DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Hedda

Prjónaður kjóll með gatamynsturs kanti og hringlaga berustykki sem og prjónaðri slaufu í hárið í garðaprjóni úr DROPS Cotton Merino. Fyrir börn 1 mánaða – 6 ára

DROPS Children 26-14
DROPS Design: Mynstur nr cm-001-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92 - 98/104 - 110/116

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
200-200-250 (300-300-350) gr litur nr 06, rauður

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir kant.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít) NR 521: 2 stk í allar stærðir.

SLAUFA Í HÁR:
Mál: Lítil ca 5 x 8 cm. Stór ca 9 x 12 cm.

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
50 gr litur nr 06, rauður (lítil slaufa er ca 6 gr og stór ca 10 gr).

DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 45 umferðir í garðaprjón verði 10 x 10 cm.
FYLGIHLUTIR: Silkiband eða hárspenna til að festa slaufuna á.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á eftir 1.-2.-4. og 5. prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 létt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 3.-4.-6. og 1. prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

KJÓLL:
Fitjið upp 217-231-245 (259-280-287) lykkjur á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er mynstur prjónað í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 186-198-210 (222-240-246) lykkjur á prjóni og stykkið mælist ca 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 2-4-0 (2-4-2) lykkjur jafnt yfir = 184-194-210 (220-236-244) l.
Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í byrjun á umferð (= hlið), 2. prjónamerki er sett eftir 27-29-32 (33-35-37) lykkjur, 3. prjónamerki er sett eftir 38-39-41 (44-48-48) lykkjur, 4. prjónamerki er sett eftir 27-29-32 (33-35-37) lykkjur (= hlið), 5. prjónamerki er sett eftir 27-29-32 (33-35-37) lykkjur. 6. prjónamerki er sett eftir 38-39-41 (44-48-48) lykkjur (nú eru 27-29-32 (33-35-37) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki, fækkið um 1 lykkju á eftir 2. og 5. prjónamerki og 1 lykkju á undan 3. og 6. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri).
Endurtakið úrtöku með 1½-1½-2 (2-2-2½) cm millibili alls 11-11-12 (12-13-13) sinnum = 96-106-114 (124-132-140) l. Takið burt 6 prjónamerkin og setjið 1 nýtt prjónamerki í byrjun umferð og 1 prjónamerki eftir 48-53-57 (62-66-70) lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 24-25-30 (33-36-40) cm (úrtöku á nú að vera lokið), prjónið nú mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón aftur hringinn. Þegar stykkið mælist 28-29-34 (37-40-44) cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 10-10-12 (12-14-14) lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir 5-5-6 (6-7-7) lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin – ATH: Aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Í næstu umferð eftir 4 umferð garðaprjón eru felldar af miðju 6-6-8 (8-10-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4 (4-5-5) lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 42-47-49 (54-56-60) lykkjur eftir á fram- og bakstykki. Klippið frá.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Byrjið við miðju að aftan og prjónið slétt yfir lykkjur á hálfu bakstykki, fitjið upp 36-38-44 (46-50-56) lykkjur yfir annan handveginn, prjónið slétt yfir framstykki, fitjið upp 36-38-44 (46-50-56) lykkjur yfir hinn handveginn og prjónið slétt yfir bakstykki fram að miðju að aftan = 156-170-186 (200-212-232) lykkjur. Prjónið síðan stykkið fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan þannig: Prjónið 3 umferðir slétt JAFNFRAMT í 1. umferð (= ranga) er fækkað um 2-2-4 (4-2-8) lykkjur jafnt yfir = 154-168-182 (196-210-224) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, endið á 3 fyrstu lykkjum í A.4 og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-4-5 (6-7-8) cm frá prjónamerki eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman. Endurtakið úrtöku í hverri brugðinni mynstureiningu þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-9-10) og 6-7-8 (9-10-11) cm = 91-99-107 (115-123-131) lykkjur eftir á prjóni og einungis 1 lykkja brugðið er á milli hverra gataumferða. Þegar stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11-12) cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með götum og prjónað sé A.3 frá réttu yfir allar lykkjur (2 kantlykkjur í garðaprjóni halda áfram eins og áður) = 47-51-55 (59-63-67) l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið síðan LAUST af.

