DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lacey Days

Heklaður toppur úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og hringlaga berustykki, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 162-6
DROPS Design: Mynstur nr cm-025
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
500-500-550-650-700-750 gr litur nr 01, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st og 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Á við um þegar stykkið er heklað fram og til baka.
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 st.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. A.4 sýnir hvernig mynstur byrjar og endar þegar heklað er í hring.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 153-153-163-168-173-183 ll með heklunál nr 4 með Cotton Merino og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið næstu umf þannig:
Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í fyrstu ll frá ll-hring, 1 st í hvora af næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 124-124-132-136-140-148 st. Heklið síðan stykkið fram og til baka. Hver umf er hekluð saman í lok umf með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Snúið við.

LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 12 prjónamerki í stykkið þannig: Heklið 15-15-17-18-19-21 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 30-30-34-36-38-42 st JAFNFRAMT er aukið út um 2-10-6-6-8-4 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 15-15-17-18-19-21 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir = 128-144-144-148-156-156 st.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Snúið við. Í næstu umf frá réttu er aukið út þannig: Aukið út um 1 st hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 3-3-4-6-7-9 sinnum, síðan er aukið út á undan hverju prjónamerki (= 12 st fleiri), endurtakið í hverri umf frá réttu alls 4-4-4-2-2-0 sinnum = 248-264-288-316-348-372 st. Stykkið mælist nú ca 17-17-19-19-21-21 cm.

Í næstu umf er heklað þannig: 35-38-42-47-53-57 st (hálft bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 st frá fyrri umf (= ermi), 70-76-84-94-106-114 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-3-1-1-3 st jafnt yfir (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 st frá fyrri umf (= ermi) og 35-38-42-47-53-57 st (hálft bakstykki) = 157-169-187-205-229-247 st/ll. Stykkið er nú heklað í hring án þess að snúið sé við. Heklið nú þannig: A.1, A.2 alls 24-26-29-32-36-39 sinnum á breidd, endið á A.3. Heklið fyrstu 7 um með A.z. Í umf 8 í A.z (= st-umf) aukið út um 6 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 163-175-193-211-235-253 st. Haldið áfram að hekla A.z eins og áður, en A.2 er heklað nú 25-27-30-33-37-40 sinnum á breiddina. Þegar A.z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.y heklað yfir A.z alls 1-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.x yfir A.y. Í 2. umf í A.x er aukið út um 12 st jafnt yfir = 175-187-205-223-247-265 st. Haldið áfram að hekla A.x eins og áður, en A.2 er nú heklað 27-29-32-35-39-42 sinnum á breiddina. Í síðustu umf í A.x er aukið út um 6 st jafnt yfir = 181-193-211-229-253-271 st. Heklið síðan A.z yfir A.x (A.2 er nú heklað 28-30-33-36-40-43 sinnum á breiddina). Í umf 8 í A.z er aukið út um 12 st jafnt yfir = 193-205-223-241-265-283 st. Haldið áfram að hekla A.z eins og áður en A.2 er nú heklað 30-32-35-38-42-45 sinnum á breiddina. Þegar A.z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.y heklað yfir A.z alls 1-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.x yfir A.y. Í 2. umf í A.x er aukið út um 6 st jafnt yfir = 199-211-229-247-271-289 st. Haldið áfram að hekla A.x eins og áður, en A.2 er nú heklað 31-33-36-39-43-46 sinnum á breiddina. Í síðustu umf í A.x er aukið út um 9-13-11-9-17-15 st jafnt yfir = 208-224-240-256-288-304 st. Heklið síðan þannig: A.5 alls 13-14-15-16-18-19 sinnum (A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar). Klippið frá og festið enda þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 65-69-71-75-77-77 cm.

