DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet As Honey

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca með gatamynstri, litlum köðlum og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-42
DROPS Design: Mynstur nr z-725
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 2923, sinnepsgulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít) NR 521: 9 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 43 cm
STÆRÐ M: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm
STÆRÐ L: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm
STÆRÐ XL: 2, 8, 15, 21, 28, 34, 41 og 47 cm
STÆRÐ XXL: 2, 8, 15, 21, 28, 34, 41 og 47 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 9, 15, 22, 28, 35, 41 og 48 cm
ATH: Síðasta hnappagatið er fellt af í kanti í hálsmáli.

ÚTAUKNING:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.6.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Byrjið á 2 l á undan A.6, prjónið 2 l slétt saman, prjónið A.6 (= 6 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l) færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG:
Byrjið 2 l á undan A.6, prjónið 2 l snúnar br saman, prjónið A.6 (= 6 l), prjónið 2 l br saman (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 231-251-281-311-341-381 l (meðtaldar 9 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf br frá röngu.
Næstu umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 9 kantlykkjur að framan), prjónið stroff með köðlum eftir mynstri A.2 þar til 12 l eru eftir á prjóni, endið á 3 l br og A.3 (= 9 kantlykkjur að framan). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir kant að framan, prjónið A.4A (= 28-28-33-38-38-43 l), prjónið 2 síðustu l í A.2 (= kaðall), prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 50-60-65-70-85-95 l JAFNFRAMT eins og í öllum 3 l br (í A.2) er fækkað um 2 l br með því að prjóna 2 l br saman í hverri br mynstureiningu, prjónið A.4B (= 28-28-33-38-38-43 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð), prjónið A.4C (= 25-25-30-35-35-40 l), prjónið 2 síðustu l í A.2 (= kaðall), prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 50-60-65-70-85-95 l JAFNFRAMT eins og í öllum 3 l br (í A.2) er fækkað til 2 l br, prjónið A.4D (= 28-28-33-38-38-43 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð) og endið á A.3 eins og áður yfir kant að framan.
Þegar prjónað hefur verið til baka frá röngu með sl yfir sl og br yfir br eins og útskýrt er í mynstri eru 193-209-233-257-281-313 l eftir á prjóni.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá rétu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir kant að framan, A.5A (= 23-23-27-31-31-35 l), sléttprjón yfir næstu 42-50-54-58-70-78 l, A.5B (= 26-26-30-34-34-38 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð), A.5C (= 19-19-23-27-27-31 l), sléttprjón yfir næstu 42-50-54-58-70-78 l, A.5D (= 23-23-27-31-31-35 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð) og endið á A.3 eins og áður yfir kant að framan.
Setjið 1 prjónamerki 53-57-63-69-75-83 l inn frá hvorri hlið (= 87-95-107-119-131-147 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hliðum – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4½-4½-6-6-6-6 cm millibili alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 213-229-249-273-297-329 l.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm er næsta umf prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 54-58-62-68-73-81 l eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 8-8-10-10-12-12 l fyrir handveg, prjónið 89-97-105-117-127-143 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 8-8-10-10-12-12 l fyrir handveg og prjónið þær 54-58-62-68-73-81 l sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 60-60-65-65-70-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff hringinn eftir mynstri A.2. Þegar stykkið mælist 16 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf sl þar sem aukið er út um 12-12-13-13-12-12 l jafnt yfir = 72-72-78-78-82-82 l. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 9-5-8½-4-5-3½ cm millibili alls 4-6-4-7-6-8 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-47-47 cm fellið af miðju 8-8-10-10-12-12 l mitt undir ermi =72-76-76-82-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 341-365-381-417-437-477 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, A.1/A.3 yfir kant að framan, A.5A/A.5D í hvorri hlið við miðju að framan og A.5B/A.5C við miðju að aftan. JAFNFRAMT er A.6 prjónað áfram í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.6) og í 1. umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 24-25-28-28-32-33 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 4-5-2-5-1-2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-54 cm setjið síðustu 13-15-19-21-24-29 l í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli í 2 næstu umf (til þess að sleppa við að klippa frá eru l prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Haldið áfram fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni og 2 l 2-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 1 l í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þar til úrtaka fyrir laskalínu er lokið. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 73-77-85-91-101-113 l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 117-125-141-153-173-197 l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Prjónið síðan 1 umf sl frá réttu þar sem aukið er út jafnt yfir til 138-138-146-150-158-162 l. Prjónið síðan með byrjun frá röngu þannig: 2 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 l br, 2 l sl) endið stroff á 2 l br og 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br á kanti að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = 2 l br saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet As Honey

Fran.made, Italy

Sweet As Honey

BirTual, Norway

Sweet As Honey

Rosa P, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Inge wrote:

Hello, I love this pattern but I do not like the fact that it is knitted in the round. It is never very comfortable to wear these constructions, they lose their structure, and they are a bore to knit. So I am recalculating everything so that I can knit it in parts and sew it up. I do not mind the sewing, and it gives a better structure to the cardigan.

07.02.2023 - 01:50

country flag Catherine Gorecki wrote:

Bonjour, je viens de placer sur mon aiguille circulaire les mailles du corps et des manches, après avoir rabatues les mailles sous l'emmenchure. Je commence le raglan. J'ai beaucoup de mal à tricoter les mailles au niveau de la manche. Il y a une tension importante qui déforme le tricot en tirant sur les mailles. Avez-vous une astuce pour éviter cela ?

