DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Esther Cardigan

Prjónuð peysa með laskalínu og gatamynstri úr DROPS Muskat, prjónuð ofan frá og niður með stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 159-32
DROPS Design: Mynstur nr r-675
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 gr litur nr 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 5-5-6-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.3. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn í næstu umf (svo ekki myndist gat).
Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er frá í uppskrift.

ÚTAUKNING:
Byrjið á 1 l á undan prjónamerki og aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fitjið upp 156-160-164-168-172-176 l á hringprjónar nr 3 með Muskat. Prjónið 6 l garðaprjón, A.1 þar til 6 l eru eftir, prjónið 6 l garðaprjón. Prjónið 4 umf svona, prjónið síðan A.2 yfir 6 l á hvorri hlið (= kantur að framan), haldið áfram með A.1 yfir þær l sem eftir eru. Þegar A.1 er lokið er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Næsta umf er prjónuð þannig: A.2 (= kantur að framan), prjónið 16-17-18-19-20-21 l sléttprjón (= framstykki), prjónið A.3 (= 19 l), 1 l sléttprjón, A.3 (= 19 l) (= 39 l á ermi), prjónið 34-36-38-40-42-44 l sléttprjón (= bakstykki), prjónið A.3, 1 l sléttprjón og A.3 (= 39 l á ermi) og haldið áfram með 16-17-18-19-20-21 l sléttprjón (= framstykki), endið á A.2 (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er útaukning fyrir LASKALÍNA í byrjun á næstu umf – sjá útskýringu að ofan.
Aukið út á framstykki og á bakstykki: 1 l í hverri umf (þ.e.a.s. aukið út bæði frá réttu og frá röngu) alls 14-16-18-20-26-30 sinnum, síðan í annarri hverri umf 7-8-9-10-9-9 sinnum.
Aukið út á ermum: 1 l í annarri hverri umf alls 2-4-6-8-10-12 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 6 sinnum í öllum stærðum.
Eftir alla útaukningu eru 272-296-320-344-376-404 l á prjóni og stykkið mælist ca 17-19-20-22-24-26 cm frá öxl og niður.

Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 43-47-51-55-61-66 l sl (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra l, prjónið 76-84-92-100-112-122 l sl (= bakstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l og prjónið næstu 43-47-51-55-61-66 l sl ( = framstykki) = 174-190-206-226-250-274 l á prjóni – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram með sléttprjón og kant að framan (í A.2). Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili alls 4 sinnum = 158-174-190-210-234-258 l. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2 1/2 cm millibili alls 4 sinnum = 174-190-206-226-250-274 l. Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (kantur að framan í A.2) og fellið síðan laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

KANTUR ERMI:
Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka 55-59-63-67-71-75 l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 3 og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar l undir ermi = 61-65-69-75-79-85 l. Prjónið mynstur í hring eftir A.1 og fellið síðan laust af.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman undir ermum. Saumi tölur í vinstri kant að framan, efsta talan er ca 1 cm neðan við hálsmál og sú neðsta er ca 12 cm frá neðri kanti. Deilið hinum tölunum niður jafnt á milli þessa. Tölum er hneppt í göt í hægri kanti að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 1 KÚLA: prjónið 1 l sl, 1 l snúin slétt og 1 l slétt í sömu l (= 3 l) snúið við. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl, 1 umf br og 1 umf sl yfir þessar 3 l. Þá er lykkja 2 steypt yfir á hægri prjón yfir lykkju 1, eftir það er lykkja 3 steypt yfir lykkju 1 (= 1 l er eftir)
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Kerstin Marquardt wrote:

Var i beskrivningen står det var man ska glra knapphål ?

07.04.2023 - 20:49

DROPS Design answered:

Hej Kerstin, under montering: Knapparna sys i så att de kan knäppas i hålen på höger framkant.

13.04.2023 - 11:39

country flag Anna Sabelli wrote:

Bonjour,\r\nJe ne suis pas claire, ci-dessous les instructions.\r\n..... Continuer ainsi, EN MÊME TEMPS, augmenter pour le RAGLAN en commençant au rang suivant - voir ci-dessus:\r\nAugmentations devants/dos: 14-16-18-20-26-30 fois 1 m tous les rangs (c\'est-à-dire à la fois sur l\'endroit et sur l\'envers), puis 7-8-9-10-9-9 fois tous les 2 rangs. Merci de votre aide

22.08.2022 - 22:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sabelli,k vous tricotez les points fantaisie/diagrammes dans l'ordre indiqué précédemment, et en même temps vous allez augmenter pour le raglan, les augmentations du raglan se font à un rythme différent pour le dos/les devants et pour les manches; autrement dit vous allez augmenter soit 8 mailles (dos/devants + manches) soit 4 mailles seulement (quand on augmente pour le dos/les devants tous les rangs mais tous les 2 rangs pour les manches par exemple). Est-ce plus clair ainsi? Bonne continuation!

23.08.2022 - 08:13

country flag Bridget Curran wrote:

Sorry, I should've been more specific. So if I have 17 stitches for the right front, then a marker, then the 19 sts for the first A.3, etc. Should I do the raglan increase as follows - (1) K 17, YO, move marker, work 19 sts A.3, etc.; - or - (2) K 16, YO, K1, move marker, work 19 sts. A.3; etc.? I hope that makes sense. Some patterns specify the YO should be x amount of stitches away from the marker, but this pattern doesn't specify. Thanks a million!

11.05.2022 - 22:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Curran, you have to increase on each side of A.3, this means to increase on left front piece, you will work the 1st time the 17 sts, then YO, and work A.3. On the next row from WS you will increase on left front piece (on every row) after A.3 and the 18 sts (17+1 st incrased). Note that you will increase sometimes 8 sts (body + sleeves) and sometimes only 4 sts (body only when increasing on every row on body but on every other row on sleeves). Happy knitting!

