DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9042.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Clementine

Prjónuð ferhyrnd peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Fabel með gatamynstri. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-22
DROPS Design: Mynstur nr fa-308
Garnflokkur A + C eða D
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
250-300-350-400 gr litur nr 905, svartur/natur
og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
175-200-225-275 gr litur nr 02, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 16 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9042.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Fyrsta umf í A.1 er frá röngu.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 233-269-305-323 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af Brushed Alpaca Silk og 1 þræði Fabel (= 2 þræðir). Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 l sléttprjón, A.1 (= 18 l) yfir næstu 216-252-288-306 l (= 12-14-16-17 sinnum á breiddina), endið á 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 161-185-209-221 l á prjóni. Prjónið síðan stykkið áfram í sléttprjóni með 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-17-21-21 cm, stillið af að næsta umf sé frá réttu, prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 53-60-67-72 l, 7 l garðaprjón, 41-51-61-63 l sléttprjón, 7 l garðaprjón eins og áður yfir síðustu 53-60-67-72 l. Endurtakið umf frá röngu. Í næstu umf frá réttu eru felldar af miðju 7 l garðaprjón fyrir handveg. Prjónið síðan hvort stykki fyrir sig svo að það verði op fyrir handveg.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið eftir fyrstu 56-63-70-75 l á prjóni (séð frá réttu) og setjið þær 103-120-137-144 l sem eftir eru á þráð. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón við handveg og 8 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 32-35-40-41 cm. Setjið l á þráð og prjónið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 56-63-70-75 l af þræði (séð frá réttu) á prjóninn, prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. Stillið af eftir máli og umf af vinstra framstykki. Setjið l á þráð og prjónið bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið til baka þær 47-57-67-69 l sem eftir eru á þræði á prjóninn. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 32-35-40-41 cm. Stillið af eftir máli og umf á vinstra framstykki. Klippið frá og setjið til baka öll þrjú stykkin á hringprjóna nr 6. Prjónið 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 45-52-59-64 l sléttprjón, 3 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 3 l garðaprjón, 41-51-61-63 l sléttprjón, 3 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 3 l garðaprjón, 45-52-59-64 l sléttprjón, endið á 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 161-185-209-221 l. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir 7 l garðaprjón undir ermi, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni með 8 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 65-69-75-77 cm, passið að síðasta umf sé frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið þannig: 8 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 145-169-193-205 l JAFNFRAMT er aukið út um 45-53-57-61 l jafnt yfir þessar l – LESIÐ ÚTAUKNING, endið á 8 l garðaprjón = 206-238-266-282 l. Í næstu umf er prjónað þannig: 8 l garðaprjón, stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til 10 l eru eftir, 2 l sl, endið á 8 l garðaprjón. Prjónið stroff í 6 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-32-34-36 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Brushed Alpaca Silk og 1 þræði Fabel (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 4½ cm millibili 9-9-10-10 sinnum til viðbótar = 50-52-56-58 l. Þegar stykkið mælist 54-56-59-60 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í byrjun á hverri umf þannig: Fellið af 4 l alls 4 sinnum = 18-20-24-26 l. Fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57-59-62-63 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum innan við kantlykkju.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Annica Nilsson wrote:

Hej. Jag skulle vilja sticka modellen Clementine Stickad DROPS fyrkantskofta i tunnare garn. Man ska använda 2 garner tillsammans. Jag skulle vilja sticka den i garn grupp a eller möjligtvis grupp b. (Tycker att den blir för tjock och varm i det garnet som avses.) Hälsningar Anki Manki

13.11.2019 - 19:11

DROPS Design answered:

Hei Annica! Vi har mange andre lignende mønstre i tynnere strikkefasthet, for eksempel: DROPS 191-6 DROPS 177-32 DROPS 129-3 DROPS 129-1 Vi håper du finner noe du liker!

14.11.2019 - 11:38

country flag Carole Rousseaux wrote:

Dommage, impossible de convertir le fichier pdf en fichier image

27.02.2018 - 13:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rousseaux, nos modèles et photos ne sont pas disponibles sous la forme de pdf, vous pouvez les imprimer tels quels en cliquant sur l'icône appropriée, pour les enregistrer en format pdf, il vous faudra utiliser une imprimante virtuelle. Bon tricot!

