DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 165-4
DROPS Design: Mynstur nr z-720
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Mál: ca 100 cm meðfram miðjuykkju og ca 200 cm efst

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
350 gr litur nr 3770, dökk bleikur
og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150 gr litur nr 17, dökk bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo það myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Notið e.t.v. tvo hringprjóna ef lykkjurnar verða of margar fyrir einn hringprjón.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.18. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur. Sjalið er prjónað frá miðju að aftan og niður.

SJAL:
Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju. Prjónið síðan garðaprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING-1 – þannig: Aukið út um 1 l innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki og 1 l hvoru megin við miðjulykkju. Aukið svona út þar til 57 l eru á prjóni (þ.e.a.s. það eru 28 l hvoru megin við miðjulykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 kantlykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni og miðjulykkja í sléttprjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 1 l, A.2 (= 2 l) endurtakið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 91 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.4-A.6 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 3 l, A.5 (= 6 l) endurtakið þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.6 yfir 4 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.4 yfir 3 l, A.5 er endurtekið þar til 6 l eru eftir, A.6 yfir 4 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 11. umf (= frá réttu) er aukið út um 12 l jafnt yfir. Þegar A.4-A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 135 l á prjóni. Stykkið mælist ca 22 cm, mælt meðfram miðjulykkju.

Prjónið mynstur A.7-A.9 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7 yfir 2 l, A.8 (= 12 l) endurtekið þar til 3 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.9 yfir 3 l, 1 l sléttprjón (= miðju-l), A.7 yfir 2 l, A.8 er endurtekið þar til 5 l eru eftir, A.9 yfir 3 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 165 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 187 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.10-A.12 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.10 yfir 3 l, A.11 (= 12 l) er endurtekið þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.12 yfir 4 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkj), A.10 yfir 3 l, A.11 er endurtekið þar til 6 l eru eftir, A.12 yfir 4 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.10-A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 279 l á prjóni. Stykkið mælist ca 57 cm, mælt meðfram miðjulykkju.

Prjónið A.13-A.15 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.13 yfir 8 l, A.14 er endurtekið þar til 9 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.15 yfir 9 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.13 yfir 8 l, A.14 er endurtekið þar til 11 l eru eftir, A.15 yfir 9 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.13-A.15 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 319 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.16-A.18 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.16 yfir 6 l, A.17 er endurtekið þar til 7 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.18 yfir 7 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.16 yfir 6 l, A.17 er endurtekið þar til 9 l eru eftir, A.18 yfir 7 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir. Þegar A.16-A.18 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 403 l á prjóni – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Stykkið mælist ca 81 cm, mælt meðfram miðjulykkju.

Prjónið mynstur A.4-A.6 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 3 l, A.5 er endurtekið þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.6 yfir 4 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.4 yfir 3 l, A.5 er endurtekið þar til 6 l eru eftir, A.6 yfir 4 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 11. umf (= frá réttu) er aukið út um 12 l jafnt yfir. Þegar A.4-A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 447 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.7-A.9 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7 yfir 2 l, A.8 er endurtekið þar til 3 l eru eftir á undan miðjulykkju. A.9 yfir 3 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.7 yfir 2 l, A.8 er endurtekið þar til 5 l eru eftir, A.9 yfir 3 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.7-A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 477 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 499 l á prjóni.

Prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT er aukið út um 2 l innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki og 2 l hvoru megin við miðjulykkju í hverri umf frá réttu (= 8 l fleiri). Fellið af. Þegar stykkið mælist ca 100 cm, mælt meðfram miðjulykkju.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (76)

country flag Natalia wrote:

Jeśli jest napisane, że w ostatnim rzędzie na prawej stronie robótki należy dodać równomiernie 12oczek to czy w te 12 oczek są wliczone narzuty przy oczkach brzegowych i oczku środkowym więc mamy dodać dodatkowo 8 oczek czy te 12 oczek jest liczonych bez tych narzutów przy oczkach brzegowych i oczku środkowym?

11.12.2023 - 09:31

DROPS Design answered:

Witaj Natalio, te 12 oczek są dodawane dodatkowo, poza oczkami dodawanymi w schematach. Należy równomiernie dodać 6 oczek z każdej strony oczka środkowego. Pozdrawiamy!

12.12.2023 - 11:34

country flag Manon wrote:

Rebonjour, merci de votre réponse et de vos conseils fournis avec rapidité. Jai revu tout mes points et mes rangs, j'ai un décalage de mon point centrale. Merci beaucoup pour vos indications, je vais les suivre. Bonne journée

10.08.2023 - 14:51

country flag Manon wrote:

Bonjour, au 9ème rangs du diagramme A10-A11 et A12, j'ai 211 mailles pour commencer le motif. Mais en calculant mes mailles et celles nécessaires, il m'en manque 4 pour respecter le nombre de maille indiquées sur le diagramme. Je ne trouve pas où j'ai pu me tromper ou comment fonctionne le diagramme.... Pouvez vous m'aider svp ?

10.08.2023 - 10:52

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, c'est juste ainsi, tricotez ces 211 mailles ainsi: 2 m de bordure, 9 m de A.10, 84 m de A.11 (7 fois), 10 m de A.2, 1 m centrale, 9 m de A.10, 84 m de A. 11, 10 m de A.2, 2 m de bordure - pensez à ajouter des marqueurs entre chaque motif, ceci permet de pouvoir bien vérifier son nombre de mailles/son motif. Bon tricot!

