DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 160-30
DROPS Design: Mynstur nr de-131
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
mælt við miðju að aftan ca 75 cm
mælt meðfram kanti efst ca 150 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
100 gr litur nr 08, grænn/beige
100 gr litur nr 11, fjólublár/grænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 27 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

MIÐJULYKKJA:
Miðjulykkjan er prjónuð í sléttprjóni í öllum umf í sléttprjóni í mynstri, en í umf í mynstri sem prjónuð er sl frá röngu er miðjulykkju einnig prjónuð svona.

RENDUR:
RÖND 1: = 2 umf. Fyrsta umf er frá réttu.
* Prjónið 2 umf með fjólublár/grænn, prjónið 2 umf með grænn/beige *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Sjalið er prjónað ofan frá og niður í röndum - sjá RENDUR að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 4 með litnum fjólublár/grænn. Setjið 1 prjónamerki í 4. l (= miðjulykkja), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Prjónið A.1 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir 1 l, 1 l sléttprjón, A.1 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 11 l.
Haldið áfram með A.1 hvoru megin við miðjulykkju (miðjulykkjan er prjónuð í sléttprjóni í allri mynstureiningu A.1), þegar mynstrið hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 43 l á prjóni (þ.e.a.s. 21 l hvoru megin við miðjulykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan eftir mynstri A.2-A.4 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 yfir 1 l, A.3 yfir 17 l, A.4 yfir 1 l, 1 l sl (= MIÐJULYKKJA – sjá útskýringu að ofan), A.2 yfir 1 l, A.3 yfir 17 l, A.4 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynstur hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 111 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 55 l hvoru megin við miðjulykkju) og nú er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri af A.3 hvoru megin við A.3 í hvorri hlið á sjali. Haldið áfram að prjóna eftir A.2-A.4 þar til mynstrið hefur verið prjónað alls 8 sinnum á hæðina. Nú eru 587 l á prjóni (þ.e.a.s. 293 l hvoru megin við miðjulykkju). Fellið laust af þannig: * Fellið af 3 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* út umf.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið tvisvar uppá prjóninn á milli 2 l, sleppið öðrum uppslættinum niður í næstu umf
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður sl í næstu umf
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Ilaria wrote:

Come è possibile realizzare questo modello in dimensioni più piccole? Basta fermarsi alla grandezza desiderata o si interromperebbe lo schema?

06.11.2022 - 12:54

country flag Christine wrote:

Rosa Bonde har helt rätt som påpekade år 2016 att det är fel i diagrammet! Den fyllda cirkeln ska stickas rät på avigsidan. Annars får man inte några ränder på framsidan. I diagrammets symbolbeskrivningar har både den tomma cirkeln och fyllda cirkeln samma beskrivning vilket gör att det blir fel. Synd att ni inte rättat det.

27.10.2021 - 14:40

DROPS Design answered:

Hej Christine. Tack för info, det var fel i den svenska översättningen. Detta har nu rättats. Mvh DROPS Design

29.10.2021 - 13:56

country flag Marche Francine wrote:

Bonjour je suis en train de réaliser le modèle du châle et 1 fois avoir effectuer le premier diagramme je n’arrive pas à avoir 43 m comme vous l’indiquer j’en ai 41 et si je continue 1 rg supplémentaire ça dépassera les 43 m. Merci de bien vouloir m’aider s’il vous plaît. Cordialement

06.10.2020 - 16:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marche, vous devez avoir 19 m dans chaque A.1 quand le diagramme est terminé, autrement dit: 2 m point mousse, 19 m de A.1, 1 m jersey (m centrale), 19m de A.1 et 2 m point mousse = 2+19+1+19+2= 43 m. Bon tricot!

06.10.2020 - 17:12

country flag Astrid Danbolt wrote:

Jeg skjønner ikke hvordan jeg skal strikke 2 kant - m rille.

04.07.2019 - 13:02

DROPS Design answered:

Hej Astrik, det er de 2 kantmasker som skal strikkes i rille i hver side af sjalet. God fornøjelse!

05.07.2019 - 12:19

country flag Chantal wrote:

Bonjour, Au début des explications , c'est indiqué en point mousse, tous les rangs à l'endroit. Dans le diagramme, il y a 5 rangs en jersey , une côte mousse ( 1 m endroit sur l'envers) Merci pour votre réponse ! Bon tricot .

26.09.2018 - 00:22

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, après 5 rangs jersey dans A.2, A.3 et A.4 on tricote 1 rang en mailles endroit sur l'envers (voir 2ème symbole de la légende), c'est un rang en mailles envers vu sur l'endroit, pas une côte mousse. Bon tricot!

26.09.2018 - 08:01

country flag Rita wrote:

In der Anleitung steht, dass nach dem Stricken der ersten Rapporte A3 anschliessend 2x auf einer Seite Platz haben. Das stimmt nicht, es sind 3x! Siehe Foto! Also A1, dann 1x je A2-A4, dann jeweils A3 3x auf jeder Seite. ect.

10.11.2016 - 16:58

DROPS Design answered:

Liebe Rita, genau so ist es, jedesmal Sie A.1,A.2,A.3 in der Höhe stricken, haben Sie genügend Maschen um beidseitig jeder A.3 je 1 rapport mehr zu stricken, dh 1 x A.3, dann 3 x A.3, dann 5 x A3 usw beidseitig der Mittlerenmaschen. Viel Spaß beim stricken!

11.11.2016 - 10:10

country flag Rita wrote:

Ich habe angefangen diesen Schal zu stricken und habe nun alle Diagramme einmal gestrickt. Nun steht, dass ein weiteres A3 pro Seite angefügt werden kann. Muss ich dann bei A2-A4 wieder unten beim Diagramm beginnen und einfach A3 2x nacheinander stricken usw? Also von/bis Abnahmen und gleich wieder? Ich bin Anfängerin, entschuldigen sie meine Frage;) Lg, Rita

10.11.2016 - 08:04

DROPS Design answered:

Liebe Rita, ja genau, stricken Sie jetzt A.2, A.3 2x und A.4 auf jeden Seite der Mittel-Masche. Danach haben Sie genügend Maschen um A.3 3x in der Breite auf jeden Seite der Mittel-Masche zu stricken usw. Viel Spaß beim stricken!

10.11.2016 - 08:55

country flag Rosa Bonde wrote:

Där är fel i diagrammet! Den fyllda cirkeln ska vara avig på rätsidan o rät på avigsidan. Annars får man inte några ränder på framsidan.

17.10.2016 - 21:28

country flag Michaela wrote:

Hallo, auf dem Detailbild bei der Anleitung - ist das tatsächlich die gleiche Farbe wie vorgeschlagen? Die Farben wirken viel kräftiger, was natürlich auch am Foto liegen kann. Sollte das Detailbild eine andere Farbe sein, weiß man dann auch welche? Danke!

10.11.2015 - 11:51

DROPS Design answered:

Ja, das ist die gleiche Farbe. Es liegt an dem Foto und kann zudem auch an Ihren Bildschirmeinstellungen liegen. Leider ist eine Farbwiedergabe nie ganz korrekt zum Originalfarbton. Außerdem sind kleinere Schwankungen auch zwischen verschiedenen Farbpartien möglich.

18.11.2015 - 11:06

country flag Danie wrote:

Hallo, theoretisch kann man dieses Tuch immer um jeden Mustersatz verlängern oder?

02.10.2015 - 09:56

DROPS Design answered:

Ja, das geht, Sie können die Rapporte so oft in der Höhe wiederholen, bis Sie Ihre gewünschte Größe haben.

03.10.2015 - 11:48