DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Timeless Beauty

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með hringlaga berustykki, garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 160-7
DROPS Design: Mynstur nr bs-081
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 1306, púður

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni, eða 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.9.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónið ofan frá og niður, í hring á hringprjóna. Byrjun umf = miðja að aftan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 120-128-144-148-148-164 l á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið MYNSTUR A.1, JAFNFRAMT í umf 3 er aukið út um 18-20-30-32-32-34 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING og í umf 11 er aukið út um 15-19-29-29-29-33 l jafnt yfir = 153-167-203-209-209-231 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram í garðaprjóni og 10 prjónamerki sett í stykkið þannig:
Prjónið fyrstu 9-12-12-15-15-12 l, setjið eitt prjónamerki, setjið síðan prjónamerki með 15-16-20-20-20-23 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 9-11-11-14-14-12 l. Í næstu umf byrjar útaukning. Aukið er út til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin (= 10 útaukningar). Aukið út í annarri hverri umf 0-2-0-3-7-7 sinnum, í 4. hverri umf 10-10-9-9-8-8 sinnum og í 6. hverri umf 5-5-7-7-7-8 sinnum = 303-337-363-399-429-461 l. Í næstu umf er aukið út um 8-4-10-2-4-10 l jafnt yfir = 311-341-373-401-433-471 l. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 45-50-55-60-66-74 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-72-76-80-84-88 l á band (= ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-12 l undir ermi, prjónið næstu 89-97-111-121-133-147 l (= framstykki), setjið næstu 66-72-76-80-84-88 l á band (= ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-12 l undir ermi, prjónið þær 45-50-55-60-66-74 l sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 199-217-241-265-289-319 l fyrir fram- og bakstykki. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú þannig: A.2, A.3 þar til 6 l eru eftir, A.4. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með A.5 (í umf 7 eru prjónaðar síðustu l í umf slétt). Prjónið nú A.6, JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 204-216-240-264-288-324 l. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.7 1 sinni á hæðina. Prjónið nú A.8, aukið út um 4-8-8-8-8-4 l jafnt yfir í 1. umf = 208-224-248-272-296-328 l. Þegar allt A.X hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.X 0-0-0-0-1-1 sinni til viðbótar áður en haldið er áfram með afganginn af A.8. Haldið nú áfram með A.7. Prjónið nú þannig: A.2, A.3 þar til 6 l eru eftir í umf, JAFNFRAMT er aukið út um 3-5-5-5-5-3 l jafnt yfir í 1. umf (yfir A.3), A.4 = 211-229-253-277-301-331 l. Prjónið nú A.7 0-0-1-1-0-0 sinni á hæðina (í umf 5 er síðasta l í umf prjónuð slétt). Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað eru prjónaðar 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 17-21-23-25-25-27 l jafnt yfir = 228-250-276-302-326-358 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið garðaprjón í 2 cm. Fellið af til skiptis 1 l sl og 1 l br. Stykkið mælist nú ca 54-55-58-59-65-66 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð með GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, á hringprjóna. Nú eru 66-72-76-80-84-88 l fyrir hvora ermi. NÚ ER MÆLT HÉÐAN! Setjið til baka l af þræðiá hringprjóna nr 2,5 og fitjið upp 6-6-6-7-7-7 l lok 2 næstu umf = 78-84-88-94-98-102 l. Þegar ermin mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku með 1½-2-2½-3-3½-3½ cm millibili 7-6-5-4-3-3 sinnum til viðbótar = 62-70-76-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 19 cm í öllum stærðum er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.9 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar allt A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjónin, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = útaukning: Aukið er út jafnt yfir - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Timeless Beauty

Eefje, Netherlands

Timeless Beauty

Margaret, France

Timeless Beauty New

Lyudmila, Russian Federation

Timeless Beauty - meine Version

Beierts Nadelspiel, Germany

Timeless Beauty #2 - fertig!

Beierts Nadelspiel, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (93)

country flag Greanecia Jyrwa wrote:

Hi. I am very confused with the Inc as my numbers don't add up.. I'm knitting a medium size. After i have completed the 167 stitiches. There is an Inc on the left and right size of the 10 markers. 1st increase 2 times(20*2=40) that would add up to 207 stitches. Next on every 4th row 10 times( left and right of marker so 20*10=200) would add up to 407. Then on every 6th row 5 times( 20*5=100) would add up to 507. I'm very confused. How do i get 337. Pls help.

23.02.2022 - 19:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jyrwa ,you are supposed to increase only 10 stitches on every increase round, ie first time on the right side of markers (= before markerrs), next time on the left side of markers (= after markers) (repeat alternately before and after markers) - there are 10 markers, you increase 10 sts (2 times + 10 times + 5 times) = 10x17= 170 sts + 167= 337 sts when all increases are done. Happy knitting!

