Sarah wrote:
Guten Tag! Ich verstehe den Teil mit den Raglanzunahmen nicht ganz. Wenn ich nur in jeder 4 Reihe zunehme verändert sich doch das Lochmuster. Ist das so gewollt?
24.02.2015 - 09:45DROPS Design answered:
Das stimmt, das Lochmuster ändert sich dann. Sie können die Raglanzunahmen aber auch verschränkt abstricken, dann ergibt sich gar kein Loch und die einzige Loch-R ist die von A.2. Ich habe eine Anfrage an die Designerinnen gesendet, wie die Raglanzunahmen abgestrickt werden sollen und hoffe, dass das bald präzisiert wird.
09.03.2015 - 09:59Tina wrote:
Erst mal vielen Dank für dieses tolle Teil! Leider komme ich mit der Anleitung nicht weiter :-( Wie verteilen sich denn die jeweils zugenommenen 8 Maschen beim Raglanteil auf das Muster?
06.02.2015 - 16:24DROPS Design answered:
Die zugenommen M stricken Sie einfach kraus re. Diese M befinden sich ja rechts und links von A.2 und müssen nicht in A.2 eingestrickt werden, sondern gehören zu den kraus re gestrickten Bereichen des Pullis. Viel Spaß beim Weiterstricken!
08.02.2015 - 15:18Maria Jose wrote:
Hola!! Es un jersey muy bonito para la primavera.Mi pregunta es si el jersey se teje de arriba para abajo, como se lee el patron..de arriba a abajo? de izquierda a derecha? O de forma habitual de abajo a arriba?? Gracias por adelantado
02.02.2015 - 21:16DROPS Design answered:
Hola María José, se trabaja de arriba abajo y los diagramas se leen como siempre de derecha a izquierda y de abajo arriba
04.02.2015 - 20:57Maria Jose wrote:
Hola!! Es un jersey muy bonito para la primavera.Mi pregunta es si el jersey se teje de arriba para abajo, como se lee el patron..de arriba a abajo? de izquierda a derecha? O de forma habitual de abajo a arriba?? Gracias por adelantado
02.02.2015 - 21:12DROPS Design answered:
Hola María José, se trabaja de arriba abajo y los diagramas se leen como siempre de derecha a izquierda y de abajo arriba
04.02.2015 - 20:30Tina wrote:
Wow, ist der Pulli schön! Bitte, bitte, bitte mit ins neue Heft nehmen!
13.01.2015 - 21:44Benedetta wrote:
Molto bello e di facile realizzazione
11.01.2015 - 18:42Michaela Hochfeld wrote:
Den Pulli mache ich als erstes! Kann man jetzt dann auch schon toll anziehen zu Jeans! Super
08.01.2015 - 16:55Despina wrote:
Just love the back! Would definately knit it.
08.01.2015 - 10:08Monica Migliori wrote:
Graziosissimo e femminile. Sembra facile da realizzare…. Bello!!!
04.01.2015 - 17:57
Summer in Paris |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með laskalínu, klauf og gatamynstri. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL
DROPS 159-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. ÚRTAKA-1 (á við um klauf): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Prjónið fram þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan, síðan er prjónað í hring á hringprjóna . BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-76-80-84-88-92 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-32-32-32-36 l jafnt yfir = 100-100-112-116-120-128 l. Næsta umf er prjónuð þannig: 2 l garðaprjón, A.1 (= 2 l) þar til 2 l eru eftir, endið á 2 l garðaprjón. Prjónið síðan stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Aukið út fyrir laskalínu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir klauf/opi við miðju að aftan. LASKALÍNA: Í næstu umf (= rétta) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Prjónið 15-15-17-19-20-22 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 5 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-10-12-10-10-10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, 1 sláið 1 sinni uppá prjóninn, 30-30-34-38-40-44 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-10-12-10-10-10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 15-15-17-19-20-22 l sl (= 8 l fleiri). Uppslátturinn sem er ekki með í A.2 er prjónaður snúinn sl í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 3-5-8-12-16-20 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umf 8-8-7-6-5-4 sinnum, síðan í 6. hverri umf 1 sinni. KLAUF: Fækkið lykkjum fyrir klauf / opi við miðju að aftan JAFNFRAM er aukið út fyrir laskalínu. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf 6 sinnum til viðbótar. Þegar útaukning fyrir laskalínu og úrtöku fyrir klauf / opi er lokið er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 21-23-27-32-36-41 l sl, prjónið næstu 3 l slétt (= fyrstu 3 l í A.2), setjið næstu 40-44-50-54-60-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið sl yfir næstu 62-66-74-84-92-102 l (= framstykki), setjið næstu 40-44-50-54-60-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið næstu 3 l slétt (= síðustu 3 l í A.2), prjónið 21-23-27-32-36-41 l sl, fitjið upp 14 l í lok umf (yfir klauf). FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. = 140-148-164-184-200-220 l. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú eru 70-74-82-92-100-110 l hvoru megin við prjónamerkin. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þeim stað sem fitjaðar voru upp l undir ermi er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 3-4-4-3-3-4 cm millibili 3-2-2-4-4-3 sinnum til viðbótar = 124-136-152-164-180-204 l. Þegar stykkið mælist alls 37-39-41-43-45-47 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2-1½-2-1½-1-2 cm millibili 5-6-5-6-7-5 sinnum til viðbótar = 148-164-176-192-212-228 l. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki), aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Síðan skiptist stykkið við hvort prjónamerki og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 74-82-88-96-106-114 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 l garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist alls 59-61-63-65-67-69 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 40-44-50-54-60-66 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l = 48-52-58-62-68-74 l. Prjónið A.1. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – MUNIÐ EFTIR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 7-4-3-2½-2-1½ cm millibili 4-6-8-9-11-13 sinnum til viðbótar = 38-38-40-42-44-46 l. Þegar stykkið mælist 41-41-40-40-39-39 cm prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Skiptið silkiborðanum í tvennt, saumið saman við kant í hálsmáli efst í opi, hnýtið saman með slaufu. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Gabriela Vladie wrote:
Pretty
28.01.2015 - 11:26