DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lazy Afternoon Jacket

Prjónuð peysa úr 2 þráðum úr DROPS Brushed Alpaca Silk með laskalínu og fölsku klukkuprjón, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL

DROPS 157-19
DROPS Design: Mynstur nr as-021
Garnflokkur C + C eða E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
200-225-250-275-300-325 gr litur nr 02, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR/HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni ela 11 l og 2 umf með fölsku klukkuprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.
DROPS PERLUTALA NR 522, 6-6-7-7-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

FALSKT KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið á 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2: * 1 lykkja slétt, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna frá fyrri umferð slétt saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-*
Endurtakið umferð 1 og 2.

LASKALÍNA:
Aukið er út hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Endurtakið alveg eins við hin prjónamerkin í umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið lykkjum á undan l með prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir l með prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ S: 1, 9, 17, 25, 33 og 41 cm.
STÆRÐ M: 1, 9, 17, 25, 33 og 41 cm.
STÆRÐ L: 1, 8, 15, 22, 29, 36 og 43 cm.
STÆRÐ XL: 1, 8, 15, 22, 29, 36 og 43 cm.
STÆRÐ XXL: 1, 8, 15, 22, 29, 36, 43 og 50 cm.
STÆRÐ XXXL: 1, 8, 15, 22, 29, 36, 43 og 50 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna / sokkaprjóna. Í lokin eru teknar upp lykkjur í kringum hálsmál og kantur er prjónaður í garðaprjóni.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 65-65-65-69-69-69 l með 2 þráðum með Brushed Alpaca Silk á hringprjóna nr 9. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-12-12-12 l jafnt yfir = 75-75-75-81-81-81 l. Prjónið nú frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 11-11-11-13-13-13 l FALSKT KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= vinstra framstykki), 1 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki hér, 9 l sléttprjón, setjið 2. prjónamerki hér, 1 l sléttprjón (= ermi), 21-21-21-23-23-23 l með fölsku klukkuprjóni (= bakstykki), 1 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki hér, 9 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki hér, 1 l sléttprjón (= ermi), 11-11-11-13-13-13 l falskt klukkuprjón, 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= hægra framstykki). Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið síðan áfram svona, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið þessa útaukningu í hverri umf frá réttu 5-7-10-13-18-22 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umf frá réttu 5-5-4-3-1-0 sinnum = 163-179-195-217-241-265 l. ATH: Nýjar útauknar lykkjur á fram- og bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í falskt klukkuprjón og nýjar útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl. Prjónið nú frá röngu: Prjónið fyrstu 27-29-31-35-38-41 l (= framstykki), setjið næstu 33-37-41-45-51-57 l á þráð (= ermi), fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 43-47-51-57-63-69 l (= bakstykki), setjið næstu 33-37-41-45-51-57 l á þráð (= ermi), fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 27-29-31-35-38-41 l (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 111-119-127-141-153-165 á fram- og bakstykki. Haldið nú áfram með falskt klukkuprjón eins og áður. Miðju af 7 nýju l undir hvorri ermi eru prjónaðar br, hinar l eru prjónaðar í fölsku klukkuprjóni.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá nýju l undir ermi. Nú eru prjónaðar 6 umf garðaprjón áður en fellt er laust af.

ERMI:
Setjið til baka þær 33-37-41-45-51-57 l á sokkaprjóna. Prjónið 1 umf sléttprjón yfir allar l. Fitjið síðan upp 7 l í lok umf = 40-44-48-52-58-64 l. Setjið prjónamerki í miðju af þeim nýju l undir ermi!
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið síðan ermi í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka fyrir ermi – lesið ÚRTAKA! Endurtakið sömu úrtöku með 5½-5-4-3½-2½-2½ cm millibili 6-7-9-10-13-15 sinnum til viðbótar = 26-28-28-30-30-32 l. Þegar stykkið mælist 41-41-41-40-40-40 cm prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN hringinn á sokkaprjóna – sjá skýringu að ofan. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Takið upp 1 l í hverja l í garðaprjóni í hálsmáli með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk = 65-65-65-69-69-69 l. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið laust af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.09.2018
Leiðrétting: KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið á 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2: * 1 lykkja slétt, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna frá fyrri umferð slétt saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* Endurtakið umferð 1 og 2.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Bailey wrote:

Hello! In the body section after casting on for underarms, it says “P in the middle of the new 7sts under each sleeve” - does this mean to purl one stitch, and use false English rib on the three stitches before and after? Or are more than one “middle” stitches meant to be purled?

23.02.2023 - 18:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bailey, only one stitch will be purled: the one in the middle of the new 7 stitches cast on mid under sleeve. The remaining stitches on each side of this one will be worked in English rib as the other ones. Happy knitting!

