DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Olivia Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-42
DROPS Design: Mynstur nr z-713
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr nr 7233, gulgrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm og 24 m x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 7 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l slétt saman og endið á 1 l sl.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 9, 16, 24, 32, 40 og 48 cm
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm
STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 l hvoru megin við 11 laskalykkjur. Aukið út með því að prjóna 2 l sl í l bæði á undan og á eftir 11 laskalykkjum (= 2 l fleiri við hvert A.1). Öll útaukning er gerð frá réttu.

MÆLING:
Vegna garðaprjóns kemur flíkin til með að teygjast þegar hún er notuð. Þess vegna er öll lengd mæld þegar flíkin hangir uppi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, prjónað er ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 106-106-106-114-114-114 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24 l jafnt yfir – ATH: Þær 5 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar brugðið og ekki er aukið út yfir þær (= kantlykkjur að framan )= 130-130-130-138-138-138 í umf.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (frá röngu): Prjónið 5 l br (= kantlykkjur að framan), 19-19-19-21-21-21 l sl (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 20 l sl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 38-38-38-42-42-42 l sl (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 20 l sl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 19-19-19-21-21-21 l sl (= vinstra framstykki) og endið á 5 l br (= kantlykkjur að framan).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR ER PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið síðan garðaprjón (1. umf = rétta), en í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma er prjónað A.1 (= 11 l – ATH: lykkjur með prjónamerki í eiga að passa við lykkjur með ör í mynstri), þær 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar brugðið í hverri umf til loka!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Aukið er eins út á fram- og bakstykki og ermum þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 13-21-26-34-42-53 sinnum og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 14-11-10-7-4-0 sinnum.
ERMI: Aukið út í annarri hverri umf alls 17-19-18-20-18-21 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 12-12-14-14-16-16 sinnum.

Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 354-382-402-438-458-498 l í umf og stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl.
Næsta umf er prjónuð frá röngu héðan: Prjónið 52-57-61-68-73-80 l (= hægra framstykki), setjið næstu 78-82-84-88-88-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= undir ermi), prjónið 94-104-112-126-136-150 l (= bakstykki), setjið næstu 78-82-84-88-88-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóni (= undir ermi) og prjónið næstu 52-57-61-68-73-80 l (= vinstra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-230-250-278-302-330 l. Haldið áfram í garðaprjón fram og til baka og kant að framan með br – munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, mælt frá skiptingu undir ermi (eða að óskaðri lengd) – LESIÐ MÆLING, Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er út um 2 l jafnt yfir = 212-232-252-280-304-332 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 3 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjur að framan brugðið og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Allt vestið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 78-82-84-88-88-94 l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l mitt undir ermi = 84-88-92-96-98-104 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT eftir 3 umf er fækkað um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 4-4-4-5-5-5 sinnum og síðan með 4½-3½-3-3-3-2 cm millibili alls 9-11-12-13-13-16 sinnum = 58-58-60-60-62-62 l. Þegar ermin mælist 48-48-48-47-47-47 cm (eða að óskaðri lengd), prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 2-2-4-0-2-2 l jafnt yfir = 56-56-56-60-60-60 l á prjóni. Prjónið 3 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br). Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (135)

country flag Astrid Michaelsen wrote:

Litt usikker på reglanfellingen der det står øk ved å strikke 2 rett i m ? Kan dere utdype dette nærmere vær så snill?

15.03.2024 - 12:17

DROPS Design answered:

Hej Astrid, Se her: Hvordan øke ved å strikke 2 m i 1 m du finder alle videoer øverst i opskriften.

19.03.2024 - 12:11

country flag Christel Hanson wrote:

Hej! Första frågan, kommer säkert fler… Vill inte göra fel från början… Ska de 5 kantmaskorna i varje sida stickas aviga från 1:a varvet eller är det först när jag har ökat de 24 m som jag börjar sticka de de 5 yttersta aviga, alltså ska knappkanten vara slätstickning?

01.02.2024 - 16:33

DROPS Design answered:

Hei Christel. Legg opp og deretter strikker du 6 pinner RÄTST (= rett på alle pinnene). Deretter øker du 24 masker og fra nå av skal stolpe maskene strikkes kun vrang (aviga), både fra retten og fra vrangen til ferdig mål. mvh DROPS design

12.02.2024 - 10:00

country flag Ellen Røsjø wrote:

Hvor mange nøster går med til denne jakka? Kan ikke se det står noe sted...

29.01.2024 - 14:08

DROPS Design answered:

Hei Ellen, Drops Alpaca er i 50 g nøster. Antall er avhengig av størrelsen du strikker men, som eksempel, hvis du strikker størrelse S trenger du 350 g som er 7 nøster. God fornøyelse!

