DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 165-40
DROPS Design: Mynstur nr db-053
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
300-400-400-500-500-500 gr litur nr 09, atlantis
Og einnig:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
250-300-300-350-350-400 gr litur nr 60, turkos

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 tbst á breiddina og 4,5 tbst á hæð til skiptis með 1 umf Big Delight og 1 umf Karisma verði 10 x 10 cm

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA:
2 tbst eru heklaðir saman í 1 tbst þannig: Heklið 1 tbst en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tbst í næstu l, dragið síðan þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti tbst í umf er skipt út fyrir 4 ll. Endið á 1 kl í fjórðu ll frá byrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

GALDRAHRINGUR:
Þegar stykkið er heklað í hring þá er þessi aðferð notuð til þess að sleppa við gat í miðju (í stað fyrir ll-hring) – notið Big Delight: Haldið í endann á þræðinum og snúið því einu sinni utan um vinstri vísifingur til þess að búa til lykkju. Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og löngutöng, endinn er settur yfir vinstri vísifingur. Stingið heklunálinni inn í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna, heklið 1 ll, heklið síðan í kringum lykkjuna þannig:

UMFERÐ 1: 1 ll, 1 fl, 2 hst, 2 st, 2 tbst. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna í síðasta tbst svo að hann rakni ekki upp og leggið þráðinn frá ykkur. Skiptið yfir í Karisma og heklið síðan um lykkjuna þannig: 1 fl, 2 hst, 2 st, 2 tbst. Dragið í endann þannig að lykkjan dragist saman. Festið endann á bakhlið.
UMFERÐ 2: (Haldið áfram með Karisma): Heklið 1 tbst + 1 ll í hverja og eina af 7 fyrstu l (= 1 fl, 2 hst, 2 st og 2 tbst sem heklaðir voru með Big Delight). Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna í síðasta tbst svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með Big Delight. Heklið 1 tbst + 1 ll í hverja af 7 næstu l (= 1 fl, 2 hst, 2 st og 2 tbst sem heklað var með Karisma) = 14 tbst + 14 ll.
UMFERÐ 3: (Haldið áfram með Big Delight). Heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í hvern og einn af fyrstu 7 tbst, setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta tbst svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með Karisma. Heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í hvern af næstu 7 tbst = 28 tbst + 28 ll.
UMFERÐ 4: (Haldið áfram með Karisma). * Heklið 1 tbst + 1 ll í næsta tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 7 sinnum. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna í síðasta tbst svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með Big Delight. * Heklið 1 tbst + 1 ll í næsta tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 7 sinnum = 42 tbst + 42 ll.
UMFERÐ 5: (Haldið áfram með Big Delight). * Heklið 1 tbst + 1 ll í hvern og einn af 2 næstu tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 7 sinnum. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta tbst svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með Karisma. * Heklið 1 tbst + 1 ll í hvorn af næstu 2 tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 7 sinnum. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna í síðasta tbst svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með Karisma. * Heklið 1 tbst + 1 ll í hvorn af næstu 2 tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 7 sinnum = 56 tbst + 56 ll.

Endurtakið umf 4 og 5, en í hverri umf er heklaður 1 tbst + 1 ll fleiri á milli útaukninga = 14 tbst + 14 ll fleiri í hverri umf. Haldið áfram þar til 112-112-126-126-140-140 tbst + 112-112-126-126-140-140 ll í umf, hringurinn mælist ca 20-20-23-23-25-25 cm frá miðju (= 40-40-46-46-50-50 cm að þvermáli).

Heklið næstu um þannig: (haldið áfram með spíral og litaskipti, en án útaukninga). Heklið 1 tbst + 1 ll í hvern af fyrstu 16-16-18-18-20-20 tbst, heklið 24-24-28-28-32-32 lausar ll fyrir handveg, hoppið yfir næstu 16-16-18-18-20-20 tbst, heklið 1 tbst + 1 ll í hvern tbst þar til eftir eru 32-32-36-36-40-40 tbst í umf, heklið 24-24-28-28-32-32 lausar ll fyrir handveg, hoppið yfir næstu 16-16-18-18-20-20 tbst, heklið 1 tbst + 1 ll í hvern af síðustu 16-16-18-18-20-20 tbst.

