DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cold Springs

Prjónað poncho og eyrnaband úr DROPS Alaska með köðlum, prjónað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 157-15
DROPS Design: Mynstur nr x-404
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

PONCHO:
Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
450-500-550 gr litur nr 03, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – fyrir stroff.

EYRNABAND
Stærð: Ein stærð
Ummál: 48 cm.
Breidd: 12 cm.

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
100 gr litur nr 03, ljós grár

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Prjónið í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

PONCHO:
Fitjið upp 132-138-144 l á hringprjóna nr 4 með Alaska. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stykkið mælist 10 cm eru prjónaðar 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 18-24-28 l jafnt yfir = 150-162-172 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Umf byrjar nú í annarri hlið á stykki. Prjónið * 9-11-11 l sl, 1 l br, 3 l sl, 1 l br, 1-2-2 l sl, 1 l br, A.1, 1 l br, 1-2-2 l sl, 1 l br, 3 l sl, 1 l br, 9-11-11 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
JAFNFRAMT er aukið út í hvorri hlið við allar 1 l br, 3 l sl, 1 l br – LESIÐ ÚTAUKNING = 8 l fleiri. Útauknar lykkjur eru prjónaðar slétt. Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf alls 16-17-17 sinnum = 278-298-308 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 41-43-45 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-4 l jafnt yfir = 282-300-312 l. Prjónið síðan stroff (3 l sl, 3 l br) þar til stykkið mælist 45-47-49 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 23 l á prjóna nr 5 með Alaska.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf eru auknar út 6 l jafnt yfir = 29 l. Prjónið nú frá réttu þannig: 2 l sl, 1 l br, A.1 (= 3 l), 2 l br, A.2 (= 13 l), 2 l br, A.1, 1 l br, 2 l sl. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47 cm eru prjónaðar 2 umf í garðaprjóni yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 6 l jafnt yfir = 23 l. Fellið af.
Saumið eyrnabandið saman við miðju að aftan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l sl, steypið óprjónuðu l yfir þær 2 l sl
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, prjónið 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjóni fyrir aftan stykkið, 3 l sl, prjónið 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = þessi l er felld af
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Malti Oberoi wrote:

Is cold springs pattern is worked from collar and down?

06.03.2024 - 03:55

DROPS Design answered:

Hi Malti, Yes, the garment is worked top down. Happy knitting!

06.03.2024 - 06:32

country flag IOLANDA DIANI wrote:

Ciao! vorrei replicare questo modello ma con filato Karisma.... quanto ne serve per fare una taglia L/XL? grazie !

08.06.2023 - 09:12

DROPS Design answered:

Buonasera Iolanda, Karisma è un filato che appartiene al gruppo filati B, quindi ha una tensione diversa da questo modello. Può provare a fare un campione e vedere se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!

08.06.2023 - 22:46

country flag Simona wrote:

Salve, quando gli aumenti crescono nella sezione 1 m a rov/3 m dritto/1m r continuo a farli ai lati delle maglie a rovescio oppure accanto ai gettati successivi lavorati a dritto? Grazie

07.02.2023 - 15:32

DROPS Design answered:

Buonasera Simona, gli aumenti saranno ai lati delle maglie rovescio. Buon lavoro!

13.02.2023 - 22:57

country flag Anna wrote:

Bonjour, J'ai terminé cette partie: Répéter ces augmentations 16-17-17 fois au total tous les 3 tours = 278-298-308 m. Continuer ainsi. Ensuite: ? ( pas claire ci-dessous) ? À 41-43-45 cm de hauteur totale, continuer avec l'aiguille circulaire 4 et tricoter 1 côte mousse sur toutes les mailles, Merci

02.02.2023 - 20:06

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, lorsque toutes les augmentations sont faites, vous continuez à tricoter jusqu'à ce que votre ouvrage mesure 41-43-45 cm de hauteur totale. Vous changez alors pour l'aiguille circulaire 4 et tricotez 1 côte mousse (= 1 tour en mailles endroit, 1 tour en mailles envers) en répartissant des augmentations puis vous tricotez en côtes jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 45-47-49 cm et vous rabattez toutes les mailles. Bon tricot!

03.02.2023 - 08:23

country flag Michaela wrote:

En fråga till, jag får inte ihop varv 2 med mönstret. Om man gör rad 1 på A1 båda ggr på varv1 så går man från 29->27 maskor. Så v2 har man 27 m, ska man då sticka 2rm 1am, A1 (rad 2: blir det 1 am (då det är av varv) omslag minskning?) men blir väll fortfarande för lite maskor det varvet? El blir det 2 rm, 1 am A1 (omslag efter am sedan minskning)..Känns som jag har krånglat till hela mönstret nu.

