DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Joyride

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með norrænu mynstri og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-3
DROPS Design: Mynstur nr u-767
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 72, ljós perlugrár
50-50-50-100-100-100 gr litur nr 39, dökk bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 11, appelsínugulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 60, turkos
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 73, bensínblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l go 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðset mitt á milli þessa tveggja l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 160-176-196-212-236-260 l á hringprjóna nr 3 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki á eftir 80-88-98-106-118-130 l (= í hliðum). Aukið nú út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 8 cm millibili alls 4 sinnum = 176-192-212-228-252-276 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-38-40-41 cm fellið af 6-6-8-8-10-10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4-4-5-5 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 82-90-98-106-116-128 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 48-48-54-54-54-60 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum dökk bleikvínrauður. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1 (= 8-8-9-9-9-10 mynstureiningar í umf). Eftir A.1 er haldið áfram í sléttprjóni og litnum ljós perlugrár. Þegar stykkið mælist 7-9-9-9-10-11 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-2½-3-2½-2-2 cm millibili alls 11-13-11-13-15-14 sinnum (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 6-6-8-8-10-10 l undir ermum = 64-68-68-72-74-78 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 292-316-332-356-380-412 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós perlugrár. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 276-300-308-332-356-388 l.
Eftir síðustu umf með úrtöku er prjónuð 1 umf sl þar sem fækkað er um 4-12-4-8-14-10 l jafnt yfir = 272-288-304-324-342-378 l eftir á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir mynstri A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 17-18-19-18-19-21 mynstureining í umf). LESIÐ LEIÐBEININGAR! Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka (endið á eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð) eru 119-126-133-126-133-147 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-6 cm upp að öxl.

UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:
Til að fá betra form þá er prjónuð upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 14-15-16-15-16-18 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-30-32-36 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-45-48-54 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-60-64-72 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-75-80-90 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 84-9096-90-96-108 l br til baka. Snúið við og prjónið sl út umf að miðju að aftan.
Prjónið 1 umf sl með litnum dökk bleikvínrauður þar sem fækkað er um 37-34-37-24-27-37 l jafnt yfir = 82-92-96-102-106-110 l á prjóni.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 5 umf sléttprjón með litnum dökk bleikvínrauður, fellið síðan LAUST af með sl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = ljós perlugrár
symbols = bensínblár
symbols = turkos
symbols = dökk bleikvínrauður
symbols = appelsínugulur
symbols = sinnepsgulur
symbols = 2 l slétt saman með grunnlit í mynstri
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Joyride

Heidi, Belgium

Joyride

Tracey, United Kingdom

166-3 Joyride

Lisa, Australia

Joyride

Rebekah, United States

Joyride

Annalisa, Italy

Joyride

Vanda, Romania

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (82)

country flag Maria wrote:

Hei! Jeg blir litt forvirret av størrelsen i oppskriften. Jeg pleier å bruke M eller L, men etter de størrelsene som står i tegningen burde jeg strikke XL-XXXL, avhengig av delen på genser. Er de europeiske størrelser?

05.01.2016 - 10:51

DROPS Design answered:

Hej Maria, Brystmålet i str M bliver 2x46=92 cm og i str L bliver det 2x50=100 cm. God fornøjelse!

25.01.2016 - 15:07

country flag Peggy wrote:

Is there a recommended gauge for this pattern? I don't see it on the pattern anywhere.

02.12.2015 - 06:07

Anne Cath answered:

Peggy: It says 21stitches and 28 rows om 10x10 cm

02.12.2015 - 07:37

country flag Doro wrote:

Sorry hab mich total verzählt ist wohl doch etwas spät geworden. Passt alles bestens. Danke für die tolle Anleitung Grüße Doro

21.11.2015 - 22:11

DROPS Design answered:

Viel Spaß beim Tragen des neuen schönen Stücks!

24.11.2015 - 22:15

country flag Doro wrote:

In der Anleitung zur Passe steht: "Wenn A.2 zu Ende gestr wurde, sind 119-126-133-126-133-147 M übrig" dies passt bei mir nicht ich hab nur 112 Maschen. Außerdem müssten S, M und L doch gleich viele Maschen haben genau so wie XL und XXL. Grüße Doro

21.11.2015 - 21:48

DROPS Design answered:

Schön, dass sich das Problem gelöst hat!

