DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5082.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Farewell Florence

Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris í garðaprjóni, klauf og sléttprjóni. Stærð S-XXXL.

DROPS 159-23
DROPS Design: Mynstur nr l-133
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio
350-400-450-500-500-550 gr litur nr 03, ljós beige
Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 26, dökk beige

DROPS HRINGPRJÓNNN (80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10,5 l og 18 umf garðaprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 5-5-5-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5082.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l í byrjun umf þannig: 1 kantlykkja, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l í lok umf þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja.

MÆLING:
Vegna garðaprjóns og þyngdar á garninu verður að taka öll mál þegar stykkinu er haldið uppi, annars verður stykkið allt of langt.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappgötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 23, 31, 39, 47 og 55 cm.
STÆRÐ M: 25, 33, 41, 49 og 57 cm.
STÆRÐ L: 27, 35, 43, 51 og 58 cm.
STÆRÐ XL: 26, 33, 40, 47, 54 og 60 cm.
STÆRÐ XXL: 28, 35, 42, 49, 56 og 63 cm.
STÆRÐ XXXL: 30, 37, 44, 51, 58 og 65 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 54-58-64-70-76-82 l á hringprjóna nr 9 með 2 þráðum af Bomull-Lin eða Paris. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, einungis með 1 þræði.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm – LESIÐ MÆLING, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki (hér byrjar klaufin). Þegar stykkið mælist 16 cm er felld af 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í 9. hverjum cm 1-1-2-2-2-2 sinnum til viðbótar = 50-54-58-64-70-76 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 2 l í byrjun á næstu 2 umf = 46-50-54-60-66-72 l. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – MUNIÐ EFTIR MÆLING, fellið af miðju 16-16-16-18-18-18 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 15-17-19-21-24-27 l á hvorri öxl. Fellið af 1 l innan við 1 kantlykkju í næstu umf frá hálsi = 14-16-18-20-23-26 l. Fellið LAUST af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna .
Fitjið LAUST upp 30-32-35-38-41-44 l (meðtaldar 3 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 9 með 2 þráðum Bomull-Lin eða Paris. Prjónið síðan garðaprjón með einungis 1 þræði. Þegar stykkið mælist 18 cm er sett 1 prjónamerki í hlið á stykki frá réttu (hér byrjar klauf). Þegar stykkið mælist 26 cm er fækkað um 1 l í næstu umf frá réttu innan við 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku í 9. hverjum cm 1-1-2-2-2-2 sinnum til viðbótar = 28-30-32-35-38-41 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 2 l í byrjun næstu umf frá réttu = 26-28-30-33-36-39 l. Þegar stykkið mælist 56-58-59-61-62-64 cm fellið af fyrir hálsmáli við miðju að framan þannig: Fellið af 10-10-10-11-11-11 l 1 sinni. Síðan er felld af 1 l innan við 1 kantlykkju í hverri umf frá hálsmáli alls 2 sinnum = 14-16-18-20-23-26 l eftir á öxl. Fellið LAUST af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd – þ.e.a.s. setjið 1 prjónamerki fyrir klauf frá hlið, fellið af fyrir handveg í byrjun frá röngu. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkanta.

ERMI:
Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Prjónið upp 44-46-48-50-52-54 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 9 með Bomull-Lin eða Paris – ATH: Prjónið upp í síðustu l innan við 2 l sem felldar voru af fyrir handveg í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka á hringprjóna. Þegar stykkið mælist 2 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (fyrir frágang á ermi). Þegar stykkið mælist 5-4-5-4-5-3 cm fellið af 1 l á hvorri hlið á stykki innan við 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku í 3. hverjum cm 8-8-7-7-6-6 sinnum til viðbótar = 26-28-32-34-38-40 l. Fellið LAUST af þegar ermin mælist 38-37-36-34-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – ATH: Þessir 2 cm sem prjónaðir voru á undan prjónamerki efst á ermi eiga að passa inn í affellingu fyrir handveg. Saumið hliðarsauma frá handveg niður að prjónamerki fyrir klauf, saumið yst í lykkjubogann. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = bakstykki
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Nicoletta wrote:

Se volessi lavorare con ferri normali e non circolari sarebbero sempre numero 9 o la numerazione è diversa? Grazie

22.03.2018 - 17:52

DROPS Design answered:

Buongiorno Nicoletta. Le consigliamo di lavorare con il numero di ferri che le consentono di ottenere lo stesso campione indicato nel modello. Buon lavoro!

