Lunch With Vlad |
|
|
|
Hekluð leðurblöku - diskamotta úr DROPS Muskat. Þema: Halloween.
DROPS Extra 0-1043 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Umf með st: Hver umf með st byrjar á 3 ll (þessar ll eru ekki taldar með í st-fjölda). Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Umf með fl: Hver umf byrjar á 1 ll (þessi ll er ekki talin með í fl-fjölda). Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf. HEKLIÐ SAMAN FL: 2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. LITASKIPTI: Til þess að litaskiptingin verði falleg þá er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, sækið nýja litinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DISKAMOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. DISKAMOTTA: Heklið 4 ll með heklunál nr 2,5 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 12 st um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st. UMFERÐ 3: * 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st. UMFERÐ 5: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60 st. UMFERÐ 6: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 st. Haldið áfram með útaukningu svona (þ.e.a.s. í hverri umf, heklið 1 st fleiri á milli skipta sem 2 st eru heklaðir í sömu l), þar til stykkið mælist ca 26 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. HÆGRI VÆNGUR: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 3 ll með heklunál nr 2,5 með litnum svartur. UMFERÐ 1 (rétta): MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll = 3 st. Snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 2 st í hvern st = 6 st. Snúið við. UMFERÐ 3: * 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf = 9 st. Snúið við. UMFERÐ 4: 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, * 2 ll, 2 st í næsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 st og 4 ll. Snúið við. UMFERÐ 5: 1 st í hvern af fyrstu 3 st, 2 st í næsta st, * 2 ll, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 15 st og 4 ll. Snúið við. UMFERÐ 6: 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st, * 2 ll, 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 18 st og 4 ll. Snúið við. Haldið áfram með útaukningu svona (þ.e.a.s. í hverri röð, heklið 1 st fleiri á milli í hvert skipti sem heklaðir eru 2 st í sömu l), þ.e.a.s. þar til heklaðar hafa verið 15 umf = 45 st og 4 ll. Snúið við. Heklið nú kant þannig: Heklið 8 ll, 1 fl í 3. ll frá heklunálinni, 1 þbst í fyrsta st, 1 tbst í næsta st, 1 st í næsta st, 1 hst í næsta st, 1 fl í hvern af næstu 7 st, 1 hst í næsta st, 1 st í næsta st, 1 tbst í næsta st, * 1 þbst í næsta st, í næstu ll er heklað þannig: 1 þbst, 3 ll, 1 fl í 3. ll frá heklunálinni og 1 þbst, heklið 1 þbst í næsta st, 1 tbst í næsta st, 1 st í næsta st, 1 hst í næsta st, 1 fl í hvern af næstu 7 st, 1 hst í næsta st, 1 st í næsta st, 1 tbst í næsta st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, í síðasta st er heklað þannig: 1 tbst í næsta st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, í síðasta st er heklað þannig: 1 tbst, 3 ll, 1 fl í 3. ll frá heklunálinni og 1 þbst. Klippið frá og festið enda. VINSTRI VÆNGUR: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 3 ll með heklunál nr 2,5 með litnum svartur. Heklið UMFERÐ 1 og 2 á sama hátt og hægri vængur. UMFERÐ 3: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf = 9 st. Snúið við. UMFERÐ 4: 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st, * 2 ll, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 st og 4 ll. Snúið við. UMFERÐ 5: 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, * 2 ll, 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 15 st og 4 ll. Snúið við. UMFERÐ 6: 1 st í hvern af næstu 4 st, 2 st í næsta st, * 2 ll, 1 st í hvern af næstu 4 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 18 st og 4 ll. Snúið við. Haldið svona áfram með útaukningar (þ.e.a.s. fyrir hverja umf, heklið 1 st fleiri á milli í hvert skipti sem heklaðir eru 2 st í sömu l), þar til heklaðar hafa verið 15 umf = 45 st og 4 ll. Snúið við. Heklið nú kant á sama hátt og á hægri væng. HÖFUÐ: Stykkið er heklað í hring. Heklið 5 ll með heklunál nr 2,5 með litnum svartur og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 8 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 3: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 4: 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 5: 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 3 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. Heklið nú 12 umf með 1 fl í hverja fl. Heklið nú vinstra eyra fram og til baka héðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl = 14 fl. Snúið við. UMFERÐ 2: 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7 fl = 16 fl. Snúið við. UMFERÐ 3: 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl = 17 fl. Snúið við. UMFERÐ 4: 1 fl í hverja af fyrstu 8 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl = 18 fl. Snúið við. UMFERÐ 5: 2 fl saman – LESIÐ HEKLIÐ SAMAN FL, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7 fl, heklið 2 fl saman = 17 fl. Snúið við. UMFERÐ 6: 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl saman = 16 fl. Snúið við. UMFERÐ 7: 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl saman = 15 fl. Snúið við. UMFERÐ 8: 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 2 fl saman = 14 fl. Snúið við. UMFERÐ 9: 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 2 fl saman = 13 fl. Snúið við. UMFERÐ 10: 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 9 fl, 2 fl saman = 11 fl. Snúið við. UMFERÐ 11: 2 fl saman, * 1 fl í næstu fl, 2 fl saman *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar = 7 fl. UMFERÐ 12: 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl saman *, endurtakið frá *-* út umf = 4 fl. Klippið frá og festið enda. HÆGRA EYRA: Byrjið að hekla áfram eins og síðasta umf á vinstra eyra, en hoppið yfir 6 fl áður en byrjað er á hægra eyra. Heklið á sama hátt og vinstra eyra. AUGA: Heklið 3 ll með heklunál nr 2,5 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 8 hst um hringinn og skiptið yfir í litinn hvítur – LESIÐ LITASKIPTI! UMFERÐ 2: Heklið 1 kl, 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í sömu kl = 16 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið annað auga á sama hátt. MUNNUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 2,5 með litnum hvítur. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 hst í næstu ll, 1 st í næstu ll, 12 ll,1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 hst í næstu ll og 1 st í næstu ll. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið vængina niður í hvorri hlið á diskamottunni með ca 14 cm millibili á milli þeirra við toppinn – látið vera smá op neðst á vængjunum sem sést ekki framan á diskamottunni. Saumið niður augu og munn á höfuðið. Fyllið höfuðið og eyrun með vatti, heklið síðan höfuðið saman við búkinn þannig: Heklið 1 fl í hverja umf/fl í gegnum bæði lögin með litnum svartur, klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Thomas wrote:
Bonjour! Merci pour ce modèle! Une question: pour la bordure des ailes. 3ml, une ms dans la 3eme maille en partant du crochet, une triple bride. Cette triple bride doit elle aussi être faite aussi dans la 3eme ml en partant du crochet? Merci pour la réponse!
13.09.2022 - 07:22DROPS Design answered:
Bonjour Mme Thomas, au début du tour, la triple bride doit être crocheta dans la 1ère bride du rang précédent. Bon crochet!
13.09.2022 - 09:37Brian wrote:
Thank you so much! Also for this cute pattern. Guess I need to replace my reading glasses ...
11.11.2018 - 17:39Brian wrote:
Instructions for the left (and right) ear are missing.
02.10.2018 - 05:19DROPS Design answered:
Dear Brian, you will work the left ear after the 12 rounds with 1 dc in every dc on head. The right ear will be worked as left ear. Happy crocheting!
02.10.2018 - 09:51Luciana wrote:
Spettacolare!!!!!!!!!!!! O dovrei dire orrido?
01.11.2014 - 18:55Gnommera wrote:
Povero pipistrello...
11.10.2014 - 19:21