DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Virginia

Prjónuð peysa úr DROPS Snow með stroffi og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-29
DROPS Design: Mynstur nr ee-504
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
700-750-800-900-1000-1050 gr litur nr 53, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út hvoru megin við hvert A.1 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Endurtakið alveg eins í hinni hliðinni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og 1 l: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring fram og til baka ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 52-52-56-56-56-56 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið nú stroff frá miðju að aftan þannig: 1 l sl, * 2 l br, * 2 l sl *, endurtakið frá *-*þar til 1 l er eftir. Þegar prjónaðir hafa verið 3 cm stroff er prjónuð 1 umf í sléttprjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-8-8-10-10 l jafnt yfir = 62-62-64-64-66-66 l. Prjónið nú mynstur þannig: 5-5-5-5-6-6 l sléttprjón (= bakstykki), A.1, 3 l sléttprjón (= ermi), A.1, 10-10-11-11-12-12 l sléttprjón (= framstykki), A.1, 3 l sléttprjón (= ermi), A.1, 5-5-6-6-6-6 l sléttprjón (= bakstykki). Nú er 1 mynstureining í A.1 í hverri laskalínu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Endurtakið útaukningu í hverri umf 0-2-5-8-10-12 sinnum, í annarri hverri umf 4-4-3-4-4-8 sinnum og í 4. hverri umf 5-5-5-4-4-2 sinnum.
ERMI:
Endurtakið útaukningu í hverri umf 6-6-7-7-10-11 sinnum, í annarri hverri umf 3-4-4-5-4-4 sinnum og í 4. hverri umf 4 sinnum í öllum stærðum.

Þegar útaukningu er lokið og stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm eru alls 150-162-176-192-210-230 l á prjóni. Haldið nú áfram í sléttprjóni þannig: Prjónið fyrstu 18-20-23-26-28-32 l, setjið næstu 39-41-43-45-49-51 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, prjónið næstu 36-40-45-51-56-64 l, setjið næstu 39-41-43-45-49-51 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa l, prjónið 18-20-23-26-28-32 l sem eftir eru. Nýjar lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 88-96-106-118-128-144 l fyrir fram- og bakstykki. Haldið nú áfram í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm frá nýju l undir ermum byrjar útaukning hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 5½-4½-5-5-6½-7 cm millibili 3-4-4-4-3-3 sinnum til viðbótar = 104-116-126-138-144-160 l. Þegar stykkið mælist alls 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl, aukið út um 0-0-2-2-0-0 l = 104-116-128-140-144-160 l. Prjónið nú stroff frá miðju að aftan þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 l sl. Haldið áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna. Prjónið sléttprjón yfir allar l og fitjið upp 8 l í lok umf = 47-49-51-53-57-59 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið nú áfram hringinn í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 41-43-45-47-51-53 l. Fækkið nú lykkjum með 4-3½-4-3½-3-3 cm millibili 9-10-9-10-12-11 sinnum = 23-23-27-27-27-31 l. Þegar ermin mælist 42-42-41-41-41-41 cm aukið út um 1 l í öllum stærðum = 24-24-28-28-28-32 l. Haldið síðan áfram með stroff þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 l sl. Haldið áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag Mari Berge Lofthus wrote:

Hi! I'm contemplating knitting this sweater, but I have not been able to find any information about how many bundles of yarn I would need for a size L. I assume you can help with this. This is also my first time trying to knit from a written pattern. Is this sweater so easy to knit that it would be a good first project for a complete beginner in reading patterns? Have a wonderful day!

10.11.2023 - 10:51

country flag Anna wrote:

Dear Drops Design! I love the pattern, but I've got stuck with the raglan increases. Where should I place the markers? For the first increase in case of the body part of the raglan (size S), I knit 4sts (mid back) then make a YO, knit 1st, pass the marker, knit another st, and make a YO, but it means I ended up in pattern A.1, and there the first st is supposed to be a purl st not a knit st. Could you, please, help me with this? Thank You!

12.11.2020 - 22:44

DROPS Design answered:

Dear Anna, we do not place markers for the raglan in this pattern, but if you want to add some, add them before and after each A.1, so that you will have in S: 5 sts, marker, A.1, marker, 3 sts (sleeve), marker, A.1, marker, 10 sts (front), marker, A.1, marker, 3 sts (sleeve), marker, A.1, marker, 5 sts (back piece). You then increase before the marker/A.1 to increase at the end of back/front/sleeves and after A.1/marker at the end of back/front/sleeves. You will either increase 4 sts (sleeves only when inc every round) or 8 sts (body and sleeves). Happy knitting!

13.11.2020 - 08:23

country flag Lauurence wrote:

Bonjour je ne comprends pas quand je dois faire les augmentations des manches et du dos et du devant . ou dois je mettre les marqueurs? pour les manches , il me semble que je dois faire une augmentation après A1 puis une avant A1 , et cela 2 fois ce qui fait bien 4 mailles en plus . mais pour le dos et le devant ou placer le marqueur? est ce que je dois augmenter a mi dos et mi devant ? ( 2 mailles et 2 mailles soit 4 mailles ) merci d avance

02.11.2020 - 11:07

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, désolée pour la réponse tardive, vous augmentez pour le dos et le devant à un rythme différent des augmentations pour les manches, autrement dit, en fonction de la taille vous augmenterez soit 8 mailles (= dos et devant) soit 4 mailles (manches seulement par exemple quand on augmente tous les tours alors que l'on augmente tous les 2 tours pour le dos et le devant). Bon tricot!