10.08.2023 - 14:15

country flag Helle Andersen wrote:

Har 57 m på pinden. Forstår ikke mønstret A1-A3? Jeg får alt for mange m på pinden end de 91 når mønstret er strikket færdigt? Skal jeg forstå det sådan at der på P1 i mønstret skal strikkes omslag og 3r og på P3 skal strikkes omslag og 4r, så har jeg 97m på pinden????meget uklar opskrift, når jeg ser på billedet af sjalet er der 1 hulrække, men i følge mønstret vil der være hulrække på hveranden pind. Hvordan skal jeg forstå mønstret? HjÆLP

17.07.2023 - 13:14

DROPS Design answered:

Hei Helle. Jo, du har 57 masker. Strikk 2 kantmasker + A.1, så strikker du A.2 til det gjenstår 1 maske før midtmasken (du har da strikket A.2 over 24 masker). Så strikker du A.3, strikk midtmasken, deretter A.1 og så strikkes A.2 til det gjenstår 3 masker (over 24 masker). Strikk A.3 og avslutt med 2 kantmasker. Du har nå strikket 1. rad og har økt med 4 masker = 61 masker. Neste rad fra retten økes det også 4 masker = 65 masker. 3. rad fra retten = 69 masker. 4.rad fra retten 73 og 5. rad økes det 6 masker (det økes 2 masker hver gang A.3 strikkes) = 79 masker. På siste pinne fra retten økes det med 12 masker jevnt fordelt = 79 + 12 = 91 masker. mvh DROPS Design

26.07.2023 - 09:52

country flag Linda Rodier wrote:

Chale 165-4 j’augmente tu chaque cote de la maille centrale du début et jusqu’à la fin de chale merci

22.01.2023 - 15:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rodier, tout à fait, ces augmentations figurent dans les diagrammes. Bon tricot!

23.01.2023 - 09:47

country flag Mme Rodier wrote:

Bonjour spres la maille centrale je recommence tu avec le graphique a3 et je fini avec le A 1 merci

10.01.2023 - 17:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rodier, tricotez bien les diagrammes dans l'ordre indiqué, autrement dit: 2 m point mousse, A.1, répétez A.2, tricotez A.3, 1 maille centrale, puis de nouveau: A.1, répétez A.2, A.3 et terminez par 2 m point mousse. Bon tricot!

11.01.2023 - 09:45

country flag Rodier wrote:

Le A1au. rg9on n’a une jeté et le A3 on n’a deux jete est que c’´est correct.. Et chaque côté de la maille centrale sur rang endroit on augmente tu pour avoir 91 mailles merci

08.01.2023 - 02:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rodier, c'est bien correct, vous augmentez 2 mailles dans A.3 avant la maille centrale + 2 m dans A.3 après la maille centrale, autrement dit vous augmenterez 2 m en plus soit 6 mailles au lieu de 4 = 79m au total quand les diagrammes sont finis + 12 m à intervalles réguliers (augmentez 6 m de chaque côté de la maille centrale) = 91 m. Bon tricot!

09.01.2023 - 09:39

country flag Ruth wrote:

Ein großes Kompliment für die tolle Anleitung. Habe das Tuch mittlerweile zweimal gestrickt. Beim Stricken muss man sich nicht zu viel Stress machen, stimmt die Maschenzahl nicht kann man unauffällig korrigieren:-). Die fertigen Tücher lösen viel Bewunderung aus-Danke!

21.01.2022 - 06:18

country flag Lisianne RICHARD wrote:

Donc au 11ème rang j'ai mes 135 mailles mais au 13 rang j'ai deux autres augmentations, ce qui me fait 137 mailles et je dois commencer A 7 A8 A 9 avec 135 mailles ce que je ne comprends pas. Merci

30.11.2021 - 12:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Richard, après le 10ème rang, vous avez 111 mailles, vous tricotez: 2 m point mousse, A.4 (= 8 m + 2), A.5 (= 36 m +6 ), A.6 (= 9 m + 2), 1 m centrale, A.4 (= 8 m + 2), A.5 (= 36 m +6 ), A.6 (= 9 m + 2), 2 m point mousse = 2+10+42+11+1+10+-42+11+2=131 mailles. Au 13ème rang, augmentez 1 maille dans A.4 et A.6 comme avant = 131+4=135 mailles. Bon tricot!

01.12.2021 - 07:59

country flag Lisianne RICHARD wrote:

Si je comprends bien au 11ème rang A 4 : 2 m point mousse, 1 jeté, 1 m endroit, 1 jeté et 7 m endroit = 12 mailles A5 : 6 m endroit (est ce là que je fais mes augmentations A 6 : 8 m endroit, 1 jeté, 1 m endroit, 1 jeté Maille centrale = 11 mailles J'ai 135 mailles et alors le rang 13 j'ai 2 jetés à faire (j'aurais 137 mailles donc de trop) Merci car j'ai beaucoup à apprendre

29.11.2021 - 14:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Richard, au 11ème rang des diagrammes vous augmentez 2 m dans A.4 (= 8+2 = 10 m) et dans A.6 (= 9+2=11 m) et 11 mailles entre = vous aurez: 2 m point mousse, A.4 (= 11 m ), A.5 (= 36+6m), A.6 (= 12 m) + 1 m jersey + A.4 (= 11 m ), A.5 (= 36+6m), A.6 (= 12 m) + 2 m point mousse + 12 m augmentées à intervalles réguliers (6 de chaque côté de la m centrale) =2+11+42+12+1+11+42+12+2=135 m. Bon tricot!

29.11.2021 - 15:55