DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS SS24

Sea Mist

Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk með ¾-löngum ermum og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1089
DROPS Design: Mynstur nr de-136
Garnflokkur A + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-150-150-200-200-200 gr litur nr 07, beige/blár
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-100-125-125-125 gr litur nr 14, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNN NR 6 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 16 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA-1:
Fækkið lykkjum undan 6 l í hlið þannig: byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 6 l í hlið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2:
Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að sleppa við göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 116-128-140-152-172-184 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af Delight + 1 þræði af Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið þannig: 2 l sl, 2 l br út umf. Þegar prjónaðar hafa verið 3-3-3-5-5-5 umf er prjónað áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 4-4-2-4-4-4 l jafnt yfir = 112-124-138-148-168-180 l. Setjið 4 prjónamerki í stykkið, talið út frá byrjun umf þannig: 1. prjónamerki eftir 25-28-31-34-39-42 l, 2. prjónamerki eftir 31-34-37-40-45-48 l, 3. prjónamerki eftir 81-90-101-108-123-132 l og 4. prjónamerki eftir 87-96-107-114-129-138 l (= 6 l á milli prjónamerkja í hvorri hlið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti er fækkað um 1 l hvoru megin við 6 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 11 cm og 13 cm = 100-112-126-136-156-168 l. Þegar stykkið mælist 23 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við 6 l í hliðum – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm = 108-120-134-144-164-176 l. Prjónið þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Prjónið nú næstu umf þannig: Prjónið 24-27-30-33-38-41 l, fellið af næstu 4 l, prjónið 52-58-66-70-80-86 l, fellið af næstu 4 l og prjónið síðustu 24-27-30-33-38-41 l. Geymið stykkið = 100-112-126-136-156-168 l eftir á prjóni.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 34-34-34-38-38-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af Delight + 1 þráður af Brushed Alpaca Silk.
Prjónið stroff þannig (1. umf = frá réttu): 1 kantlykkja * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kantlykkju. Haldið áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Prjónið nú áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju. Endurtakið útaukningu með
2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 9-10-11-11-12-12 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING! = 52-54-56-60-62-66 l. Þegar stykkið mælist ca 28-27-27-26-25-25 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) felið af 3 l í byrjun á næstu 2 umf = 46-48-50-54-56-60 l.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 192-208-226-244-268-288 l. Byrjið við miðju að aftan og prjónið 1 umferð JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-2-1-7-8 l jafnt yfir = 192-208-224-243-261-280 l. Í næstu umf er prjónað og prjónamerki eru sett í þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 12-13-14-13-14-14 l, setjið næstu 7-7-7-8-8-9 prjónamerki með 24-26-28-27-29-28 l á milli hverra prjónamerkja, nú eru 12-13-14-14-15-14 l á eftir síðasta prjónamerki og prjónið fram að miðju að aftan (= alls 8-8-8-9-9-10 prjónamerki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 16-16-16-18-18-20 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA-2! Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 2 sinnum til viðbótar og síðan með 2 cm millibili alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 80-96-96-99-99-100 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm. Í næstu umf er fækkað um 13-26-24-21-18-17 l jafnt yfir = 67-70-72-78-81-83 l. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og prjónið stuttar umferðir svo að peysan verði hærri að aftan með byrjun frá miðju að aftan: Prjónið sl fram þar til 15 l eru eftir að prjónamerki að framan. Herðið á þræði, snúið við og prjónið br frá röngu þar til 15 l eru eftir í hinni hliðinni við prjónamerkið að framan. Snúið við og herðið á þræði. Prjónið sl til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan 1 umf sl og 1 umf br yfir allar l. Fellið síðan laust af með sl frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma og saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1089

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Anna Paola Majer wrote:

Buongiorno, quanto filato Melody occorre per realizzare questo modello, nella taglia L? Grazie

06.10.2023 - 18:23

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Paola, può usare 250 g di DROPS Melody. Buon lavoro!

