DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Into The Woods

Prjónuð peysa úr DROPS Snow með gatamynstri, tvöföldu perluprjóni, garðaprjóni og hettu. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-1
DROPS Design: Mynstur nr ee-531
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
950-1050-1150-1300-1400-1550 gr litur nr 23, móbrúnn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 7 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS HORNATALA (köntuð), NR 538: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónið slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri frá réttu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað innan við 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

MÆLING-1 (á við um fram- og bakstykki):
Til að fá rétt hlutföll á peysuna er mæling á lengd gerð þegar stykkið liggur flatt. Vegna þyngdar á garninu og garðaprjóni í berustykki kemur stykkið til með að teygjast um ca 10 cm á lengdina miðað við mælingu í mynsturteikningu.

MÆLING-2 (á við ermi):
Vegna þyngdar á garninu er öll mæling á lengd gerð þegar stykkinu er haldið uppi.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 6 hnappagötum í hægra framstykki þannig (frá réttu): Prjónið 4 l, fellið af 2 l fyrir hnappagati, prjónið 6-6-6-8-8-8 l, fellið af næstu 2 l fyrir hnappagati = 2 hnappagöt í sömu umf (4 l eftir í kant að framan). Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð S: 36, 45, 54 cm
Stærð M: 38, 47, 56 cm
Stærð L: 40, 49, 58 cm
Særð XL: 42, 51, 60 cm
Stærð XXL: 44, 53, 62 cm
Stærð XXXL: 46, 55, 64 cm
ATH: Það er ca 1 cm er á eftir síðasta hnappagati áður en prjónað er garðaprjón yfir allar l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 61-65-71-75-81-87 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 5-5-5-6-6-6 cm (1. umf = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 20-22-23-25-26-29 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.2 alls 2 sinnum (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 2 mynstureiningar 10-10-12-12-14-14 l), prjónið sléttprjón þar til 1 l er eftir í umf og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm fækkið um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri) og MÆLING-1. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 7-7-8-10-10-10 cm millibili alls 7-7-7-6-6-6 sinnum = 47-51-57-63-69-75 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Fellið nú af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 0-0-1-2-3-4 sinnum og 1 l 1-2-2-3-3-3 sinnum = 39-41-43-43-45-47 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 78-81-84-87-90-93 cm fellið af miðju 9-9-11-11-11-13 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 14-15-15-15-16-16 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 40-42-44-48-52-54 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 18-18-18-20-20-20 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 7 með Snow. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu: Prjónið A.1 yfir fyrstu 18-18-18-20-20-20 l (= kantur að framan), prjónið síðan garðaprjón yfir þær 22-24-26-28-32-34 l sem eftir eru. Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan og garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 5-5-5-6-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: A.1 yfir fyrstu 18-18-18-20-20-20 l eins og áður, 2 l sléttprjón, prjónið A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 1 mynstureining 10-10-12-12-14-14 l), prjónið sléttprjón þar til 1 l er eftir í umf og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm fellið af í hlið eins og á bakstykki. Endurtakið úrtöku alls 7-7-7-6-6-6 sinnum = 33-35-37-42-46-48 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm – MUNIÐ EFTIR MÆLING-1, prjónið garðaprjón yfir allar l (einnig yfir 18-18-18-20-20-20 kantlykkjur að framan) til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fellið af fyrir handveg í hverri umf frá hlið eins og á bakstykki = 29-30-30-32-34-34 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 74-77-80-82-85-88 cm setjið síðustu 11-11-11-12-13-13 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að klippa frá, prjónið l áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og síðan 1 l alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 14-15-15-15-16-16 l eftir á öxl. Fellið allar l laust af þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ATH: Þegar A.2 byrjar er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 29-29-31-33-35-35 l eru eftir á prjóni, prjónið mynstur eftir A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 1 mynstureining 10-10-12-12-14-14 l), prjónið 1 l sléttprjón og haldið áfram með A.1 yfir þær 18-18-18-20-20-20 l sem eftir eru (= kantur að framan). Fellið ekki af fyrir hnappagötum á vinstra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HETTA:
Prjónið upp ca 46 til 58 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til 66-68-70-72-74-76 l (ekki er aukið út yfir kant að framan). Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir allar l þar til hettan mælist ca 32-33-34-35-36-37 cm. Fellið af. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið toppinn saman með lykkjuspori.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 26-28-30-30-34-34 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-12 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri) og MÆLING-2. Endurtakið útaukningu með 7½-6-6-5-4½-3½ cm millibili alls 6-7-7-8-8-9 sinnum = 38-42-44-46-50-52 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-45-44-43 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1-2-2-2-2-2 sinnum og 1 l 2-2-3-3-3-3 sinnum. Síðan eru felldar af 2 l í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 55-56-56-56-56-56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 56-57-57-57-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.08.2015
Leiðrétting: BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 1 kantlykkja með garðaprjóni, 20-22-23-25-26-29 l sléttprjón, prjónið eftir mynstri A.2 alls 2 sinnum..