24.02.2023 - 10:00

country flag Ann wrote:

Är det de udda varven (1, 3, 5 osv.) eller de jämna varven (2,4, 6 osv.) som utgör rätsida på oket? Med vänlig hälsning Ann

25.11.2022 - 13:40

DROPS Design answered:

Hej Ann, du strikker 1.pind i falsk patent fra retsiden. Men du vælger naturligvis den side du synes er pænest :)

30.11.2022 - 14:00

country flag Ann wrote:

Är det de udda varven (1, 3, 5 osv.) eller de jämna varven (2,4, 6 osv.) som utgör rätsida på oket? Med vänlig hälsning Ann

24.11.2022 - 15:22

DROPS Design answered:

Hei Ann. Etter at du har lagt opp og strikket 2 pinner retstrikk, starter du fra retten med patentstrikk. Så da blir 1. pinne retstrik og 1. pinne med patentstrikk fra retten (1,3.5 osv). mvh DROPS Design

28.11.2022 - 13:39

country flag Ann wrote:

Är det första varvet som man stickar rätsida eller avig sida ? Jag trodde att det första varvet alltid brukade vara avigsidan och att den räta sidan är på varv nr, 2, 4 , 6 o.s.v. I det här mönstret verkar det dock som om varv 1, 3, 5 o.s.v. är rätsidan för det står att man ska börja med patent på varv 3 och patenten börjar med ett varv på rätsidan. Är det korrekt uppfattat att de udda varven (dvs 1, 3, 5 osv) är på rätsidan i det här mönstret? / Ann

16.11.2022 - 19:06

country flag Ann wrote:

Hej. På det tredje varvet står det att man ska börja med falsk patent och att det då är rätsidan man börjar med den falska patenten på. Dock är ju varv nummer tre ett varv på avigsidan eftersom varv nummer ett efter uppläggning alltid är på avigsidan. Om man vill börja med falsk patent på rätsidan behöver man ju starta på varv nummer två eller varv nummer fyra. Ska man använda det som vanligtvis brukar betraktas som avigsida, dvs udda varv, som rätsida i det här mönstret?

29.10.2022 - 10:01

country flag Sue Phillips wrote:

Hi again, After the first increase row there are not enough stitches in the following row to make a full repeat of the false english rib pattern, I have tried purling the additional sts on the wrong side and knitting them on the right side until there are enough to do a full repeat of the pattern but it doesn't look right. What should I be doing with these stitches?

26.11.2020 - 00:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Phillips, work the new stitches in false english rib pattern depending on how the next stitch/the previous stitch has to be worked; if the next stitch should be worked (P tog yarn over and slipped st) you have to knit the new stitch, if the next stitch should be knitted, you should slip the new stitch and make a yarn over. And continue to work the sts as before, so that the stitchches worked (slip 1, yo) then (Ptog slipped st and YO) should be still lined up. Happy knitting!

26.11.2020 - 10:22

country flag Sue wrote:

Hi, for the raglan increases, the pattern says, repeat increases in every row 5 times from RS then every other row 5 times from RS. I'm confused about increasing in every row as this would mean increasing in the right and wrong size

23.11.2020 - 22:35

DROPS Design answered:

Hi Sue, repeat increases in every row from RS means every other row (every 2 rows) and repeat increases every other row from RS means every 4 rows. In any case stitches are increased on the RS. Happy knitting!

24.11.2020 - 09:23

country flag Eva wrote:

Hei. Strikker str XXL og der skal det økes for raglan hver pinne 18 ggr og annen hver pinne 1 gang. Når jeg har gjort det skal arbeide måle 26 cm fra skulderen. Skal dette måles på forstykket eller på ermet. Mitt forstykke er kun 20 cm, men ermedelen (glattstrikk) er 26 ca. Ellers lurer jeg på hvordan man måler strikkefasthet i høyden på denne patenten.

07.08.2020 - 20:41

DROPS Design answered:

Hej Eva, da skal du måle fra skulderen og ned. Du kan prøve den på, eller lægge den på en anden trøje med raglan som du ved passer, så du er sikker på at den bliver stor nok :)

19.08.2020 - 11:48

country flag Eva wrote:

Ser nå at autokorrekturen gjorde forrige spørsmål litt vanskelig å forstå. Prøver igjen. Jeg kan ikke forstå hvordan 1. pinne med patent kan være rettpinne, for da må jo høyre forstykke være det første jeg strikker på pinnen og venstre til slutt. Ikke slik som det står i oppskriften hvor man skal ha venstre først og så høyre til slutt på pinnen. Jeg misforstår sikkert. Og, er det patenten under rettelser man skal bruke? Er da 1. eller 2. pinne rettpinnen? Mvh Eva

24.04.2020 - 10:24

DROPS Design answered:

Hej Eva, når du strikker ovenfra og ned, starter du midt foran, strikker fra retsiden over venstre forstykke (når man har jakken på), venstre ærme, rygstykke, højre ærme og sidst højre forstykke. Vend og strik den anden vej fra vrangen. God fornøjelse!

28.04.2020 - 15:28

country flag Eva wrote:

Hei. Jeg kan ikke forstå at 1. pinne med patentstrikk skal være resten, for da får jeg det ikke til å stemme med at jeg først strikker venstre forstykket på den rymunden og høyre til slutt. I mitt hode blir det motsatt. Takk for svar.

24.04.2020 - 00:29