DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Brume Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air eða DROPS Brushed Alpaca Silk í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 158-24
DROPS Design: Mynstur nr ai-003
Garnflokkur C eða A+A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 04, milligrár

Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
175-200-225-225-250-275 gr litur nr 02, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l og 26 umf með klukkuprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 6-6-6-7-7-7 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MÆLING:
Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, þar sem áferðin gefur stykkinu teygjanleika.

KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka + 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið):
UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið (með þráðinn aftan við stykkið) *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl, 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l sl, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Endurtakið umf 1 og 2.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Lykkjur í hlið sem ekki ganga upp í mynstur eru prjónaðar í garðaprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum með því að prjóna 3. og 4. l með garðaprjóni í kanti að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður slétt í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 24, 33, 42, 51 og 60 cm.
STÆRÐ M: 26, 35, 44, 53 og 62 cm.
STÆRÐ L: 28, 37, 46, 55 og 64 cm.
STÆRÐ XL: 21, 30, 39, 48, 57 og 66 cm.
STÆRÐ XXL: 23, 32, 41, 50, 59 og 68 cm.
STÆRÐ XXXL: 25, 34, 43, 52, 61 og 70 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-97-105-113-125-137 l á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum með Air eða Brushed Alpaca Silk. Stykkið er nú prjónað áfram með 1 þræði. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 2 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan áfram KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. LESIÐ MÆLING! Þegar stykkið mælist 53-54-55-5657-58 cm fellið af 5 l í hvorri hlið. Í næstu umf er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið sem prjónuð er í garðaprjóni til loka = 85-89-97-105-117-129 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Prjónið yfir fyrstu 27-29-32-36-41-47 l, fellið af næstu 31-31-33-33-35-35 l og prjónið út umf. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l að auki við hálsmál = 26-28-31-35-40-46 l. Prjónið þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og fellið af með sl í næstu umf. Prjónið á sama hátt í hinni hliðinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 50-52-56-60-66-72 l á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum af Air eða Brushed Alpaca Silk. Stykkið er nú prjónað áfram með 1 þræði. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 2 cm. Prjónið nú klukkuprjón með 4 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 24, 26, 28, 21, 23, 25 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm, fellið síðan af 5 l fyrir handveg. Í næstu umf er fitjuð upp 1 kantlykkja í hlið sem er prjónuð í garðaprjóni til loka = 46-48-52-56-62-68 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið nú af fyrir hálsmáli við miðju að framan í hverri umf frá réttu þannig: 10-10-11-11-12-12 l 1 sinni, 3 l 1 sinni og 2 l 3 sinnum og 1 l 1 sinni= 26-28-31-35-40-46 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og fellið af með sl frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma innan við affellingarkanta.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Byrjið frá réttu og prjónið upp 60-80 l með hringprjóna nr 4 og Air eða Brushed Alpaca Silk. Prjónið upp l þar sem fellt var af fyrir handveg (ATH: Prjónið ekki yfir þær l sem felldar voru af fyrir handveg). Prjónið 1 umf br – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 57-61-65-69-73-77 l og fitjið upp 5 nýjar l í hvorri hlið á stykki = 67-71-75-79-83-87 l. Stykkið er síðan prjónað i klukkuprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm fellið af 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 4-4-3-3-3-2 cm millibili alls 9-10-11-12-13-14 sinnum = 49-51-53-55-57-59 l. Prjónið þar til ermin mælist 48-48-47-47-44-42 cm. Prjónið garðaprjón yfir allar l í 2 cm og fellið af með 2 þráðum. Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með Air eða Brushed Alpaca Silk. Prjónið upp ca 64-72 l með hringprjónum nr 4 meðfram kanti á hálsmáli, byrjið í hægri hlið á framstykki frá réttu. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu. Í næstu umf er fellt af fyrir hnappagati með því að prjóna 3. og 4. l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, uppslátturinn er prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið 2 umf slétt og fellið af með 2 þráðum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman ermar innan við 1 kantlykkju, l sem fitjaðar voru upp á ermi eru saumaðar á móti l sem felldar voru af fyrir handveg á fram- og bakstykki. Saumið að lokum niður meðfram hlið á framstykki og bakstykki. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.11.2014
DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 - eða sú stærð sem þarf til að 19 l með klukkuprjóni verði 10 cm.
Yfirfarið á vefsvæði: 16.06.2015
BAKSTYKKI (ný mæling: ... til loka = 85-89-97-105-117-129 l. OG... næstu 31-31-33-33-35-35 l).
BAKSTYKKI: ... Í næstu umf er fitjuð upp 1 kantlykkja á hvorri hlið sem prjónuð er með garðaprjóni til loka = 85-89-97-105-117-129 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Prjónið yfir fyrstu 27-29-32-36-41-47 l, fellið af næstu 31-31-33-33-35-35 l og prjónið út umf...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Birgit Bang-Jensen wrote:

Opskrift 158-24. Under falsk patent 2. p står: 1 kantm retstrik, * 1 r, strik omslaget og den løse m vr sm *, gentag fra *-* . men i videoen strikkes omslag og løs m ret sammen. Hvad er rigtigt ? mvh Birgit

