DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Freedom

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino og DROPS Brushed Alpaca Silk með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 159-20
DROPS Design: Mynstur nr as-033
Garnflokkur C + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 02, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100-125-125-150-150-175 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf með sléttprjóni annarri tegundinni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 6 – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Skipt er á milli Baby Merino og Brushed Alpaca Silk. Vinstra framstykki eru með endaskipti upp við hálsmál og hægra framstykki er með endaskipti við neðri kant.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 hlutum frá miðju að aftan að miðju að framan.

VINSTRA BAKSTYKKI / FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 104-106-110-112-116-118 l á hringprjóna nr 6 með Baby Merino. Prjónið A.1 með 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið á stykki til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-16-18-18-20-20 cm, stillið af að næsta umf sé frá réttu og prjónaðar hafa verið 2 umf í garðaprjóni, prjónið yfir fyrstu 33-33-33-34-35-35 l eins og áður, fellið af næstu 26-27-29-30-32-33 l fyrir handveg, prjónið yfir hinar l eins og áður (=45-46-48-48-49-50 l). Í næstu umf eru fitjaðar upp 26-27-29-30-32-33 l yfir þær l sem felldar voru af = 104-106-110-112-116-118 l. Fellið laust af þegar stykkið mælist 66-66-75-75-84-84 cm, passið að endað er á 4 umf í garðaprjóni með Brushed Alpaca Silk.

HÆGRA BAKSTYKKI / FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og eins og vinstra bakstykki / framstykki, nema gagnstætt. Þegar stykkið mælist 16-16-18-18-20-20 cm, stillið af eftir vinstra bakstykki / framstykki, prjónið fyrstu 45-46-48-48-49-50 l eins og áður, fellið af næstu 26-27-29-30-32-33 l fyrir handveg, prjónið yfir aðrar l eins og áður.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 30-30-32-34-34-36 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 6 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 10-8-8-11-8-8 cm er aukin út 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki, endurtakið útaukningu með 4-4-4-3½-3½-3½ cm millibili 11-12-12-13-15-15 sinnum til viðbótar = 54-56-58-62-66-68 l. Prjónið nú áfram eins og áður þar til stykkið mælist 58-59-60-61-62-63 cm – endið á 4 umf garðaprjón með Baby Merino, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman vinstra og hægra bakstykki/framstykki við miðju að aftan (þ.e.a.s. í uppfitjunarkant) yst í lykkjubogann með Baby Merino. Saumið ermar í, saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant meðfram langhliðum á stykki. Heklið með Brushed Alpaca Silk með heklunál nr 6 þannig: 1 fl, * 3 ll, hoppið fram ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* meðfram báðum langhliðum. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl með Brushed Alpaca Silk
symbols = sl með Baby Merino
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn með Brushed Alpaca Silk
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir með Brushed Alpaca Silk
symbols = br frá röngu með Brushed Alpaca Silk
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Ferry wrote:

Bonjour, je souhaite réaliser ce modele mais en coton et en aiguilles droites. quel fil, et quelle quantité me recommandez vous? je tricote lâche... merci pour votre retour! E.F

18.03.2020 - 20:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ferry, vous trouverez ici toutes les infos utiles et nécessaires sur les alternatives; n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS directement pour toute assistance individuelle et conseil supplémentaire. Bon tricot!

19.03.2020 - 09:46

country flag Angelika Hassing wrote:

Kan ik deze vest ook alleen met 1 draad baby alpaca silk breien.?

14.01.2019 - 19:24

DROPS Design answered:

Dag Angelika,

Als je alleen met 1 draad baby alpaca sil breit, is de stekenverhouding wel anders. Maak even een proeflapje en pas evt. de naalddikte aan. Als je tevreden bent over het proeflapje in patroon kan je hem inderdaad met alleen Alpaca Silk breien.

17.01.2019 - 10:12

country flag DE MATTIA wrote:

DROPS 159-20 Très joli modèle, toutefois les explications demeurent insuffisantes pour les non-averties. Le point est extrêmement mal expliqué, à moins de suivre scrupuleusement le diagramme. Même les vidéos et les aides ne nous sont d'aucun secours.

