DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2838.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lovely Rose

Hekluð jakkapeysa með laskalínu, stuttum ermum og sólfjaðramynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle. Stærð börn 1-10 ára

DROPS Children 26-1
DROPS Design: Mynstur nr cm-002-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 12/18 mán - 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: 86 - 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
150-200-200-250-250-300 gr litur nr 13, kórall

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
150-200-200-250-250-300 g litur nr 11, bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st og 10 umf á hæðina verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA, NR 616 (Blóma bleik): 4 stk í allar stærðir.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2838.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Heklið fram og til baka frá miðju að framan.

BERUSTYKKI:
Heklið 67-71-75-79-83-83 lausar ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Cotton Merino eða Belle. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 66-70-74-78-82-82 fl í umf. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið frá miðju að framan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í): Hoppið yfir 15-16-17-18-19-19 fl (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 6 fl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 20-22-24-26-28-28 fl (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 6 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fl (nú eru 15-16-17-18-19-19 fl í vinstra framstykki eftir síðasta prjónamerki.)
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja fl, en í hverja fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 78-82-86-90-94-94 st í umf (= 12 st fleiri í umf).

Aukið síðan út fyrir laskalínu: Haldið áfram með st og heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf). Endurtakið útaukningu í hverri umf, 4-5-5-6-6-7 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-6-7-7-8 sinnum) = 158-178-182-202-206-222 st í umf.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig:
Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 26-29-30-33-34-36 st (= hægra framstykki), hoppið yfir næstu 32-36-36-40-40-44 st (= ermi), heklið 8 ll, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 42-48-50-56-58-62 st (= bakstykki), hoppið yfir næstu 32-36-36-40-40-44 st (= ermi), heklið 8 ll og heklið 1 st í hvern og einn af síðustu 26-29-30-33-34-36 st (= vinstra framstykki). Handvegur er nú klár.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 1 umf með st (heklið 1 st í hvern st frá fyrri umf og 1 st í hverja ll undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 110-122-126-138-142-150 l í umf HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 3-4-4-4-5-5 cm, í síðustu umf er aukið út um 4-2-3-1-2-4 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 114-124-129-139-144-154 st. Heklið nú sólfjaðramynstur þannig:

UMFERÐ 1: 1 fl í hvern og einn af 5 fyrstu st (= kantur að framan), * 4 ll, hoppið yfir 4 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* endið á 4 ll, hoppið yfir 4 fl og 1 fl í hvern og einn af 5 síðustu st (= kantur að framan) = 21-23-24-26-27-29 ll-bogar.
UMFERÐ 2: 1 st í hverja og eina af 5 fyrstu fl, 3 st + 2 ll + 3 st um hvern ll-boga, 1 st í hverja og eina af 5 síðustu fl.
Endurtakið umf 2 þar til stykkið mælist 13-15-17-18-20-21 cm.

NÆSTA UMF ER HEKLUÐ ÞANNIG: 1 st í hvern og einn af 5 fyrstu st, 4 st + 2 fl + 4 st um hvern ll-boga, 1 st í hvern og einn af 5 síðustu st. Endurtakið þessa umf þar til stykkið mælist 21-23-26-29-33-36 cm.

NÆSTA UMF ER HEKLUÐ ÞANNIG: 1 st í hvern og einn af 5 fyrstu st, 4 tbst + 2 ll + 4 tbst um hvern ll-boga, 1 st í hvern og einn af 5 síðustu st. Heklið þessa umf einu sinni, klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL JAFNAÐ ÚT:
Til þess að hálsmálið passi betur er það jafnað út. Setjið 1 prjónamerki í l í hvert “horn” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu.
Heklið með heklunál nr 3,5 þannig: Byrjið fyrir miðju að framan og heklið 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, heklið 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, síðan er hekluð 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, heklið 1 hst í næstu l, 1 stí l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, síðan er hekluð 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið 1 fl í hverja fl fram að miðju að framan. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl til baka við miðju að framan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fl saman, þ.e.a.s. heklið 1 fl í hst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í næsta hst, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 8 fl færri).

HÁLSMÁL:
Heklið í kringum hálsmálið þannig: 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtekið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda.

SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Heklið þannig: Heklið 1 fl í hverja og eina af 8 l fyrir miðju undir ermi, heklið síðan sólfjaðrakant í kringum handveg þannig: * hoppið yfir 2 st, í næstu l er heklað 3 st + 2 ll + 3 st, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf (= ca 9-9-10-10-11 sólfjaðrir meðfram handveg). Klippið frá og festið enda.
Endurtakið neðst niðri í kringum hinn handveginn.

Saumið 4 tölur jafnt yfir í vinstra berustykki. Tölum er hneppt á milli 2 st í kanti.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Pernille Yeoman wrote:

Næste række efter raglan står der at maskerne til ærmerne skal springes over. Hvordan gør jeg det? Skal jeg bryde tråden og hækle videre eller kan jeg gøre det på en anden måde?

25.03.2024 - 22:28

DROPS Design answered:

Hej Pernille, du hækler forstykket, springer over ærmemaskerne og hækler 8 lm og fortsætter på rygstykket, springer over ærmemaskerne i den anden side og hækler 8 lm inden du hækler det sidste forstykke :)

04.04.2024 - 15:25

country flag Pernille Rosendal Nielsen wrote:

Jeg er i tvivl, hvor jeg skal måle fra, når der står "fortsæt til arbejdet måler 36 cm."

