DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Esther

Prjónaður toppur með laskalínu og gatamynstri úr DROPS Muskat, prjónaður ofan frá og niður með stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 159-33
DROPS Design: Mynstur nr r-676
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 gr litur nr 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn í næstu umferð (svo að ekki myndist gat).
Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og á ermum eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING:
Byrjið á 1 lykkkju á undan prjónamerki og aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Fitjið upp 146-150-154-158-162-166 lykkjur á hringprjóna nr 3 með Muskat. Prjónið A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Næsta umferð er prjónið þannig (frá miðju að aftan): Prjónið 17-18-19-20-21-22 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), prjónið A.2 (= 19 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón, A.2 (= 19 lykkjur) (= 39 lykkjur á ermi), prjónið 34-36-38-40-42-44 lykkjur sléttprjón (= framstykki), prjónið A.2, 1 lykkja sléttprjón og A.2 (= 39 lykkjur á ermi) og endið á 17-18-19-20-21-22 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA í næstu umferð – lesið útskýringu að ofan.

Aukið út á framstykki og á bakstykki: 1 lykkja í hverri umferð alls 14-16-18-20-26-30 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 7-8-9-10-9-9 sinnum.
Aukið út á ermum: 1 lykkja í annarri hverri umferð alls 2-4-6-8-10-12 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6 sinnum í öllum stærðum.
Eftir allar útaukningar eru 262-286-310-334-366-394 lykkjur í umferð, haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist ca 17-19-20-22-24-26 cm frá öxl og niður.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-46-50-56-61 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju lykkja, prjónið 76-84-92-100-112-122 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur, setjið prjónamerki mitt á milli nýju lykkja og prjónið næstu 38-42-46-50-56-61 lykkjur slétt (= bakstykki) = 164-180-196-216-240-264 lykkjur á prjóni – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili alls 4 sinnum = 148-164-180-200-224-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu með 2 1/2 cm millibili alls 4 sinnum = 164-180-196-216-240-264 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 og fellið síðan laust af. Toppurinn mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

KANTUR ERMI:
Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka 55-59-63-67-71-75 lykkjur af þræði yfir á sokkaprjóna nr 3 og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur undir ermi = 61-65-69-75-79-85 lykkjur. Prjónið mynstur í hring eftir A.1 og fellið síðan laust af.
Prjónið hina kant á ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 1 KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja snúin slétt og 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt yfir þessar 3 lykkjur. Nú er 2. lykkju á hægri prjóni lyft yfir 1. lykkju, eftir það er 3. lykkju lyft yfir 1. lykkju (= 1 lykkja eftir)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Esther by Drops

Ilona, Sweden

Blue Esther

Lyudmila, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (84)

country flag Sigrid Salmonsson wrote:

Vid ökningar på ärmen, är det på varje sida av armen alltså 2 maskors ökning på varje arm eller bara 1 maska per arm. Luddig beskrivning!

15.04.2023 - 15:41

DROPS Design answered:

Hej Sigrid, du øger på hver side af A.2, det vil sige at når du øger på ærmet, så er det efter A.2 i den ene side og før A.2 i den anden side af samme ærme :)

18.04.2023 - 10:29

country flag Roberta Ciaraulo wrote:

I'm confused when it comes to the increasing for the raglan. Are the increases for the front/back and sleeves done at the same time? And where should the increases for the front/back and sleeves happen?

17.02.2023 - 17:22

DROPS Design answered:

Dear Roberta, yes, the increases are worked simultaneously, but on different rows. For example, for size S, increase for the body every row 14 times, then every other row 7 times. On the other hand, for the sleeve, increase every 2nd row 2 times, then every 4th row 6 times. So, in some rows, you will increase only for the body or only for the sleeves. Happy knitting!

19.02.2023 - 20:34

country flag Evelyn wrote:

I can’t find how many skeins are needed for this pattern. How do I know how many I should order?

13.02.2023 - 17:01

DROPS Design answered:

Dear Evelyn, material consumption is always shown in the header of the pattern, by the main photo of the model. In this case: Size: S - M - L - XL - XXL - XXXL Materials: DROPS MUSKAT from Garnstudio 300-350-350-400-450-450 g colour no 18, white DROPS Muskat is provided in 50 g balls, so you will need 6-7-7-8-9-9 balls of this yarn. Happy knitting!

13.02.2023 - 18:37

country flag Andrea wrote:

Hallo, ich habe gerade mit diesem Modell angefangen, 154 M mit Nadel 3 angeschlagen, auf 4 gewechselt und bin nun am Andang der Raglanärmel zunahmen. Mein Problem ist, dass mir der Halsausschnitt extrem weit vorkommt. In der Skizze ist dieser mit 18 cm angegeben, bei meinen 154 M ist der Ausschnitt aber über 30 cm breit. Wo hab‘ ich denn da den Denkfehler? Ich stricke übrigens mit Original Dropswolle Muskat. Freue mich auf Ihre Antwort und bedanke mich schon mal vorab. Viele Grüsse

14.12.2022 - 00:08

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, die 18 cm in der Skizze sind für die Breite vom Hals, aber der Umfang ist 154 Maschen, davon einige für den Hals vorne und hinten und ca auch ein Teil für jede Schulter. Sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollten Sie auch das gleiche Ergebnis wie im Foto und in der Skizze bekommen. Viel Spaß beim stricken!