Næsta umf er hekluð þannig:
* Heklið 1 tbst + 1 ll í hvern af 7-7-8-8-9-9 næstu tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 2 sinnum, heklið 18-18-20-20-22-22 tbst með 1 ll á milli hverra um ll-boga, * Heklið 1 tbst + 1 ll í hvern af 7-7-8-8-9-9 næstu tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næstu tbst *, endurtakið frá *-* 3 sinnu. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta tbst svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Skiptið um þráð. * Heklið 1 tbst + 1 ll í hvern af 7-7-8-8-9-9 næstu tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næstu tbst *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, heklið 18-18-20-20-22-22 tbst með 1 ll milli hverra um ll-boga, heklið * 1 tbst + 1 ll í hvern og einn af 7-7-8-8-9-9 næstu tbst, heklið 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 ll í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 2 sinnum = 126-126-140-140-154-154 tbst + ll í umf.

Heklið eins og umf 4 og 5, en í hverri umf er heklað 1 tbst + 1 ll fleiri á milli hverra útaukninga = 14 tbst + 14 ll útauknar l í hverri umf. Haldið áfram þar til hringurinn mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá miðju (= 104-108-112-116-120-124 cm að þvermáli, eða að óskuðu máli).

Endið hringinn þannig: Haldið áfram með sama þræði og í síðustu umf. Heklið 1 tbst í hvorn af næstu 2 tbst, 1 st í hvorn af næstu 2 tbst, 1 hst í hvorn af næstu 2 tbst, 1 fl í næsta tbst, 1 kl í næsta tbst, klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað í hring frá handveg og niður. Notið heklunál nr 6 og byrjið með gagnstæðum lit við síðasta tbst í kringum handveg sem heklað var með. Heklið rendur, þ.e.a.s. heklið 1 umf með Karisma og 1 umf með Big Delight – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR.

Heklið 36-38-40-42-44-46 tbst í kringum opið fyrir ermi, byrjun á umf á að vera undir ermi. Heklið síðan 3 umf með 1 tbst í hvern tbst. Haldið áfram með 1 tbst í hvern tbst – JAFNFRAMT er fækkað um 2 tbst mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku 8. hvern cm 6 sinnum til viðbótar = 22-24-26-28-30-32 tbst. Haldið áfram þar til ermin mælist 54-55-54-55-54-55 cm. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (168)

country flag Kaci Krisher wrote:

Hi! Just counted my stitches for the repeat of 4th and 5th row. I have the amount of stitches, but my measurements aren't where they are suppose to be. Do I just keep going with the same round until i reach the measurements I need before moving onto the next step? Thank you!

12.11.2016 - 15:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Krisher, remember to check and keep your gauge, ie you should have 12 tr in width x 4.5 tr vertically alternately with 1 round Big Delight and 1 round Karisma = 4" x 4" (10 x 10 cm). Adjust crochet hook size if necessary. Happy crocheting!

14.11.2016 - 09:26

country flag Hilleke wrote:

Hallo, omdat ik allergisch ben voor wol heb ik een acryl draad waarmee ik dit patroon wil haken. Echter, de draad is dunner dan drops karisma en ik ben nu op het punt waar ik 50 cm zou moeten hebben, maar ik heb er maar 35. Kan ik gewoon door gaan in de rondte tot ik bij 50 cm ben gekomen? En telkens in dubbele van de vorige toer er éen meerderen? Maar hoe moet het dan met de armsgaten? Groeten.

10.11.2016 - 17:22

DROPS Design answered:

Hoi Hilleke. Ik kan u helaas niet helpen met individuele aanpassingen op de gratis patronen. Ik zou gewoon doorgaan en dan kijken wat het beste werkt.

11.11.2016 - 15:23

country flag Sandie wrote:

When this round is complete, there are an additional 24 stitches because of the 32 chain in the armhokes

28.10.2016 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Sandie, correct, but at the end of next round, you will have 154 dtr + 154 ch after working the round as explained, ie in each 32-ch-space work (1 dtr, 1 ch) a total of 22 times in larger size. Happy crocheting!

31.10.2016 - 09:05

country flag Sandie wrote:

Hi. I a man working this pattern in one colour and have reached the point that includes the 32 loose chain for the armhole. As I already had 140 stitches to start with, the extra 12 stitches for each armhole means that when the round is complete, I will end up with 164. This means that I cannot possibly end with the 154 Dtrs mention in the next section. Could you please clarify. Many thanks

27.10.2016 - 20:47

DROPS Design answered:

Dear Sandie, you are working this round over the 140 dtr (= no inc on this round): Crochet first the first 20 dtr and ch, then work 1st armhole: crochet 32 cha and skip the next 20 dtr, continue with dtr and ch as before until 40 dtr remain before end of round, work then the 2nd armhole over the next 20 dtr: skip 20 dtr and crochet 32 ch, and finish round with 20 dtr and chains. Happy crocheting!

