DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Day After Day

Prjónuð peysa úr DROPS Cloud eða DROPS Snow í perluprjóni og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-27
DROPS Design: Mynstur nr co-005
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 04, milligrár
eða notið
DROPS SNOW frá Garnstudio
600-650-700-800-850-950 gr litur nr 46, milligrár

DROPS HRINGPRJÓAR (40 eða 60 cm) NR 10 – eða þá stærð sem þarf til að 9 l og 15 umf með perluprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 9 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi annars verður flíkin of löng.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstrið séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1 í hverri laskarönd. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjóni.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn með perluprjóni

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og 2 l í perluprjóni: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l kantlykkja í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 44-48-52-56-60 l á hringprjóna nr 10 með Cloud eða Snow.
Prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir = 54-58-62-66-70-74 l. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið með byrjun frá laskalykkju í hægri hlið að aftan: Setjið prjónamerki, A.1 (= 4 l), 1 l ykkja slétt, A.1 (= ermi), setjið prjónamerki, 18-20-22-24-26-28 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= framstykki), setjið prjónamerki, A.1, 1 l sl, A.1 (= ermi), setjið prjónamerki, 18-20-22-24-26-28 l perluprjón (= bakstykki). Haldið svona áfram, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! ATH! Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út í annarri hverri umf 2-3-4-5-6-8 sinnum, í 4. hverri umf 1-1-1-2-2-3 sinnum og í 6. hverri umf 4-4-4-3-3-2 sinnum. Nú eru 32-36-40-44-48-54 l á fram- og bakstykki.

LASKALÍNA Á ERMI:
Aukið út í hverri umf 3-4-4-5-5-6 sinnum, í annarri hverri umf 7-7-8-8-9-9 sinnum og í 4. hverri umf 4 sinnum í öllum stærðum. Nú eru 37-39-41-43-45-47 l á hvorri ermi.

Þegar útaukningu er lokið eru 138-150-162-174-186-202 l á prjóni. Stykkið mælist nú 27-28-29-30-31-32 cm. LESIÐ MÆLING! Setjið nú fyrstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 32-36-40-44-48-54 l (= framstykki), setjið næstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 78-86-94-102-110-122 l fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram í perluprjón yfir næstu 3 l, 1 l br (= hlið), setjið prjónamerki í þessa l, perluprjón yfir næstu 38-42-46-50-54-60 l, 1 l br (= hlið), setjið prjónamerki í þessa l, perluprjón yfir næstu 38-42-46-50-54-60 l í umf. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við br l með prjónamerki í hvorri hlið - LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm = 86-94-102-110-118-130 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm – Munið eftir MÆLING! Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Setjið til baka 37-39-41-43-45-47 l af þræði á hringprjóna nr 10.
Haldið nú áfram í perluprjóni yfir allar l. Fitjið upp 4 nýjar l í lok á 2 næstu umf = 45-47-49-51-53-55 l. ATH: Nýjar l eru prjónaðar inn í perluprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið! Í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 4 sinnum til viðbótar = 35-37-39-41-43-45 l. Fellið nú af með 4½-3½-3½-3-3-3 cm millibili 6-7-7-8-9-9 sinnum = 23-23-25-25-25-27 l. Þegar ermin mælist 39-38-38-38-38-37 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermum – Munið eftir MÆLING – skiptið yfir á hringprjóna nr 9. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið saman op undir ermum. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Takið upp 44-48-52-56-60-64 l (= 1 l í hverja l í uppfitjunarkanti) í kringum hálsmál á hringprjóna nr 9 með Cloud eða Snow. Prjónið 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 48-50-50-52-52-54 l. Prjónið næstu 4 umf í garðaprjóni. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.10.2014
LASKALÍNA Á ERMI: ... 32-36-40-44-48-54 l (= framstykki), setjið næstu 37-39-41-43-45-47 l á band fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki).

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Avril McKoy wrote:

Hello, I am a little confused when doing the raglan increase. For sleeves, each side of raglan meaning increasing by 4 stitches per sleeve each increase? And for body 4 stitches? In total per round of increase? Thanks ☺️

28.10.2023 - 15:19

DROPS Design answered:

Dear Avril, as explained in RAGLAN, you increase 1 stitch on each side of A.1. Even though A.1 is in the sleeves, the increases are divided into the parts as follows: Before the first A.1, the increase will go for the right side of the back, after the first A.1 and before the second A.1 the increases are for the right sleeve. After the second A.1 and before the 3rd A.1 the increases are for the front piece. After the 3rd A.1 and before the 4th A.1 the increases are for the left sleeve. After the 4th A.1, the last increase is for the back piece. So, when you increase for the sleeves or for the body you work the increases indicated above for the body or the sleeves. Happy knitting!

29.10.2023 - 20:33

Barbara wrote:

Hello, Iam working this pattern with two strands air and my gauge is as requested. I have finished the raglan part on size XL after 38 rows, my problem is that it is 28cm instead of 33cm. Thank you

27.11.2018 - 23:38

DROPS Design answered:

Dear Barbara, for raglan sweater it is very important to have the proper gauge for not only the stitchcount, but also for the rows as well. If you knit to few rows the shoulder / yoke will be too short. You can compensate for this, if, at regular intrewalls insert a round without increases at the yoke. I hope this helps. Happy Knitting!

28.11.2018 - 03:45

country flag Anne Olsen wrote:

Jeg forstår ikke hvor ofte jeg skal øke. Hver 2. omg. 4 ganger (jeg skal strikke L), men bare 1. gang den 4. omg. og igjen 4. ganger på hver 6. omg. Skal jeg da etter hver bare øke hver 2. og 6. når jeg har økt den 4. omg. én gang?