24.11.2015 - 22:15

country flag Laura Stel wrote:

Bij een vorig antwoord staat dat het patroon begint bij het begin van de naald. Maar wat is het begin? Hetzelfde als het begin van het lijf? Maar tel ik dat dan door in de mouw? Ik heb nu de mouwen er net bij opgezet en weet niet wat ik nu als begin aanhoudt.

08.10.2015 - 19:04

DROPS Design answered:

Hoi Laura. Als goed is, dan begint je naald bij het voorpand (je breit dus voorpand, mouw, achterpand en mouw). Je begint dan ook de naald met het breien van het patroon en herhaald deze over de hele naald.

09.10.2015 - 14:52

country flag Kody Doisy wrote:

Bonjour encore moi désolée du dérangement . J'ai bien 126 m je dois faire 34 diminutions après beaucoup de calculs ; je dois faire ces diminutions a combien de mailles d'espaces SVP ? Merci

09.09.2015 - 11:55

DROPS Design answered:

Bonjour Kody Doisy, divisez 126 par 34 = 3.7, vous allez par ex. diminuer alternativement chaque 2ème et 3ème et chaque 3ème et 4ème m: tricotez 1 m, 2 m ens à l'end (2ème et 3ème m), tricotez 2 m, 2 m ens à l'end (3ème et 4ème m), tricotez 1 m, 2 m ens à l'end, tricotez 2 m, 2 m ens à l'end et ainsi de suite jusqu'à ce que vous ayez tricoté 34 fois 2 m ens à l'end (34 dim) et qu'il reste 92 m. Bon tricot!

09.09.2015 - 14:12

country flag Kody Doisy wrote:

Bonjour j'arrive a la fin de ce modele et je bloque sur la re_ hausse du dos . Je comprend le principe mais pas la facon de tricoter au moment de tourner le travail . Je cherche peut etre plus loin que le bout de mo n nez . Desolee du derangement . Merci .

08.09.2015 - 10:49

DROPS Design answered:

Bonjour Kody Doisy, on tricote ici des rangs raccourcis, on tourne, on serre le fil pour éviter un trou et on tricote la m suivante. La vidéo ci-dessous montre cette technique, en glissant la 1ère m, vous pouvez également procéder ainsi. Bon tricot!

08.09.2015 - 16:03

country flag Lisbet wrote:

Hvordan finner en ut hva størrelse en skal strikke i oppskriftene? Finnes det noe måleoversikt på dette nettstedet hvor en tar mål av den som skal få genseren og så finner ut hva størrelse en skal strikke? Hadde vært fint å hatt om jeg ikke har oversett det et sted. :)

27.08.2015 - 17:15

DROPS Design answered:

Hej. Längst ner på alla våra oppskrifter finner du en måleskiss. Lykke til!

28.08.2015 - 13:40

country flag Marja wrote:

Ik ben nu aan de pas toe, om die te gaan breien. Ik vraag me af waar ik het ingebreide patroon laat beginnen om de "druppels" mooi verdeeld over de voorkant te laten ontstaan.

22.07.2015 - 20:08

DROPS Design answered:

Hoi Marja. Je begint aan het begin van de naald en breit vervolgens het telpatroon A.2 voor jouw gekozen maat: (kies het telpatroon voor de juiste maat = 17-18-19-18-19-21 patroonherhalingen in de rondte).

27.07.2015 - 15:38

country flag Mari Flåm wrote:

Hei. Skal til å begynne på denne nå, men er usikker på størrelsene. Størrelseskemaet er det samme for den amerikanske versjonen og den norske, altså ingen forskjell i tallene for cm og tommer. Hvilken av dem er riktig?

30.06.2015 - 22:19

DROPS Design answered:

Hej Mari. Maalene nederst paa skemaet er i cm - ogsaa i den amerikanske, de skal saa selv omregne til tommer

02.07.2015 - 12:42