Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= br frá réttu, sl frá röngu | |
= setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, prjónið 1 l sl eða br (sjá mynstur), prjónið 3 l sl af hjálparprjóni | |
= setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 3 l sl, prjónið 1 l af hjálparprjóni sl eða br (sjá mynstur). | |
= setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni | |
= setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, prjónið 3 l sl af hjálparprjóni | |
= setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, prjónið 2 l sl af hjálpaprjóni | |
= setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, prjónið 2 l sl af hjálparprjóni |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Charming Cooper |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Sett með prjónaðri jakkapeysu með köðlum og sjalkraga, húfu með dúsk og prjónuð slaufa úr DROPS Karisma. Stærð börn 3–12 ára
DROPS Children 26-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Sjá teikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Peysan er tvíhneppt og fellt er af fyrir 6-6-6-8-8 hnappagötum í vinstri kanti að framan. Fellt er af fyrir hnappagötum í lok umf frá réttu 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu l á kanti að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í sömu umf eru einnig prjónaðar fjórða og fimmta SÍÐASTA l á kanti að framan slétt saman, sláið 1 sinniuppá prjóninn. Fellið af fyrir 2 hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 3/4 ára: 10, 18 og 26 cm. STÆRÐ 5/6 ára: 14, 22 og 30 cm. STÆRÐ 7/8 ára: 16, 25 og 34 cm. STÆRÐ 9/10 ára: 11, 20, 29 og 38 cm. STÆRÐ 11/12 ára: 15, 24, 33 og 42 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 186-198-206-214-226 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið þannig: 18-20-20-22-24 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l sl og 18-20-20-22-24 l garðaprjón ( = kantur að framan). Prjónið stroff þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið síðan 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni), JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 184-196-202-214-224 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: 18-20-20-22-24 l garðaprjón, A.1 (= 28-28-28-32-32 l – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð), 32-36-39-37-40 l sléttprjón, A.1, 32-36-39-37-40 l sléttprjón, A.1, endið á 18-20-20-22-24 l garðaprjón. ATH! Í 16. hverri umf í garðaprjóni eru prjónaðar stuttar umf yfir kant að framan þannig: Í 16. hverri umf í garðaprjóni eru prjónaðar stuttar umf yfir kant að framan þannig: prjónið 18-20-20-22-24 l sl, snúið við og prjónið sl til baka yfir 18-20-20-22-24 l, prjónið 1 umf yfir allar l. Snúið við og prjónið sl yfir 18-20-20-22-24 l, snúið við og prjónið sl til baka yfir 18-20-20-22-24 l. Prjónið 1 umf eins og áður yfir allar l. Haldið áfram með mynstur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 31-34-37-40-43 cm prjónið frá réttu – þannig (mynstrið heldur áfram eins og áður): Prjónið 50-54-55-59-62 l (= hægra framstykki), fellið af næstu 6 l fyrir handveg, prjónið 72-76-80-84-88 l ( = bakstykki), fellið af næstu 6 l fyrir handveg, prjónið síðustu 50-54-55-59-62 l (= vinstra framstykki). Prjónið síðan hvert stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 72-76-80-84-88 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið síðan af fyrir handveg á hvorri hlið í byrjun á hverri umf þannig: 2 l 1-2-2-2-2 sinnum og 1 l 2-2-3-1-2 sinnum = 64-64-66-74-76 l. Þegar stykkið mælist 42-46-50-54-58 cm fellið af 10 l jafnt yfir A.1, í næstu umf eru felldar af miðju 16-16-18-18-20 l fyrir háls og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af að auki 1 l við hálsmál = 18-18-18-22-22 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 44-48-52-56-60 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 50-54-55-59-62 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af fyrir handveg á hlið eins og á bakstykki = 46-48-48-54-56 l. Þegar stykkið mælist 43-47-51-55-59 cm fellið af 10 l jafnt yfir A.1. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 18-18-18-22-22 l = 18-20-20-22-24 l eftir á prjóni (= kantur að framan). Haldið áfram með garðaprjón yfir l á kanti að framan og prjónið stuttar umf með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið yfir fyrstu 9-10-10-11-12 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir allar l, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til kantur að framan mælist 7-8-9-10-11 cm frá öxl (mælt þar sem er minnst). Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 50-54-55-59-62 l. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-44-48-48-52 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru felldar af 0-0-2-2-4 l jafnt yfir = 44-44-46-46-48 l. Prjónið síðan þannig: 13-13-14-14-15 l sléttprjón, A.2 (= 18 l), 13-13-14-14-15 l sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 6-6-5-5-5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4½-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 6-8-9-11-12 sinnum = 56-60-64-68-72 l. Þegar stykkið mælist 30-34-39-42-46 cm fellið af 6 l fyrir miðju undir ermi. Prjónið síðan ermina fram og til baka og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 34-39-44-47-52 cm. Fellið af 3 l á hvorri hlið, síðan eru þær l felldar af sem eftir eru. Stykkið mælist ca 35-40-45-48-53 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saman kant við miðju að aftan og saumið hann við hálsmál aftan við hnakka. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 85-90-95-100-105 l á hringprjóna 3,5 með litnum natur Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og litinn rauður. Prjónið síðan sléttprjón til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm eru sett 5 prjónamerki í stykkið með 17-18-19-20-21 l á milli prjónamerkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman = 5 l færri í hverri umf. Endurtakið úrtöku í 3. hverri umf 14-15-16-17-18 sinnum til viðbótar = 15 l eftir á sokkaprjóni. Eftir síðustu úrtöku eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist 27-28-30-31-32 cm. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst í oddinn á húfunni. ------------------------------------------------------- SLAUFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. SLAUFA: Fitjið upp 10 l á prjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm, fellið af. MIÐJUBAND: Fitjið upp 10 l á prjóna nr 3,5 og prjónið 8 umf garðaprjón. Fellið af. Saumið saman skammhliðar svo að það myndist hringur. Dragið slaufuna í gegnum hringinn og saumið bæði stykkin niður saman með smáu spori. Festið silkiborða eða teygju í gegnum hringinn á bakhlið á slaufunni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6918 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (17)
Penny Balding wrote:
I would like to ask when doing the measurements for the jacket, ie for the button holes on the band, plus measuring for the length up to the armholes, from where is the measurement taken from? On the same row the length of the band done in garter st is different from the length taken in the panel of cable stitches, and is different again when measurement is taken over the stocking stitch panel. For the size 5/6 year old, there is as much as 5cm difference.
