DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 161-24
DROPS Design: Mynstur nr cm-023
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
400-450-500-500-550-600 gr litur nr 01, natur
50-50-50-100-100-100 gr litur nr 16, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff og gatamynsturborða (A.2).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 222-258-294-318-354-390 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur DROPS Cotton Merino.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff þannig: * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 6-6-6-8-8-8 cm prjónið nú mynstur í hring eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstur prjónað eftir A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 51-60-69-75-84-93 l jafnt yfir í 1. umf = 171-198-225-243-270-297 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú mynstur eftir A.3 JAFNFRAMT er fækkað um 3-6-9-3-6-9 l jafnt yfir í 1. umf = 168-192-216-240-264-288 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið nú mynstur eftir A.4. Eftir A.4 er prjónað mynstur eftir A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað aftur eftir mynstri A.4.
LESIÐ ALLAN KAFLANN UM FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Eftir A.4 er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið mynstur eftir A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 6-2-8-6-2-8 l jafnt yfir í 1. umf = 162-190-208-234-262-280 l og 18-21-23-26-29-31 mynstureiningar í umf (ATH – í stærð M + L + XXL + XXXL er 1 l auka í lok umf eftir síðustu mynstureiningu. Þessi l er prjónuð eins og fyrsta l í A.2, en í 9.-11.-13.-15. og 17. umf er þessi l prjónuð slétt). JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 81-95-104-117-131-140 l.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-39-40-41-42-43 cm fellið af 2 l á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 79-93-102-115-129-138 l. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í hvorri hlið – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstur við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.2 er lokið er skipt til baka yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með litnum natur og sléttprjón til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 37-37-40-41-43-44 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 20-27-30-36-42-46 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Endurtakið í hinni hliðinni.

FRAMSTYKKI:
= 79-93-102-115-129-138 l. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar A.2 er lokið er skipt til baka yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með litnum natur og sléttprjón til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist
46-48-50-50-52-54 cm setjið miðju 19-19-22-23-25-26 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun og í hverri umf frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 4 sinnum = 20-27-30-36-42-46 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Endurtakið í hinni hliðinni.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 60-60-66-66-72-72 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 8 cm er prjónað mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Prjónið nú mynstur í hring eftir A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 15-15-12-12-18-18 l jafnt yfir í 1. umf = 45-45-54-54-54-54 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram hringinn með litnum natur og sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-13-13-14-14 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 17-17-15-17-20-21 sinnum = 79-79-84-88-94-96 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm prjónið umf í A.3 merkta með ör (þ.e.a.s. prjónið 1 umf með 2 lykkjur í litnum natur, 1 lykkju í litnum blár). Haldið síðan aftur áfram með litnum natur til loka.
Þegar ermin mælist 55-53-52-49-47-46 cm fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi í innan við 1 kantlykkju.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 106 til 126 l í kringum hálsmál (meðtalin l á þræði) á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4 (byrjið á 2. umf í A.4). Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af með sléttum lykkjum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.02.2016
Leiðrétting:Fram og bakstykki:..JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-39-40-41-42-43 cm fellið af 2 l á hvorri hlið fyrir handveg

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu með natur
symbols = br frá réttu, sl frá röngu með natur
symbols = sl frá réttu, br frá röngu með bláu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l með natur
symbols = 2 l slétt saman með natur
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl með natur, steypið óprónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman með natur, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

161-24 Delphos

Margaret, France

Jacquard turquoise

Sylviane, Belgium

Delphos Sweater

Jo, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Inger Lise R Bjørklund wrote:

Er det riktig at xxxl bare skal ha 47 cm armer? Er ikke ikke total lengde skrevet feil? Strikker denne nå og skal jeg legge ut 21 ganger blir armen 55 cm. Har jeg rett eller feil. MVH Inger Lise

24.07.2022 - 20:41

DROPS Design answered:

Hei Inger Lise, Lengden på ermene er kortere i større størrelser pga lengre bærestykke og videre skuldre. God fornøyelse!

25.07.2022 - 06:50

country flag Jorina wrote:

Hallo, ich stricke gerade Delphos und bin von der musteranleitung irritiert. Ein X steht für: 1 M li in Hinrichtung, 1 M re in Rück-R. Aber: Ich stricke in Runden. Da gibt es ja keine Rückrunde. Auch bin ich mir nicht sicher, ob bei dem Muster jeweils Reihe 1 und 2 angegeben ist, oder, wie das ja auch manchmal gemacht wird, Reihe 1,3,5 etc. Können Sie mir weiterhelfen? Viele Grüße, Jorina

30.10.2021 - 21:14

DROPS Design answered:

Liebe Jorina, ja genau, Rumpfteil wird zuerst in Runden gestrickt, aber nach Armausschnitt stricken Sie in Hin- und Rückreihen. Vor der Teilung stricken Sie in Runden und lesen Sie alle Reihen rechts nach links = alle sind Hinreihen. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2021 - 07:10

country flag Michaela Knaus wrote:

Vielen Dank für die schnelle Antwort, manchmal sieht man vor lauter Bäumen den Wald nicht mehr :D

