DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 166-11
DROPS Design: Mynstur nr ai-020
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
400-450-450-500-550-600 gr litur nr 10, þoka

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 5 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA: Hringlaga (blá), NR 612: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) svo að ekki verði gat. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.4!

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l þannig: Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Prjónið að 2 l á undan A.3, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 25, 33, 41, 49, 57 og 65 cm.
STÆRÐ M: 25, 33, 42, 50, 59 og 67 cm.
STÆRÐ L: 27, 35, 44, 52, 61 og 69 cm.
STÆRÐ XL: 28, 37, 45, 54, 62 og 71 cm.
STÆRÐ XXL: 28, 37, 46, 55, 64 og 73 cm.
STÆRÐ XXXL: 30, 39, 48, 57, 66 og 75 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 95-98-101-107-113-116 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið stroff þannig: A.1 (= 8 l), 1 l sl, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir á prjóni, A.2 (= 8 l). Haldið svona fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónað þannig: A.1, sléttprjón yfir næstu 79-82-85-91-97-100 l, JAFNFRAMT er fækkað um 15-14-15-17-21-20 l jafnt yfir, A.2 = alls 80-84-86-90-92-96 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni, prjónið A.1 og A.2 í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 22 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í lok 2 næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l (klauf) = 84-88-90-94-96-100 l. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 (= 9 l) sléttprjón fram að A.2, prjónið A.3 yfir A.2 og næst síðustu l og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 26-24-24-23-23-23 cm byrjið tilfærslu á A.3 að miðju að aftan. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, A.3, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA, sléttprjón þar til 2 l eru eftir á undan A.3, fækkið um 1 l, A.3, aukið út um 1 l, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Endurtakið tilfærslu af A.3 í 4. hverri umf 17-19-20-21-22-24 sinnum til viðbótar. ATH: Útaukning er alltaf gerð innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni i hvorri hlið! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fitjið upp 1 nýja l í lok 2 næstu umf fyrir handveg = 86-90-92-96-98-102 l. Nú heldur mynstrið áfram innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sléttprjón í hvorri hlið. Þær 82-86-88-92-94-98 miðju l eru prjónað í mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm fellið af miðju 24-24-24-26-26-26 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er fækkað um 1 l = 30-32-33-34-35-37 l eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 55-55-58-61-64-64 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið stroff þannig: A.5 (= kantur að framan), 1 l sl, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir, A.2. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónað þannig: A.5 (= 7 l), sléttprjón þar til 8 l eru eftir, JAFNFRAMT er fækkað um 8-6-8-9-11-9 l jafnt yfir þessar l, A.2 = 47-49-50-52-53-55 l. Haldið áfram í sléttprjóni, prjónið A.5 yfir kant að framan og A.2 í hlið eins og áður þar til stykkið mælist 22 cm. Nú eru fitjaðar upp 2 nýjar l í hlið (klauf) = 49-51-52-54-55-57 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið nú A.3 yfir A.2 og næst síðustu l í umf og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 26-24-24-23-23-23 cm byrjar tilfærsla á A.3 að miðju að framan. Fækkið um 1 l á undan A.3 og aukið út um 1 l á undan síðustu l á prjóni. Endurtakið tilfærslu á A.3 í 4. hverri umf 17-19-20-21-22-24 sinnum til viðbótar. ATH: Útaukning er alltaf gerð innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fitjið upp 1 nýja l í lok næstu umf frá réttu fyrir handveg = 50-52-53-55-56-58 l. Haldið áfram mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sléttprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 64-66-68-69-71-73 cm setjið fyrstu 14-14-14-15-15-15 l á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af l í hveri umf frá hálsi þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 30-32-33-34-35-37 l fyrir öxl. Kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið í fyrstu umf þannig: A.1, 1 l sl, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, A.6 (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 22 cm eru fitjaðar upp 2 nýjar l í hlið (klauf). Prjónið nú A.3 yfir 2. l í umf og A.1. Þegar stykkið mælist 26-24-24-23-23-23 cm byrjar tilfærslan á A.3 að miðju að framan. Aukið út um 1 l á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og fækkað er um 1 l á eftir A.3. Haldið áfram með tilfærsluna alveg eins og á hægra framstykki, JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l fyrir handveg, - stillið af eftir hægra framstykki! Þegar stykkið mælist 64-66-68-69-74-73 cm setjið fyrstu 14-14-14-15-15-15 l séð frá röngu á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af l í hverri umf frá hálsi þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 30-32-33-34-35-37 l. Kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

ERMI:
Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 39-41-43-43-43-45 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 l sl, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og haldið áfram með mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið síðustu l í A.4, endurtakið A.4 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 10 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.4. Endurtakið útaukningu með 5½-4½-4½-3½-3-3 cm millibili, 6-7-7-9-11-11 sinnum til viðbótar = 53-57-59-63-67-69 l. Þegar ermin mælist 46 cm í öllum stærðum, prjónið ermakúpu með stuttum umf frá réttu þannig: Prjónið þar til 8-9-9-10-11-12 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka þar til 8-9-9-10-11-12 l eru eftir, snúið við og prjónið þar til 17-19-19-21-22-23 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka þar til 17-19-19-21-22-23 l eru eftir. Snúið við og prjónið út umf, snúið við og prjónið yfir allar l. Fellið af með sl frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir 22 cm fyrir klauf neðst niðri á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Byrjið frá réttu á hægra framstykki og takið upp ca 120-130 l (meðtaldar l af þræði að framan). Prjónið 1 umf sl til baka frá röngu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 90-90-90-96-96-96 l – en ekki yfir kant að framan, þær eru prjónaðar eins og áður. Prjónið nú stroff (1 l sl, 2 l br) innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið, endið á 1 l sl á undan síðasta kant að framan. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (73)

country flag Bex wrote:

I don’t know if someone has asked this, I can only read the English. When doing the displacement of A3/increasing stitches - what stitch do I use for those extra stitches? After the edge garter stitch & before A3 are they stocking stitch or garter stitch pls?