24.02.2022 - 10:17

country flag Marlène wrote:

Bonjour, Je suis à faire le diagramme A2, A3 et je ne comprends pas comment faire le 5e rang parce que le diagramme empiète sur celui de A4. Pouvez-vous m’aider? Merci

31.12.2021 - 16:46

DROPS Design answered:

Bonjour Marlène, au 5ème rang des diagrammes, tricotez les 2 dernières mailles de A.2 avec la 1ère m de A.3, tricotez les 2 dernières mailles de A.3 avec la 1ère maille du A.3 suivant puis avec la 1ère maile de A.4, ainsi, le motif tombera juste tout le tour (ajustez vos marqueurs pour avoir toujours 7 m dans A.2, 6 dans chaque A.3 et dans A.4). Bon tricot!

03.01.2022 - 10:35

country flag Christine wrote:

Bonjour, Lorsque l'on monte 10 mailles sous la manche, doit-on couper le fil de la pelote avec laquelle on a travaillé ou doit-on prendre une nouvelle pelote ? Merci beaucoup pour votre réponse.

24.08.2021 - 17:26

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, ce n'est pas nécessaire, montez simplement ces 10 mailles à la suite des mailles tricotées (et avant les autres à tricoter), cette leçon montre, à partir de la photo 9. comment mettre les mailles des manches en attente et comment monter les mailles sous la manche. Bon tricot!

25.08.2021 - 07:10

country flag Jose Lendering wrote:

Dit patroon is niet meer compleet: er ontbreken telpatronen. Kunnen de telpatronen weer teruggeplaatst? Ik ben bijna klaar met t lijfgedeelte...

15.03.2021 - 17:56

DROPS Design answered:

Dag José,

Als het goed is laden alle afbeeldingen nu weer goed op de site, dus zouden de telpatronen ook goed in beeld moeten komen. (Er was afgelopen week een stroring met het laden van afbeeldingen.).

21.03.2021 - 11:44

country flag Christine wrote:

Je viens de placer les 10 marqueurs. Est ce que je peux faire les augmentations avec 1 jeté ? Merci pour votre réponse.

15.03.2021 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, tout à fait, c'est bien ainsi que l'on va augmenter, pensez à bien tricoter les jetés torse au tour suivant pour éviter des trous. Bon tricot!

16.03.2021 - 08:28

country flag Bamalu wrote:

Zunahme Passe: "abwechselnd an der rechten und linken Seite aller Markierer". Bedeutet "rechte Seite" eine M zunehmen vor dem Markierer? Oder zu Beginn bzw. am Ende der M zwischen zwei Markierern?

29.12.2020 - 16:56

DROPS Design answered:

Liebe Bamalu, das erste Mal nehmen Sie 1 Masche vor jeder Markierung (= an der rechten Seite der Markierung); das nächste Mal nehmen Sie 1 Masche nach jeder Markierung (= an der linken Seite der Markieurng) und so weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 11:50

country flag Christine Smith wrote:

First sweater ever. I have run the numbers in my head every which way, and it does not add up. If one casts on 144 sts, and increases EVENLY by 30 sts, one would need to increase every 4.8 sts which does not add up. Even numbers to 30 sts are 120 or 150. Can you tell me at what stitch I should start increasing and how many stitches between increases please? Thank you, sweater looks beautiful, looking forward to your answer so I can get beyond line 5! :)

14.12.2020 - 00:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smith, this lesson explains how to increase evenly on a round. Happy knitting!

14.12.2020 - 09:44

country flag Annie Pang wrote:

Thank you for your prompt reply to my question regarding ROW 5 of A2 A3 and A4. There is a K2tog between A2 and A3 so how can I knit 7 in A2? I need to either count the stitch either on A2 or A3 since I cannot split them? Pls help !!

01.12.2020 - 23:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pang, on row 5 work the last 2 stitches in A.2 together with the first stitch next A.3 (= the yarn over + the dec = the last 2 sts of A.2), then work the last 2 sts in A.3 together with the first stitch next A.3/A.4 (at the end of the round) the same way - you should still always have the same number of sts in each diagram/repeat. Happy knitting!

02.12.2020 - 07:57

country flag Annie Pang wrote:

For A2, A3, A4 ROW5, (I am knitting size M) does it means the final count would be 5 + (9x23) + 5 = 217 ??

01.12.2020 - 11:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pang, when working diagrams A.2, A.3 A.4, work: A.2 = 7 sts, repeat A.3 a total of 34 times (= over the next 204 sts) and finish round wiht A.4 (= 6 sts) = 7 + 204 + 6 = 217sts. Hope this helps. Happy knitting!

01.12.2020 - 16:54

country flag Diana wrote:

Hola.dime por favor las mangas se tejen con aguja 2.5mm ? 3mm?

15.10.2020 - 15:40

DROPS Design answered:

Hola Diana. La manga se trabaja en punto musgo, por lo tanto, se trabaja con la aguja de 2,5 mm

15.10.2020 - 20:12