28.02.2024 - 15:18

DROPS Design answered:

Hei Pernille. Under RYG & FORSTK står det HERFRA MÅLES ARB VIDERE! Mål fra dette punktet. mvh DROPS Design

04.03.2024 - 11:59

country flag Malgorzata wrote:

Witam, ...... i przer. kolejny rząd następująco na prawej stronie robótki, irytuje mnie ta prawa strona robótki, czyli, jeśli nabierzemy odp. ilość oczek łańcuszka i mamy przerobić następny rząd oś , to jest to lewa strona , następny rząd oł, to jest prawa strona, czy tak, dziękuję i pozdrawiam Małgorzata

14.04.2022 - 13:02

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu, dokładnie. Rząd nabierania oczek to jest prawa strona, kolejny rząd oczek ścisłych to strona lewa, itd. Radzę na prawej stronie umieścić sobie marker lub nitkę, wtedy nie trzeba się zastanawiać :) Pozdrawiamy!

15.04.2022 - 09:47

country flag Agata wrote:

Chciałabym zrobić ten sweterek włoczką Drops Baby Merino w rozmiarze 86, ile oczek powinien mieć pierwszy łańcuszek?

26.01.2022 - 13:45

DROPS Design answered:

Witaj Agato, co do początku: zrób próbkę, tak dobierz szydełko, aby próbka była taka jak we wzorze. Wtedy możesz wykonywać wzór dla twojego rozmiaru i nabierzesz tyle oczek ile jest we wzorze. Jeśli nie uda się dopasować próbki (bo np. będzie zbyt luźna/wiotka przy użyciu grubszego szydełka i efekt końcowy nie będzie Ci odpowiadał) skontaktuj się ze sklepem, w którym kupiłaś włóczkę, a otrzymasz niezbędną pomoc. Pozdrawiamy!

26.01.2022 - 14:20

country flag Elena wrote:

Buongiorno, si può fare questo modello con il filato Safran? Grazie

09.05.2021 - 08:33

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, questo modello è lavorato con un filato del gruppo B, Safran appartiene al gruppo A: può provare ad utilizzare Muskat o Cotton Light. Buon lavoro!

09.05.2021 - 17:19

country flag Margaretha wrote:

Tror att många precid som jag räknar alla maskor på varvet, alltså inklusive de 8 luftmaskorna ... Jag kunde inte förstå varför maskantalet inte stämde tills jag såg att det står antal STOLPAR på varvet INTE maskor...

07.03.2021 - 11:08

country flag Hanne Nash wrote:

Hej Jeg kan ikke få maske antal til at passe med opdeling til for/bag og ærmer str 3/4 Jeg ender med 31 (17+2+12)på for, i har 30 skal man springe over den sidste? Ærmer 6+4+24=34, i har 36?

04.03.2021 - 19:05

DROPS Design answered:

Hej Hanne, Ja det er bare at justere så du har en mindre på forstykket, så antallet stemmer inden du fortsætter :)

05.03.2021 - 08:50

country flag Hanne Nash wrote:

Hej😁 Tak for alle jeres fantastiske opskrifter🤩 Jeg kan ikke få antal masker til at passe efter udtagninger str 3/4 Starter med 17 masker på forstykke + 2 efter første udt 19 + 2x6=12 +19=31 i har 30 Skal man springe over den sidste m inden luftm bue når man deler op? Kan heller ikke få antal ærmemasker rigtig 6+4=10 første udt 6x4=24+10=34 I har 36 st???

04.03.2021 - 18:54

country flag Jutta wrote:

1 Stb in jede fM, jedoch in jede markierte fM für die Raglanlinie 2 Stäbchen (Stb) + 2 Lm + 2 Stb häkeln (= 12 Stb zugenommen = 78-82-86-90-94-94 Stb in der R). Sollten dies bei 4x zunehmen nicht 16 Stb sein, also 4 Maschen mehr als bei Ihnen angegeben?

20.02.2021 - 19:59

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, nur die Stäbchen sind hier gezählt: 4 Stb werden bei jeder Markierte fM gehäkelt = 3 Stb bei jeder der 4 Markierung zugenommen = 12 Stb zugenommen. Viel Spaß beim häkeln!

22.02.2021 - 10:06

country flag Francesca wrote:

Buongiorno, sto eseguendo questo modello e al termine del raglan non mi trovo con il numero indicato dalle spiegazioni. Se ho 19 maglie per metà davanti, dopo 8 righe a punto alto con due aumenti per riga per un tot. di 16 maglie avrò 35 maglie e non 34. Per le maniche stesso discorso: comincio con 6 maglie + 4x8= 32 aumenti, mi darà un risultato di 38 maglie. Questo per la taglia 7/8 anni. Cosa sbaglio rispetto alle indicazioni?

16.01.2021 - 22:44

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, con il 1° aumento avrà 20 maglie alte, poi ci sono altri 7 aumenti di 2 maglie alte ognuno, per cui avrà 34 maglie in totale per il davanti destro. Buon lavoro!

17.01.2021 - 21:20