DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 158-34
DROPS Design: Mynstur nr co-003
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M - L
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 04, milligrár

eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 46, milligrár

DROPS PRJÓNAR NR 12 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l með FISKIBEINAMYNSTRI verði 10 cm á breidd.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M - L/XL – XXL/XXXL
Mál:
Ummál að neðan: 96-104-122 cm.
Ummál að ofan: 76-80-84 cm.
Hæð: 22-26-30 cm.

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
100-100-150 gr litur nr 04, milligrár

eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio
150-150-200 gr litur nr 46, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 15 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l með FISKIBEINAMYNSTRI verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

FISKIBEINAMYNSTUR :
UMFERÐ 1 (rétta): 1 l sl, 2 l snúnar slétt saman en * fyrri af þessum tveimur prjónuðu l á vinstri prjóni er látin falla niður af prjóni og hin l er prjónuð snúin slétt saman við næstu l *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, 2 l sl.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 l br, 2 l br saman en * fyrri af þessum tveimur prjónuðu l á vinstri prjóni er látin falla niður og hin l er prjónuð br saman með næstu l *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, 2 l br.
Endurtakið umf 1 og 2.

ÚRTAKA:
Frá réttu: Prjónið 3 l slétt saman í gegnum aftari lykkjubogann, sleppið niður fyrstu 2 l af vinstri prjóni.
Frá röngu: Prjónið 3 l brugðið saman, sleppið niður fyrstu 2 l af vinstri prjóni.

AFFELLING:
* 2 lykkjur snúnar slétt saman, sleppið niður 2 l á vinstri prjóni, takið l sem er lengst til hægri (á hægra prjóni) yfir hina l á prjóni *, endurtakið frá *-* og þræðið þráðinn í gegn í lokin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og er saumað saman í lokin.

HÚFA:
Fitjið laust upp 82-84 l (meðtalin 1 kantlykkja í sléttprjóni í hvorri hlið) á prjóna nr 12 með Cloud eða Snow.
Prjónið FISKIBEINAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – með byrjun á 2. umf (= frá röngu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16 cm fækkið um 7 l jafnt yfir í næstu 7 umf – LESIÐ ÚRTAKA! Nú eru 33-35 l eftir á prjóni. Prjónið nú l 2 og 2 slétt saman þar til 16-17 l eru eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Festið vel.

FRÁGANGUR:
Saumið saman sauminn við miðju að aftan. Saumið l 1 og 1 fallega saman innan við 1 kantlykkju í sléttprjóni. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið laust upp 136-148-158 l (meðtalin 1 kantlykkja í sléttprjóni í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 15 með Cloud eða Snow.
Prjónið FISKIBEINAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – með byrjun á 2. umf (= ranga). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-9-11 cm er fækkað um 10-12-12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA! Nú eru 126-136-146 l á prjóni. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12-15-18 cm = 116-124-134 l. Þegar stykkið mælist 17-21-25 cm fækkið um 8-10-12 l jafnt yfir = 108-114-120 l. Fellið af frá réttu þegar stykkið mælist 22-26-30 cm – LESIÐ ÚRTAKA!

FRÁGANGUR:
Saumið sauminn við miðju að aftan. Saumið l 1 og 1 fallega saman innan við 1 kantlykkju í sléttprjóni. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Gigi wrote:

Hello. I’m trying to knit this in the round … thanks for the video link. I cast on 80 stitches and started with row 1 as in video but the beanie is turning out to be enormous. Should I be starting with row 2 of pattern for knitting in the round? Is the number of cast on stitches correct? Thanks

15.01.2024 - 08:30

DROPS Design answered:

Dear Gigi, have you the right tension? you should have 14 sts with herringbone stitch = 10 cm in width so that 80 sts = ca 57 cm. Happy knitting!

15.01.2024 - 10:16

country flag Gigi wrote:

Hi there! Is it possible to knit this herringbone pattern in the round with circular needles? Thanks!

02.01.2024 - 05:01

DROPS Design answered:

Dear Gigi, sure, find the video for the herringbone stitch in the round here. Happy knitting!

02.01.2024 - 12:28

country flag Fafa wrote:

Hallo, wie kann ich am Ende die Seiten unsichtbar zusammen nähen? Danke!

