DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dorothea

Prjónuð peysa í klukkuprjóni með klauf og laskalínu úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stærð S-XXXL.

DROPS 160-27
DROPS Design: Mynstur nr ks-099
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-125-125-150-175-175 gr litur nr 03, ljós bleikur
100-125-125-150-175-175 gr litur nr 04, millibleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 18 umf með klukkuprjóni með 2 þráðum úr Kid-Silk verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= rétta): 3 l garðaprjón, * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, 1 l sl, 3 l garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= ranga): 3 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 3 l garðaprjón.
UMFERÐ 3 (= rétta): 3 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 3 l garðaprjón.
Endurtakið umf 2 og 3.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring á hringprjóna):
UMFERÐ 1: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið umf 2 og 3.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Endurtakið umf 2 og 3.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að sleppa við göt. Lykkjurnar prjónast jafnóðum inn í klukkuprjón.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við A.1 (= 8 l færri). Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman. ATH: Uppslátturinn í klukkuprjóni er ekki talinn með sem stök lykkja. Í næstu umf eru l prjónaðar hvoru megin við A.1 brugðið!

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjón þar til klaufin hefur verið prjónuð. Síðan er prjónað í hring. Bakstykkið er lengra en framstykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 66-72-78-86-95-104 l á hringprjón nr 6 með 1 þræði af litnum ljós bleikur og 1 þræði af í litnum millibleikur (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 9-11-11-13-14-15 l jafnt yfir = 57-61-67-73-81-89 l. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI prjónað fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25 cm – stillið af að síðasta umf sé 2. umf í klukkuprjóni – geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af að síðasta umf sé 2. umf í klukkuprjóni – prjónið fram og bakstykki áfram í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú fram- og bakstykki saman þannig: Byrjið á framstykki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl, prjónið umf 3 í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI prjónað í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan, þar til 4 l eru eftir á framstykki, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 2 l slétt saman (= hægri hlið), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl, haldið áfram í klukkuprjóni yfir bakstykki þar til 4 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 2 l slétt saman (= vinstri hlið) = 112-120-132-144-160-176 l. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni frá 2. umf. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm (mælt frá bakstykki) fellið af 7 l í hvorri hlið fyrir handveg = 49-53-59-65-73-81 l bæði á fram- og bakstykki. Prjónið 25-27-30-33-37-44 l klukkuprjón. Umf byrjar nú héðan (= miðja að aftan). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á hringprjón/sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-41-41-44-44 l á sokkaprjóna nr 6 með 1 þræði í litnum ljós bleikur og 1 þræði í litnum millibleikur(= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf með sl er fækkað um 6-6-5-5-6-6 l jafnt yfir = 32-34-36-36-38-38 l. Prjónið nú klukkuprjón yfir allar l. ATH: Setjið prjónamerki í fyrstu l í umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 15-15-15-15-10-10 cm aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2-2-1½ cm millibili 6-7-8-11-13-17 sinnum til viðbótar = 46-50-54-60-66-74 l. Þegar stykkið mælist 39-39-39-39-38-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla), fellið af 7 l við miðju undir ermi = 39-43-47-53-59-67 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 176-192-212-236-264-296 l. Haldið nú áfram í klukkuprjóni eins og áður á bakstykki, framstykki og ermum með byrjun frá miðju að aftan, prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan yfir allar skiptingar þannig: Prjónið 20-22-25-28-32-36 l, A.1 (= 7 l) 33-37-41-47-53-61 l (= ermi), A.1, 41-45-51-57-65-73 l (= framstykki), A.1, 33-37-41-47-53-61 l (= ermi), A.1, prjónið næstu 21-23-26-29-34-37 l. Í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fellið af í hverri umf 0-0-0-0-3-9 sinnum, í annarri hverri umf 6-10-14-21-22-20 sinnum og í 3. hverri umf 9-7-5-1-0-0 sinnum = 56-56-60-60-64-64 l. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er aukið út um 11-11-12-12-12-12 l jafnt yfir = 67-67-72-72-76-76 l. Prjónnið 4 umf garðaprjón og fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.08.2019
ERMI - Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2-2-1½ cm millibili 6-7-8-11-13-17 sinnum til viðbótar = 46-50-54-60-66-74 l.

