DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 160-24
DROPS Design: Mynstur nr r-674
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S – M/L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
450-500-500-550-600 gr litur nr 06, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

TOPPUR:
Fitjið upp 302--342-402-430-486 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú þannig: * 7-6-6-5-5 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 7-6-6-5-5 l br, setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), * 7-6-6-5-5 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 7-6-6-5-5 l br, setjið 1 prjónamerki (= framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 266-298-350-370-418 l á prjóni. Prjónið nú A.2 (= 7 l) yfir A.1 til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm er lykkjum fækkað þannig: * 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, prjónamerki, * 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, prjónamerki = 246-274-322-338-382 l (20-24-28-32-36 l færri). Prjónið síðan áfram með br og mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 13-14-14-15-15 cm.
Fækkið nú lykkjum þannig: * 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, prjónamerki, * 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, A.2 *, endurtakið *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, prjónamerki = 226-250-294-306-346 l (20-24-28-32-36 l færri). Haldið áfram með úrtöku (þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis hvoru megin við hverja br mynstureiningu) með 3-4-4-5-5 cm millibili 4-3-3-2-2 sinnum til viðbótar = 146-178-210-242-274 l. Næsta umf er prjónuð þannig: * 1 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 l br, prjónamerki. Prjónið áfram þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 30 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Útauknar lykkjur eru prjónaðar br. Endurtakið útaukningu með 1½-2-2½-3½-3½ cm millibili 9-7-6-5-5 sinnum til viðbótar = 186-210-238-266-298 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50 cm prjónið garðaprjón yfir 7 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 14 l garðaprjón í hvorri hlið), aðrar l eru prjónaðar eins og áður.
Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52 cm prjónið nú áfram yfir fyrstu 93-105-119-133-149 l í umf (= bakstykki), l fyrir framstykki eru settar á þráð.

BAKSTYKKI:
= 93-105-119-133-149 l. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Fellið af 4 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 85-97-111-125-141 l. Fækkið nú lykkjum fyrir handveg innan við 3 l garðaprjón, fækkið um 1 l í hvorri hlið í annarri hverri umf 4-10-16-23-29 sinnum, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l br saman (þegar úrtaka nær yfir l í A.2 er fækkað um 2 l slétt saman, þær l sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjón) = 77-77-79-79-83 l. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73 cm setjið miðju 31-33-35-37-39 l á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 23-22-22-21-22 l. Í næstu umf frá hálsi eru fyrstu 2 l prjónaðar slétt saman = 22-21-21-20-21 l. Lykkjur sem ekki ganga upp í A.2 eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna A.2, br og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm prjónið 2 umf garðaprjón (sjá útskýringu að ofan) yfir allar l, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI
= 93-105-119-133-149 l. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Prjónið bakstykki þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65 cm. Setji miðju 21-23-25-27-29 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umf við hálsmál þannig: 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum. Haldið áfram að fækka lykkjum, þegar úrtöku er lokið eru 22-21-21-20-21 l á prjóni. Lykkjur sem ekki ganga upp í A.2 eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna A.2, br og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HÁLSMÁL:
Takið upp 100-120 l (meðtaldar l af þræði fyrir hálsmáli) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Love Is In The Air

Beth, United States

Love Is In The Air

Astrid, Norway

Love Is In The Air

Zsuzsa, Austria

Love is in the Air

Blog.KrasseMasche.de, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (106)

country flag Carina wrote:

Hej, Gäller garnval. Om jag vill byta Muskat till t.ex. Cotton Merino eller Merino extra fine, är det möjligt och hur mycket garn behöver jag då. Garnkonverteraren kunde inte svara! TACK

18.04.2024 - 11:53

country flag Jenny wrote:

Hello, in A.2, there should be a yarn-over at the beginning and at the end of each 7 stitches? I just know how to do a yarn-over before knitting the actual stitch, how is it done after knitting a stitch? Or am I misreading this, and there should only be one yarn-over in the first row? But then the total amount of stitches would be exactly the same, whereas there would be more stitches in row 3. thanks!

17.01.2024 - 13:00

DROPS Design answered:

Dear Jenny, on first row in A.2 you start and end A.2 with a yarn over and make a double decrease in the middle, so that the number of stitches remains the same, this means work the first row in A.2 as follows: YO, K2, slip 1, K2 tog, psso, K2, YO. Happy knitting!

18.01.2024 - 08:19

country flag Sharlene Currin wrote:

Hi. I am knitting the medium size. For the top when you get to 14 cm, after the first row of decreases it says continue to decrease alternately on each side of every purl section. Please can you explain this. Do you decrease on the first purl section on one side and then on the next purl section on the other side. I am not sure how to proceed.