11.01.2024 - 15:30

DROPS Design answered:

Hei Birgit. Videoen er en generell video som viser hvoran man kan strikke falsk patent. Du må følge det som står i den oppskriften du strikker etter. mvh DROPS Design

15.01.2024 - 14:14

country flag Ingrid Human wrote:

Kan ik dit vest BRUME met 1 recht 1 averecht breien? Gewoon op 2 naalden? Omdat ik 1m86 ben zal ik de mouwen aan moeten passen qua lengte. van de kop van de mouw tot aan mijn pols 63 dm. Maar veel smaller, 18 cm in omtrek. Graag advies, dank Ingrid

25.10.2022 - 22:10

DROPS Design answered:

Dag Inge,

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

Voor de mouwen kun je op basis van de stekenverhouding uitrekenen hoeveel steken je minder op wilt zetten, zodat je een smallere mouw krijgt.

De valse patentsteek kun je inderdaad vervangen door 1 recht, 1 averecht, maar maak dan wel eerst even een proeflapje voor de stekenverhouding.

26.10.2022 - 08:38

country flag Mirna De Ru wrote:

De cijfers bij het telpatroon, zijn dit steken of cm? Ik wil dit patroon graag op rechte naalden breien, maar heb niet zoveel ervaring met het omzetten van ronde naald tot rechte.

19.08.2021 - 15:24

country flag Carolina wrote:

Har precis stickar klart min Brume cardigan och ska välja knappar när jag ser att det står att jag ska ha 6 st knappar i st m. Har följt mönstret och gjort knapphål efter de angivna måtten 26, 35,44,53,62 cm vilket jag bara får till 5 hål? Har jag missförstått något? Ser ju att det är 6 knappar på koftan på bilden.

17.02.2021 - 21:24

DROPS Design answered:

Hej Carolina, kan det være den i halskanten som mangler? Ellers syr du bare det antal knapper i som modsvarer knaphullerne :)

23.02.2021 - 10:00

country flag Jani wrote:

Forstår ikke helt højre forstykke. Strikker i str. M. Skal lave knaphul når arbejdet måler 62 cm men skal tage ind til hals ved 60 cm. Skal man stadig lave knaphul ved 62 cm selvom der er taget ind til halsen?

08.10.2020 - 21:22

DROPS Design answered:

Hei Jani. Det siste knappehullet vil bli i halskanten, les HALSKANT i oppskriften, og da stemmer målet med 62 cm. mvh DROPS design

12.10.2020 - 13:04

country flag Rikke wrote:

Kan man strikke den i almindelig patent i stedet for falsk patent?

19.12.2019 - 11:36

DROPS Design answered:

Hej Rikke, Jo du kan strikke den teknik du har lyst til, men sørg for at du får 19 m på 10 cm. God fornøjelse!

15.01.2020 - 12:33

country flag Ruth wrote:

Wie mache ich die Schulternaht? Von links mit Steppstich ? Oder mit Maschenstich von vorn?

31.07.2019 - 13:21

DROPS Design answered:

Liebe Ruth, das bleibt Ihnen überlassen - wie es Ihnen am besten gefällt. :-) Viel Spaß beim Tragen der Jacke!

31.07.2019 - 16:42

country flag Rita Mossu wrote:

Rita 12.11.2016 kl. 14:50: Is de hoeveelheid wol wel voldoende ? voor Gebreid DROPS vest in valse patentsteek van "Air" bij de wol info staat dat er 150 meters voor 50 gr ..... op het wol etiket staat dat er 130 meters zijn voor 50 gr een verschil van 20 meters per bol !!!

14.11.2016 - 14:45

DROPS Design answered:

Hoi Rita. Graag even mijn antwoord op je vraag hieronder lezen.

14.11.2016 - 16:14

country flag Rita wrote:

Is de hoeveelheid wol wel voldoende ? voor Gebreid DROPS vest in valse patentsteek van "Air" bij de wol info staat dat er 150 meters voor 50 gr ..... op het wol etiket staat dat er 130 meters zijn voor 50 gr een verschil van 20 meters per bol !!!

12.11.2016 - 14:50

DROPS Design answered:

Hoi Rita. Ja, het is genoeg. De looplengte van Air is in mei 2015 aangepast van 130 naar 150 m. Dit patroon is voor die tijd geschreven en nieuwere patronen zijn allemaal aangepast. Het is dus alleen als je een patroon neemt van na mei 2015 (en je nog oude bollen hebt dat je eventueel een extra bol kan kopen als voorzorg).

14.11.2016 - 14:59

country flag Sylvia wrote:

I bought 4balls of Air in Fog I am looking for a plain short cardigan how many balls do I need and do you have a pattern that is just knitted in a 4m and 5 needles

09.08.2016 - 23:56

DROPS Design answered:

Dear Sylvia, you will find here relevant informations about amount of yarn when using an alternative. Happy knitting!

10.08.2016 - 08:43