03.01.2023 - 07:55

DROPS Design answered:

Hei Micaela. På 1.rad i A.1 minskes det med 1 maske, men på neste rad økes det med 1 maske = 3 masker i A.1. På rad 3 og 4 er det 3 masker. For å få en bedre oversikt kan du sette en maskemarkør eller tråd mellom 2 masker (skriver en X i eksemplet under) når du strikker, slik at du hele tiden får diagrammene riktig over hverandre, f.eks strikk slik på 1.rad: 2 rett, 1 vrang, X, A.1, X, 2 vrang, X, A.2, X, 2 vrang, X, A.1, X, 1 vrang, 2 rett . mvh DROPS Design

06.01.2023 - 09:18

country flag Michaela wrote:

Hej! Jag blev lite osäker när det kom till mönstret för pannbandet: ”Sedan stickas det så här från rätsidan: 2 rm, 1 am, A.1 (= 3 m), 2 am, A.2 (= 13 m), 2 am, A.1, 1 am, 2 rm” Efter jag har stickat A2 och ska göra A1 igen, gör jag då rad två på A1 eller upprepa rad 1? Och med tanke på att det är samma sida, löser jag hö till vän, el vän till hö som att man vänder? (Behandlar man då maskorna samma?) Alltså att rm på rv, el blir det am på rv?

31.12.2022 - 14:38

DROPS Design answered:

Hei Michaela. Du strikker 1. rad av diagrammet på 1. pinne (altså 2 rett, 1 vrang, A.1 (1.rad), 2 vrang, A.2 (1.rad), 2 vrang, A.1(1.rad), 1 vrang, 2 rett = 29 masker). Når du skal strikke 2. pinne leser du diagrammet fra venstre til høyre og da strikkes det slik: 2 vrang, 1 rett, A.1 (2.rad, les diagramforklaringe hvordan det strikkes fra vrangen), 2 rett, A.2 (2.rad, les diagramforklaringe hvordan det strikkes fra vrangen), 2 rett, A.1(2.rad), 1 rett, 2 vrang. OSV. mvh DROPS Design

06.01.2023 - 07:34

country flag Anna wrote:

Bonjour, Je suis rendue à A.2 sur le premier rang de la grille, les carrés blancs veulent dire de tricoter END ? Car mon tricot, les mailles sont ENVERS, après avoir tricoté le 2e tour de point mousse: tricoter 1 côte au POINT MOUSSE - voir ci-dessus, EN MÊME TEMPS, répartir 18-24-28 augmentations au 1er rang = 150-162-172 m. Besoin d'aide

01.11.2022 - 20:12

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, vous tricotez le poncho? Il se tricote en rond, donc toujours sur l'endroit. Vous tricotez 1 côte mousse (1 tour end, 1 tour env), puis les mailles comme indiqué - comme vous tricote en rond et donc sur l'endroit, vous lisez les diagrammes toujours de droite à gauche, les 6 mailles des torsades de A.2 vont ainsi se tricoter tous les tours à l'endroit et la maille centrale de A.2 va se tricoter tous les tours à l'envers. Bon tricot!

02.11.2022 - 07:44

country flag Josiane GIOANNI wrote:

Bonsoir, merci beaucoup pour votre reponse, je n'avais pas vu ce menu. Je vais pouvoir tricoter ce joli couvre epaules

31.10.2022 - 23:18

country flag Josiane GIOANNI wrote:

Bonjour, ces explications existent elles en français ? merci pour votre reponse

31.10.2022 - 16:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mem Gioanni, tout à fait, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et choisissez "français". Bon tricot!

31.10.2022 - 16:27

country flag Anna wrote:

Bonjour, Sur le diagramme, le carré noire = cette maille a été rabattue - C'est à dire le prochain rang (2e rang) ? Je suis rendue sur le premier rang donc je tricote : 3 m. env. ? Merci

28.10.2022 - 21:58

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, effectivement, au 1er rang de A.1, on passe 1 maille au-dessus des 2 suivantes, autrement dit, il reste 2 mailles seulement pour le rang prochain que vous tricoterez à l'envers sur l'envers (ou à l'endroit sur l'endroit en rond pour le poncho) en faisant 1 jeté entre ces 2 mailles = vous avez de nouveau 3 mailles. Bon tricot!

31.10.2022 - 08:19