Jane Brown wrote:
What is the knitting tension for this pattern?
02.08.2022 - 14:27DROPS Design answered:
Dear Mrs Brown, you'll find it under header, ie: 24 sts x 32 rows in stockinette st = 4'' x 4'' (10 x 10 cm) with larger needles. Happy knitting!
02.08.2022 - 17:18Plessis Régine wrote:
Bonjour à toute l'équipe de Drops. Comment procéder pour les augmentations de A.5 car entre deux motifs il y a 7 mailles ce qui change après deux augmentations donc 9 mailles et le motif s'en trouvera décalé... Pouvez-vous m'aider à résoudre ce problème ? Merci de votre réponse. Cordialement
01.03.2022 - 11:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Plessis, tricotez les augmentations en jersey jusqu'à ce qu'il y ait suffisamment de mailles pour les tricoter en suivant A.5 (ce qui peut ne pas être le cas, vous les tricoterez alors seulement en jersey), mais veillez à bien aligner le point fantaisie comme avant, autrement dit, les motifs ajourés doivent être alignés les uns au-dessus des autres avec 6 rangs entre chaque motif ajouré. Bon tricot!
01.03.2022 - 13:53Sanguillon wrote:
Bonjour Pouvez me préciser où je fais les diminutions des manches sur le dernier tour (début ou milieu du travail) et comment glisser les manches sur l aig circulaire pour l empiecement. Merci par avance
30.08.2021 - 17:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Sanguillon, pensez-vous aux mailles à rabattre au dernier tour de la manche? ce sont les 10 ou 12 m au milieu sous la manche, autrement dit, tricotez le dernier tour de la 2ème côte mousse à l'endroit comme avant, mais quand il reste 5-6 mailles avant la fin du tour, rabattez les 5-6 mailles suivantes (= les dernières du tour) + les 5-6 premières mailles du début du tour suivant = vous avez rabattu 10-12 mailles. Placez ensuite les mailles des manches sur l'aiguille circulaire et continuez en rond comme le montre cette vidéo. Bon tricot!
31.08.2021 - 08:05Ulla Bünger wrote:
Har jeg ret i at der ku er mønster A 5 på ryggen
29.07.2021 - 20:49DROPS Design answered:
Hej Ulla, ja det stemmer :)
04.08.2021 - 08:40Mariechristine wrote:
Buongiorno Sto finendo questo bellissimo cardigan ma ho incontrato qualche difficoltà Dopo avere finito il diagramma A10.ho lavorato tutte le maglie lasciando le ultime 20 poi ho girato il lavoro idem 20 maglie sul secondo l’atto. Ma non capisco dopo che cosa devo fare. Lavoro tutte le maglie rimanenti meno le prime 20 più adesso 36 maglie? Dunque in tutto sono 20 più 36 Grazie.
15.02.2019 - 20:37DROPS Design answered:
Buonasera Mariechristine. Non deve lavorare le ultime 36 maglie. Buon lavoro!
15.02.2019 - 23:01Delorme wrote:
Pour dos et devant après avoir tricoter 2 cotes au point mousse , doit on commencer le diagramme A1A en commençant par la ligne 1 soit un rang tout à l endroit ou commencer à la ligne 2 soit 5 mailles endroit , 7 mailles envers , merci pour votre reponse . cordialement
11.04.2017 - 22:48DROPS Design answered:
Bonjour Mme Delorme, le 1er rang des diagrammes se tricote sur l'endroit. Bon tricot!
12.04.2017 - 12:28Chris wrote:
Ich möchte dieses sehr schöne Jäckchen mit Cotton Viskose stricken, die Maschenprobe stimmt auch. Benötigt man dann allerdings mehr Garn, da die Lauflänge ja nur 110m beträgt im Gegensatz zu Safran mit 160m?
16.08.2016 - 08:53DROPS Design answered:
Liebe Chris, ja genau, das ist richtig. Wie Sie das ausrechnen, finden Sie unter Punkt 5 unserer FAQ (Tipps und Hilfe).
17.08.2016 - 13:39Karin Stapf wrote:
Beste,ik vind het geweldig dat jullie zoveel mooie patronen aanbieden.Maar ik merk dat ze bijna allemaal op een rondbreinaald worden gemaakt!! Ik heb het al eens geprobeerd maar vind het ongemakkelijk en moeilijk te begrijpen,aangezien ik ook nog maar een middelmatige breier ben.Is er een mogelijkheid de patronen om te schrijven zodat ik ze ook gewoon met 2 naalden kan breien? Groetjes Karin Ik zou het zeer waarderen als u mij verder kunt helpen
18.02.2016 - 22:15DROPS Design answered:
Hoi Karin. Wij kunnen helaas niet helpen met individuele aanpassingen op de gratis patronen, maar je kan hier lezen hoe je eventueel een patroon kan aanpassen van ronde naar rechte naalden.