29.10.2023 - 18:27

DROPS Design answered:

Dear Sharlene, you will decrease alternately on different rows. For example, you decrease before each of the purl sections on the first row of decreases. On the next row of decreases you will decrease after each of the purl sections. Happy knitting!

29.10.2023 - 23:41

country flag Suzanne Crosier wrote:

Hi I'm working on front piece and find it very confusing. I have 105 stitches on needles place middle 23 on stitch holder that leaves 41 stitch on each side. And don't understand how decreasing according to pattern I would end up with 20 stitches left. I can't get the numbers to add up. Hope you can explain this more clearly than pattern does

12.10.2023 - 11:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Crosizer, you have to work front piece as back piece, this means you cast off 4 sts on each side = 97 sts remain, then decrease 1 stitch on each side inside 3 edge in garter stitch a total of 10 times in size M = 97 - (2x10) = 77 sts remain. Then you slipped the middle 23 sts on a thread for neck = 27 sts remain for each shoulder. Cast off at the beg of each row from neck: 2 sts 2 times and 1 st 2 times = 27-2x2-2x1=21 sts remain for the shoulder. Happy knitting!

12.10.2023 - 14:11

country flag Suzanne Crosier wrote:

Hi such a pretty pattern! I have a question about A2 chart. Should I purl over yo on next round or just knit over them? I see that YO increases it states to purl them on next round. Thanks

29.08.2023 - 22:11

DROPS Design answered:

Hi Suzanne, The increases described in the increase tip are by the markers in the sides. The markers are inserted in purled sections on the round (not as part of A.2). So the Y/Os by the markers are purled twisted on the next round. The Y/Os in A.2 are knitted to leave holes. Hope this helps and happy knitting!

30.08.2023 - 06:45

country flag Camilla wrote:

Jeg har et par spørgsmål 🙈 Jeg har strikket første omgang med A1 og der er altså 6 masker tilbage på omgangen men jeg ender ud med det rigtige antal masker altså 298 (m/l)? Diagrammet A1 viser to rækker, vil det sige at man skal lave en omgang bare med ret masker? Og når man skal strikke A2 hvad skal man strikke imellem? Ved A1 stod der 6 vr imellem men der står ikke noget ved A2?

05.04.2023 - 14:45

DROPS Design answered:

Hej Camilla, du strikker 1 rapport af A.1 i højden og når du har gjort det strikker du A.2 med vrang over vrang. Når arbejdet måler 10 cm tager du ind ifølge din størrelse :)

13.04.2023 - 12:28

country flag Mary wrote:

Hi, I am knitting the front piece and I am stuck on the instruction "Then cast off on every other row towards neck as follows: 2 sts 2 times and 1 st 2 times". What does "2 sts 2 times and 1 st 2 times" mean?

02.06.2022 - 15:16

DROPS Design answered:

Dear Mary, This means you have to cast off at the beginning of every row from the neck towards shoulder (= from RS on right shoulder / from WS on left shoulder): 2 stitches 2 times (= 2 rows with cast off = 4 sts cast off in total) + 1 stitch only at the beginning the next 2 rows from the neck towards shoulder (= 2 rows with cast off = 2 sts cast off in total). Happy knitting!

02.06.2022 - 17:32

country flag Petra Simonidesová wrote:

Dobrý den, pletla jsem tento vzor a vše mi sedělo. Pletu velikost S, teď jsem začala ubírat na náramenice a mám pocit, že úplně nechápu tu závorku. (když ujímání zasahuje do vzoru A.2, ujímáme spletením 2 ok hladce; oka, která nezapadají do vzoru, pleteme lícovým žerzejem) Nepochopila jsem, kdy ujímání zasahuje do vzoru A2, protože mám ujmout 4x a mezi ujímanými oky a prvním vzorem A2 jsou 3 oka obratce.

04.08.2021 - 21:10

country flag Wenche Gabrielsen wrote:

Hei. Fantastisk modell!! Jeg er kommet til A2. Første pinne. Skal det strikkes: 1 kast, 2r, 1 m av, 2sm, 2r, 1kast, sånn at når en repeterer mønsteret, så blir det to kast etterhverandre? Eller bare ett kast? Skjønner de andre radene i A2, men ikke akkurat dette… det er jo ikke likt instruksjonsbilde… da bildet viser kastet mellom to masker, som i radene over, men ikke første. Ha ha, er litt grønn på dette.

07.07.2021 - 09:04

country flag Annicka wrote:

Hej! Jag skulle behöva sticka modellen kortare. Hur gör jag då? Mvh Annicka

11.04.2021 - 23:04

DROPS Design answered:

Hej Annicka, du starter med udtagningerne efter taljen ved 30 cm. Hvis du vil strikke den kortere, så kan du forkorte det første stykke inden de 30 cm. Vi kan desværre ikke hjælpe dig med at skrive opskriften om :)

12.04.2021 - 13:37