DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Feeling

Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat eða DROPS Belle með gatamynstri. Prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 160-1
DROPS Design: Mynstur nr r-671
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
650-750-800-900-950-1050 gr litur nr 08, natur

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
550-650-700-750-800-900 gr litur nr 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út mismunandi fyrir laskalínu eftir stærðum:
STÆRÐ S-M:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= alls 8 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 17-19 sinnum til viðbótar.
ATH: Útaukning við 1. prjónamerki er gerð þannig: Í byrjun á umferð: 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í lok umferðar: Sláið 1 sinni uppá prjoninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki).
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Aukið út í annarri hverri umf þannig:
Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= alls 16 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (fyrsti og síðast uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt, en í 2 miðju uppsláttunum eiga að myndast göt.
ATH: Útaukning við 1. prjónamerki er gerð þannig: Í byrjun á umferð: 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í lok umferðar: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki).
Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð 1-1-1-3 sinnum til viðbótar.
Aukið síðan út þannig:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= alls 8 l fleiri) þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 19-20-22-21 sinnum.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndast göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 134-134-140-144-144-148 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle.
Prjónið A.1 (= 2 l) yfir allar l. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt og aukið út um 16-20-14-22-42-46 l jafnt yfir = 150-154-154-166-186-194 l. Í næstu umf eru sett 4 prjónamerki í stykkið, 1 prjónamerki í miðju l í laskalínu þannig: Setjið 1. prjónamerki í síðustu l frá fyrri umf, prjónið 45-47-49-55-65-71 l sl (= framstykki), prjónið 1 l og setjið 2. prjónamerki í þessa l, prjónið 28-28-26-26-26-254 l sl (= ermi), prjónið 1 l sl og setjið 3. prjónamerki í þessa l, prjónið 45-47-49-55-65-71 l sl (= bakstykki), prjónið 1 l og setjið 4. prjónamerki í þessa l, prjónið 28-28-26-26-26-24 l sl (= ermi). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið nú þannig – JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan: Prjónið hálfa útaukningu fyrir laskalínu að 1. prjónamerki (sjá útskýringu að ofan), prjónið 13-14-14-17-22-25 lykkjur slétt, A.2 (= 17 l), prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 2. prjónamerki, prjónið LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 3. prjónamerki, prjónið laskalínu, 0-1-1-4-9-12 lykkjur slétt, A.3 (= 43 l), prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 4. prjónamerki, prjónið laskalínu, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 1. prjónamerki, prjónið laskalínu. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar þær prjónast inn í mynstur eins og útskýrt er í A.3.

Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón yfir þessar l. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.4 (= 57 l) yfir A.3. Eftir alla útaukningu eru 294-314-338-358-394-426 l á prjóni. Stykkið mælist ca 14-15-16-17-18-19 cm. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður JAFNFRAMT er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 81-87-95-103-117-129 l (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja), prjónið næstu 81-87-95-103-117-129 l (= bakstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja) = 174-186-202-222-250-274 l eftir á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram að prjóna A.4 og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki á hliðum (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-4-4-4-4-4 cm millibili 5-3-3-3-3-3 sinnum til viðbótar = 150-170-186-206-234-258 l. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm setjið 4 ný prjónamerki þannig: Prjónið 15-17-19-21-25-27 l, setjið 1. prjónamerki, prjónið 45-51-55-61-67-75 l, setjið 2. prjónamerki, prjónið 30-34-38-42-50-54 l, setjið 3. prjónamerki, prjónið 45-51-55-61-67-75 l, setjið 4. prjónamerki, prjónið þær l sem eftir eru 15-17-19-21-25-27 l. prjónamerki 1. og 2. eru á framstykki og prjónamerki 3. og 4. eru á bakstykki. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki og 1. l á eftir 2. og 4. prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. ATH: Lykkjufjöldi við miðju að framan og við miðju að aftan verður sá sami, aukið út í hliðar-l.

Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 1 sinni til viðbótar, síðan í 4. hverri umf alls 6-5-6-5-6-10 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 22-18-22-18-18-8 sinnum = 270-270-306-306-338-338 l. Í næstu umf er aukið út um 2-2-0-0-2-2 l jafnt yfir = 272-272-306-306-340-340 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 25 cm). Prjónið nú A.6 (= 34 l) alls 8-8-9-9-10-10 sinnum á breiddina. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið A.5 yfir allar l. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi = 72-76-80-84-88-92 l.
Prjónið sléttprjón í 2 cm, í næstu umf er fækkað um 8 l jafnt yfir = 64-68-72-76-80-84 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið A.5 yfir allar l. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið op undir ermi.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.03.2015
BERUSTYKKI: Eitt númer vantar í stærð L í skýringu á laskalínu.
Yfirfarið á vefsvæði: 01.06.2015
Leiðrétting: Laskalína og berustykki hafa verið umorðuð.
Yfirfarið á vefsvæði: 13.12.2018
Leiðrétting hefur verið gerð á LASKALÍNA:
STÆRÐ S-M: ATH: Útaukning við 1. prjónamerki er gerð þannig: Í byrjun á umferð: 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í lok umferðar: Sláið 1 sinni uppá prjoninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki).
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:ATH: Útaukning við 1. prjónamerki er gerð þannig: Í byrjun á umferð: 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í lok umferðar: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki).
Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð 1-1-1-3 sinnum til viðbótar.
BERUSTYKKI:..Prjónið nú þannig – JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá skýringu að ofan: Prjónið hálfa laskaútaukningu að 1. prjónamerki (sjá útskýringu að ofan), prjónið 12-14-14-17-22-25 lykkjur slétt, A.2 (= 17 l), prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 2. prjónamerki, prjónið LASKALÍNA – sjá skýringu að ofan, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 3. prjónamerki, prjónið laskalínu, 0-1-1-4-9-12 lykkjur slétt, A.3 (= 43 l)..
Yfirfarið á vefsvæði: 12.03.2019
Leiðrétting - BERUSTYKKI:..Prjónið hálfa laskaútaukningu að 1. prjónamerki (sjá útskýringu að ofan), prjónið 13-14-14-17-22-25 lykkjur slétt, A.2 (= 17 l),

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Summer Feeling

Kamila, Czech Republic

Summer Feeling

EGEA, France

Summer Feeling

Jo, South Africa

Summer Feeling + Winter Dunes

Joanna Piotrowska, United Kingdom

160-1 Summer Feeling

Viktoria, Russian Federation

160-1 Summer Feeling

Johanna, Sweden

Summer Feeling

JoeJ5, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (219)

Erin wrote:

Hi, thank you so much for your fast replies!! So just to ensure I understand it, I will work the inc sts in stocking st before I start on the A.3 pattern? Thanks for your kind patience, unfortunately I'm not that great in understanding the knitting language.

09.03.2017 - 11:41

DROPS Design answered:

Dear Erin, you will work the inc sts in stocking st and then they will be incorporated in A.3, A.3 is worked from 1st round with inc for raglan. The new sts inc for raglan are first worked in stocking st until they will have to be worked in A.3. Happy knitting!

09.03.2017 - 12:05

Erin wrote:

Can I check what does the last sentence of the second paragraph means? "Work the inc sts in stockinette st until they can be worked in pattern as shown in A.3." Also, when do we stop working the raglan?

08.03.2017 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Erin, you will work the inc sts in stocking st before you are on the row in A.3 where they will be worked in pattern. See under RAGLAN how to inc for raglan and number of inc for raglan in your size. Happy knitting!

09.03.2017 - 09:10

country flag Nadja Kathrine wrote:

Hej Drops. Jeg behøver hjælp for, at kunne komme videre. Jeg strikker str. L og jeg har lavet udtagninger som opskriften foreskriver mit arbejder måler 16 cm og m.antal er 338. Ifølge opskriften skal jeg nu sætte 74 m. på tråd til ærmet og derefter strikke videre i A.4. Mit problem er, at jeg mangler at strikke 14 omg. af A.3. Hvordan kommer jeg videre herfra? Strikker jeg A.3 færdig men hvad gør jeg så med raglanen?