24.11.2021 - 04:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gorecki, vous pouvez utiliser deux aiguilles circulaires ou laisser les mailles des manches sur les doubles pointes -ou même pourquoi pas la technique du magic loop pendant les premiers rangs, après quelques rangs, la tension aura disparu. Bonne continuation!

24.11.2021 - 07:56

country flag Jayne wrote:

Hello, I am knitting Sweet as Honey and am confused with the yoke section. I am knitting size large, when the piece reaches 50cms the pattern says “slip the outermost 19 sts in each side towards mid front on 1 st holder for neck on the next 2 rows. Does this mean the stitches of A.1 (9sts) and 10sts of A.5A? If these are on a st holder won’t the bands be too short? Please can you help me to understand the pattern. I am so close to finishing it. Thank you very much.

06.08.2020 - 21:11

DROPS Design answered:

Dear Jayne, the first 19 sts you put on a thread on each side are the 9 sts A.1/A.3 (= front band sts) + the 10 first/last stitches worked in A.5A/A.5D. In other words, at the beginning of RS row, work the first 19 sts as before and slip them on a thread for neck, finish row as before, turn, work the first 19 sts from WS as before and slip these sts on a thread, continue row as before, turn and cast off now at the beg of every row from each side (RS and WS) 3 sts 1 time and 2 sts 2 times then 1 st until raglan dec are done (at the same time, continue raglan decreases as before). Happy knitting!

07.08.2020 - 07:45

country flag Marit Eriksson wrote:

Finnes denne modellen som genser også?

10.05.2020 - 12:29

DROPS Design answered:

Hej Nej det gör den dessvärre inte. Mvh DROPS Design

11.05.2020 - 08:58

country flag Brigitte wrote:

Pour le dessin du dos en taille xl, ne faut-il pas tricoter A5C avant A5B pour avoir 3 petites torsades avant le point ajouré si l’on tricote le dos séparément des devants ?

06.12.2019 - 15:28

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, au milieu dos, on va tricoter en taille XL et vu sur l'endroit: A.5B (= 34 m: 2 m env, 2 petites torsades espacées de 2 m env puis le point ajouré), et A.5C (= 27 m: 2m env, 1 petite torsade, le point ajouré et 3 petites torsades espacées de 2 m env). Avant A.5B et après A.5C (entre le point fantaisie du devant droit et le dos +après le point fantaisie du dos et avant celui du devant gauche, on tricote les côtés en jersey). Bon tricot!

06.12.2019 - 16:13

country flag Kim wrote:

Pour le dos et les devants, après les côtes, je n’arrive pas à obtenir le même nombre de mailles total en commençant les diagrammes. Par exemple, en taille XXL : 9 (A.1) + 38 (A.4A) + 2 (torsade) + 68 (A.2 après 17 diminutions, car sur 85 m. j’ai 17 sections de 3 m. env.) + 38 (A.4B) + 35 (A.4C) + 2 (torsade) + 68 (même calcul) + 38 (A.4D) + 9 (A.3) = 307 mailles au lieu de 281 mailles. Pourriez-vous me dire où je me trompe ?

25.06.2018 - 17:40

DROPS Design answered:

Bonjour Kim, au 1er rang de A.4A à D on diminue des mailles (= 2 m ens à l'env) soit 7 m dans A.4A et A.4D et 6 m dans A.4B et A.4C, ce sont les 26 m de différence que vous avez pour obtenir les 307 m. Bon tricot!

26.06.2018 - 08:13

country flag Jacqueline Veerbeek wrote:

A4B eindigt met 5steken recht A4C niet die eindigt met een mindering Klopt dit wel de patroondelen zijn zo toch niet gelijk

08.06.2018 - 08:32

DROPS Design answered:

Dag Jacqueline, A.4b en A.4c sluiten op elkaar en zijn a.h.w. elkaars spiegelbbeld. Het klopt dat ze op een verschillende manier eindigen. Als je het patroon precies volgt zoals beschreven zou je goed uit moeten komen.

08.06.2018 - 10:52

country flag Chester wrote:

Dommage que ce modèle n'existe pas en pull comme beaucoup d'autres modèles Drops qui existent en pull et en gilet. Je ne me lancerai pas à le tricoter car je remarque que des tricoteuses rencontrent des difficultés dans la lecture des explications comme dans d'autres modèles Drops!! En effet, les modèles sont très jolis mais les explications ne sont pas à la hauteur. Le tricot devient une prise de tête et plus un plaisir

23.02.2018 - 11:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chester, quand vous avez une question sur un modèle, vous pouvez volontiers la poser ici ou bien demander de l'aide auprès du magasin où vous avez acheté votre laine ou sur le forum DROPS. Bon tricot!

23.02.2018 - 13:30

country flag Anna Kirstine Bendtsen wrote:

Skal ribben på selve blusen ikke afsluttes med pind 2 eller 6 for at det passer med snoningerne når man strikker videre?

06.02.2018 - 08:29

DROPS Design answered:

Hej, du fortsätter snoningerne med samme mellemrum som tidligere. God fornöjelse!

12.02.2018 - 15:50

country flag Bellion Béatrice wrote:

Bonjour, merci pour votre réponse rapide ouf je suis rassurée j'ai presque voulu tout défaire :) :) :)

10.01.2018 - 16:25