DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer in Paris

Prjónuð peysa úr DROPS Paris með laskalínu, klauf og gatamynstri. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 159-10
DROPS Design: Mynstur nr w-554
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 gr litur nr 01, apríkósa

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 33 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
1 meter af silkiborða ca 1½ cm að breidd í litnum apríkósa.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt.

ÚRTAKA-1 (á við um klauf):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið fram þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan, síðan er prjónað í hring á hringprjóna .

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 76-76-80-84-88-92 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-32-32-32-36 l jafnt yfir = 100-100-112-116-120-128 l. Næsta umf er prjónuð þannig: 2 l garðaprjón, A.1 (= 2 l) þar til 2 l eru eftir, endið á 2 l garðaprjón. Prjónið síðan stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Aukið út fyrir laskalínu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir klauf/opi við miðju að aftan.

LASKALÍNA:
Í næstu umf (= rétta) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Prjónið 15-15-17-19-20-22 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 5 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-10-12-10-10-10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, 1 sláið 1 sinni uppá prjóninn, 30-30-34-38-40-44 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-10-12-10-10-10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 15-15-17-19-20-22 l sl (= 8 l fleiri). Uppslátturinn sem er ekki með í A.2 er prjónaður snúinn sl í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 3-5-8-12-16-20 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umf 8-8-7-6-5-4 sinnum, síðan í 6. hverri umf 1 sinni.

KLAUF:
Fækkið lykkjum fyrir klauf / opi við miðju að aftan JAFNFRAM er aukið út fyrir laskalínu. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf 6 sinnum til viðbótar.

Þegar útaukning fyrir laskalínu og úrtöku fyrir klauf / opi er lokið er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 21-23-27-32-36-41 l sl, prjónið næstu 3 l slétt (= fyrstu 3 l í A.2), setjið næstu 40-44-50-54-60-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið sl yfir næstu 62-66-74-84-92-102 l (= framstykki), setjið næstu 40-44-50-54-60-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið næstu 3 l slétt (= síðustu 3 l í A.2), prjónið 21-23-27-32-36-41 l sl, fitjið upp 14 l í lok umf (yfir klauf).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
= 140-148-164-184-200-220 l. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú eru 70-74-82-92-100-110 l hvoru megin við prjónamerkin.
Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þeim stað sem fitjaðar voru upp l undir ermi er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 3-4-4-3-3-4 cm millibili 3-2-2-4-4-3 sinnum til viðbótar = 124-136-152-164-180-204 l. Þegar stykkið mælist alls 37-39-41-43-45-47 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2-1½-2-1½-1-2 cm millibili 5-6-5-6-7-5 sinnum til viðbótar = 148-164-176-192-212-228 l. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki), aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Síðan skiptist stykkið við hvort prjónamerki og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 74-82-88-96-106-114 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 l garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist alls 59-61-63-65-67-69 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 40-44-50-54-60-66 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l = 48-52-58-62-68-74 l. Prjónið A.1. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – MUNIÐ EFTIR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 7-4-3-2½-2-1½ cm millibili 4-6-8-9-11-13 sinnum til viðbótar = 38-38-40-42-44-46 l. Þegar stykkið mælist 41-41-40-40-39-39 cm prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Skiptið silkiborðanum í tvennt, saumið saman við kant í hálsmáli efst í opi, hnýtið saman með slaufu.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.06.2015
Leiðrétting: Nýjar upplýsingar um mál á fram- og bakstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.1

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag PLANCHET wrote:

Bonjour, est ce que vous pouvez m'expliquer le diagramme A2 svp? Merci

21.09.2015 - 21:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Planchet, le diagramme A.2 se tricote sur 5 m et 4 rangs, en allers et retours ainsi: Rang1 (sur l'endroit): 2 m ens à l'end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée Rang2: (sur l'envers): tricotez toutes les m à l'end Rang3: répétez le rang 1 Rang4: répétez le rang 2. Bon tricot!

22.09.2015 - 10:51

country flag PLANCHET wrote:

Au niveau du raglan et de la fente du milieu du dos, je ne comprends pas à quelle endroit il faut augmenter et diminuer?

04.09.2015 - 17:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Planchet, on augmente pour le raglan de part et d'autre de chaque A.2 (= 1 jeté avant chaque A.2 + 1 jeté après chaque A.2) = 8 augm. au total par rang: 4-21 fois au total (cf taille) tous les 2 rangs, 8-4 fois tous les 4 rangs et 1 fois tous les 6 rangs. En même temps, diminuez 1 m en début de rang (après la m lis) + 1 m en fin de rang (avant la m lis), 7 fois au total tous les 8 rangs (voir Diminutions-1). Bon tricot!

04.09.2015 - 18:58

country flag Rikke wrote:

Hei. Jeg har strikket A.1 og skal begynne på raglan + splitt delen nå, igjen. Slutter disse på samme pinne? Jeg får ikke det til å gå opp. Etter hva jeg kan se så blir jeg først ferdig med raglan økningene og så med siste splitt felling noen pinnere senere. Stemmer dette? Skal jeg fra raglan er ferdig til splitt er ferdig bare strikke RILLER? Går helt i surr her. Har rakket opp 3 ganger nå...

27.07.2015 - 01:11

DROPS Design answered:

Hej Rikke, du har mange flere økninger til raglan end fellinger til splitt bagpå. Du strikker økninger og fellinger ifølge opskriften helt uafhenging af hinanden. God fornøjelse!

