DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Yesterday

Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine með hringlaga rúnuðu hálsmáli, gatamynstri og kraga. S - XXXL.

DROPS 156-18
DROPS Design: Mynstur nr me-071
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
700-800-850-950-1000-1100 gr (með lausum kraga) litur nr 15, ljós grágrænn
(kraginn er ca 100 gr að þyngd)

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st og 9 umf verði 10 x 10 cm eða A.2 verði 2,5 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipti út fyrir 3 ll. Hver umf með st endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
Fyrstu fl í hverri umf er skipt út fyrir 1 ll.
Allar umf með fl enda á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að hekla 2 st í 1 st, fyrst öðru megin við öll prjónamerkin í umf, næsta skipti hinum megin við öll prjónamerki í umf, haldið svona áfram með útaukningu.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er í hring frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 93-98-103-113-118-128 ll með heklunál nr 4,5 með Merino Extra Fine og tengi í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu ll, 1 fl í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-*= 76-80-84-92-96-104 fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR.
Heklið síðan upphækkun að aftan við hnakka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið við miðju að aftan, heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* í kringum hálsmál JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki eftir 38-40-42-46-48-52 l (= miðja að framan), snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 28-30-32-36-38-42 l eru eftir að prjónamerki, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl að framan þar til 28-30-32-36-38-42 l eru eftir að prjónamerki, snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 22-24-26-30-32-36 l eru eftir að prjónamerki, snúið við.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 22-24-26-30-32-36 l eru eftir að prjónamerki, snúið við.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 16-18-20-24-26-30 l eru eftir að prjónamerki, snúið við.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl að framan þar til 16-18-20-24-26-30 l eru eftir að prjónamerki, snúið við og heklið til baka að miðju að aftan.

Heklið síðan í hring með st JAFNFRAMT í 1. umf eru sett 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan), setjið síðan 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 st millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 4 st. Heklið í hring með st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st við öll prjónamerki þannig: Aukið út í annarri hverri umf 5-6-6-5-5-6 sinnum og í 4. hverri umf 2-2-2-3-3-3 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 209-240-252-276-288-338 st. Heklið eina umf þar sem aukið er út um 14-7-7-7-19-5 st jafnt yfir = 223-247-259-283-307-343 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf er heklað frá miðju að aftan þannig: 30-34-37-41-45-52 st, 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (á að nota síðar fyrir ermi), 60-68-74-82-90-104 st (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (á að nota síðar fyrir ermi) og 29-33-36-40-44-51 st = 135-151-163-179-195-223 st/ll. Setjið eitt prjónamerki, héðan er nú mælt. Heklið 1 st í hvern st/ll JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-8-12-12-12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 127-143-155-167-183-211 st.

Heklið nú þannig: Heklið A.1, A.2 alls 30-34-37-40-44-51 mynstureiningar á breiddina, endið á A.3. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4 endurtekið á hæðina til loka.

Þegar stykkið mælist 14-14-14-15-15-15 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé síðasta umf í A.4, aukið út um 1 mynstureiningu í A.2 í 8.-9.-9.-10.-11.-13. mynstureiningu um ll-boga þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um ll-bogann, 2 ll, 1 st um sama ll-boga, 2 ll, 1 fl um sama ll-boga. Heklið 14-16-19-20-22-25 mynstureiningar af A.2, í næstu mynstureiningu af A.2 er aukið út alveg eins. Heklið síðan áfram eins og áður = 32-36-39-42-46-53 mynstureiningar af A.2 á breiddina. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 34-34-36-35-37-37 cm frá prjónamerki, stillið af að endað er í næst síðustu umf í A.4, stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Setjið prjónamerki, héðan er nú mælt. Byrjið á að hekla við miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki, 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll, 1 st í hvern st yfir ermi, áður en 1 st er heklaður í hverja af þeim 4 ll sem eftir eru undir ermi = 60-64-64-68-72-76 st. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi.
Heklið nú þannig: 1 st í hvern af fyrstu 11-11-11-13-13-15 st JAFNFRAMT er fækkað um 1 st (= 10-10-10-12-12-14 st), A.1, A.2 8-9-9-9-10-10 sinnum á breiddina, A.3, heklið 1 st í hvern af síðustu 10-10-10-12-12-14 st. Haldið áfram með 1 st í hvern af þeim 20-20-20-24-24-28 st við miðju undir ermi og A.1-A.3 yfir ermi. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4 endurtekið á hæðina til loka mælingar. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-2½-2½-2 cm millibili 9-9-9-11-11-13 sinnum til viðbótar. Heklið nú bara A.1-A.3 yfir ermi. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 43½-42½-42½-39½-40-38 cm, passið að enda í næst síðustu umf í A.4 – ATH – styttri mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla.
Heklið hina ermina á sama hátt.

