DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Light Breeze

Prjónaður toppur úr DROPS Paris með gatamynstri og hornréttri línu. Stærð S - XXXL.

DROPS 161-28
DROPS Design: Mynstur nr w-544
Garnflokkur C eða A+A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
400-450-500-550-600 gr litur nr 100, ljós þveginn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – Fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

STROFF:
* 4 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-156-180-204-216 l á hringprjóna nr 4,5 með Paris.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan STROFF – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki eftir 72-78-90-102-108 l (= hliðar). Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (mynstrið á að passa yfir stroffið), EN eftir 2 síðustu l á undan báðum prjónamerkjunum eru prjónaðar sléttar í hverri umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 8-7-6-6-6 cm (endið eftir umf 4 eða umf 8 í A.1), prjónið áfram þannig: Byrjið á umf merkta með ör í A.2 og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 fram að 2. Prjónamerki (= framstykki – ATH: mynstrið sýnir hvernig gataumferðin fer yfir í sléttprjón), prjónið nú sléttprjón yfir þær l sem eftir eru (= bakstykki). Eftir umf 1 í A.2 eru nú 2 l færri á framstykki en á bakstykki. Haldið áfram með mynstur eftir A.2 á framstykki og sléttprjón á bakstykki þar til allar br l og allar l í gataumferð hafa verið prjónaðar í sléttprjóni (mynstrið á nú að enda ca 2-2-6-9-11 cm eftir úrtöku fyrir handveg). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-42-43 cm prjónið nú 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 8-8-8-10-10 l í hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf eftir 4 umf garðaprjón eru felldar af miðju 4-4-4-6-6 l í hvorri hlið fyrir handveg og fram- og bakstykki eru prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 68-74-86-96-102 l. Prjónið nú sléttprjón, en 2 síðustu l í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni (= kantur á ermum). Þegar stykkið mælist 54-56-59-62-64 cm fellið af miðju 26-26-28-28-30 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsi = 20-23-28-33-35 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-61-64-66 cm. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
= 66-72-84-94-100 l. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 eins og áður, en síðustu 2 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur á ermum).
Eftir A.2 er haldið áfram í sléttprjóni og 2 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-53 cm setjið miðju 10-10-12-12-14 l á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 2 sinnum = 20-23-28-33-35 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-61-64-66 cm. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 74 til 92 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br, fellið síðan laust af með sl.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = engin l, hoppið yfir þennan ferning
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónið 3 l slétt, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að hún liggi utan um 2 síðustu lykkjurnar á hægri prjóni (= 1 l færri)
symbols = 3 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Badette 81 wrote:

Bonjour, je n'arrive pas à comprendre, comment les côtes 4 envers et 2 endroit deviennent 5 envers, ensuite quand on fait maille glissée + 2 soit 1 diminution on se retrouve avec une seule maille et non 2 ? donc pour le rang d'après où est passée cette maille manquante ? Merci

19.03.2017 - 07:39

DROPS Design answered:

Bonjour Badette 81, dans le point fantaisie, on va diminuer 1 seule maille, pas 2 pour former la petite torsade ajourée. La vidéo ci-dessous vous montre comment tricoter A.2. Bon tricot!

20.03.2017 - 09:46

country flag Paula wrote:

Acabo de terminar el diagrama por A2 y me toca volver a empezarlo, ¿habría que empezarlo por la primera fila que se muestra en el gráfico o por la que está señalada por la fecha como en la primera ocasión? Entiendo que el sentido de lectura del gráfico es de izquierda a derecha ya que se calceta siempre del lado del derecho. Muchas gracias.

20.06.2016 - 22:51

DROPS Design answered:

Hola Paula, mira el video de ayuda:

DROPS Knitting Tutorial: How to work the chart A.2 in DROPS 161-28 from Garnstudio Drops design on Vimeo.

24.06.2016 - 10:59

country flag STELLA wrote:

Buongiorno. Sto avviando questo lavoro, ma sonoina neofita del mestiere. Vorrei capire cosa intendere per "nessuna maglia, saltate questo quadrato". Evidentemente non è un gettato, ma allora come faccio a saltate questa maglia? Vi ringrazio in anticipo per l'aiuto che vorrete darmi e, probabilmente ci sentiremo ancora, visto che appunto, mi reputo una neofita del mestiere.

06.06.2016 - 06:43

DROPS Design answered:

Buongiorno Stella. Il quadratino nero non corrisponde a nessuna m sul ferro. Quindi, partendo dal basso verso l'alto e da destra verso sinistra, dovrà lavorare: 4 m rov sul diritto del lavoro, 1 m dir, 1 gettato, 1 m dir, 4 m rov, 1 m dir, 1 gettato, 1 m dir, 4 m rov e così via. Buon lavoro!

06.06.2016 - 06:58

Hazel wrote:

What does it mean to: K from RS, P from WS P from RS, K from WS ....since this is knitting in the round and you are only working on the right side. Thanks in advance.

