DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet As Candy

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með hringlaga hálsmáli og marglitum mynsturbekk. Stærð S - XXXL

DROPS 165-1
DROPS Design: Mynstur nr u-761
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 71, silfur bleikur
50-50-50-50-100-100 gr litur nr 69, ljós grágrænn
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 39, dökk bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 65, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 68, ljós himinblár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 74, fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og A.1 er endurtekið upp að handveg á bæði fram- og bakstykki og ermum.

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 220 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44 l) = 5 l. Þ.e.a.s. í þessu dæmi er 4. og 5. hver l prjónuð slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 4 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 4 l sl, (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Til þess að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 220-240-260-284-320-348 l á hringprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur DROPS Karisma.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 44-48-52-56-64-68 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 176-192-208-228-256-280 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur hringinn eftir mynstri A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 88-96-104-114-128-140 l (= hliðar). Fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-3-3-3-4½-4½ cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum á hvorri hlið = 160-176-192-212-244-268 l – ATH: Stillið af úrtökuna svo að hún verði í umf með litnum ljós beige.
Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3½-3½-4-4-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 176-192-208-228-256-280 l.
Þegar stykkið mælist ca 37-38-39-40-41-42 cm – passið uppá að prjónuð sé 1 eða 2 umf með litnum silfur bleikur á eftir 1 umf með “doppum” prjónið næstu umf þannig: Fellið af 4-4-4-5-5-5 l fyrir handveg, prjónið 80-88-96-104-118-130 l (= framstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 80-88-96-104-118-130 l (= bakstykki) og fellið af þær 4-4-4-5-5-5 l sem eftir eru fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf sl þar sem fækkað er um 12-12-14-12-14-14 l jafnt yfir = 48-48-50-52-54-54 l á prjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón og mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-13-13-14-14-16 sinnum = 70-74-76-80-82-86 l. Prjónið þar til ermin mælist 46-46-45-45-44-44 cm – stillið af þannig að prjónaðar verði jafnmargar umf með litnum ljós beige og á fram- og bakstykki (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umf sl þar sem miðju 8-8-8-10-10-10 l undir ermi eru felldar af = 62-66-68-70-72-76 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki þar sem felldar voru af l fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 284-308-328-348-380-412 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt með litnum silfur bleikur þar sem fækkað er um 8-8-10-12-14-16 l jafnt yfir = 276-300-318-336-366-396 l í umf – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynstri A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð og byrjið á umf merktri með ör í mynstri fyrir rétta stærð). Haldið svona áfram með mynstrið.
JAFNFRAMT í umf merktri með ör 1 í mynstri er fækkað um 36-40-42-48-50-56 l jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1= 240-260-276-288-316-340 l í umf. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör 2 í mynstri er fækkað um 40-40-44-48-52-56 l jafnt yfir= 200-220-232-240-264-284 l í umf.
Í umf merktri með ör 3 í mynstri er fækkað um 40-44-44-52-52-60 l jafnt yfir = 160-176-188-188-212-224 l í umf.
Í umf merktri með ör 4 í mynstri er fækkað um 48-60-60-60-64-68 l jafnt yfir = 120-116-128-128-148-156 l í umf.
Þegar A.2 er lokið mælist stykkið ca 53-55-57-59-61-63 cm upp að öxl.

UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA:
Til þess að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 12-12-14-14-15-15 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-30-30 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 36-36-40-40-44-44 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-48-52-52-58-58 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-72-72 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 72-72-76-76-86-86 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 84-84-88-88-100-100 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 96-96-100-100-114-114 l br til baka. Snúið við og prjónið sl að miðju að aftan.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 28-32-32-32-44-52 l jafnt yfir = 84-84-96-96-104-104 l í umf. Prjónið nú stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = silfur bleikur
symbols = ljós grágrænn
symbols = sinnepsgulur
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = dökk bleikvínrauður
symbols = gallabuxnablár
symbols = fjólublár
symbols = ljós himinblár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet As Candy

Kamila, Poland

165-1 Sweet As Candy

Saga, Sweden

Sweet as Candy

Doppie, United States

pull Drops

Nicole, France

165-1 Sweet As Candy

atelieraurea, United Kingdom

Sweet As Candy

Kirsty, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Liv Helen Nilsen wrote:

På bilde av genseren stemmer striper på erme og bol overens, men det gjør de ikke når jeg legger de ved siden av hverandre. Har fulgt oppskrift når det gjelder lengder. Strikker str. M. Hva gjør jeg?

31.03.2016 - 14:16

DROPS Design answered:

Hej Liv, Stykkerne er ikke lige lange i alle størrelser, så de skal ikke stemme. Men når du kommer op til bærestykket fortsætter du ifølge samme diagram, så da stemmer mønsteret. God fornøjelse!