27.02.2018 - 14:02

country flag Benedetta wrote:

Buonasera, sono a cm 65 cm,taglia S.Devo aumentare 45 m ma non riesco a capire se devo aumentare sul dir o sul rov. La spiegazione dice che gli aumenti sono sul dir ma non è chiaro dalle indicazioni (aggiustato in modo che l'ultimo f sia sul dir del lavoro).Grazie x il vostro aiuto

13.11.2017 - 20:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Benedetta. Molto probabilmente le istruzioni sono corrette: quindi si aumentano le 45 m sul rovescio, e al ferro successivo, sul diritto del lavoro, si impostano le coste. Se preferisce, può aumentare le maglie su un ferro sul diritto del lavoro, lavorare il ferro di ritorno sul rovescio e al ferro successivo sul diritto del lavoro, inizia le coste 2 m dir / 2 m rov. Buon lavoro!

14.11.2017 - 09:59

country flag Carola wrote:

Annettte: Es sollte heissen " 1 M. links".

06.07.2016 - 17:37

country flag Annette wrote:

Hallo, in der ersten Reihe (Rückreihe) werden 8 M Kraus rechts gestrickt, dann 1 Masche rechts, dann folgt das Muster A1, zum Schluss wieder 8 M Kraus rechts. Meine Frage: wie - und wo - wird die einzelne Rechte Masche in den folgenden Reihen gestrickt? Wird diese immer am Anfang einer Reihe gestrickt oder immer an der gleichen Stelle - also einmal am Anfang und in der nächsten Reihe am Ende? Vielen Dank!

06.07.2016 - 16:24

DROPS Design answered:

Liebe Annette, die Masche wird immer an dieser Stelle gestrickt und sie dient dazu, dass das Muster symmetrisch wird. Wenn Sie das Diagramm anschauen, sehen Sie, dass am Anfang (rechte Seite) eine Masche mehr ist - diese wird durch die Masche in glatt rechts am Ende des letzten Mustersatzes (oder eben in der Rück-R vor dem ersten Mustersatz) ausgeglichen.

09.07.2016 - 15:04

Ann wrote:

When I am binding off the sleeve, do I bind off 4 stitches at the beginning and end of the row or just the beginning? It says to bind off 4sts 4 times in total so that I am left with 18 sts. I have 50 sts now so if I bind off 4 sts 4 times that would leave me with 36 sts not 18. I just can't figure this part out. Please help.

06.06.2016 - 18:10

DROPS Design answered:

Dear Ann, you bind off 4 sts at the beg of the row on each side a total of 4 times, you will bind off 4 sts on each side a total of times x 2 sides = 4x4x2= 32 sts bound off. 50-32=18 sts remain. Happy knitting!

07.06.2016 - 08:53

Sandra wrote:

When sewing the sleeve do I sew it so that the edging done in garter stitch on the body part is visible from the outside of the sweater or is sewn on the inside of the sleeve and is not visible? Thanks.

06.06.2016 - 18:03

DROPS Design answered:

Dear Sandra, the garter sts at the armhole have to be visible. See here a video on how to sew sleeves. . Happy knitting!

07.06.2016 - 07:52

country flag Sandra wrote:

When knitting the jacket part, you have to divide the stitches for the left front, right front, etc. It says to knit 53 stitches in stockinette stitch, 7 sts in garter stitch and so on. I'm assuming that because this is done on the RS, I would need to purl the 7 stitches? These are the stitches for the armholes.

30.05.2016 - 18:38

DROPS Design answered:

Dear Sandra, you will work 2 rows in garter sts over the 7 sts under armholes, on 1st row from RS, K the 7 sts, and on next row from WS, K these 7 sts, then on next row from RS the middle of the 7 sts in garter st (K these sts). Happy knitting!

31.05.2016 - 08:52

country flag Sandra wrote:

Hi. When doing the jacket part and it says to work until piece measures 6". Does this mean 6 inches from the beginning of the project or 6 inches from when I start knitting in stockinette stitch? Thank you.

30.05.2016 - 13:27

DROPS Design answered:

Dear Sandra, measure the 6" from the beg of work, ie from cast on edge. Happy knitting!

30.05.2016 - 14:10

country flag Mertens Nancy wrote:

Zou deze vest willen maken met 2 draden drops air garen en met breinaald 10. Hoeveel bollen wol heb ik dan nodig voor de maat S/M?

16.12.2015 - 15:04

DROPS Design answered:

Beste Nancy. Ik zou deze niet met 2 draden, maar 1 draad Air breien, of het wordt te strak. Je kan hier lezen hoe je de hoeveelheid kan berekenen

17.12.2015 - 14:30