HÁLSMÁL:
Kanturinn er heklaður í hring. Heklið 1 kant í kringum hálsmál í ll-umf með heklunál nr 4 með Cotton Merino með byrjun við miðju að aftan frá réttu þannig: Heklið upp 114-114-120-120-126-126 st í ll-umf. Heklið síðan A.6 alls 19-19-20-20-21-21 sinnum á breiddina. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = fl í l
symbols = st í l
symbols = ll
symbols = st um ll
symbols = 1 kúla með 4 tbst: Heklið 1 tbst í næsta st - en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst í hvern af næstu 3 st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni
symbols = fyrsta umferð er útskýrð í uppskrift
symbols = 1 fl um ll
symbols = 2 st í sömu l
symbols = heklið 1 st í næsta st - en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í hvern af næstu 2 st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni
symbols = 7 st í sömu ll/st
symbols = kl
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lacey Days

Frida, Sweden

Lacey Days

mayica1819

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag Linda wrote:

Welk alternatief van garen kan ik hiervoor nog gebruiken kan niet tegen de 50%wol dat erin zit zou het graag maken met andere garen die lekker koel aanvoelt in de zomer

07.02.2023 - 15:01

DROPS Design answered:

Dag Linda,

Alle garens die in garengroep B vallen zou je hiervoor kunnen gebruiken, bijvoorbeeld DROPS Belle, DROPS Cotton Light of DROPS Muskat. Via de garenvervanger welke onderaan de materialenlijst bij ieder patroon te vinden is, kun je berekenen hoeveel gram je nodig hebt als je het patroon in een alternatief garen breit.

08.02.2023 - 11:23

country flag Lori wrote:

I've worked A1, A2, and A3. I don't understand how to do Ax, Ay, or Az. None show crochet stitches as a beginning point, so I don't know how to proceed. Also, is this done is same manner as other diagrams? For example, am I working across then vertically??

16.07.2022 - 00:56

DROPS Design answered:

Dear Lori, A.x, A.y and A.z are subsections of diagrams A.1, A.2 and A.3. First you have worked the first row of A.1, A.2 and A.3. In the next row, you continue working the 2nd row of A.1, A.2 and A.3, which is the first row of A.z and continue working the rows of these 3 charts until reaching the last row of A.z. This means you will have 1 vertical repeat of A.x finished. If you continue working the next row of the 3 charts, you will start working A.y. Happy crocheting!

20.07.2022 - 17:48

country flag Amanda wrote:

For the xxxl size the pattern says to work 21dc at the same time and then a little later on it says 42dc at the same time. What does ‘at the same time’ mean? Is it 42dc in the same stitch?

05.07.2022 - 12:20

DROPS Design answered:

Dear Amanda, work this round as follows: 21 dc (US-terminology) increasing 2 dc evenly (= 23 dc), first marker, * work 4 dc, insert next marker *, repeat from *-* 1 more time, work 16 dc, insert next marker, * work 4 dc, insert next marker *, repeat from *-* 1 more time, work 42 dc increasing 4 dc evenly (=46 dc), insert next marker, * work 4 dc, insert next marker *, repeat from *-* 1 more time, work 16 dc, insert next marker, * work 4 dc, insert next marker *, repeat from *-* 1 more time, work 21 dc increasing 2 dc evenly (=23 dc) = 156 dc on the round. Happy crocheting!

05.07.2022 - 15:39

country flag Psitacus wrote:

Pourriez vous m'expliquer de la ligne 3, jusqu'au point fantaisie, s'il vous plaît ? Je ne m'en sors pas. 17brides augmenter 3 B à intervalles réguliers etc ? Merci d'avance

24.10.2020 - 21:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Psitacus, quand il est indiqué de crocheter 17 brides en augmentant 3 brides à intervalles réguliers, vous devez crocheter 1 bride dans chacune des 17 mailles suivantes, en même temps, vous crochetez 3 fois 2 brides dans la même maille à intervalles réguliers (voir cette leçon) = vous avez ainsi 20 brides au-dessus des 17 mailles du tour précédent. Bon crochet!