28.10.2016 - 09:20

country flag Emi wrote:

Rectification: Bonjour je ne comprends pas le paragraphe suivant :"*1 DB + 1 ml dans chacune des 7-7-8-8-9-9 DB suivantes,--- 126-126-140-140-154-154 DB et ml tout le tour." sachant qu'un tour fait 70 DB dans mon cas .est ce que le debut de ce tour arrive aux emmanchures et que donc *1 DB + 1 ml dans chacune des 9-9 DB suivantes,correspond aux 32 ml?

03.10.2016 - 20:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Emi, après le tour 5, vous avez 56 DB, vous devez continuez à augmenter comme aux tours 4 et 5, avec 1 DB, 1ml entre chaque augm. (= 14 augm par tour) jusqu'à ce que vous ayez un total de 112 DB et 112 ml au total tout le tour (avec les 2 fils). Quand vous avez ce nbe de DB, crochetez le tour des emmanchures comme avant (= en changeant de couleur), mais sans augmenter. Bon crochet!

04.10.2016 - 08:58

country flag Emi wrote:

Bonjour je ne comprends pas le paragraphe suivant :"*1 DB + 1 ml dans chacune des 7-7-8-8-9-9 DB suivantes, 1 DB + 1 ml + 1 --- DB suivantes, 1 DB + 1 ml + 1 DB + 1 ml dans la DB suivante*, répéter de *-* 2 fois = 126-126-140-140-154-154 DB et ml tout le tour." sachant qu'au tour précédent je le termine et je me retrouve au dessus du second fil. Alors ca me fait une sorte de dénivelé. Et c'est là que je suis perdue...faut il retourné le travail ou autre?

03.10.2016 - 17:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Emi, chaque tour complet se compose d'une moitié de tour réalisée dans chaque fil, ainsi, quand le tour est terminé, vous devez avoir les 2 fils diamétralement opposés. Si vous avez terminez le tour au niveau du 2ème fil, vous avez probablement oublié de terminer le tour précédent avec cette couleur. Bon crochet!

04.10.2016 - 08:26

country flag Fernanda Piattelli wrote:

Che cosa si intende catenella LASSE COME SI FA GRAZIE

03.10.2016 - 13:53

DROPS Design answered:

Buongiorno Fernanda. Significa avviare delle cat morbide, larghe, che non siano troppo strette. Buon lavoro!

03.10.2016 - 13:59

country flag Fernanda Piattelli wrote:

Che cosa si intende catenella LASSE COME SI FA GRAZIE

03.10.2016 - 13:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Fernanda. Significa avviare delle cat morbide, larghe, che non siano troppo strette. Buon lavoro!

03.10.2016 - 13:58

country flag Melissa wrote:

Is this for advanced crocheters? I can't even get the beginning circle to look right! I looked further down the pattern and I don't understand some of the directions. I'm at intermediate level and this just seems too confusing but I love it and want to make it so very badly. I will check out the video, but if it's anything like the directions, I may not be able to make this. 😞😞😞😟😟

03.09.2016 - 21:08

DROPS Design answered:

Dear Melissa, the video below shows how to work the first 3 rounds to the jacket, continue then as before, inc 7 sts (= work 1 tr+1 ch more between every inc) and half round alternately in each colour. And remember, your DROPS store will provide you any further personnal assistance. Happy crocheting!

05.09.2016 - 09:20

country flag Debbie Larson wrote:

I am making a small pattern, I have 112 stitches for the last round 5. this is where I get confused 2nd half of next round..how can I get 24 sc, skip 16, and do 16tr in only 32 stitches? =56 not 32. PLUS, I am supposed to skip 16 stitches before I do 16 tr? It would seem to me that I have to cut the yarn between the 24 sc and doing the last 16tr.Please help me understand. Thanks

17.08.2016 - 19:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Larson, continue this round changing the colors as you did before, ie first half of round will be worked with 1 color and 2nd half of round will be worked with the 2nd color, at the same time, work spiral as before and skip 16 tr for armhole replaced with 24 chains on both stated places. Happy crocheting!

18.08.2016 - 10:13