FRÁGANGUR:
Heklið 2 hneslur meðfram vinstri hlið á opi að aftan.
1 hnesla = heklið með heklunál nr 3,5 með Cotton Merino þannig: 1 fastalykkja í ystur lykkju efst við hálsmál, 4 loftlykkjur og síðan 1 keðjulykkja í sömu lykkju eins og fastalykkjan var hekluð, klippið frá og festið enda. Heklið aðra eins hneslu fyrir miðju með fram opi. Saumið tölur á hægri hlið í opi.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant neðst í kringum um kjólinn með heklunál nr 3,5 þannig:
Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2-3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferð hringinn og endið á 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda.
Heklið annan kant alveg eins neðst í kringum berustykki – þ.e.a.s. heklið í neðstu rönd með garðaprjóni í berustykki og síðan meðfram báðum köntum í handveg.

-------------------------------------------------------

SLAUFA Í HÁRIÐ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Talan í ( ) á við um stóra slaufu. Stykkið er prjónað fram og til baka.

SLAUFA Í HÁRIÐ:
Fitjið upp 10 (20) lykkjur á prjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist 8 (12) cm, fellið af.

MIÐJUBAND:
Fitjið upp 10 (15) lykkjur á prjóna nr 3,5 og prjónið 8 (10) umferðir garðaprjón. Fellið af. Saumið saman skammhliðar svo að það myndist hringur.

Dragið sjálfa slaufuna í gegnum hringinn og saumið niður í bæði stykkin saman með nokkrum smáum sporum. Festið slaufuna á silkiband eða hárspennu með nokkrum sporum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.05.2019
Leiðrétting - BERUSTYKKI: Þegar stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11-12) cm – passið að næsta umf sé umf með götum prjónuð með A.3 frá réttu yfir allar l (2 kantlykkjur með garðaprjóni halda áfram eins og áður) = 47-51-55 (59-63-67) l eftir á prjóni.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir.
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Marie-José Costa wrote:

Comment tricoter en rond avec une aiguille circulaire ? Les mailles s'accumulent sur une seule pointe et je ne peux plus vers la fin du rang tricoter les mailles.

24.04.2020 - 20:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Costa, cette vidéo montre comment tricoter du jersey, en rond, sur aiguille circulaire et celle-ci comment tricoter du point mousse, en rond également sur aiguille circulaire. Bon tricot!

27.04.2020 - 07:59

country flag Manoa wrote:

Bonjour, J'ai terminé la robe et voudrais faire la bordure en crochet. J'ai fait la première séquence : 1ml dans la 1ère m, 3 ml, 1B dans la 1ère des 3ml. Mais que veut dire "sauter 2-3m" svp ? Puis-je par ailleurs indifféremment dans un sens ou dans l'autre ? Merci de vos conseils et de vos modèles superbes. Bonne journée.

06.04.2020 - 16:23

DROPS Design answered:

Bonjour Manoa, pour crocheter la bordure, vous allez sauter 2 ou 3 mailles (en fonction de la longueur de votre bride), pour que la bordure soit bien plate. Voici en vidéo comment réaliser une telle bordure. Bon tricot!

09.04.2020 - 14:21

country flag Hrafnhildur Sörensen wrote:

En í næstu umferð hvernig er hún þá ? Það er það sem ég var að spá

27.03.2020 - 21:13

DROPS Design answered:

Í umferð 3 í A.1 þá er prjónað þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir (= 2 lykkjur færri), sláið 1 sinni uppá prjóninn = nú eru aftur 3 lykkjur á prjóni. Í næstu umferð eru þessar 3 lykkjur prjónaðar slétt.