26.10.2020 - 13:10

country flag Sandra wrote:

Herigennem. Jeg forstår simpelthen ikke opskriften. Jeg har øget med en stangmaske på hver side af hvert mærke, dvs. med 24 på en omgang, som der står i opskriften. Som jeg læser det, skal det gøres 7 gange?

14.07.2020 - 13:36

DROPS Design answered:

Hej Sandra, ja det stemmer, du tager ud på hver side af mærkerne hver gang du hækler fra retsiden. God fornøjelse!

30.07.2020 - 14:11

country flag Sandra wrote:

Hej. Jeg er i gang med at hækle bærestykket i størrelse XXL. Jeg er nu nået dertil, hvor det burde være 21 cm, men det fylder reelt kun 10 cm. Jeg har løbende talt maskerne, og der er de 348 masker, der skal være. Det burde passe med, at 18 st på 9 rækker fylder 10 x 10 cm. På nuværende tidspunkt har jeg 11 rækker. Er der mon noget jeg har overset?

13.07.2020 - 20:42

DROPS Design answered:

Hei Sandra. Har du kanskje økt både fra retten og fra vrangen? Toppen hekles frem og tilbake, men hver rad hekles sammen på slutten av hver rad, (slik at man kanskje føler at den hekles rundt). Når du øker bare fra retten og har 348 staver har du heklet 19 rader = ca 21 cm. God Fornøyelse!

14.07.2020 - 07:37

country flag Cheryl wrote:

What is the approximate yardage of yarn needed to make the XXXL size?

24.06.2020 - 17:48

DROPS Design answered:

Dear Cheryl, the yarn amount is provided in grams in each pattern -read more in our FAQ here. In size XXXL you will require 750 g DROPS Cotton Merino/50 g a ball = 15 balls. Happy crocheting!

25.06.2020 - 08:49

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, je vois écrit que je retourne mon travail à chaque rang. je fais des augmentations uniquement sur les rangs endroits? je ne fais donc sur le rang envers que des brides sur chaque bride du rang endroit? est ce cela? merci

05.05.2020 - 18:04

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, les toutes premières augmentations se font au 1er rang sur l'envers (quand on augmente à intervalles réguliers en mettant les marqueurs), puis on augmente tous les rangs sur l'endroit = tous les 2 rangs en commençant par le rang suivant (= 3ème depuis le début). Sur l'envers, vous crochetez effectivement 1 bride dans chaque bride. Bon crochet!

06.05.2020 - 10:03

country flag Christina wrote:

Due to my little experience, what do you mean by "Continue to work as follows: A.1, A.2 24-26-29-32-36-39 times in total in width, finish with A.3. ". In width? Shouldn' t I continue on the row? And why are the patterns separated with a line ?? What am I missing?

11.01.2020 - 21:40

DROPS Design answered:

Dear Christina, this means you just have to continue pattern as before (= A.1 at the beg of round, then repeat A.2 and finish with A.3) but you will now crochet 24-26-29-32-36-39 repeats of A.2 on the round. Diagrams are separated by a line just to divide them making more visible which is A.1, A.2 and A.3. Happy knitting!

13.01.2020 - 09:25

country flag Ciska wrote:

Kunt u mij vertellen hoe ik A.z moet haken want dat snap ik niet. en moet je A.1 en A.2 tegelijk haken of eerst A.1 en dan A.2

20.11.2019 - 16:54

DROPS Design answered:

Dag Ciska,

A.2 haak je in de breedte aansluitend op A.2. In het patroon staat er op een gegeven moment dat je A.1 moet haken en dan een aantal keren A.2 in de breedte en tot slot A.3. A.z geeft de hoogte aan van het patroon. Als er in het patroon aangegeven wordt dat je A.z moet haken, dan haak je dus de toeren die daarbinnen staan aangegeven in het telpatroon.

Voor meer uitleg kun je ook de veel gestelde vragen bekijken over hoe je telpatronen voor haken leest.

23.11.2019 - 16:28