30.01.2024 - 06:46

country flag Anette Pettersson wrote:

Hej! Är det någon som stickat denna kofta med Drops Flora som kan vara ett alternativ garn? Kan man även lägga till kid silk garn och använda detta mönster?

23.01.2024 - 09:38

DROPS Design answered:

Hej Anette. Det går bra att använda Flora till detta mönster och du kan även lägga till en tråd kidsilk så länge du får stickfastheten att stämma. Mvh DROPS Design

24.01.2024 - 14:23

country flag Holly Bernstein wrote:

I have four extra stitches after doing the first set of markers\r\nBand 5\r\nK 19\r\nMarker\r\nK 20\r\nMarker\r\nK 38\r\nMarker\r\nK 20\r\nMarker\r\nK 19\r\nBand 5\r\nTotals 126 stitches

19.01.2024 - 19:06

country flag Annamaria wrote:

Salve credo che sulla spiegazione ci sia un errore perché le maglie non combaciano. La spiegazione dice di avviare 106 m e poi aggiungere 24 aumenti quindi 130 m in tutto, nel momento di mettere i marker da 5m per bordo dx+ 19m per il davanti dx+ 20 ma per la manica+ 38m per il dietro+20m per l'altra manica+ 19m per il davanti sx e 5m per l'altro bordo che in tutto fanno 126m per cui restano fuori 4m mi spiegate come mai??? Grazie....

26.11.2023 - 18:34

DROPS Design answered:

Buonasera Annamaria, ha inserito i segnapunti NELLE maglie come indicato e non TRA le maglie? le 4 maglie che mancano sono le maglie con i segnapunti. Buon lavoro!

26.11.2023 - 23:13

country flag Greetje Van Hulst wrote:

Dag Greetje, Heb je de markeerders in de steken geplaatst en niet tussen 2 steken? Mogelijk verklaart dit het verschil van 4 steken...? Antwoord: 18.09.2023 kl. 20:20 Ik heb ze er tussen geplaatst: (5 steken,markeerder,21 steken,markeerder, 20 steken, markeerder, 42 steken, markeerder, 20 steken, markeerder, 21 steken, markeerder, 5 steken Dat zijn er nog steeds 134

18.09.2023 - 20:39

DROPS Design answered:

Dag Greetje,

Heb je de markeerders in de steken geplaatst en niet tussen 2 steken? Mogelijk verklaart dit het verschil van 4 steken...?

05.10.2023 - 06:24

country flag Greetje Van Hulst wrote:

In het patroon begin je de pas na het meerderen met 138 steken. Als je de markeerders plaatst volgens de aanwijzingen kom je op 134 steken (5+21+20+42+20+21+5= 134). Waar laat ik de overgebleven 4 steken ?

17.09.2023 - 21:29

DROPS Design answered:

Dag Greetje,

Heb je de markeerders in de steken geplaatst en niet tussen 2 steken? Mogelijk verklaart dit het verschil van 4 steken...?

18.09.2023 - 20:20

country flag Beatrix Windolph-Leicht wrote:

Laut Anleitung erfolgt Zunahme an Rumpf und Ärmel im unterschiedlichen Rhythmus. Aber die Zunahme in jeder 4. Reihe ist bei Größe M ab Rumpf (21. Zunahme ) und Ärmel (19. Zunahme +4 Reihen, also dann gleiche Reihe wie Rumpf) identisch. Ist das korrekt?

18.08.2023 - 17:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Windolph-Leicht, in M wird es beim Rumpf in jeder 2. Reihe 21 Mal dann in jeder 4. Reihe 11 Mal zugenommen; und gleichzeitig bei den Ärmeln in jeder 2. Reihe 19 Mal dann in jeder 4. Reihe 12 Mal zugenommen, dh es wird entweder 8 Maschen (Rumpf und Ärmel) oder nur 4 Maschen (wenn man in jeder 2. Reihe noch beim Rumpf zunimmt aber in jeder 4. Reihe bei den Ärmeln zunehmen soll) zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

21.08.2023 - 08:37

country flag Susanne wrote:

Ich habe diese Jacke inzwischen 8 x gestrickt- in verschiedenen Größe und Farben- und somit meine lieben Freundinnen , Tochter und Mutter beglückt, da meine eigene Jacke stets bewundert wurde. Ein herrliches Stück und immer dabei! Besonders liebe ich das Federgewicht , womit diese ein täglicher Begleiter ist. Danke für die Strickanleitung und die wundervolle Wolle!

30.05.2023 - 08:47