23.03.2018 - 08:42

country flag Laura Vicardi wrote:

Buonasera, vorrei provare a fare questo bellissimo modello, ma guardando le indicazioni per il campione non capisco cosa si intende per 10,5m, pensando fosse un errore ho controllato la versione inglese ma é uguale, io intendo 10 maglie e mezzo, come é possibile? Probabilmente interpreto male, me lo spiegate per favore?

02.08.2017 - 21:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura. Sta interpretando correttamente le indicazioni. Se le risulta più comodo può verificare di ottenere una larghezza di 20 cm con 21 maglie lavorate a legaccio. Buon lavoro!

03.08.2017 - 08:43

country flag Faith wrote:

For the sleeves when it says pick up sts where am I picking them up from?

02.08.2017 - 11:52

DROPS Design answered:

Hi Faith, You are picking up stitches around the armhole so that the sleeve is then worked from the shoulder down to the cuffs. Happy knitting!

02.08.2017 - 12:05

country flag Rosie wrote:

(Silly question) When it says cast on with 2 strands does it mean the whole thing is knit 'double stranded' so do I cast on two strands joined together?

18.07.2017 - 13:18

DROPS Design answered:

Dear Rosie, in this pattern, only cast on is worked with 2 strands, then continue with only 1 strand. Happy knitting!

18.07.2017 - 14:26

country flag Donatella wrote:

Usando il bomull lin dovrei fare tutto il cardigan con il filo doppio, giusto? Scusi ma è da poco che lavoro a ferri e sono ignorante in materia ......

16.06.2016 - 18:06

DROPS Design answered:

Buongiorno Donatella. Mette il filo doppio solo per avviare le m del davanti e del dietro, ma poi lavora tutto il cardigan con un solo filo. Buon lavoro!

16.06.2016 - 19:19

country flag Federica wrote:

Buongiorno mi è venuto un dubbio, ma come mai con il bomull-lin bisogna usare 2 capi di filo insieme mentre con il paris ne basta 1 e per tutti i due i filati sono consigliati i ferri mm.5? Seconda domanda, non mi è chiaro se bisogna usare 2 capi di bomull-lin anche per le maniche, visto che non è indicato. Grazie buona giornata.

16.06.2016 - 17:18

DROPS Design answered:

Buongiorno Federica. Si usano 2 capi del filato solo per l’avvio delle m dei davanti e del dietro, sia che si lavori con il Bomull-Lin che con il Paris. Si procede poi con 1 solo capo del filato. Anche le maniche sono lavorate con 1 solo capo. Buon lavoro!

16.06.2016 - 17:31

country flag Nina wrote:

Hei! kiitos vinkistä... :) hihasta ohjeesta. :)

15.03.2016 - 09:27

country flag Nina wrote:

Hei..... ok..... miten toi hihat tehä? :D elikä kudotaako ylhäältä-alaspäin ja sitten ompellaan ne hihat olkapäähän ja sit saumat kiinni?

14.03.2016 - 08:40

DROPS Design answered:

Hei! Hihoja ei ommella kiinni, vaan ne neulotaan suoraan olalta alaspäin. Poimi silmukat olan ja kädentien reunasta ohjeen mukaisesti ja neulo sitten hiha ylhäältä alas.

14.03.2016 - 14:23

country flag Nina Manelius wrote:

Hei! olen vähän kiinnostunu tosta neuletta Farewell Florence... et voiko siitä neuloo ihan tavallinen mallit ja neuloo oikea-oikealle puolelle ja nurja-nurin puolelle koko ajan neulotta....??? jättäisin napit vaan pois.....

07.03.2016 - 18:27

DROPS Design answered:

Hei! Voit kyllä neuloa jakun sileänä neuleena. Ota kuitenkin huomioon, että neuletiheys muuttuu, eli kerroksia/cm tulee vähemmän.

09.03.2016 - 16:08

country flag Hannie De Man wrote:

Patroon 159/23 Ik kom nog even terug over de hoeveelheid van het garen. Volgens mijn berekening heb ik 18 bollen nodig in plaats van 9. Uitleg: Als ik hem in garen categorie E brei heb ik 9 bollen van 50m nodig. Op dit garen zit 85m is dus met een enkele draad 9 bollen. Maar hij wordt met een dubbele draad gebreid. Willen jullie hier nog even naar kijken? Alvast bedankt. Groet, Hannie

03.04.2015 - 09:04

DROPS Design answered:

Beste Hannie, wij maken en controleren geen berekeningen voor je, maar als je kijkt op onze site bij Tips & Hulp, Veelgestelde Vragen zie je uitleg voor het omrekenen van de garens, zodat je zelf kunt rekenen en controleren. Succes!

03.04.2015 - 10:09