DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miss Moneypenny

Heklað pils úr DROPS Merino Extra Fine með spíralmynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 156-6
DROPS Design: Mynstur nr me-072
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 28, norðursjór

DROPS HEKLUNÁL nr 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 fl og 18 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skip út fyrir 1 ll. Umferðin endar á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið er út með því að hekla 2 fl í 1 fl. ATH: Aukið er út í annað hvert skipti á undan og á eftir prjónamerki.

SPÍRALMYNSTUR:
* 1 fl aftan í lykkjubogann í hverja og eina af næstu 7 l, 1 st framan í lykkjubogann á l frá 2 umf að neðan og næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Mynstrið nær yfir 8 l og lykkjufjöldinn er deilanlegur með 8 + 1. Það er síðan hekla í hring án þess að ljúka umf, með þessu þá kemur mynstrið til með að færast sjálfkrafa til um 1 l í hverri umf og myndar spíralmynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrst fram og til baka, áður en það er tengt saman og heklað í hring.

PILS:
Heklið 136-151-168-194-215-236 lausar ll með Merino Extra Fine með heklunál nr 4. Fyrsta umf (= rétta) er hekluð þannig: 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af næstu 1-2-5-3-3-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 6 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 116-129-144-166-184-202 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið nú 6 umf með 1 fl í hverja fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir 11-12-12-16-15-19 l, síðan á að vera 19-21-24-27-30-33 l á milli prjónamerkja, það eiga að vera 10-12-12-15-15-18 l á eftir síðasta prjónamerki í lok umf. Í næstu umf er aukið út um 1 fl á undan öllum prjónamerkjum – SJÁ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 7 sinnum til viðbótar = 164-177-192-214-232-250 fl. Í næstu umf frá réttu er hekluð út umf áður en stykkið er sett saman með 1 kl í 1. fl frá byrjun umf. Stykkið mælist nú 14 cm og síðan er heklað í hring. Í næstu umf er aukið út um 5-8-9-3-9-7 fl jafnt yfir = 169-185-201-217-241-257 fl. Heklið nú SPÍRALMYNSTUR – sjá skýringu að ofan. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist alls 48-50-52-54-56-58 cm. Klippið frá og festið enda.

HNESLA / LYKKJA:
Meðfram vinstri hlið á opi efst eru heklaðar hneslur (byrjið neðst niðri) frá röngu þannig: 1 fl í hvora af fyrstu 2 l, 3 ll, hoppið yfir 1 cm, * heklið fl í 2 cm, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, endið á 2 fl efst, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram annarri hlið á opi (þ.e.a.s. í hægri hlið) eru heklaðar 5 umf með sl fram og til baka, klippið frá. Saumið tölur í kantinn.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Sigrid Pettersson wrote:

Jag förstår inte ökningstipsen på detta mönster. Ska det va 1 ökn, 1 fm o 1 ökn före o efter markören?? Alltså 1fm i maskan där markören sitter? Och hur kan det va 14cm när ökn är klara när efter 5 ökn bara blir 8cm???

19.07.2023 - 09:29

DROPS Design answered:

Hei Sigrid. Det økes ved å hekle 2 fastmasker i 1 fastmaske. Første gang / 1.rad det økes hekles det 2 fastmasker i masken før merke (merket sitter mellom 2 masker), øk slik ved alle merkene raden ut. Snu og hekle raden tilbake uten økninger. På neste rad / 3. rad skal det økes igjen og denne gangen skal det hekles 2 fastmasker i masken etter merket, øk slik raden ut. Neste gang det skal økes / 5. rad økes det i masken foran merke og neste gang deretter / 7. rad økes det i masken etter merket osv. Du hekler 8 rader før du begynner å øke, så hekles det 16 rader med økninger = ca 14 cm. mvh DROPS Design

26.07.2023 - 11:44

country flag Luisa wrote:

Hallo! Leider ist mir der Rock um den Bauch zu locker geworden. Was kann ich im Nachhinein machen? Wie nähe ich da Zb einen Gummizug ein? Gibt es andere Möglichkeiten?Liebe Grüsse

04.11.2022 - 06:49

country flag Eva wrote:

Jeg er færdig med nederdelen som er blevet rigtig fin. Syntes dog den virker løs og at vægten trækker den ned. Har I en ide til hvordan man kan "stramme" bærestykket?