26.04.2021 - 13:35

country flag Laurence wrote:

Bonjour je fais ce pull En XL , pour l’augmentation des manches je dois faire un jeté de chaque côté de chaque motif A1 , donc 2 jetés x 4 motifs = 8 augmentations ? si le compte est bon il est impossible d avoir 192 mailles à la fin des augmentation car 64 mailles + 16x 4 + 16x 8 = 256 et non 192 ?? merci de m expliquer ou est l erreur , cordialement

02.11.2020 - 01:03

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, vous augmentez pour le dos et le devant en XL: (8+4+4) fois 4 m = 64 m au total et pour les manches: (7+5+4) fois 4 m = 64 m; vous aviez 64 m + 64+64= 192 m. Bon tricot!

02.11.2020 - 09:31

country flag Anja wrote:

Offen gestanden ist mir nicht klar, warum die Drops-Pullover immer so designt sind, als müsste Frau aussehen wie Popeye nach einer Überdosis Spinat. Ernsthaft: 38 cm Oberarmumfang bei Gr. S? In den Projekten, die ich dazu gesehen habe, haben alle Frauen entweder den Armausschnitt verkleinert oder waren am Ende sehr unzufrieden damit. Ich muss das auch jedesmal anpassen.

10.08.2020 - 14:45

country flag Eve wrote:

Bonjour, j'ai enfin compris le diagramme c est que le 1er rang est sur l envers, mais par contre je galère avec les augmentations, est ce que quand vous mettez augmentez 6x c est 6x 1m ou 6m et est ce que les augmentations des 4ème rangs s ajoutent aux augmentations des 2ème rangs ou les remplacent ? Pour les augmentations dos et devant dois-je les repartir entre le milieu et les deux bouts du travail ? MERCI

03.05.2020 - 15:15

DROPS Design answered:

Bonjour Eve, ce modèle se tricote en rond, pas en allers et retours - cf description du diagramme en rond ci-dessous. Vous augmentez différemment en fonction de la taille sur le dos/devant et sur les manches = vous augmentez en même temps soit 4 mailles seulement (manches ou dos/devant uniquement ) soit 8 mailles (manches + dos/devant). En taille S vous commencez par 6 fois tous les tours et 4 fois tous les 2 tours (= 1er tour = 8 augmentations, 2ème tour = 4 seulement). Bon tricot!

04.05.2020 - 12:48

country flag Eve wrote:

Bonjour il n'y à pas un problème avec A1 ? Ça ne me fait pas le même dessin que sur le modèle 😓

30.04.2020 - 22:36

DROPS Design answered:

Bonjour Eve, lisez-vous bien le diagramme? A.1 se tricote en rond et se répète sur 2 rangs et 9 mailles ainsi: Tour 1: 1 m env, (1 m end, 1 m env) x 3, 1 m end, 1 m env. Tour 2: 1 m env, 7 m end, 1 m env. Vous obtenez ainsi des côtes 1 m jersey endroit/ 1 m point mousse entre les 2 m envers. Bon tricot!

04.05.2020 - 09:49

country flag Anna wrote:

Buongiorno purtroppo non riesco a capire gli aumenti per il davanti e il dietro. Se seguo le vostre indicazioni : fare un gettato prima del segno due maglie rasata è un gettato vado a prendere le maglie del diagramma 1. Cosa devo fare. Grazie mille

31.12.2019 - 15:17

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna, se fa riferimento agli aumenti sul corpo dopo la divisione del lavoro per le maniche, il diagramma A.1 non viene più lavorato: il lavoro prosegue a maglia rasata, come indicato all'inizio del paragrafo. Buon lavoro!

03.01.2020 - 12:19

country flag Ludmilla wrote:

Ang. Ärmminskn: Eller så kanske ni menar att man stickar 2 rm ihop, stickar 1 rm, överför markör, 1 rm, öhpt? I så fall har jag gjort fel, men orkar inte repa upp ärmen. Vad är fördelen med att ha 2 m mellan minskningarna? Ser det bättre ut?

22.01.2019 - 00:25

DROPS Design answered:

Hei Ludmilla. Om man har 2 masker mellom fellingen blir det mindre synlig enn om man gjør 2 fellinger rett ved siden av hverandre. Det har ikke så mye å si akkurat her, denne fellingen skjer under armen og kommer ikke til å være særlig synlig når genseren er i bruk uansett. Så lenge du har felt 1 maske på hver side av merket, og maskeantallet ditt stemmer så går dette helt fint. God fornøyelse

29.01.2019 - 08:32

country flag Ludmilla wrote:

Blir konfunderad av beskrivningen för ärmminskningen. Tycker det borde stå att man stickar 2 m ihop före markören och en öhpt efter markören. Man kan ju inte sticka 2m ihop om man gör det när det är 1 rm före markören

22.01.2019 - 00:18