24.02.2016 - 17:00Anita Toft Jensen wrote:
Har strikket denne utroligt smukke jakke i str. XXXL, men den passer slet ikke i halskanten. Den er alt for stor. Den er så stor, at jeg ikke kan bruge jakken, før jeg finder på en løsning. ( den falder ned om skuldrene ) Jeg har overholdt strikkefasrheden. Det er rigtig ærgerligt, for det ødelægger lidt helheden
19.11.2015 - 16:05
White Romance Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri, stuttum ermum og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 159-11 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ M: 10, 19, 27, 36, 44 og 52 cm. STÆRÐ L: 10, 19, 28, 37, 46 og 54 cm. STÆRÐ XL: 10, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXL: 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ XXXL: 10, 19, 27, 36, 44, 52 og 60 cm. (ATH: fellið af fyrir síðasta hnappagatinu rétt áður en hálsmálið byrjar þannig að það sitji eins hátt og mögulegt er). LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.7 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.7: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 2 l á undan A.7: 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 351-387-423-471-531-591 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A þar til 10 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 5 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 183-201-219-243-273-303 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 6 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.2 og endið á 5 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka – ATH: Í 7. umf í mynstri er síðasta l prjónuð á undan kanti að framan slétt. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 187-199-223-247-271-307 l (fækkið /aukið ekki út yfir kant að framan). Prjónið 1 umf br til baka (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Setjið 1 prjónamerki 50-52-58-64-70-79 l inn frá hvorri hlið (= 87-95-107-119-131-149 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan, A.3 (= 11 l), A.4 (= 20 l), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.5 þar til 37 l eru eftir á prjóni, 1 l sléttprjón, A.6 (= 20 l), A.3 (= 11 l) og 5 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6 -6-6-7-7-7 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 203-215-239-263-287-323 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 35-36-38-38-40-40 cm. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 49-51-57-62-68-77 l eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið 85-93-105-115-127-145 l (= bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið næstu 49-51-57-62-68-77 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Fitjið upp 144-156-156-168-168-180 l á hringprjóna nr 2,5 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A. Þegar A.1A hefur verið prjónað eru 72-78-78-84-84-90 l á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón. JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af miðju 10-10-10-12-12-12 l mitt undir ermi = 62-68-68-72-72-78 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = 307-331-355-383-407-455 l. JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu og síðustu l á báðum ermum (= 4 prjónamerki). Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur eins og áður á fram- og bakstykki JAFNFRAMT er A.5 einnig prjónað á ermum (ör í mynstri á að passa við miðju á ermi, byrjið í sömu umf í mynstri eins og á fram- og bakstykki). Að auki er A.7 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í). Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf fram og til baka byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 4-5-5-7-7-8 sinnum = 275-291-315-327-351-391 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu eins og áður. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 4-10-4-6-10-10 l jafnt yfir í 1. umf (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) =271-281-311-321-341-381 l. Prjónið 2 umf slétt (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Nú byrjar hringlaga berustykkið og fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur, prjónið mynstur eftir A.8 þar til 6 l eru eftir á prjóni, endið á 1 l sléttprjón og 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.9 prjónað í stað A.8 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 167-173-191-197-209-233 l á prjóni. Prjónið nú A.10 í stað A.9 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Eftir A.10 er prjónuð upphækkun að aftan í hnakka frá réttu þannig: Prjónið sl þar til 20-20-22-22-24-24 l eru eftir. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 20-20-22-22-24-24 l í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 36-36-40-40-44-44 l. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 36-36-40-40-44-44 l í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 52-52-58-58-64-64 l. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 52-52-58-58-64-64 l í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 68-68-76-76-84-84 l. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 68-68-76-76-84-84 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5, byrjið frá röngu og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (byrjið á umf 2 í A.2). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 21-23-23-25-25-29 l jafnt yfir = 146-150-168-172-184-204 l. Eftir A.2 er fellt laust af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Marina_M wrote:
Hola, quiero tejer la talla M. Los 5 puntos de la cenefa están incluídos en la cantidad de puntos del cuerpo (387) o debo incluirlos yo? Gracias.
26.09.2022 - 14:31