LAUS KRAGI:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 99 ll með heklunál nr 4,5 með Merino Extra Fine og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan 3. umf í A.1, 3. umf í A.2 23 sinnum og 3. umf í A.3. Endurtakið A.4 á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 8 cm, stillið af að næsta umf sé síðasta umf í A.4, aukið út um 1 mynstureiningu í A.2 í hvorri hlið á stykki þannig: Heklið A.1, heklið síðan fyrstu A.2 þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um ll-bogann, 2 ll, 1 st um sama ll-boga, 2 ll, 1 fl um sama ll-boga. Heklið eins og áður þar til 1 mynstureining af A.2 er eftir á undan A.3, í næstu mynstureiningu af A.2 er aukið út á sama hátt. Heklið nú áfram eins og áður (= 25 mynstureiningar af A.2 á breiddina) þar til stykkið mælist ca 20 cm, stillið af þannig að endað sé í næst síðustu umf í A.4. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = loftlykkja (ll) - ef þú heklar yst á heklunálinni þá verður loftlykkjan oft of stíf. 1 loftlykkja á að vera jafn löng og breidd á 1 fastalykkju
symbols = fastalykkja (fl)
symbols = stuðull í lykkju (st í l)
symbols = 1 keðjulykkja (kl) í 3./1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = stuðull um lykkju (st um l)
symbols = heklið 3 stuðula í 1 stuðul í sömu lykkju þannig: Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 þræðir á heklunálinni), heklið 1 stuðul alveg eins, heklið næsta stuðul en dragið bandið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni í lokin
symbols = 1. umferð er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Natalia Galán wrote:

Gracias por la ayuda! Ahora sí lo entiendo! Solo una pregunta... La primera vuelta del diagrama, la de los puntos altos... Esa no se teje no? Es la base de la que partes para hacerlo y ya está tejida de antes verdad? Gracias!

21.02.2024 - 11:35

DROPS Design answered:

Hola Natalia, sí, la vuelta con la estrella se explica en el patrón escrito, no hay que repetirla; empiezas a trabajar el diagrama sobre esta vuelta.

26.02.2024 - 21:14

country flag Natalia wrote:

Buenos días. Perdón pero es mi primer patrón y tengo dudas en esta parte: Trabajar A.1, A.2 34repeticiones en el ancho, finalizar con A.3. Continuar con el patrón de la misma manera. Cuando y A.1-A.3 se han trabajado 1 vez en vertical, repetir A.4 en vertical ..que significa cuando A1 - A3 se hayan trabajado en vertical? Luego lo que sigue de aumentar con A2 tampoco lo entiendo bien. Gracias!

17.02.2024 - 17:40

DROPS Design answered:

Hola Natalia, se trabaja A.1, A.2 34 veces y A.3 en una fila. Cuando hayas trabajado todas las filas, de abajo arriba, de los diagramas A.1, A.2 y A.3, se dice que es una repetición en vertical de los diagramas. Ahora repites A.4 (una sección de los diagramas A.1, A.2 y A.3, como se ve en el diagrama, quitando la 1ª fila) trabajando todas las filas (cuando trabajas la fila superior vuelves a la 1ª fila, abajo, de A.4) hasta alcanzar las medidas finales. Los aumentos de A.2 se hacen en una de las 34 repeticiones de A.2; en tu talla es en la 9ª repetición.

18.02.2024 - 23:32

country flag Adele Grobler wrote:

Thanks for help with the diagram. My next question is, the collar. Is it completely separate or do you attach it to the neck line?

25.05.2023 - 23:40

DROPS Design answered:

Hi Adele, The neck is not attached, but you can attach it if you wish. Happy crafting!

