DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Take It Easy Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca í garðaprjóni með hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 158-2
DROPS Design: Mynstur nr z-678
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 2925, appelsínugulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 –fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 7-7-7-8-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ S: 2, 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm.
STÆRÐ M: 2, 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm.
STÆRÐ XL: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 51 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 120-124-128-132-136-140 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Stykkið er prjónað áfram í garðaprjóni. Setjið 8 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 12-13-14-15-16-17 l sl (= vinstra framstykki), setjið 1. prjónamerki, 5 l sl, setjið 2. prjónamerki, 20 l sl (= ermi), setjið 3. prjónamerki, 5 l sl, setjið 4. prjónamerki, 24-26-28-30-32-34 l sl (= bakstykki), setjið 5. prjónamerki, 5 l sl, setjið 6. prjónamerki, 20 l sl (= ermi), setjið 7. prjónamerki, 5 l sl, setjið 8. Prjónamerki, 12-13-14-15-16-17 l sl, endið á 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Aukið síðan út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, á undan 1.-3.-5. og 7. prjónamerki og 1 l á eftir 2.-4.-6. og 8. prjónamerki (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 20-22-23-24-26-28 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-3-2-2-2-1½ cm aukið út þannig: Aukið út 2 l jafnt yfir á hvoru framstykki (ATH: Aukið ekki út yfir kantlykkjur að framan), 1 l á hvorri ermi og 4 l jafnt yfir á bakstykki (= 10 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-3-2-2-2-1½ cm millibili 3-5-7-9-9-11 sinnum til viðbótar. Þegar útaukningu er lokið eru 328-368-400-432-452-492 l á prjóni. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-23-24 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 46-53-59-65-68-75 l sl, setjið næstu 66-72-76-80-84-90 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l, prjónið yfir næstu 92-106-118-130-136-150 l, setjið næstu 66-72-76-80-84-90 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l, prjónið 46-53-59-65-68-75 l sl, endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 216-244-268-296-308-336 l. Kanturinn að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 8-4-4-3-7-10 cm millibili 3-6-7-9-4-3 sinnum til viðbótar = 200-216-236-256-288-320 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-39-40 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 10 umf garðaprjón. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka þær 66-72-76-80-84-90 l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 3. Fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l = 76-82-86-92-96-102 l. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið úrtöku með 4-3-2½-2-2-1½ cm millibili 9-12-13-15-16-18 sinnum til viðbótar = 56-56-58-60-62-64 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þegar stykkið mælist 47-47-46-46-45-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Annamaria wrote:

Salve vorrei sapere se in 4cm di lavoro si possono fare gli aumenti ripetendoli ogni 4 ferri per 20 volte. Grazie...

29.11.2020 - 21:12

DROPS Design answered:

Buonasera Annamaria, deve lavorare gli aumenti in contemporanea. Buon lavoro!

29.11.2020 - 23:31

country flag Latricoteuse24 wrote:

Bonjour, Faut-il réaliser un steek pour ce modèle ?

11.09.2019 - 11:06

country flag Latricoteuse24 wrote:

Bonjour, Faut-il réaliser un steek pour ce modèle ?

11.09.2019 - 11:02

DROPS Design answered:

Bonjour Latricoteuse24, ce modèle se tricote sans mailles steek, on le tricote de haut en bas, en allers et retours; en commençant par le col, on augmente pour l'empiècement, on sépare les mailles des manches et on termine le bas du gilet et les manches séparément. Bon tricot!

11.09.2019 - 11:31

country flag Ruth Buttsworth wrote:

Hi I am doing the yoke on 'take it easy cardigan' got to point where I have increased & have 368 stitches (medium) & measuring 19cm. How do you then do the next part & end up with 244 stitches ? Also when you are doing this section do you take out the original markers? thanks

25.08.2019 - 13:46

DROPS Design answered:

Dear Ruth, in the next section you'll divide piece for back/front and sleeves as follows: Work 6 band sts in garter st, K 53 sts, slip 72 sts on a stitch holder for sleeve, cast on 10 new sts, work the next 106 sts, slip 72 sts on a stitch holder for sleeve, cast on 10 new sts under sleeve, K 53, finish with 6 band sts in garter st = 244 sts. You can remove all the markers and insert a marker in the middle of the 10 sts cast on for sleeves at each side. Happy knitting!