31.03.2020 - 11:25

country flag Hrafnhildur Sörensen wrote:

Góðan daginn ég er að prjóna Little Hedda og er að velta fyrir mér munstrinu A1 í þriðju umferð á að taka 2 lykkjur óprjónaðar fram af og prjóna 1 sl og steypa óprjónuðu yfir eru það báðar óprjónuðu lykkjurnar og svo í næstu umferð á ég að prjóna 3 sléttar en er bara með 1 lykkju er ekki alveg að sl-kilja þetta munstur

27.03.2020 - 10:42

DROPS Design answered:

Blessuð takk fyrir ábendinguna. Þetta á að vera: takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir. Vona að þetta gangi núna.

27.03.2020 - 20:33

country flag Masson Nicole wrote:

J'ai fait ce modèle en taille 6 mois et 4 ans et leur maman voudrai la même en taille S mais Je n'ai pas trouvé d'explication pouvez vous m'aider merci

19.03.2020 - 12:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Masson, Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chaque modèle à chaque demande, toutefois, vous pourrez trouver ce top qui est similaire et peut vous servir de base. Pour toute assistance individuelle complémentaire, merci de bien vouloir contacter votre magasin, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

19.03.2020 - 14:00

country flag Rehana wrote:

After completing decreases and having the desired number of sets on.my needle, what shall I do, the pattern has been updated now I want to know where the update applies. I knitted A.2 after decrease? What to do next?

07.02.2020 - 10:18

DROPS Design answered:

Dear Rehana, Not sure where you are in the pattern, ie which section/part of the pattern you already worked. If you printed the pattern before the correction has been made, your printed version doesn't include the correction, if you printed the pattern after the correction, you printed the edited pattern. Happy knitting!

07.02.2020 - 11:23

country flag Tornio-Haaparanta wrote:

Ihana malli! Olen tehnyt kolme mekkoa joulunpunaisesta kaksi ja yhden valkoisen. Mallin otin täältä. Lankana käytin tee tee Helmi/ 100%merinovilla. Minulla oli vain sitä omasta takaa. Joten en tilannut. Mutta malli on upea. Ei virheitä. Pojan tyttäret ovat pitäneet niitä Joulu mekkoina, kolmin kappalein. Olen ylpeä kun kudoin heille joulumekot. Koot 98-140.. hyvää joulua....

02.12.2019 - 23:17

country flag Christiane wrote:

Als erstes vielen dank für die schnelle Antwort Aber so bekomm ich doch nicht die 50 maschen für die Größe 98/104 hin oder

09.10.2019 - 09:50

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, es wird bei dieser Anleitung etwas unterschiedlich sein (Video zeigt beim "top down") - bei der letzte Runde am Rumpfteil ketten Sie 5 Maschen beidseitig der beiden Markierungen, 56 Maschen bleiben für je Vorder- und Rückenteil. Bei nächster Runde beginnen Sie die Runde in der Mitte Rückenteil und stricken 28 M, dann 50 neuen Maschen über die 10 abgekettenen Maschen anschlagen, die 56 M vom Vorderteil stricken, 50 neuen Maschen über die 10 abgekettenen Maschen anschlagne, und die letzte 28 M der Runde stricken = 212 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

09.10.2019 - 10:48

country flag Christiane wrote:

Wo setze ich den 1. Markierer bei der Passe und wie schlage ich die maschen für den Armauschnitt an

08.10.2019 - 12:35

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, den Markierer setzen Sie auf die Maschen/Runde, so können Sie die Arbeit von diesem Markierer messen. So werden die neuen Maschen angeschlagen. Dieses Video zeigt (Raglanpull von oben nach unten - ab ca 07:00) wie man die Maschen unter den Ärmeln anschlägt. Viel Spaß beim stricken!

08.10.2019 - 13:10

country flag Christiane wrote:

Ich stricke gerade die Gr. 98/104 und habe gerade die 6 Markierer entfernt . muss ich nun alle 66m einen neuen Markierer setzen oder nur einmal? denn wie bekomme ich sonst an beiden seiten krausripphin Vielen Dank für die Antwort

22.09.2019 - 10:07

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, wenn 132 Maschen übrig sein, setzen Sie 2 neuen Markierungen für die Seiten, dh die 1. Markierung am Anfang der Runde und die 2. Markierng nach 66 Maschen (= nach der Hälfte der Maschen). Viel Spaß beim stricken!

23.09.2019 - 09:25