Mynstur

symbols = sl
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br
symbols = prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman
symbols = prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Iris Müller wrote:

Hallo, leider scheitere ich schon an der Maschenprobe. Ich komme mit der Original Drops kidsilk und Nadeln Nr. 6 nur auf 6 cm bei 13 Maschen. Mit Nadeln Nr. 8 auf 8 cm. Mit größeren Nadeln möchte ich nicht stricken, dann gefällt mir das Maschenbild nicht. Am liebsten wäre mir Nadelgröße 6. Was kann ich tun? Warum passt die Maschenprobe so gar nicht?

16.09.2023 - 16:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, stricken Sie mit 2 Fäden Kid-Silk und mit Patent muster, dh nicht glatt rechts? Die ganze Anleitung, dh die Maßnahmen sowie die Garnmenge wird mit dieser Maschenprobe kalkuliert, wenn sie nicht stimmt, dann sollen Sie beide Anleitung und Garnmenge anpassen. Viel Spaß beim stricken!

18.09.2023 - 08:28

country flag Laetitia wrote:

Bonjour Je ne comprends pas le fait de mettre le dos en attente pour faire le devant: faut il couper le fil pour commencer le devant?

26.07.2023 - 08:03

DROPS Design answered:

Bonjour Laetitia, vous coupez le fil avant de mettre le dos en attente. Bon tricot!

26.07.2023 - 08:09

country flag Magdalena Louise Ebeling wrote:

Ska jag fortsätta med mönstret A. 1 när jag stickar raglan?

27.10.2022 - 23:23

DROPS Design answered:

Hej Magdalena, ja du fortsætter mønsteret og minskar till raglan på varje sida av A.1. Se RAGLAN i början på mönstret :)

16.11.2022 - 13:20

country flag Magdalena Louise Ebeling wrote:

Ska jag fortsätta med mönstret A. 1 när jag stickar raglan?

27.10.2022 - 23:22

DROPS Design answered:

Hei Magdalena. Raglan: Det felles på hver side av hver A.1 (= 8 m felt). Det felles 1 maske ved å strikke 2 masker vrang sammen. NB: Kastene i helpatent regnes ikke som en egen maske. På neste omgang strikkes masken på hver side av A.1 vrang. mvh DROPS Design

31.10.2022 - 09:42

country flag Kirsten Ross wrote:

Leider immer noch kein Erfolg bei der Ärmelzunahme. Wie werden die neu aufgenommenen Maschen in den Folgerunden gestrickt,mit oder ohne Umschlag? Woran muss ich mich orientieren—? Das Muster wird ja gebrochen. Es geht bei mir einfach nicht auf,. Wenn ich in einer Reihe bin wo rechts mit Umschlag abgehoben wird,muss ich dann alle drei rechte Maschen mit Umschlag abheben ?vielleicht könnte man einmal ein Video dazu machen…danke. Ich bin habe schon 20mal neu angefangen.

27.06.2021 - 21:51

DROPS Design answered:

Liebe Kirsten, nach der ersten Zunahme ist das Muster tatsächlich "gebrochen", erst nach 2 Zunahme-Runden sind Sie wieder im "Mustertakt". Stricken Sie die zugenommene Masche jeweils so, wie es die daneben liegende Masche des Vollpatents erfordert. Es kann daher passieren, dass Sie 3x 1 Masche rechts abheben + jeweils 1 Umschlag arbeiten, d.h. es wird 3x nacheinander die gleiche Maschenart gestrickt (= zugenommene Masche + Masche der unteren Ärmelmitte + zugenommene Masche). Erst bei der nächsten Zunahme sind Sie wieder im richtigen Rhythmus des Musters. Nach der darauf folgenden Zunahme haben Sie dann wieder 3x nacheinander die gleiche Maschenart.