07.02.2019 - 17:34DROPS Design answered:
Dear Mrs Balding, there shouldn't be noticeable difference in height between stocking stitch and cable patterns, and there should be no difference in height with the band stitches thanks to the short rows. The height should be then the same measured anywhere in the jacket. Happy knitting!
11.02.2019 - 11:00Vienne wrote:
Bonjour, J'ai bien réussi le corps du gilet et je commence maintenant les manches. J'ai une interrogation au niveau du diagramme A2. Pouvez vous me confirmez que la première ligne de 18m du diagramme A2 est à l'envers. C'est à dire que les 6 mailles en croix du début de A2 doivent être tricoté à l'endroit puisqu'on est en jersey envers? Merci pour votre retour. Cordialement Elisabeth VIENNE
17.01.2019 - 15:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vienne, les manches se tricotent en rond sur les aiguilles doubles pointes, tous les rangs du diagramme seront ainsi lus sur l'endroit de droite à gauche jusqu'à l'arrondi de la manche. On tricote ensuite les rangs sur l'envers en les lisant de gauche à droite - au moment de rabattre les mailles pour l'arrondi, ajustez bien pour que les rangs avec torsades soient toujours sur l'endroit. Les mailles avec des croix = jersey envers et les mailles blanches = jersey endroit (vu sur l'endroit). Bon tricot!
17.01.2019 - 16:12Vienne wrote:
Bonjour, Dans les explications sur la veste je ne vois pas de mention du point fantaisie A2. Merci de me préciser à quel moment il faut faire le point A2. Cordialement
10.04.2018 - 22:04DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vienne, le diagramme A.2 se fait au milieu de chaque manche. Bon tricot!
11.04.2018 - 09:32Amanda wrote:
Thank you for such a beautiful pattern = I am looking at making the Jacket - for a 3 year old- the size 98/104cm - what does this relate to - is it the height of the child please? Many thanks
24.11.2017 - 09:09DROPS Design answered:
Dear Amanda, that's right 98/104 cm is the height of the child - you will find all measurements of the jacket in the chart at the bottom of the page, they are in cm taken flat from side to side. Compare these to a similar jacket that fits him to find out the matching size. Read more about the size here. Happy knitting!
24.11.2017 - 11:10Agnès wrote:
Bonjour, j'ai un problème avec le diagramme; quand je tricote les cases en croix sur l'endroit de mon tricot , je tricote les mailles à l'envers et quand je tricote mon tricot à l'envers je tricote donc ces mailles qui sont à l'endroit, en mailles envers ? donc sur l'endroit cela donne visuellement des variations endroit et envers. merci de me répondre
01.06.2017 - 08:14DROPS Design answered:
Bonjour Agnès, les croix dans les diagrammes sont des mailles en jersey envers (= à l'envers sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers) et les cases blanches se tricotent en jersey endroit (= à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers). Bon tricot!
01.06.2017 - 09:03Rigault wrote:
Je souhaite faire ce gilet en 13-14 ans. Pourriez vous m'indiquer le nombre de maille à ajouter ou m'indiquer le calcul à effectuer. Merci de votre aide, je n'ai pas trouvé de gilet aussi beau que celui-ci .
26.02.2017 - 21:56DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rigault, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, mais vous pouvez vous recalculer sur la base de votre échantillon, de vos mesures finales avec les explications. Votre magasin DROPS saura vous aider si besoin. Bon tricot!
27.02.2017 - 11:24Franca Vassiliou wrote:
Je ne comprends pas la note " toutes les 8 cotes mousses....aller retour..... Pouvez vous m expliquer? Merci
14.02.2016 - 20:12DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vassiliou, toutes les 8 côtes mousse, on va tricoter des rangs raccourcis sur les mailles des bordures devant seulement pour éviter que les bordures ne resserrent la veste (il faut plus de rangs au point mousse qu'en point fantaisie pour la même hauteur): tricotez 2 rangs sur les 18-24 premières m, 1 rang sur toutes les m, 2 rangs sur les 18-24 premières m (= de l'autre côté). Bon tricot!
15.02.2016 - 11:24