06.04.2016 - 10:00

country flag KRISTIN BORE wrote:

Hei! Lurer på hvilket fargenummer det er på bunnfargen "lys beige"? I oppskriften står det nr.71, men hvis du ser på fargenr. 71 i Karisma så er det fargen "sølvrosa". Mvh Kristin

28.03.2016 - 00:18

DROPS Design answered:

Hej Kristin. Det skal vare 71 du skal bruge, vi har aendret farvenavnet siden og ikke faaet rettet til i mönstrene.

29.03.2016 - 15:47

country flag Elena Stanciu wrote:

Ist diese Pulli von Oben ( also von Hals) zum anfangen? Ich check leider nicht ganz!!!! Lg. Elena

07.03.2016 - 11:52

DROPS Design answered:

Liebe Elena, dieser Pulli wird von unten nach oben gestrickt.

07.03.2016 - 13:08

country flag Martine wrote:

Bonjour, j'ai commandé la laine mais je suis très déçue par le coloris de fond (71) qui tire vraiment sur le rose. Puisque j'achète la laine sur le web, pouvez-vous me dire si en prenant le coloris écru le pull sera tout aussi beau ? Merci !

20.12.2015 - 18:59

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, merci de bien vouloir contacter le magasin où vous avez acheté votre laine, il pourra vous aider et vous renseigner en fonction de vos souhaits. Retrouvez ses coordonnées ici. Bon tricot!

21.12.2015 - 11:16

country flag Mireille wrote:

Klopt het wel, de genoemde kleuren en bollen? Je zet op met lichtbeige, maar in het telpatroon onderin is ook lichtbeige, op de foto zijn dit volgens mij toch twee verschillende kleuren.

06.12.2015 - 21:24

DROPS Design answered:

Hoi Mireille. Ja, het patroon klopt. Je zet op en breit met lichtbeige - dit is de "achtergrondkleur" door de hele trui. Bij de patronen brei je dus met lichtbeige en andere kleuren voor de motieven.

07.12.2015 - 13:25

country flag Kate wrote:

In dit patroon staat dat je nodig hebt: DROPS BREINLD ZONDER KNOP EN RONDBREINLD (40 en 80 cm) 4 mm - of de maat die u nodig hebt voor een stekenverhouding van 21 st x 28 nld in tricotst = 10 x 10 cm. DROPS BREINLD ZONDER KNOP en RONDBREINLD (40 en 80 cm) 3 mm - voor de boordsteek. MOET ik echt ook gewone breinaalden voor deze trui gebruiken? Ik kan niet met normale breipennen breien, maar wil deze wel heel graag maken. Als ik het niet met mijn rondbreipennen kan doen, houdt het helaas op :(

21.10.2015 - 18:20

DROPS Design answered:

Hoi Kate. Je kan ook heen en weer breien op je rondbreinaald en is je rondbreinaald te groot, dan kan je ipv van breinld zonder knop de magic loop techniek gebruiken, kijk hier;

22.10.2015 - 13:03

country flag Tonje Skillebæk wrote:

Når jeg teller stripene/lusene på bolen og armene, før mønster på rundfelling, får jeg ikke dette til å stemme med angitte cm i oppskrift? 14 striper på bol og 19 på erm utgjør mer i cm? Jeg strikker M, og synes modell på bildet ser ut som en S/M? Takk 😊

17.10.2015 - 00:16

DROPS Design answered:

Hej Tonje, det er bedre at du følger opskriften så er du sikker på at du får de rigtige mål. God fornøjelse!

26.11.2015 - 14:55

country flag Hoefer wrote:

Maschenanzahl Rumpfteil: von 176M 4x4 M abnehmen = 160M dann später wieder 4x4 M zunehmen und auf 187M kommen? Das kann doch nicht sein! Mit welcher Maschenanzahl muss denn bis zum Armausschnitt gestrickt werden?

04.10.2015 - 15:53

DROPS Design answered:

Sie haben Recht, hier ist ein Fehler in der Anleitung, die M-Zahl wird umgehend korrigiert.

04.10.2015 - 20:13

country flag Alexa wrote:

Hallo, ich wage mich das erste Mal an einen Norwegerpulli. Frage: werden die Fäden der unterschiedlichen Farbknäuel mitgeführt (und wenn ja, wie?) oder nach jeder Runde vernäht? Danke!

14.09.2015 - 11:33

DROPS Design answered:

Wenn die Farbe einige Runden später wieder erscheint, können Sie sie auch nach oben mitführen, dazu verkreuzen Sie den gerade nicht benötigten Faden am Rundenbeginn auf der Rückseite einfach mit dem Arbeitsfaden, damit er etwas fixiert wird. Achten Sie auch darauf, dass er nicht zu fest angezogen wird, wenn Sie wieder zu der mitgeführten Farbe wechseln. Wenn die Farbe erst viele Runden später wieder benötigt wird, würde ich den Faden abschneiden, ansonsten müssen Sie auch zu viele Fäden mitführen. Hellbeige können Sie am Rumpf z.B. die ganze Zeit mitführen.

15.09.2015 - 21:42

country flag Ann wrote:

Denne var nydelig

13.08.2015 - 11:51