25.08.2019 - 15:37

country flag Francine wrote:

Bonjour,pour le point mousse,sur aiguilles doubles pointes c'est un tour endroit puis un tour envers.Pour les aiguilles circulaires c'est la même façon?Quand est-ce qu'on fait l'aller retours? Merci!

13.07.2017 - 23:17

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, quand on tricote du point mousse en allers et retours, on tricote toujours à l'endroit, que ce soit sur aiguilles droites ou circulaire comme ici pour le gilet. Quand on tricote du point mousse en rond, on alterne 1 tour endroit et 1 tour envers, sur aiguilles doubles pointes ou sur aiguille circulaire. Bon tricot!

14.07.2017 - 10:06

country flag Zuzana Kozáková wrote:

Hello. I don´t understand how to continue with splitting into sleeves, back an so on. How do I add 10 loops together? Thank you for your answer. Zuzana

07.04.2017 - 18:48

DROPS Design answered:

Dobrý den, Zuzano, kromě pravidelného přidávání před a za značkami, jak je rozepsáno v návodu, přidáte navíc ještě další oka pro rozšíření jednotlivých dílů - nad každým předním dílem přidáte po 2 okách, nad každým rukávem po 1 oku a nad zády 4 oka (celkem tedy přidáte v jedné řadě 10 ok + přidávání u značek jako předtím). Přidáváte nahozením v pravidelných rozestupech v rámci toho kterého dílu. Hodně zdaru! Hana

10.04.2017 - 11:43

country flag Nathalie wrote:

Malgré la taille L, le gilet est trop étroit. Je pense rajouter une bande en point mousse sur la bordure où il n'y a pas les boutonnières. Je voudrais l'accrocher directement mais avec les mailles dans le même sens horizontal. Comment faire ? Merci pour votre réponse

03.01.2016 - 17:15

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, pensez toujours à bien vérifier votre tension et les mesures du schéma en les comparant à un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme. Pour toute assistance personnalisée, votre magasin DROPS saura vous donner toutes les astuces et conseils, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

04.01.2016 - 09:37

country flag Mechthild wrote:

Hallo! Ich bin jetzt beim dritten Knopfloch und mir ist aufgefallen, dass die Knopflöcher, die ich nach der Anleitung gearbeitet habe, beim fertigen Modell, da die Jacke ja von oben nach unten gearbeitet wird, auf der linken Seite sein werden (abweichend vom Foto des Modells). Habe ich einen strukturellen Fehler gemacht oder ist das ein Fehler in der Anleitung? Viele Grüße und danke Mechthild

14.07.2015 - 18:30

DROPS Design answered:

Das rechte Vorderteil befindet sich am Ende der R (siehe Einteilung in der Anleitung), daher hätten Sie die Knopflöcher am Ende der R einarbeiten müssen. Man muss tatsächlich etwas aufpassen, damit einem dieser Fehler nicht unterläuft, es wird noch zur Verdeutlichung eine Ergänzung eingefügt.

20.07.2015 - 12:23

country flag Katherine Jacob wrote:

What should the gauge be for the garter stitch yoke? I'm using the correct yarn with 2.5 mm needles (for the garter stitch), but it's coming out too small. I tested the gauge for the stockinette stitch, but I don't know why it's wrong for the garter stitch.

10.07.2015 - 00:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jacob, if your gauge in stocking st was correct in height (32 rows = 10 cm) your garter st should be correct too. Check the measurments for your size with a similar garment you have and like the shape and adjust if necessary. Happy knitting!

28.07.2015 - 10:13

country flag Olga wrote:

Vielen Dank für die Antvort. Habe meine Fehler verstanden. Ich stricke Gr. M.

14.03.2015 - 20:25

DROPS Design answered:

Liebe Olga, in Ordnung. Wenn Sie die Zunahmen nun verstanden haben, haben Sie ja die in der Anleitung angegebene Kontrolle - nach 19 cm (nach allen Zunahmen) müssten Sie 368 M auf der Nadel haben - 23 x 8 Zunahmen in jeder 4. R und 6 x 10 Zunahmen alle 3 cm. Das macht also 244 zugenommene M plus Anschlag 124 M = 368 M.

16.03.2015 - 10:15