12.05.2022 - 08:48

country flag Bridget Curran wrote:

Hiya, for the raglan increases on the body, should they be done right before/after the stitch marker, or one stitch away from the stitch marker? Thanks a million!

11.05.2022 - 21:18

DROPS Design answered:

Dear Bridget, the increases are worked before and after the A.3 repeat (for the raglan), which consists of 19 stitches. The marker is between the stitches of the sections of the piece and the beginning or ending of a repeat of A.3. Happy knitting!

11.05.2022 - 21:49

country flag Barbara Pörschmann wrote:

Vielen Dank für die prompte Antwort. VT habe ich mittlerweile verstanden, Raglanzunahme leider nicht, jetzt habe ich eine Mittelmasche mitten im Ärmel, aber das stört mich nicht. im Gegenteil! Anders bei der doppelten Zunahmen (Hin- und Rückreihe) da hatte ich riesige Löcher, das hat mir nicht gefallen. So habe ich eine Masche hochgehäkelt und diese als Zunahme berechnet. Löcher weg.

09.04.2022 - 07:06

country flag Barbara Pörschmann wrote:

"Die nächste Hin-R wie folgt str: 43-47-51-55-61-66 M re (= Vorderteil), " Ist das incl. der 6 Maschen (Blende) oder werden die 6 M erst gestrickt , dann 47 M re Ferner habe ich die Zunahmen an den Ärmeln nicht richtig verstanden: 19+1+19 Grundeinteilung. 1. Zunahme 19+(1.Zun)+1+(1. Zun)+19 2. Zun.: 19+2.zun.+3+2.Zun+19 oder 20+2.Zun+1+2.Zun+20 (????) Wo kommen die Zunahmen hin?

08.04.2022 - 09:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pörschmann, für den Raglan nehmen Sie beidseiting von jedem A.3 zu (siehe RAGLANZUNAHMEN), dh bei den Ärmeln stricken Sie: A.3, Zunahme, glatt rechts (1 bei der 1. Reihe), Zuinahme, A.3. Die BlendeMaschen sind in den 43-47-51-55-61-66 Maschen dazugezählt. Viel Spaß beim stricken!

08.04.2022 - 11:30

country flag Gudrun Norström wrote:

Jag förstår inte hur raglan ska ökas. Ska man öka mellan alla A3 dvs 6 ökningar eller är det 4 som menas alltså mellan framstycke och ärm, ärm och bakstycke, bakstycke och ärm, ärm och framstycke. Hur ökas maskorna på ärmarna, Är det mellan 2 A3 och hur gör jag i såfall. Det ska ökas 1 m men om jag läser ökningstips blir det 2 m.

17.02.2022 - 12:23

DROPS Design answered:

Hei Gudrun. Du øker på hver side av A.3 og du strikker A.3 fire ganger pr pinne = 8 økninger. Det er 4 økninger mellom overgangene: venstre forstykke/erm, erm/bakstykket, bakstykke/erm og erm/ høyre forstykke. Det økes også 2 masker midt oppå ermet/ hver side av A.3 = 4 økte masker. Det økes ulikt på bol og ermer, se forklaringen i oppskriften til din str på hvor ofte det skal økes / på hvilken pinner, husk det økes både fra retten og vrangen på forstykket og bakstykket. Øketipse gjelder ikke for raglan, men når du skal øke i sidene = 2 økte masker i hver side = 4 økte masker på hver pinne. mvh DROPS Design

21.02.2022 - 09:58

country flag Kate wrote:

Hi! I don’t understand where I need to increase for sleeves. And for raglan increase before A3 and after A3. Is it right?

11.12.2019 - 23:12

DROPS Design answered:

Dear Kate, you increase for the raglan on each side of each A.3: at the end of right front piece just before A.3, then on each sleeve: after A.3 at the beg of sleeve + before A.3 at the end of sleeve; on back piece: after A.3 at beg of back piece and before A.3 at the end of back piece and after A.3 on left front piece. You will increase sometimes 8 stitches (= sleeves and body) or sometimes 4 stitches (= only on body) - see your size. Happy knitting!

12.12.2019 - 09:31

country flag Miranda wrote:

Non riesco a capire come fare gli aumenti. Si parla di segnapunti ma nelle spiegazioni non sono inseriti. Inoltre non capisco gli aumenti avanti/dietro e raglan. Facendo gli aumenti prima e dopo A3 corrispondono con avanti/raglan, raglan/dietro, dietro/raglan e raglan/davanti. Potete aiutarmi? Grazie in anticipo

10.03.2019 - 13:50

DROPS Design answered:

Buongiorno Miranda. Quando aumenta per il raglan, deve seguire le indicazioni riportate al paragrafo RAGLAN. Il diagramma A3 separa le maniche dai davanti/dietro. Nel testo trova indicato quando aumentare sulle maglie del davanti/dietro e quando sulle maglie delle maniche. Dovrà invece seguire le indicazioni del paragrafo: suggerimento per gli aumenti (dove trova il riferimento al segnapunti) più avanti, quando lavorerà la parte del CORPO. Buon lavoro!

10.03.2019 - 17:12

country flag Eleanor Sofa wrote:

If I have to change my needle size for the main part of this pattern to achieve the gauge, do I also need to change the needle size for the edge?

14.02.2019 - 20:40

DROPS Design answered:

Dear Eleanor, the neck edge and the edge at the waist of the cardigan as well as the sleeve edge is all knitted with the 3 mm needles, while the rest of the piece (the body) is done with 4 mm needles. I hope this helps. Happy Knitting!

15.02.2019 - 07:58