28.06.2021 - 23:00

country flag Kirsten Ross wrote:

Leider klappt es nicht mit den Zunahmen am Ärmel,irgendetwas mache ich falsch. Muss die über den Querfaden aufgenommene Masche direkt rechts verschränkt ab gestrickt werden so wie im 2. Video? In der Anleitung steht unter Zunahmetipp erst in der nächsten Runde verschränkt Rechts Stricken.Und muss ich immer auch direkt den Umschlag aufnehmen ? Oder erst in der 2.Runde ab Zunahme?

15.06.2021 - 08:20

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ross, in dieses Modell wurden die Zunahmen für die Ärmel mit dem Querfaden gestrickt, aber wenn Sie es lieber haben, können Sie auch mit einem Umschlag beidseitig der mittleren Maschen zunehmen. Hauptsache ist, daß die Maschen im Patentmuster gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

15.06.2021 - 08:22

country flag Kirsten Roß wrote:

Hallo, ich noch einmal, ich habe nun den Querfaden rechts abgestrickt und auf edr Rückseite verschränkt rechts was erstmal richtig aussieht. Nun habe ich aber 3 rechte Maschen nebeneinander in dedr nächsten Runde, also die ursprünglich erste Masche und davor bzw danach. Ist das so gedacht und wie verfahre ich wenn ich dann noch weitere Maschen aufnehme? Dann würde das Feld aus rechten Maschen ja immer größer werden. Irgendwo ist da ein Fehler. Danke!

06.06.2021 - 16:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Roß, so stimmt es, nächstes Mal werden Sie die Zunahme links stricken und dann wird das Patentmuster wieder in Runden stimmen. Und immer so weiter stricken. Viel Spaß beim stricken!

07.06.2021 - 07:46

country flag Kirsten Roß wrote:

Ich verstehe die Zunahme für die Ärmel nicht. Wenn ich den Querfaden der beiden Maschen aus der vorigen Reihe rechts aufnehme liegt der Faden doch hinter der neuen Masche, was mache ich dann damit? Und auf der Rückrunde passt es dann doch nicht mehr mit rechts und links abwechselnd, oder sehe ich das falsch?

06.06.2021 - 11:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Roß, die Zunahmen werden aus dem Querfaden (siehe Video gestrickt, und dann im Patent gestrickt, dh entweder links oder rechts je nach der vorrigen/nächste Masche - Dieses Video könnte vielleicht Ihnen auch mal helfen. Viel Spaß beim stricken!

07.06.2021 - 07:31

country flag Melanie Giese wrote:

Hallo Ich habe direkt eine Frage zum Anfang. Ich bin beim Patent hin und Rück, 2. Runde. Werden der aktuelle Umschlag und die abgehobene Masche zusammen gestrickt oder die ais der vorrunde? Dankeschön schon mal ;)

07.03.2021 - 19:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Giese, wenn mann Patent in Reihen strickt, wird man jeweils den Umschlag und die abgehobene Maschen zusammen rechts stricken - siehe Video - wenn Sie später in Runden stricken, dann werden die Maschen abwechslungsweise rechts und links zusammengestrickt - siehe Video. Viel Spaß beim stricken!

08.03.2021 - 09:28

country flag Else Schmidt wrote:

I diagrammet ser det ud som om halsudskæringen går længere ned foran, men jeg kan ikke se der står noget om det i mønsteret til bærestykket.

27.04.2020 - 10:10

DROPS Design answered:

Hei Elsa. Bare forhold deg til oppskriften, målskissen er kun en skisse av genseren for å vise målene. mvh DROPS design

27.04.2020 - 14:24