20.03.2017 - 21:18

DROPS Design answered:

Hej Anne. Först öker du i hver 2. omg 4 ganger (paa bolen) og först naar du er faerdig gaar du videre med at öke i hver 4. omg (1 gang) og til sidst i hver 6. omg (4 ganger). Husk at samtidig öker du ogsaa paa ermerne de antal gange som din str siger.

21.03.2017 - 14:49

country flag Marianne wrote:

Mijn vraag lijkt niet geplaatst te zijn, ik probeer het nog eens. In het gedeelte " lijf" moet een markeerder geplaatst worden in de averechte steek. Moet deze steek over het hele deel vanaf de oksel tot de onderkant averecht gebreid blijven worden? Zodat een soort averechte "naad" ontstaat? Of moet deze, nadat de markeerder is geplaatst, in het gerstekorrelpatroon worden meegebreid?

21.10.2016 - 13:27

DROPS Design answered:

Hoi. Jawel :) Zie mijn antwoord hieronder.

21.10.2016 - 15:05

country flag Marianne wrote:

Ik begrijp dat ik een markeerder moet plaatsen bovenaan de zijkant, in de oksel, in een averechte steek. Maar moet ik die averechte steek blijven breien in de volgende toeren? Ofwel: ontstaat er een soort zijnaad met een averechte steek? Of wordt het in de volgende toeren gewoon meegenomen in de gerstekorrel?

21.10.2016 - 12:51

DROPS Design answered:

Hoi Marianne. Je breit deze st steeds av - je krijgt dan een "lijn" in de zijkanten. Je breit de st NIET in gerstekorrel

21.10.2016 - 15:04

Shilpa wrote:

Thanks for your speedy reply! Just to clarify, when you say 'at the same time', doesn't that mean some of the increase rounds will have 12 increases? Or do the sleeve increases start after the all the body increases are complete? And, if there are 8/increase row as you've mentioned, doesn't that mean the stitch count for the sleeves is too low? Thanks!

23.06.2016 - 00:22

DROPS Design answered:

Dear Shilpa, all raglan inc are done when working yoke, but you will not inc on every inc round on all pieces, ie in larger size, you will inc on first round: 2 sts on each sleeve only (= every round = 4 sts inc), then on next round, you will inc 2 sts in all pieces (= every other round in body and every round in sleeve = 8 sts inc), repeat these 2 rounds a total of 3 times = you have inc 6 times every round on sleeves and 3 times every other round on body. ie you will inc sometimes only on sleeve (= + 4 sts inc on round), only on body (= + 4 sts inc on round) and on each pieces (= +8 sts inc on round). Happy knitting!

23.06.2016 - 08:55

Shilpa wrote:

Hello! I'm knitting the XXXL with 10ply on 8.0mm and am confused by the increases. Increases are by 4 stitches only (NOT 8), the difference is where these increases go, correct? This creates 47st per sleeve (38 from sleeve increases and 9 from 2xA1 with k in between), but then the A1 section creates a straight stripe for a long portion, unlike the picture. I've been increasing 8/round, which seems to create more shoulder space, and matches the picture, but doesn't add up. Help, please!

22.06.2016 - 14:52

DROPS Design answered:

Dear Shilpa, you inc for raglan either 4 sts (when inc only in sleeve or only in body) or 8 sts (when inc both in body and sleeve), ie in larger size, you will inc 8 times every other round, 3 times every 4th round and 2 times every 6th round, and at the same time, you inc for sleeve 6 times every round, 9 times every other round and 4 times every round. Increase are made before A.1 (when inc at beg of piece) or after A.1 (when inc at the end of piece). Happy knitting!

22.06.2016 - 15:00

country flag Elisabeth wrote:

Merci infiniment de votre patience et de vos conseils. Cette fois, j'ai compris ! Bonne journée.

11.05.2016 - 15:55

country flag Elisabeth wrote:

Bonjour, Je tricote la taille XXL. Les manches se situeront autour de la maille endroit entre les deux A1, non ? Je me rapproche du cas désespéré :-)

11.05.2016 - 14:12

DROPS Design answered:

Bonjour Elisabeth, la m end tricotée au tout 1er tour, entre chaque A.1 correspond effectivement aux manches. En taille XXL, tricotez 5 fois: 1 tour avec 8 augm = 1 avant + 1 après chaque A.1 (= augm manches, dos et devant) et 1 tour avec 4 augm = 1 m après le A.1 de chaque manche + 1 m avant le A.1 de chaque manche) - Au 6ème tour, pas d'augm. Au 7ème tour, augmentez 8 m (= manches, dos et devant) et ainsi de suite. Bon tricot!

11.05.2016 - 15:49

country flag Elisabeth wrote:

Bonjour, Une toute dernière question, svp : au premier tour, je commence par une augmentation avant le premier marqueur, si j'ai bien compris ? Merci encore de votre patience. Bien cordialement.

11.05.2016 - 10:27

DROPS Design answered:

Bonjour Elisabeth, les augmentations se font après le marqueur (le marqueur doit être et rester après A.1) et après le marqueur (le marqueur doit être et rester avant A.1) quand on augmente 2 m au total dans chaque pièce. Ainsi, vous augmentez 2 m entre chaque motif de A.1 (soit pour les manches, soit pour le dos/le devant) - notez bien les augmentations à faire pour votre taille, vous n'augmenterez pas pour chaque pièce à chaque fois. Indiquez moi la taille que vous réalisez pour plus de détail. Bon tricot!

11.05.2016 - 11:51