11.03.2016 - 06:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hazel, it explains how to work the sts when you are working from RS and from WS - you first work in the round but then when dividing piece for armhole, you will have to continue diagram back and forth (ie you will now have WS rows). Happy knitting!

11.03.2016 - 09:41

country flag Simone Verweij wrote:

Ik ben weer bij de pijl begonnen maar de gaatjes zitten nu niet goed dus maar weer uitgehaald. Welke naalden moet je herhalen?

09.03.2016 - 11:22

DROPS Design answered:

Hoi Simone. Je herhaalt niet. Als het telpatroon gebreid is, dan brei je door op dezelfde manier - dus steeds met minder steken in het patroon en meer in tricotsteek. Zie ook deze video:

09.03.2016 - 14:21

country flag Simone Verweij wrote:

Heb een zelfde vraag als bovenstaand maar snap het antwoord niet. Bij A2 begin je bij de pijl. Je breit 24 naalden en dan? Ga je verder met opnieuw de naald bij de pijl of continueer je de 4 naalden in patroon. Maar er zit wel verschil in de omzettingen...

06.03.2016 - 10:25

DROPS Design answered:

Hoi Simone. Je breit door op dezelfde manier (dus volgens het patroon met steeds minder st in het patroon en steeds meer in tricotsteek) tot alle st in patroon op zowel voor- als achterpand in tricotst zijn gebreid.

08.03.2016 - 12:46

country flag CAROLINE wrote:

Votre modèle est très élégant, je l'ai réalisé en coton jaune, cependant je rencontre des difficultés au niveau du col. J'ai relevé 73 mailles sur l'endroit sur aiguille circulaire et ajouté les 10 mailles centrales, or en les tricotant à l'envers, j'obtiens un "motif" disgracieux. J'ai commis sans aucun doute une erreur, mais je ne parviens pas à la définir et à y remédier. Je vous remercie sincèrement par avance de votre aide. Cordialement. Caroline.

12.08.2015 - 21:06

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, après avoir relevé les mailles sur l'endroit, on tricote le col en rond, le 1er tour envers forme comme une "côte mousse" en bas de l'encolure, on tricote ensuite 1 tour end et 1 tour env pour former une 2ème côte mousse, puis on rabat à l'end au tour suivant. Bon tricot!

13.08.2015 - 09:35

country flag Mary Tournour wrote:

After 1st round in A-2 there is supposed to be 2 less sts on the front piece than the back piece. I am not sure how that occurs as I seem to be getting more sts on the front piece than the back piece. This pattern does not have great explanations with it especially for a novice knitter. Any help would be appreciated .

17.07.2015 - 04:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Tournour, at the end of 1st round in A.2 number of sts will be the same. When you start displacing the pattern (after the arrow in diagram), total number of sts remain the same, only number of sts worked in pattern dec while number of sts worked in st st increase. Happy knitting!

27.07.2015 - 14:23

country flag Titti wrote:

“ quando il lavoro misura 39 cm, lavorare 2 coste sulle 8 m centrali a ogni lato “ Le mie domande sono : 1 - ma se le coste , nella spiegazione, si eseguono così “* 4 m rov, 2 m dir “ dovrei lavorare 6 maglie. 2 - Per 8 maglie centrali a ogni lato si intendono 4 + 4 ai lati di ogni segnapunti ? Grazie per la pazienza

09.07.2015 - 18:03

DROPS Design answered:

Buonasera Titti, abbiamo modificato il testo per renderlo più comprensibile: in questo caso le coste a cui si fa riferimento sono quelle a m legaccio, per cui deve lavorare 4 giri a m legaccio sulle 8 m centrali dei lati (4 m prima e 4 m dopo il segnapunti) lavorando le altre m come prima. Buon lavoro!

09.07.2015 - 18:38

country flag Titti wrote:

Rif : pattern DROPS 161-28 Scusatemi e abbiate pazienza... Diagramma A2 : va lavorato sulle m. comprese tra i 2 segnap. Nel mio caso ho 78 m davanti: lo schema parte da 34 m ( x arrivare alle 28 finali ) Non mi torna..Per potelo lavorare tutto dovrei , nel mio caso, avere 102m...Come devo fare? Lavoro solo le prime 34 ?

03.07.2015 - 12:02

DROPS Design answered:

Buongiorno Titti. Quando inizia A.2, lavora 4 m rov, 1 m dir, 1 gettato, 1 m dir per 12 volte (= 72 m) e le ultime 6 m prima del segno le lavora: 2 m rov, 3 m insieme a dir, 1 m dir. Poi ha il segno e lavora il dietro. Prosegue come indicato nel diagramma: il motivo si sposta in diagonale e aumentano le m lavorate a maglia rasata. Le fotografie del modello le possono essere di aiuto. In particolare quella presa di fianco, mostra bene come iniziare A.2. Buon lavoro!

03.07.2015 - 13:37