DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Diamond

Prjónuð peysa úr DROPS Air með gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL

DROPS 159-7
DROPS Design: Mynstur nr ai-006
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
350-350-400-450-500-550 gr litur nr 02, hveiti

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 40 cm) NR 5,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður, í stykkjum og er saumuð saman í lokin. Peysan er lengri að aftan en að framan.

BAKSTYKKI:
Hægri öxl er prjónuð þannig: Fitjið upp 23-25-27-30-31-34 l á hringprjóna nr 6 með Air. Prjónið sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Fitjið nú upp 1 nýja l í lok næstu umf frá röngu = 24-26-28-31-32-35 l. Geymið stykki og prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl nema spegilmynd, þ.e.a.s. prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun umf frá réttu. Þegar stykkið mælist 3 cm er fitjuð upp 1 ný l í lok umf frá réttu = 24-26-28-31-32-35 l. Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 25-25-27-27-29-29 l og síðan eru prjónaðar 24-26-28-31-32-35 l frá hægri öxl inn á prjóninn = 73-77-83-89-93-99 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 11-13-13-14-14-14 cm. Haldið nú áfram með mynstur – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! ATH: Í stærð S, L og XL eru lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri á milli A.1 og A.2/A.4 og A.5 prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 0-1-0-1-0-1 sinni, A.2, A.3 4 sinnum í öllum stærðum, A.4, A.5 0-1-0-1-0-1 sinni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm. Í lok 2 næstu umf eru fitjaðar upp 2-3-3-4-6-8 nýjar l fyrir handveg = 77-83-89-97-105-115 l. Nýju l eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls 64-66-71-72-77-77 cm – stillið af eftir heilli eða hálfri mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf í garðaprjóni er aukið út um 5-5-6-6-7-7 l jafnt yfir = 82-88-95-103-112-122 l. Fellið laust af.

FRAMSTYKKI:
Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp 23-25-27-30-31-34 l á hringprjóna nr 6 með Air. Prjónið sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 5-6-6-7-7-7 cm. Fitjið nú upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok næstu umf frá röngu: Fitjið upp 1 l 2-2-2-2-3-3 sinnum, 2 l 1 sinni í öllum stærðum og 3 l 1 sinni í öllum stærðum = 30-32-34-37-39-42 l. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl þannig. Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun umf frá réttu og fitjið upp l fyrir hálsmáli í lok umf frá réttu = 30-32-34-37-39-42 l. Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 13-13-15-15-15-15 l og síðan eru l frá vinstri öxl prjónaðar inn á prjóninn = 73-77-83-89-93-99 l.
Þegar stykkið mælist 11-13-13-14-14-14 cm prjónið nú mynstur eins og á bakstykki og fitjið upp l í handveg í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm. Haldið síðan áfram eins og á bakstykki þar til stykkið mælist alls 53-55-59-60-64-64 cm – stillið af eftir heilli eða hálfri mynstureiningu á hæðina. ATH!: Framstykki er styttra en bakstykki. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 5-5-6-6-7-7 l jafnt yfir = 82-88-95-103-112-122 l. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Leggið framstykki að bakstykki og saumið axlasauma. Saumið innan við uppfitjunarkantinn og saumið l fallega saman með lykkjuspori. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Takið upp 65-69-71-75-77-81 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) jafnt yfir frá réttu í kringum opið á ermum á fram- og bakstykki á hringprjóna nr 6 með Air. Prjónið 1 umf br til baka frá röngu. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 20-22-23-25-26-28 l sléttprjón, mynstur A.6 (= 23 l), 20-22-23-25-26-28 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar úrtaka í hvorri hlið á ermi – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2-2-2-1½-1½ cm millibili 14-15-15-17-18-19 sinnum til viðbótar = 35-37-39-39-39-41 l. Þegar ermin mælist 44-43-43-42-41-40 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í 1. umf í garðaprjóni er aukið út um 2-2-2-3-3-4 l jafnt yfir = 37-39-41-42-42-45 l. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

HÁLSMÁL:
Byrjið við miðju að aftan og takið upp ca 70-90 l jafnt yfir í kringum hálsmál með stuttum hringprjónum nr 5,5 með Air. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Fellið laust af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = Prjónið 2 l br saman, steypið l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, steypið seinni l yfir á vinstri prjón yfir fyrstu l (þ.e.a.s. l af hægri prjóni), steypið til baka þessar l yfir á hægri prjón.
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Bosnyak wrote:

Je ne comprends pas vous dites:Tricoter 1 m lis au point mousse, 0-1-0-1-0-1 fois A.1, A.2, 4 fois A.3 dans toutes les tailles, A.4, 0-1-0-1-0-1 fois A.5, 1 m lis au point mousse. \r\nmais les encoche pour la taille L ne comprennent pas A1 et A5 donc le diagramme correspondant a la taille L est de A2 àA5 je suis perdue

30.01.2022 - 12:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bosnyak, en L tricotez ainsi: 1 m lisière au point mousse, A.2, 4xA.3, A.4, 1 m lis au point mousse. Dans cette taille, vous ne tricotez ni A.1 ni A.5. Bon tricot!