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (110)

country flag Irene Manuela Guerrero wrote:

Me encantaría aprender a tejer con este sistema, sólo conozco las agujas rectas y el crochet, éste sistema sin costura me encantaría, vivo en España Gerona y no creo que consiga estas agujas, no? Gracias

18.10.2023 - 05:55

country flag Jolanda Baltus wrote:

Bij de beschryving van het rechtervoorpand, is de mindering voor de mouwinzet niet opgenomen. Het is even puzzelen, verder mooi patroon, nog wel twee extra knoopsgaten meegenomen :)

17.01.2023 - 10:16

country flag Lisa Robert wrote:

Rabattre maintenant pour les emmanchures au début de chaque rang de chaque côté: 1 fois 3 m, 0-0-1-2-3-4 fois 2 m et 1-2-2-3-3-3 fois 1 m = 39-41-43-43-45-47 m. A cette partie du tricot je suis a 57m si je rabats comme indiqué je ne trouve pas 43m je crois que je ne comprends pas bien cette partie du patron, pouvez-voue m'expliquer s'il vous plait?

25.10.2022 - 09:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robert, en taille L, vous allez rabattre 3 m au début des 2 rangs suivants (= à la fin du rang suivant sur l'endroit + à la fin du rang suivant sur l'envers) (= 3 m de chaque côté), puis 2 mailles au début des 2 rangs suivants (= 2 m de chaque côté) et enfin 1 maille au début des 4 rangs suivants (2 m de chaque côté) vous avez ainsi rabattu 3+2+2 = 7 m de chaque côté soit: 57-14=43 mailles. Bon tricot!

25.10.2022 - 13:13

country flag Anna wrote:

Woher stammt die Wolle bzw. ist sie aus artgerechter Haltung gewonnen? Kann ich zu viel bestelltes Garn umtauschen?

22.10.2022 - 10:06

DROPS Design answered:

Liebe Anna, mehr übere unsere Wollen können Sie hier und auch hier lesen - über Umtauschen wenden Sie sich bitte direkt an Ihrem DROPS Händler an, dort wird man Ihnen am besten helfen. Viel Spaß beim stricken!

24.10.2022 - 07:53

country flag Lisa Robert wrote:

Bonjour, j'aimerai beaucoup essayer de tricoter ce modèle mais je ne vois pas le nombre de pelotes qu'il faut prendre pour une taille M. Merci de votre aide

26.09.2022 - 06:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robert, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque taille dans l'en-tête, avec les tailles, les aiguilles et l'échantillon; autrement dit, en taille M, il vous faudra 1050 g DROPS Snow / 50 g la pelote = 21 pelotes. Bon tricot!

26.09.2022 - 11:31

country flag Sabrina Schmidt wrote:

Hallo. Ich habe Probleme beim Annähen der Ärmel. Ich habe mehr Ärmelmaschen als Armausschnittsmaschen und somit passt es leider nicht. Bei der Anleitung der Ärmel steht am Ende: Die restlichen M abketten, die Arb hat eine Gesamtlänge von ca. 56-57-57-57-57-57 cm. Den 2. Ärmel ebenso str. Wie viel sind denn die restlichen Maschen? Bei mir sind es 10 Maschen. Ist das korrekt oder habe ich hier den Fehler, dass die Ärmel nicht passen? Vielen Dank

21.01.2022 - 14:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmidt, die restlichen Maschenanzahl kann je nach Ihrer Maschenprobe in der Höhe unterschiedlich sein, wichtig ist hier die cm-Angaben, damit alle stimmen. Vesuchen Sie die Ärmel mit Stecknadel in das Armloch zu platzieren, es kann sicher helfen. Viel Spaß beim stricken!

21.01.2022 - 16:08

country flag Sabrina Schmidt wrote:

Hallo. Ich habe heute eine Frage geschickt aber ich habe mein Problem gerade selbst klären können. Vielen Dank trotzdem.

18.01.2022 - 15:13

country flag Sabrina Schmidt wrote:

Hallo. Ich bin bei den Ärmeln: Bei einer Gesamtlänge von 8-8-8-8-10-12 cm je 1 M beidseitig zunehmen . Bei Zunahmetipp steht: Es wird neben 1 kraus-re-Rand-M und 1 re-M zugenommen (d.h. neben 2 M), indem 1 Umschlag gearb wird. Wird denn hier nur am Anfang der Reihe zugenommen oder auch am Reihenende. Müsste ja so sein, da 2 Ma pro Reihe zugenommen werden, oder? Auf der Zeichnung der Ärmel sehe ich aber nur eine Zunahmeschräge an einer Seite. Vielen Dank vorab. Sabrina

18.01.2022 - 11:52

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmidt, bei den Ärmel werden 2 Maschen (1 auf beide Seite = die erste nach der Randmaschen+ 1 Masche und die andere vor 1 Masche + der Randmaschen) zugenommen - bei der Skizze liegt die Ärmel flach = Die Schrägseite ist dann unten (mitte unter die Ärmel). Viel Spaß beim stricken!

18.01.2022 - 14:11

country flag Hanne Gawenda wrote:

Woher stammt die Wolle? Wird sie aus artgerechter Tierhaltung bzw tierfreundlich gewonnen?

20.08.2021 - 14:46

country flag Chantal wrote:

Bonjour, J'aimerais tricoter ce modèle (INTO THE WOODS) en taille XS. Est-il possible d'avoir les explications. Merci :)

22.04.2021 - 21:59

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles en fonction de chaque demande; vous pouvez vous inspirer d'un modèle analogue dans la taille souhaitée pour recalculer. Votre magasin saura vous aider, même par mail ou téléphone, ou bien vous pouvez vous adresser à un forum spécialiser si besoin. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

23.04.2021 - 08:04