15.01.2017 - 10:50

DROPS Design answered:

Hej Nadja. Du er faerdig med raglanen, saa her skal du ikke göre mere. Du fortsaetter med A.3 0 det er korrekt, det ikke er faerdig endnu, men din raglan er faerdig.

18.01.2017 - 16:05

country flag Anna Virkki wrote:

Raglanlisäyksissä on virhe L-Xxxl kokojen kohdalla. Kun vertaa englanninkieliseen tai alkuperäiseen puuttuu suomenkielisestä yksi langankierto, samoin kiertäen neulottu silmukka on Ennen silmukkamerkkiä, ei jälkeen.

12.12.2016 - 21:51

country flag Rebekah Russo wrote:

Thank you so much for the fast response! I have few more questions, if you don't mind...the Raglan is conpleted every other row? I have been knitting it ever odd number row, is that correct? And if so, when do you start counting the knits for the front and back panels? After the Raglan? Again, thank you so so much for your help :)

24.10.2016 - 18:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Russo, the inc for raglan are worked every other round. A.2/A.3 are started when you inc for raglan the first time, insert a marker before and after the sts in diagram (= 17 sts in A.2 and 43 at the beg of A.3) to mark the sts where you will work each of them. You will have then more sts before and after the diagrams due to the inc for raglan. Happy knitting!

25.10.2016 - 09:05

country flag Rebekah Russo wrote:

Hi there! On your diagram key, it reads (slip 1 st as if to K, K1, psso). Does that mean the slip stitch should be knitted as well before slipping over the second knitted stitch? Hope that makes sense :) Thanks for your time!

20.10.2016 - 21:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Russo, the slipped st is not worked, just slipped on right needle, then K next st and pass the slipped st over the worked st, see also video below. Happy knitting!

21.10.2016 - 09:24

country flag Diana Duggento wrote:

Ich bin Strickanfänger und komme nicht ganz klar mit dem Muster. In der ersten Reihe sollen 14 Maschen rechts und dann A2 gestrickt werden, später folgen dann 2 Maschen rechts und A3. Ich habe dann in jeder weiteren Musterreihe mit 14 bzw. 2 Maschen rechts für die Muster begonnen. Das Muster passt so überhaupt nicht überein. Wo liegt mein Fehler?

11.08.2016 - 08:29

DROPS Design answered:

Liebe Diana, A.3 ist breiter als A.2, daher sind dort seitlich weniger Maschen.

27.08.2016 - 15:33

Manosha wrote:

Your website is the best of all sites. The models , sizes and explaination are perfect, thanks a lot, I do many things for me, my mom, my kids

19.07.2016 - 10:38

country flag Ragnhild Hjälmhult wrote:

Hei! Strikker størrelse L. Har 14 omganger igjen av A3, og økt til raglan slik oppskriften sier, og har nå 338 masker. Får ikke dette til å stemme. Øker tot 24 ganger annenhver pinne. Først 2 ganger med 16 masker pr omgang og så 22 omganger med 8 masker. Dvs tot 48 omganger. Mønster A3 går over 56 omganger. Takknemlig for en forklaring her :)

23.06.2016 - 00:12

DROPS Design answered:

Hej Ragnhild. Du strikker videre paa A.3 naar ogsaa raglan er afsluttet.

23.06.2016 - 15:07

country flag Britt Sperstad wrote:

Hei,strikker str S,garn Puna. Skjønner ikke helt oppskriften i avsnitt 3 under bærestykket. Har strikket ferdig A2, har igjen 14 omg på A3,arbeidet måler nå 14 cm. Skal jeg ta ermemaskene på en tråd nå eller når jeg er ferdig m A3??

13.06.2016 - 23:19

DROPS Design answered:

Hej Britt. Du skal sette ermemaskene paa en traad naar du er faerdig med alle ökninger (du har 294 m) og arbejdet maaler 14 cm.

14.06.2016 - 15:42