25.08.2017 - 10:19

country flag Liesbeth wrote:

Is het mogelijk om met één soort wol te breien? En welke dikte zou ik dan moeten nemen? Met twee verschllende soorten wol breien doe ik niet graag.

01.10.2016 - 15:45

DROPS Design answered:

Hoi Liesbeth. Voor deze is het lastig. Het is of 1 draad uit categorie C en dan wordt het waarschijnlijk losser met de stekenverhouding of 1 draad uit categorie D (dus hier alleen Melody beschikbaar) en het wordt een beetje strakker met de stekenverhouding. Voor beide opties geldt dat je een beetje ander uiterlijk zal krijgen in vergelijking met een merino samen met mohair.

03.10.2016 - 11:02

country flag Annette Neumann wrote:

Hallo! Werden die Reihen zwischen den Muster Kraus rechts oder glatt rechts gestrickt? Vielen dank Annette Neumann

08.11.2015 - 21:19

DROPS Design answered:

Die R zwischen den Lochmuster-R werden kraus re gestrickt. Weiterhin gutes Gelingen!

12.11.2015 - 20:05

country flag Bessy wrote:

Hallo! Ich finde leider auch nach intensivem Suchen keine Anleitung für das Aufnehmen der Maschen nach dem Abketten für das Armloch. Könnten Sie, sofern Sie dafür eine Anleitung gefertigt haben, diese verlinken? Ich danke Ihnen! Herzliche Grüße und danke für diese fantastische website!! Bessy

04.10.2015 - 14:02

DROPS Design answered:

Sie schlagen einfach an der Stelle, an der sich die abgeketteten M befinden, in der nächste Reihe neue M an. Dazu finden Sie ein Video im Kopf neben dem Foto "Seitlich neue M anschlagen". Wenn Sie das dann gemacht haben, stricken Sie die restlichen M, die sich auf der linken Nadel befinden. Also: Die ersten M auf der Nadel stricken, dann neue M anschlagen und die restlichen M stricken.

04.10.2015 - 21:09

country flag Lilaria wrote:

Hello, I have finished knitting the body and now need to start the sleeves. I am not sure about the edges mentioned in the pattern where the increase happens. Are these edges different from the A1 pattern? How many stitches do these edges consist of? Many thanks!

27.09.2015 - 13:43

DROPS Design answered:

Dear Lilaria, you work sleeve in pattern with 1 edge st on each side (for seam allowance), and inc at the beg of row after edge st + at the end of row before edge st. Happy knitting!

28.09.2015 - 10:14

country flag MARIE wrote:

Jolis modèles et fils de qualité, seul problème : pour ce modèle il me manquera 3 pelotes de BabyMerino et par contre j'aurai trop dd BrushedAlpacaSilk..............

28.08.2015 - 07:23

DROPS Design answered:

Bonjour Marie et merci. Aviez-vous bien le bon échantillon et conservé la bonne tension de 15 m x 19 rangs en jersey tricoté avec 1 fil seul fil, Baby Merino ou Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm tout le long de l'ouvrage ?

28.08.2015 - 10:04

Wilma Steele wrote:

I bought the drops 159 book from loveknitting site and interested in knitting the pattern 159-20 in Alpaca Silk but unsure how many balls I would need for small size? Can you tell me how many balls I would need?

20.07.2015 - 18:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Steele, in size S you need 100 g Brushed Alpaca Silk / 25 g 1 ball = 4 balls are required in first size. Happy knitting!

27.07.2015 - 16:03

country flag LACBENS wrote:

Bonjour, Le diagramme montre t il tous les rangs sur l endroit? Dans ce cas les 4 premiers rangs en Baby merino correspondent ils a du jersey ou bien comme j ai l impression de le voir sur la photo s agit il de point mousse? (idem quand le diagramme montre 4 rangs Brushed alpaca silk a l endroit)? Merci par avance pour votre réponse. Emilie.

13.07.2015 - 19:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacbens, le diagramme montre tous les rangs du motif, vus sur l'endroit, 1 case = 1 m x 1 rang. les 4 premiers rangs se tricotent ainsi à l'end en Baby Merino (= 2 côtes mousse) et les 4 derniers rangs de A.1 = 4 rangs end en Brushed Alpaca Silk = 2 côtes mousse. Bon tricot!

27.07.2015 - 11:23