20.10.2021 - 07:40

country flag Michaela Knaus wrote:

Ich szrickr den Pullover in Grösse XXL und bräuchte Hilfe . Welche 29 Rapporte sind hier nach Muster A2 gemeint ? --- DEN REST ZUM RUMPFTEIL VOR DEM WEITERSTR LESEN! Nach A.4 zu Rundnadel Nr. 3,5 wechseln. Im Muster A.2 str, GLEICHZEITIG in der 1. Rd 6-2-8-6-2-8 M gleichmäßig verteilt abnehmen (= 162-190-208-234-262-280 M und 18-21-23-26-29-31 Rapporte in der Rd - ???? MfG Michaela

19.10.2021 - 15:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Knaus, vor A.2 sind es 264 Maschen auf der Nadel, bei der 1. Reihe in A.2 nehmen Sie 2 Maschen regelmäßig verteilt = 262 M, so haben Sie genügend Maschen um die 9 Maschen in A.2 29 Mal zu wiederholen, die letzte Masche der Runde wird dann wie die 1. Masche in A.2 gestrickt (= 9*29 +1=262 M). Viel Spaß beim stricken!

20.10.2021 - 07:33

country flag Jannette V Ommeren wrote:

Ik weet dat Merinowol "groeit" en dat je het beter op kleinere naalden moet breien. Maar nog nooit zo gek gehad als hier. Maat XXL uitgehaald na 20 cm. Het werd kolossaal. Uiteindelijk op naald 3,75 een trui met afmetingen XXL gebreid met de stekenaantallen tussen S en M. Dus advies: blijf meten tijdens het breien!

11.08.2021 - 15:37

country flag Florencia wrote:

Donde dice "¡Leer toda la sección siguiente antes de continuar!" Para talla M ,no entiendo que tengo que hacer cuando dice trabajar el diagrama A2, al mismo tiempo disminuir 6-2-8-6-2-8 repartidos en la 1°vta =162-190-208-234-262-280 pts y 18-21-23-26-29-31 repeticiones en la vta ? Gracias

12.05.2021 - 14:59

DROPS Design answered:

Hola Florencia. Para la talla M hay que trabajar la 1ª vuelta de A.2 y al mismo tiempo disminuir 2 puntos repartidos. Al final de la vuelta tenemos 190 puntos, que es igual a 21 repeticiones de A.2.

16.05.2021 - 17:21

country flag Carlin wrote:

Kunnen de vragen vertaald worden zodat iedereeen t kan volgen

09.02.2020 - 13:08

country flag Sabine wrote:

Im Rumpfteil werden bei Grösse M 258M angeschlagen dann A1 sprich es werden 43* 3M überzogen zusammengestrickt, d.h -86M es bleiben 172M übrig, dann nochmals 60M in der ersten Reihe von A2 abnehmen. Lt Anleitung sollen jetzt noch 198 M übrig bleiben... es sind aber nur 112M übrig. Ich habe jetzt 2* angefangen und gerechnet, es kommt nicht hin. Was muss ich korrigieren????. Bis jetzt bin ich mit vielen anderen Anleitungen von Euch gut klargekommen. Lg

27.01.2020 - 15:54

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, bei A.1 werden keine Abanhmen gestrickt = nach A.1 haben Sie immer noch die 258 Maschen. Jetzt stricken Sie A.2 und gleichzeitig bei der 1. Reihe A.2 nehmen Sie regelmäßig verteilt 60 maschen ab, jetzt haben Sie: 258-60= 198 M. A.2 wie im Diagram weiterstricken (wird 22 Mal in der Runde wiederholt). Viel Spaß beim stricken!

28.01.2020 - 10:24

country flag MARIE wrote:

Pour les manches, comment fait-on pour conserver les motifs A2, tout en "augment(ant) 2m au milieu sous la manche "? Faut-il finalement faire les augmentations après avoir fait tous les motifs (plutôt que de les faire au milieu du rang= sous la manche)? Merci!

29.09.2019 - 18:28

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, tricotez les augmentations en début de tour comme les dernières mailles d'un nouveau motif et tricotez les augmentations de la fin du tour comme les premières mailles d'un nouveau motif. Si vous devez tricoter le point ajouré sur ces mailles, veillez à bien compenser les diminutions de la fin/du début de A.2 par 1 jeté pour que le motif soit juste, autrement dit, si vous n'avez pas assez de mailles pour tricoter le motif, tricotez les nouvelles mailles en jersey. Bon tricot!

30.09.2019 - 11:18

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, pourquoi faire toutes ces diminutions après les côtes ? On ne peut pas faire simplement les côtes avec les aiguilles 3,5 et le reste ( dont le point fantaisie) avec les aiguilles n°4 ?

29.09.2019 - 16:07

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, si on ne diminue pas le nombre de mailles des côtes quand on commence à tricoter avec les aiguilles 4, l'ouvrage sera trop large, pour avoir les bonnes mesures (= la bonne largeur), on doit monter plus de mailles avec les aiguilles 3,5 qu'on en a besoin ensuite avec les aiguilles 4. Bon tricot!

30.09.2019 - 10:55