25.12.2023 - 17:54

DROPS Design answered:

Liebe Fafa, gerne können Sie entweder wie in diesem Video oder mit Matratzenstich wie in diesem Video die Seiten zusammennähen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 08:26

country flag Nina wrote:

Ich stricke die Mütze emmie gray Drops 158-34 Nachdem ich in 7 Reihen je 7 Maschen abgenommen habe, folgt nur noch eine Reihe, wo ich immer (ohne ausnahme) 3 Maschen zusamnenstricke und 2 fallen lasse? Und was heisst die restlichen Maschen fädeln? Arbeitsfaden durch die restlichen Maschen ziehen? Kein Abketten nötig? Ich danke euch für Informationen!! Liebe Grüße Nina

22.10.2022 - 15:52

DROPS Design answered:

Liebe Nina, um 1 Masche abzunehmen stricken Sie anstatt 2 M re verschränkt wie im Muster 3 M re verschränkt und die 2 ersten dieser 3 Maschen lassen Sie von der linken Nadel gleiten (anstatt nur die erste beim Muster), und Fischgrätmuster wie zuvor bis die nächste Abanahme stricken. Wenn nur noch 33-35 M übrig sind stricken Sie 2 Maschen rechts zusammen die ganze Reihe und die Mütze wie beim 15:05 in diesem Video beenden. Viel Spaß beim stricken!

24.10.2022 - 08:16

country flag Klára wrote:

Dobrý den, mohu se zeptat, jestli to ujímání je v rámci řady nebo na začátku/konci řad? Jsem začátečník a toto jsem nepochopila. Velice děkuji.

02.01.2019 - 14:15

DROPS Design answered:

Dobrý den, Kláro, ujímání je rozloženo rovnoměrně do celé řady - potřebný počet ok tedy ujmeme v přibližně stejných rozestupech. Toto platí jak u čepice, tak i u nákrčníku. Hodně zdaru! Hana

02.01.2019 - 21:18

country flag Barbara wrote:

Buongiorno, non sono molto esperta e avevo una domanda riguardo al cappello. Il modello dice di iniziare a fare il punto a spina di pesce sul secondo ferro (rovescio del lavoro). La mia domanda è con quale punto devo lavorare il primo ferro (diritto del lavoro)?. Grazie per la risposta.

08.01.2018 - 10:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Barbara. Dopo aver avviato le maglie, lavora subito il punto a spina di pesce, iniziando dal secondo ferro del motivo. Quindi: il primo ferro che lavora (dopo l'avvio delle maglie)è sul rovescio del lavoro e segue le indicazioni riportate per il ferro 2 della spina di pesce. Buon lavoro!

08.01.2018 - 11:12

country flag Loredana wrote:

Buongiorno, sto utilizzando il filato Nord (messo doppio), che ferri mi consigliate? Grazie Loredana

25.09.2017 - 12:11

DROPS Design answered:

Buongiorno Loredana. Usando un filato del gruppo A doppio, di solito si consigliano i ferri n° 5. Il modello scelto viene lavorato con filato ancora più spesso. Se vuole usare il filato messo doppio, molto probabilmente il campione non corrisponderà con quello indicato e dovrà riproporzionare le maglie per avere le misure finali desiderate. Per avere un campione corretto, potrebbe provare a lavorare con il filato messo triplo o quadruplo e ferri n° 12 (per il berretto) o 15 (per lo scaldacollo). Buon lavoro!

25.09.2017 - 16:22

country flag Marit wrote:

Hej ska man börja med ett avigt varv eftersom det står att fiskbensmönstret börjar på varv 2? För i mönstret står varv 1 som rätsidan... lite luddigt.

09.11.2016 - 23:33

DROPS Design answered:

Hej Marit. Ja, men i denne opskrift til huen skal du starte med en pind fra vrangen = beskrivelsen af 2. pind af fiskebensmönstret

10.11.2016 - 14:31

country flag Heidi wrote:

Hei ser i oppskriften at det skal bruker drpos pinner nr 12 og drops rundp nr er disse størelsene i EU mål?

07.03.2016 - 11:35

DROPS Design answered:

Hej Heidi, pinne nr 12 som betyder 12 mm. Lycka till!

07.03.2016 - 14:56

country flag DELORES SMITH wrote:

Thank you for providing videos with the patterns. I had been looking at your patterns for a couple of years and only recently realized you also provide videos. I also did not know that there were videos included with the patterns. I was looking at a herringbone pattern and couldn't understand the instructions. I discovered the video for the stitch and now I understand the instructions in the pattern. Thank you very much.

18.02.2016 - 00:57