen wie bei A1 und A2, dass sich der Rapport nicht wiederholt.... Wie ist A4 zu stricken, die 16 Maschen werden in der Runde wiederholt, und der ganze Rapport nur einmal gestrickt? Mfg Gabi

07.01.2019 - 13:17

DROPS Design answered:

Liebe Gabi, Sie stricken A.3 (4 Mal insgesamt, an jeder Raglan Linie) bis Sie 336-356-392 ( Größe XL-XXL-XXXL) M. haben und nach der AbnahmeRunde 304-320-352 M.haben. Dann stricken Sie A.4 (= 16 M) x 19-20-22 in der Runde - dann haben Sie 12 M x 19-20-22 = 228-240-264 M - 28-30-44 Abnahmen regelmäßig verteilt = 200-210-220 M. Viel Spaß beim stricken!

07.01.2019 - 14:42

country flag Gabi wrote:

Liebes Team....ich stricke gerade ihr Model und habe Freude daran. Jedoch verstehe ich A3 nicht. Werden die 16 Maschen immer in der Runde wiederholt? Herzlichen Dank für eine Antwort :)

05.01.2019 - 22:25

DROPS Design answered:

Liebe Gabi, A.3 ist nur über 3 Maschen gestrickt (die Markierungen sind jeweils in der Mittlere Masche in A.3, die mit dem Pfeil) - die 6 Reihen im Diagram wiederholen Sie bis die Raglanabnahme fertig sind. Viel Spaß beim stricken!

07.01.2019 - 11:08

country flag Ingvill wrote:

Takk for nydelig oppskrift! I mønsterdiagrammene vises en tom rute forklart som både rett og vrang, mens det ikke er noen ruter med x i. Vises det feil på min nettleser så x skal bety vrang?

28.03.2018 - 15:09

DROPS Design answered:

Hej Ingvill, ja det stemmer, ruderne med x betyder vrang og jeg kan se dem på min nettleser.... prøv at se hvordan det ser ud på mobilen... Held og lykke!

13.04.2018 - 10:48