19.11.2023 - 20:12

country flag Lise wrote:

Hej. Er det korrekt at der ikke skal være lige mange masker på forstykke og ryg, når man lukker af til ærmegab? Det giver jo noget mere vidde foran til brystet, har bare ikke oplevet det før. Venlig hilsen Lise

05.11.2022 - 16:26

DROPS Design answered:

Hei Lise. Jo, på denne modellen er det slik (4 masker mer på forstykket enn bakstykket ved delingen). Når ermene er strikket og satt sammen med bærestykket, vil maskeantallet være det samme mellom hver felling. mvh DROPS Design

07.11.2022 - 10:58

country flag Catherine Ledon wrote:

Bonjour, Je commence tout juste à m'initier au tricot aux aiguilles circulaires..... cependant je ne comprends pas le 2ème § des explications du modèle 0-1089. Où doit on mettre les marqueurs? si on fait la somme des intervalles on arrive au double de mailles: 224 en ce qui me concerne. merci. cordialement.

29.11.2021 - 19:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ledon, vous devez placer vos marqueurs entre des mailles ainsi en S (sauf erreur de ma part): comptez 25 m, placez 1 marqueur, comptez 31 m à partir du début du tour (= 6 mailles après le 1er marqueur), placez 1 marqueur, comptez 81 mailles à partir du début du tour (46 m après le dernier marqueur), placez 1 marqueur, comptez 87 m à partir du début du tour (= 6 m après le dernier marqueur). Bon tricot!

30.11.2021 - 08:22

country flag Mary Ann M Marsico wrote:

Is this pattern joined and knitted in the round at the beginning. If not when is it joined in the round. Thank you

06.11.2021 - 14:31

DROPS Design answered:

Hi Mary Ann, this jumper is joined and knitted in the round from the beginning. Happy knitting!

06.11.2021 - 19:50

country flag Bente wrote:

Jeg kan ikke forstå når jeg stikker denne bluse i str L og efter opskriften, så bliver den alt alt for lille og jer er normal i størrelse. Jeg har været helt oppe i p 8, lavet strikkeprøve og strikker ikke løst og heller ikke stramt. Strikkeprøven på 10x10 cm viser 15 m på p 7og 8. Jeg er helt vildrede, håber i har nogle gode råd til det.

17.02.2021 - 11:41

DROPS Design answered:

Hej Bente, Strikker du i DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk samtidigt? Da skal du få 14 masker på 10 cm. Hvis du får 15 eller flere masker på 10 cm, så vil størrelsen blive mindre end de mål du finder i måleskitsen. God fornøjelse!

18.02.2021 - 08:45

country flag Helle wrote:

Jeg har fulgt opskriften, men halsudskæringen bliver alt for vid til mig (hænger ud over skuldrene). Strikkefasteheden stemmer. Vil I anbefale mindre pindestørrelse eller færre masker til start?

15.09.2019 - 15:06

country flag Villuis wrote:

Bonjour pourriez-vous me conseiller sur le nombre de pelotes 🧶 conseiller pour tricoter le pull modèle 236 en taille 44 svp merci

03.05.2019 - 18:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Villuis, pour choisir votre taille dans un premier temps, mesurez un pull similaire dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma (plus d'infos sur les tailles ici). La quantité nécessaire pour chaque laine est indiquée dans l'en-tête, au poids, découvrez comment calculer le nombre de pelotes ici. Bon tricot!

06.05.2019 - 08:20

country flag Anne-Line Gausdal wrote:

Hvorfor skal armene strikkes fram og tilbake? For meg virker det tungvint. Finnes denne oppskrifta med ermene rundstrikket?

29.04.2019 - 20:02

DROPS Design answered:

Hei Anne-Lise. Om du heller vil strikke ermene rundt er det ikke noe i veien for at du gjør det: fjern kantmaskene i rille, sett et merke på begynnelsen av omgangen og øk på hver side av dette merket. God fornøyelse

30.04.2019 - 07:17

country flag Christine FERREIRA wrote:

Magnifique pull que j'ai adoré réaliser... Mais au bout de 6 lavages, il commence à feutrer pourtant lavé à la main en eau froide avec shampooing laine sans frottements, essoré dans un drap de bain et séché à plat. Je suis très déçue, dommage. 😪 Je ne comprends pas pourquoi.

24.02.2019 - 13:21

country flag Zoe Davison wrote:

Do you have a video to show how to do the the higher back going back and forth on needles ? Could you please give me the link?

15.05.2017 - 12:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Davison, the video shows how to work an elevation on back piece - but remember to follow the number of sts in your pattern. Happy knitting!

15.05.2017 - 13:28