26.05.2023 - 06:40

country flag Adele Grobler wrote:

Is the collar completely separate or does it get attach to the neck somehow?

25.05.2023 - 23:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Grobler, collar is completely separate and will not be attached. Happy crocheting!

26.05.2023 - 10:13

country flag Adele Grobler wrote:

I need help when the pattern starts with the diagram, continue work: A1, A2 30-34-37 repetions in total finish with A3 ? I have to do 37 repetitions but don't understand the diagram I can only do 21? Please explain the start of the lace pattern of the body

23.05.2023 - 09:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Grobler, you have 155 sts in 3rd size, and work now as follows: A.1 over the first 4 sts, then repeat the 4 sts in A.2 a total of 37 times (= over the next 148 sts), and finish the round with the 3 sts in A.3 => 4+148+3= 155 sts. Happy crocheting!

23.05.2023 - 13:55

country flag Ria Dammers wrote:

Ik kom er ook niet uit met de hals (maat m): moet ik toer 1 eerst afmaken en dan keren en dus maar 10 steken in de 2e toer haken of keer ik bij de 40 steken en haak ik middenachter een toer lager verder tot 30 steken voor de markeerder? Alvast bedankt voor jullie reactie!

30.01.2023 - 21:09

DROPS Design answered:

Dag Ria,

Het is inderdaad niet heel duidelijk omschreven, maar je haakt inderdaad de eerste toer helemaal in de rondte en je zet halverwege (midden voor) een markeerder. Daarna beginnen de verkorte toeren voor de verhoging aan de achterkant van de hals.

01.02.2023 - 20:39

country flag Leeuwerink wrote:

Hoe voorkom ik dat de naad achter op de rug scheef wegloopt? Ik heb dat iedere keer als ik rondhaak met stokjes. Met vriendelijke groet, Josine Leeuwerink

16.08.2022 - 15:11

DROPS Design answered:

Dag Leeuwarink,

Bij het in de rondte haken heeft het werk inderdaad vaak de neiging om scheef te trekken. De beste manier om dit te voorkomen is door heen en weer te haken. Dus je sluit dan wel de toer, maar keert het werk en haakt terug. Zo ga je steeds heen en weer.

16.08.2022 - 21:15

country flag Aiga Repko-Martin wrote:

Hoe haak ik 1 vaste in elke losse en 1 losse bóven elke vaste??? (Toer 2-7)

18.05.2022 - 17:14

DROPS Design answered:

Dag Aiga,

Je steekt de naald in de losse en hier haak je een vaste in, vervolgens haak je een losse en sla je een vaste van de vorige toer over. Vervolgens haak je weer een vaste in de volgende losse van de vorige toer en zo verder.

19.05.2022 - 21:03

country flag Sarah wrote:

Hvis halsen starter med 99 lm, vil den vel ikke passe til de 103 lm (str. M) som er i blusens halshul? Kan man hækle halsen direkte fra halshullet i blusen, hvis man laver en ekstra rapport af A2 i f.t. opskriften (99+4 =103 masker)? Eller skal halsen hækles for sig selv og derefter fæstnes på blusen? Hvordan fæstnes den i så fald? - skal den sys fast eller hækles fast? Og hvordan får man halsens 99 masker til at passe i halshullets 103?

28.03.2022 - 13:09

DROPS Design answered:

Hej Sarah, nej det er ikke tanken at den skulle hæftes til blusen. MEN naturligvis kan du hækle de 2 stykker sammen - God fornøjelse!

30.03.2022 - 15:05

country flag Alice wrote:

Ik ben nu aangekomen bij het lijf waar de meerderingen worden gemaakt. Er staat haak tot 14cm vanaf de marker en pas dan aan zodat de volgende toer de laatste is in A4. betekent dat dat je vanaf de 14cm verder haqkt totdat je de laatste toer in A4 bereikt en dan de meerderingen doet? Bedankt voor jullie hulp!

15.01.2022 - 23:44

DROPS Design answered:

Dag Alice,

Nee, het betekent dat je ervoor zorgt dat je 14 cm hebt gehaakt én dat de volgende toer die je moet haken de laatste toer in A.4 is.

16.01.2022 - 14:05