07.02.2024 - 16:37

DROPS Design answered:

Hi Bex, The increased stitches are in stocking stitch. Happy knitting!

08.02.2024 - 07:03

country flag Luz Pinilla wrote:

Me gustaría contar con un tutorial de vueltas acortadas para la manga , con el fin de entenderlo mejor .

14.11.2023 - 21:34

DROPS Design answered:

Hola Luz, aquí tienes un video sobre cómo trabajar filas acortadas: https://www.garnstudio.com/video.php?id=66&page=2&lang=es.

26.11.2023 - 23:46

country flag Esther Deppendorf wrote:

Hallo liebes Team, könnte ich diese Anleitung auch mit dem Garn Melody stricken? Das ist ja nun Garngruppe D. Vielen Dank für Ihre Rückmeldung.

22.12.2021 - 21:19

DROPS Design answered:

Liebe Frau Deppendorf, DROPS Air gehört zur Garngruppe C so wird Melody nicht das richtige Garn um Air zu erseten. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2022 - 08:16

country flag Angel wrote:

I agree with the lady who has been knitting for 70 years. Your videos are as poor as the pattern instructions, no sound or explanations given.

14.11.2021 - 15:16

country flag Ute wrote:

Hallo Drops-Team, Ich habe eine Frage direkt am Beginn der Anleitung. Stricke ich den Anfang des Rückenteils an dem später der Schlitz sein soll, ganz ohne Randmasche, d.h. Hinreihe links und Rückreihe rechts? Viele Grüße, Ute

24.08.2021 - 08:47

DROPS Design answered:

Liebe Ute, die Randmaschen sind in A.1 und A.2 gestrickt (= die erste Masche in A.1 und die letzte Masche in A.2 ist kraus rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2022 - 08:04

country flag Wenny wrote:

Dankjewel voor de reacties, in de opmerkingen staat het volgende: DROPS Design 18.05.2018 kl. 13:32: displacement will be worked from RS, ie on a RS row increase 1 st before A.3 and dec 1 st after A.3 at the beg of row and dec 1 st before last A.3 and inc 1 st after last A.3 at the end of row. The new sts increased will be then worked in A.4 see INCREASE-TIP. Happy knitting! Zo lijkt het op de foto ook of het patroon door gebreid wordt.

17.02.2021 - 09:06

country flag Wenny wrote:

Vervolg op de eerste vraag , Net een proeflapje gemaakt met de verschuivingen in het A3 patroon, er komt dus iedere 4 pen een steek aan iedere kant bij, ik kan niet goed vinden wat ik hiermee ga doen, moeten die in a3 mee gebreid worden zodat de steken gaan verspringen of komen er steeds meer steken in A3 gebreid en steeds minder tricot steken in het middelste deel, Erg onduidelijk patroon, Hoop dat jullie mij snappen

14.02.2021 - 14:35

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Aan het begin van de naald meerder je 1 steek voor A.3 en minder je 1 steek na A.3 en aan het eind van de naald minder je 1 steek voor A.3 en meerder je 1 steek na A.3. Het totaal aantal steken blijft dus hetzelfde, maar door het meerderen en minderen verplaatst het patroon zich richting midden voor. De gemeerderde steken brei je in tricotsteek. Lees ook de tips voor het meerderen en minderen bovenaan bij de instructies.

15.02.2021 - 10:07

country flag Wenny wrote:

Ik ben begonnen met dit patroon,het einge waar ik even niet uit komis het volgende: Begin bij een hoogte van 26-24-24-23-23-23 cm met het verschuiven van A.3 middenachter. dat verspringen is niet het probleem maar ik begrijp het middenachter niet, misschien kunnen jullie helpen m.v.g Wenny

14.02.2021 - 13:04

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Het 'midden achter' stond er een beetje ongelukkig; er wordt mee bedoeld dat je A.3 richting midden achter verschuift, dus door de meerderingen en minderingen aan beide kanten verschuift het patroon vanaf beide zijkanten richting midden achter. Ik heb de tekst nu aangepast.

15.02.2021 - 10:04

country flag Shirley Ray wrote:

I have been knitting for more than 70 years, and I have never seen a pattern as difficult to understand as this one. And with so many questions, none of which Americans can understand. Is there anyone on thisl ist who has completed this sweater without problems or confusion?

11.05.2020 - 19:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ray, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people  around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!

12.05.2020 - 10:11

country flag Velia wrote:

Me quedo muy lindo el suéter las explicaciones son excelentes agradezco mucho la ayuda. Y aclaró que no es la primera vez que hago un trabajo bajo la dirección de ustedes gracias

07.07.2019 - 17:57