14.12.2022 - 08:09

country flag Anna wrote:

Bonjour, je ne suis pas assez claire sur les augmentations pour le raglan, on augmente avant/après A.2 (sur le dos/le devant et les manches) ? Est-ce possible de me détailler par rang où je dois les augmenter (rang 1, rang 2, 3, 4…) J’ai hâte de tricoter ce modèle ! Merci de votre aide Anna

25.08.2022 - 22:15

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, tout va dépendre de votre taille, car les augmentations des raglans se font à un rythme différent pour le dos/le devant et pour les manches - vous allez augmenter après A.2 (début du dos, devant et manches) et avant A.2 (fin du dos, devant et manches), mais vous augmenterez parfois 8 mailles (= 2 pour le dos, le devant et les manches) parfois seulement 4 mailles (quand on doit augmenter tous les tours pour le dos/le devant alors qu'on augmente tous les 2 tours pour les manches)? Bon tricot!

26.08.2022 - 09:30

country flag Montserrat wrote:

Hola de nuevo, en los aumentos trabajo la hebra como punto retorcido, pero no me queda igual la labor en la punto del lado derecho como en el izquierdo. Según el comentario del aumento del ranglan se supone que hay que hacerlo como punto retorcido cuando se trabaja la lazada. Lo estoy haciendo bien o en uno de los aumentos hay que trabajarlo de otra manera. No se si me he explicado bien. Saludos.

30.05.2022 - 11:53

DROPS Design answered:

Hola Montserrat, te refieres a lado revés/ lado derecho? En ese caso, solo se trabajan los aumentos por el lado derecho, por lo que no debería de haber discrepancias entre los puntos. Los aumentos se trabajan siempre igual, por el lado derecho, por lo que tampoco debería de haber diferencias entre la parte izquierda y derecha de la labor.

31.05.2022 - 17:32

country flag Montserrat wrote:

Perdón en la pregunta de antes me refería a cuantas vueltas son las que se hacen desde que terminamos A1 y empezamos a trabajar A2 con los aumentos hasta que separamos el cuerpo de las mangas. Y también saber cuantas veces se repite el diagrama A2 en las mangas.

10.05.2022 - 19:53

DROPS Design answered:

Hola Montserrat, en cuanto al número de repeticiones de A.2, puedes ver la respuesta debajo. En cuanto a A.1 y A.2, una vez se haya trabajado A.1 en vertical, ya en la siguiente vuelta se comienza con A.2. Por lo que no hay vueltas entre A.1 y A.2. Por último, el diagrama A.2 no se trabaja en las mangas; en las cenefas de las mangas solo se trabaja el diagrama A.1.

11.05.2022 - 21:59

country flag Montserrat wrote:

Cuántas veces se repite el diagrama A2 en las mangas hasta que lleguemos a completar todos los aumentos dado que cada dibujo son 16 vueltas??. Cuantas vueltas son en total sin contar el canesú hasta que separamos el cuerpo de las mangas?? Entiendo que tanto en la vuelta de ida como en la de vuelta se aumenta para el cuerpo/espalda, es decir que se trabaja el aumento con un punto retorcido y hacemos una lazada para el siguiente aumento. Saludos y gracias.

10.05.2022 - 19:42

DROPS Design answered:

Hola Montserrat, el dibujo consiste en 8 vueltas; en el diagrama se muestran 2 repeticiones del patrón en vertical, por eso se ven 16 vueltas. El número de vueltas de A.2 va a depender de la talla, el largo del canesú y la tensión del tejido. Los aumentos se trabajan haciendo un punto retorcido y una lazada, como has indicado.

11.05.2022 - 21:55

country flag Agnieszka wrote:

Witam, kompletnie nie rozumiem dodawania oczek na karczku. Dodawanie oczek na rękawach to dodawanie na reglanie, to jest ok. Ale dodawanie oczek na przodzie/tyle ? Tu jest tylko jeden marker znaczący początek okrążenia. Proszę o dodatkową informację gdzie dodawać te oczka.

29.04.2022 - 16:18

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko. dodajemy oczka na reglan z każdej strony schematu A.2 (przed i za schematem A.2). Masz 4 schematy A.2 (4 linie reglanu). Na reglan dodajesz oczka zarówno na rękawach jak i na przodzie i tyle, czyli z każdej strony schematu A.2 (który tutaj stanowi linię reglanu). Uwaga! Oczka na reglany są dodawane w różnej częstotliwości na przodzie/tyle i na rękawach, dlatego czasem będzie dodawane 4 oczka w okr., a czasem 8 oczek. Pozdrawiamy!

03.05.2022 - 08:33

country flag Marina Druzhkova wrote:

The top is great!

16.07.2021 - 16:43