31.01.2022 - 09:42

country flag BosnyakYolande wrote:

En ce qui concerne les mailles lisieres est ce que elles sont comprises dan le graphique ou en plus merci

28.01.2022 - 13:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bosnyak, les mailles lisières ne figurent pas dans les diagrammes, elles figurent en revanche dans les explications, cf dos par ex: 1 m lis au point mousse, 0 ou 1 fois A.1 selon la taille, A.2, 4 fois A.3, A.4, 0 ou 1 fois A.5 selon la taille et 1 m lis au point mousse. Bon tricot!

28.01.2022 - 13:59

country flag Isabelle wrote:

Bonjour comment adapter un patron aux aiguilles circulaires en aiguilles droites svp? Merci beaucoup de votre réponse.\r\nCordialement

19.10.2019 - 05:13

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, ce modèle se tricote en différentes parties en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour toutes les mailles, seul le col se tricote ici en rond. Vous pourrez lire ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

21.10.2019 - 13:48

country flag Andrea wrote:

Hallo liebes Team, fehlt nicht bei dem Muster am Ärmel die obere Spitze, also das erste Mal 2 M zusammenstr., 1 Umschlag? Schöne Grüße

29.09.2019 - 21:17

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, oben am Anfang vom Ärmel stricken Sie die 1. Reihe A.6 = 2 M re zs, 1 Umschlag, 1 Masche re, 1 Umschlag, 1 M abheben, 1 M re, die abgehobene M überziehen. = die mittlere Masche ist "die obere Spitze". Viel Spaß beim stricken!

30.09.2019 - 11:40

country flag Romkje wrote:

Het patroon klopt niet. Er staat bij voor- en achterpand aangegeven dat je A2 en A3 vier keer moet herhalen voor alle maten. Dan kom je veel steken tekort als je M breit. Na veel rekenwerk kwam ik er achter dat je geen vier, maar drie keer moet herhalen.

30.03.2018 - 17:42

country flag Christine wrote:

Bonjour, Merci pour ce très joli modèle que je tricote en taille S. Je voudrais savoir comment tricoter les mailles qui se trouvent à cheval entre A2/A3 ou A3/A4 quand on doit répéter 4 fois A3? (exemple 9ème rang du diagramme) Merci d'avance pour votre réponse

21.02.2018 - 08:41

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, au 9ème rang par ex, vous tricotez A.2 et faites 1 jeté (= 6 m dans A.2) et tricotez ensuite la m suivante ensemble à l'end avec la 1ère m de A.3 et ainsi de suite. À la fin de A.3, faites 1 jeté (= dernière m de A.3) et tricotez la dernière m de A.3 avec la 1ère m du A.3 suivant (= 1ère m du A.3 suivant). Veillez à toujours bien avoir le bon nombre de mailles dans chaque diagramme, aidez-vous de marqueurs si besoin. Bon tricot!

21.02.2018 - 09:30

country flag Anne Gro Berge Karlsen wrote:

Det er feil i mønster for str M. Det står at A2 skal strikkes 4 ganger, men skal bare strikkes 1 gang. Kan dere korrigere dette på nye mønster

30.10.2017 - 11:01

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, Je tricote la taille S de ce joli modèle, mais arrivée au 9 ème rang je me trouve avec des mailles en plus sur tous les diagrammes. Merci pour votre réponse

21.09.2017 - 20:22

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, vous devez toujours bien avoir le même nombre de mailles, les diminutions du point ajouré sont toutes compensées par 1 jeté. En taille S vous tricotez: 1 m lis, 1 x A.2 (= 6 m), 4 x A.3 (= 4 x 14 m = 56 m), 1 x A.4 (= 9 m) et 1 m lis. N'hésitez pas à ajouter des marqueurs entre chaque diagramme à répéter pour pouvoir bien vous repérer et vérifier votre nombre de mailles. Bon tricot!

22.09.2017 - 09:49

Maria Santos wrote:

Takk for svar. I mönsterdiagrammet er det i A2= 6 m og i A3 =14 m, tilsammen = 20 m (ikke 56 m som i deres svar). Dette er i störrelse S og M, men jeg strikker störrelse L. Det er i hht. mönsterdiagram A2 =7 m og A3 = 16 m, tilsammen 23 m. I hht oppskrift skal disse to (A2 og A3) strikkes 4 ganger i störrelse L. Er det jeg som er dum eller er deres svar ikke riktig?

12.01.2017 - 19:04

DROPS Design answered:

Hej Maria. Ok, men det aendrer ikke meget i hvordan du skal strikke. Du skal laese paa samme maade: strikk 1 kant-m rille, A.1 0 gang, A.2, A.3 4 ganger i alle str, A.4, A.5 0 gang, 1 kant-m rille: 1+0+7+(4x16)+10+0+1 = 83 masker strikket

17.01.2017 - 14:43

Maria Santos wrote:

Ville gjerne ha et svar paa mitt spörsmaal (03.01.17) da jeg har begynt aa strikke denne lekre genseren, men har stoppet opp i paavente av et svar.

09.01.2017 - 18:10

DROPS Design answered:

Hej Maria. Vi skal faa set paa alle spörgsmaal saa hurtigt vi kan. Der kan desvaerre vaere ekstra ventetid ligenu da vi har travlt med at indhente alt fra ferien :)

10.01.2017 - 13:39