18.04.2022 - 11:52

DROPS Design answered:

Hei Eva. Du kan evnt prøve å hekle en luftmaskerad fast på innsiden øverst på skjørtet / evnt lengre ned , der du hekler litt færre luftmasker enn hva det er fastmasker, slik at det strammer litt. Men pass på at det ikke strammer for mye slik at det bølge seg. mvh DROPS Design

19.04.2022 - 14:03

country flag Claudia wrote:

I am adapting this pattern for a thicker yarn so I need to reduce the number of stitches per row. In this pattern I do not understand why, at the beginning, after the first row of chains one needs to "* skip 1 ch, 1 dc in each of the next 6 ch *, repeat from *-*". What is the reason for letting one chain out every 7 chains? Thank you so much!

04.02.2021 - 23:36

DROPS Design answered:

Dear Claudia, most of the time when you crochet the foundation chain, it's too tight, to avoid this, you cast on more chains at the beginning and skip evenly chains on very first row. If your chains are wide enough, you can just start with the number of double crochets required on first round (= 116 to 202 sts depending on the size). Happy crocheting!

05.02.2021 - 08:41

country flag Elodie wrote:

Bonjour, J'ai fini de faire les 7 augmentations tous les 2 rangs. Mais je n'arrive pas à 14 cm de hauteur. Cela fait 8 cm. Avant de fermer je peux continuer sans augmenter jusqu'à obtenir 14 cm? Merci de votre aide

19.06.2020 - 12:15

DROPS Design answered:

Bonjour Élodie, continuez effectivement jusqu'à 14 cm pour que la jupe soit plus simple à enfiler. Bonne continuation!

19.06.2020 - 13:27

country flag Aurélie wrote:

Est ce que il faut garder les 6 marqueurs pour faire le point fantaisie spirale??

02.03.2020 - 02:42

DROPS Design answered:

Bonjour Aurélie, on peut retirer les marqueurs des augmentations quand on crochète le point spirale, on ne va plus les utiliser (gardez celui du début du rang si besoin). Bon crochet!

02.03.2020 - 10:58

country flag Lily wrote:

Hello, I’d like to make sure I’m not missing any rows at the top. When you say the piece measures 14cm; that’s after 23 rows. Given the gauge of 18 rows for 10cm, that’s a couple of centimetres short, isn’t it? Did I miss 2 rows before joining in the round that would make it 14cm? Thank you in advance for clarifying.

02.02.2020 - 22:56

DROPS Design answered:

Dear Lily, the 14 cm are measured from cast on edge (= from the fundation chain) and are for the waist band (where you will crochet later buttonbands on). You increase evenly on first round and now continue in spiral pattern in the round. Happy crocheting!

03.02.2020 - 10:32

country flag Montserrat wrote:

No entiendo esta parts del patron, me lo podeis explicar. Muchas gracias 1 p.b. en cada uno de los sig 1-2-5-3-3-3 p.de cad, *saltar 1 p.de cad, 1 p.b. en cada uno de los sig 6 p.de cad*, repetir de * a * el resto de la fila = 116-129-144-166-184-202 p.b.

17.01.2020 - 10:41

DROPS Design answered:

Hola Montserrat. Entiendo que tienes dificultades en la siguiente parte:... 1 p.b. en cada uno de los sig 1-2-5-3-3-3 p.de cad,...Los patrones de Drops están preparados para varias tallas, por lo que incluye en el texto los puntos para cada una de las tallas. Es decir, 1 p.b. en cada uno de los sig 1 (talla S)-2 (talla M)-5 (L)-3(XL)-3(XXL)-3 (XXXL) p.de cad, Tienes que trabajar según tu talla.

26.01.2020 - 23:19

country flag Karin wrote:

De eerste meerdering om de 24 steken snap ik. blijf je in volgende toer waar je moet meerderen ook weer parkeerders zetten om de 24 of hoeveel moet je hierbij optellen? is 1 steek genoeg? alvast bedankt!

17.08.2019 - 00:21

DROPS Design answered:

Dag Karin,

Als je eenmaal de markeerders hebt geplaatst neem je ze mee in de hoogte, steeds tussen dezelfde steken. Je hoeft dit niet opnieuw uit te tellen. Door het meerderen komen er meer steken tussen de markeerders.

16.10.2019 - 10:29

country flag Mary wrote:

Hi. After the second round do you connect the two ends together? If not, where do you put the slip stitch mentioned in the crochet info? Also, when you put the markers, do you move them to the new round after the increases?

25.01.2019 - 13:01

DROPS Design answered:

Dear Mary, the skirt is worked top down back and forth until piece measures 14 cm, then on next row from RS finish this row with 1 sl st in the ch from beg of row, you will now work in the round, turn piece, start next round with 1 ch, work all round and finish with 1 sl st in 1st ch from beg of round, continue like this working alternately from RS and from WS until you start spiral pattern. At the beg of spiral pattern, work 1 ch at the beg of round, finish round with 1 sl st in the 1 ch from beg of round and continue from RS. Happy crocheting!

25.01.2019 - 14:10