28.07.2015 - 13:55

country flag Dineke wrote:

Hallo, een prachtig patroon! Helaas begrijp ik de raglanmeerdering bij telpatroon A2 niet goed. Wanneer er bij elke meerdering 8 steken extra zijn klopt de omschrijving van de beschreven meerdering onder het kopje 'Raglan' niet meer. Hoe hier mee om te gaan? vriendelijke groet, Dineke

22.06.2015 - 19:19

DROPS Design answered:

Hoi Dineke. Je blift A.2 breien over dezelfde steken, tegelijkertijd meerder je aan beide zijkanten van A.2 door 1 omslag te maken. Dit omslag maakt geen deel uit van A.2 en worden gedraaid gebreid om een gaatje te voorkomen. Dus je meerdert in totaal 8 st per keer en er komen steeds meer steken tussen de patronen A.2 (die de raglan markeert).

03.07.2015 - 14:12

country flag Kris wrote:

Hej igen. Jeg er færdig med A1, og har strikket første omgang raglanudtagninger samt indtagninger til slids. Raglanudtagningerne øger maskeantal med 8 m, mens indtagningerne til slids tager 1 m ind i hver side, altså 2 m ind i alt på pinden. Således har jeg efter første omgang raglan+slids 106 m på pinden! Men hvis raglanudt skal være ens hver gang, så stemmer maskeantal da ikke? Hvad er det jeg læser forkert? Det er stadig en str S, jeg strikker. Mvh K

10.06.2015 - 22:22

DROPS Design answered:

Hej Kris, Jo du starter med 100m (inden raglan), tager ud til raglan på hver side af A2 = 8 m 4 gange så 8 gange og til sidst 1 gang = 13 gange (8x13=104). Tager ind til slids i hver side = 2m ialt 7 gange = 14. Det vil sige 100+104-14= 190 m. God fornøjelse!

07.08.2015 - 11:41

country flag Kris wrote:

Efter første omgang udtagninger + A2 er der 106 masker på pinden (100 + 8 udtagne - 2 indtagne m fra raglan)... Derefter skal anden omgang udtagninger + A2 strikkes, men så er der jo 6 masker for meget på pinden?? Hvad gør jeg forkert? Det er i øvrigt til str S.

31.05.2015 - 18:35

DROPS Design answered:

Hej Kris, efter førte omgang med udtagninger har du 100 m i str S. Herefter strikkes A.1 og så begynder du på Raglanudtagningerne ifølge opskriften. God fornøjelse!

04.06.2015 - 11:43

country flag Thiry wrote:

Je ne possède pas d'aiguille circulaire donc j'ai fait dos et devant séparément mais je suis calée pour le reste j'ai monter monté 74 mailles pour devant et idem pour le dos. pour le reste je suis calée pour le raglan et les encolures. pourriez-vous m'aider, merci d'avance

26.05.2015 - 16:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thiry, ce modèle se tricote de haut en bas, d'abord en allers et retours à partir du milieu dos, puis en rond uniquement après la fente d'encolure dos. Vous devez recalculer en répartissant le nombre de mailles pour chaque pièce (devant/demi-dos/manches) pour tricoter chaque pièce séparément. Merci de bien vouloir vous adresser à votre magasin DROPS pour toute assistance personnalisée et individuelle. Vous trouverez à droite de la photo différentes vidéos pour apprendre à "dompter" les aiguilles circulaires (plus simple). Bon tricot!

27.05.2015 - 13:40

country flag Elisabeth wrote:

Skal raglanøkningen være akkurat lik på alle pinnene? Jeg strikker str S, og får ikke maskeantallet til å stemme fra og med 2. raglanøkning

14.05.2015 - 21:33

DROPS Design answered:

Hej Elisabeth, Ja raglanøkningen skal være lik på alle pinne, men husk splitten samtidigt. God fornøjelse!

15.05.2015 - 09:55

country flag Eva wrote:

Det blir misvisende å skrive at etter at raglan økningen og splitten er ferdig, og man har satt av til ermer, HERIFRA MÅLES ARB VIDERE! Stemmer bare på fellingene. Ved økning (f eks 37 cm) og deling av arb må man måle fra toppen, ellers blir genseren for lang (skal være 60 cm totalt). Håper ikke dette gjelder alle oppskriftene deres, for jeg har sett det i flere andre oppskrifter også?

10.05.2015 - 14:12

DROPS Design answered:

Hej Eva. Ja, det har du ret i, men jeg tror nu det er en fejl i opskriften her :-). Vi skal sörge for at faa rettet til saa hurtigt vi kan. Men den totale höjde skal vaere ca 60-62-64-66-68-70 cm helt fra skulderen.

11.05.2015 - 16:05

country flag Viktoria Jokela Almgren wrote:

Jag får inte ihop mönster med maskantal?! Stämmer verkligen mönstret? Jag har gjort raglanökning enligt beskrivning och minskning för ok.. men sitter kvar med närmare 20 maskor på mitt räta varv. Ska avigsidan alltid stickas med räta maskor? Får börja om nu för andra gången, men vill gärna få mer info för att slippa börja om en 3:e.

21.04.2015 - 09:47

DROPS Design answered:

Hej Viktoria. Jeg vil gerne vide hvilken störrelse du laver. Jeg har regnet maskeantal efter mht raglan/slids osv for str S og det stemmer. Mönstret er ret/vrang = (naar du strikker frem og tilbage) undtagen pind 4 hvor du strikker hulmönstret. Naar du strikker rundt er det ret paa alle pinde.

22.04.2015 - 14:56